Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
15. janúar 2014 /
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
Heilbrigðisráðuneytið
Óli Björn Kárason ráðinn tímabundið aðstoðarmaður heilbrigðisráðherra

Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra hefur ráðið Óla Björn Kárason tímabundið sem aðstoðarmann sinn í fjarveru Ingu Hrefnu Sveinbjarnardóttur.
Óli Björn er hagfræðingur að mennt og hefur fyrst og fremst starfað við blaðamennsku og ritstörf. Hann er kvæntur Margréti Sveinsdóttur og eiga þau þrjú börn.