Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
16. janúar 2016 /
Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Fitch staðfestir lánshæfismat ríkissjóðs: Horfur stöðugar

Alþjóðlega matsfyrirtækið Fitch Ratings hefur staðfest lánshæfismat ríkissjóðs fyrir langtímaskuldbindingar í erlendri mynt sem BBB+ og fyrir langtímaskuldbindingar í innlendri mynt sem A-. Lánshæfismatið fyrir skammtímaskuldbindingar í erlendri mynt er óbreytt sem F2 og fyrir landseinkunnina (e. Country Ceiling) sem BBB+. Horfur fyrir lánshæfismat á langtímaskuldbindingum eru stöðugar.

Var efnið hjálplegt?