Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
11. desember 2015 /
Forsætisráðuneytið
Jólastyrkur til góðgerðarsamtaka
Ríkisstjórnin samþykkti í morgun, að tillögu forsætisráðherra, að veita samtals 9. milljónir kr. styrk í tilefni jóla til tíu góðgerðasamtaka sem starfa hér á landi en þau eru Mæðrastyrksnefnd Akureyrar, Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar, Mæðrastyrksnefnd Kópavogs, Mæðrastyrksnefnd Vesturlands og Hjálpræðisherinn á Íslandi sem fá 800.000 krónur hver og Hjálparstarf kirkjunnar, Samhjálp-félagasamtök, Rauði kross Íslands, Fjölskylduhjálp Íslands og Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur fái1 milljónir kr. hver.