Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
6. júlí 2016 /
Mennta- og barnamálaráðuneytið
Nýr skólameistari Menntaskólans á Egilsstöðum
Mennta- og menningarmálaráðherra hefur skipað Árna Ólason skólameistara Menntaskólans á Egilsstöðum til fimm ára, frá 1. ágúst 2016.
Árni hefur kennsluréttindi frá íþróttakennaraskóla Íslands og Cand Mag í heilsufræði og lífeðlisfræði frá Idrerhögskole NHI í Noregi. Hann hefur gegnt stöðu íþróttakennara og kennslustjóra á íþróttabraut um árabil við Menntaskólann á Egilsstöðum.