Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
10. ágúst 2015 /
Forsætisráðuneytið
30 ár liðin frá stofnun Vestnorræna ráðsins

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra, heldur í dag til Færeyja í tilefni af því að 30 ár eru liðin frá stofnun Vestnorræna ráðsins. Ráðherrann mun taka þátt í hátíðardagskrá í tilefni af afmæli ráðsins og halda þar erindi um gildi vestnorrænnar samvinnu á norðurslóðum.