Ný framtíðarsýn um starfsþróunkennara og skólastjórnenda
Fagráð um símenntun og starfsþróun kennara hefur afhent mennta- og menningarmálaráðherra lokaskýrslu um störf sín ásamt tillögum um næstu skref
Í skýrslunni kemur fram ný framtíðarsýn um starfsþróun kennara og skólastjórnenda og lögð áhersla á kennaramenntun sem starfsævilanga menntun. Skilgreina þarf fjármagn og aðgengilegt og skilvirkt stoðkerfi um þessa mikilvægu starfsemi. Lagt er til að ráðherra skipi samstarfsráð um starfsþróun kennara og skólastjórnenda sem fylgir eftir tillögum fagráðsins.
Skýrsluna og fylgirit hennar má finna á vef fagráðsins. Þar eru einnig nánari
upplýsingar um fagráðið og störf þess.
Fagráðið skipuðu fulltrúar kennara og skólastjórnenda, háskóla, sveitarfélaga og ráðuneytisins.