Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
25. febrúar 2014 /
Atvinnuvegaráðuneytið

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið auglýsir eftir styrkumsóknum

Ráðuneytið hefur auglýst eftir umsóknum um styrki af fjárlagalið ráðuneytisins 04-190-1.94 - Ýmis verkefni. Á þessum fjárlagalið er um 111 m.kr. fjárheimild í fjárlögum 2014.

Framlögum þessum er einkum ætlað að styðja við uppbyggingu á starfsemi og verkefnum fyrirtækja og samtaka, ekki síst við upphaf þeirra, sem og að stuðla að uppbyggingu og eflingu atvinnulífs, nýsköpunar og atvinnuþróunar á landsbyggðinni.


Var efnið hjálplegt?