Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
17. mars 2017 /
Heilbrigðisráðuneytið
Verklag við lyfjaeftirlit og góðar ávísanavenjur

Lyfjateymi Embættis landlæknis hefur birt stutta lýsingu á því verklagi sem viðhaft er við eftirlit með ávísunum lækna á tiltekna lyfjaflokka. Einnig hafa verið birtar leiðbeiningar fyrir lækna um góða starfshætti við lyfjaávísanir. Með þessu vill embættið stuðla að skynsamlegri lyfjanotkun. Frá þessu er greint í tilkynningu á vef embættisins.