Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
12. ágúst 2014 /
Mennta- og barnamálaráðuneytið
Chevening námsstyrkir
Breska sendiráðið vekur athygli að hægt er að sækja um Chevening námsstyrk til 15. nóvember nk.
Hægt er að sækja um styrki frá bresku ríkisstjórninni til mastersnáms í breskum háskólum sem geta numið allt að 10.000 GBP vegna náms sem hefst haustið 2015.
Umsóknarfrestur er til 15. nóvember 2014. Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar eru á heimasíðu verkefnisins www.chevening.org/iceland