Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
21. nóvember 2014 /
Mennta- og barnamálaráðuneytið
Nýr formaður þjóðleikhúsráðs
Mennta- og
menningarmálaráðherra hefur skipað Magnús Ragnarsson formann þjóðleikhúsráðs
Mennta- og menningarmálaráðherra hefur skipað Magnús Ragnarsson formann þjóðleikhúsráðs, sbr. ákvæði 7. gr. leiklistarlaga nr. 138/1998.
Skipun gildir til 14. september 2015, þó með þeim fyrirvara sem settur er um embættistíma ráðherra í fyrrnefndri lagagrein, þar sem kveðið er á um að ráðið skuli skipað til fjögurra ára í senn, þó þannig að starfstími þeirra fulltrúa sem skipaðir eru án tilnefningar takmarkast við embættistíma ráðherrans sitji hann skemur.