27. ágúst 2026 /
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

Mál nr. 516/2026-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 516/2026

Fimmtudaginn 27. ágúst 2026

A gegn Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur.

Með kæru, dags. 23. júlí 2026, kærði B, f.h. A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 1. apríl 2026, um að synja umsókn hennar um greiðslur í sorgarleyfi.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um greiðslur í sorgarleyfi hjá Vinnumálastofnun vegna barnsmissis. Með bréfi, dags. 1. apríl 2026, var kæranda tilkynnt að umsókn hennar hefði verið synjað þar sem hún uppfyllti ekki skilyrði laga nr. 77/2022 um sorgarleyfi um þátttöku á innlendum vinnumarkaði.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 23. júlí 2026. Með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 10. ágúst 2026, var kæranda tilkynnt að kæra hefði borist að liðnum kærufresti og henni gefinn kostur á að koma að athugasemdum og/eða gögnum, teldi hún að skilyrði sem fram kæmu í 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 gætu átt við í málinu. Svar barst frá kæranda 17. ágúst 2026.

II.  Sjónarmið kæranda

Í svari kæranda vegna bréfs úrskurðarnefndar velferðarmála frá 10. ágúst 2026 er þess farið á leit við nefndina að hún nýti heimild sína til að taka kæruna til efnislegrar meðferðar þar sem sýnt þyki fram á að skilyrði bæði 1. og 2. töluliðar 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga séu uppfyllt í þessu sérstaka og hörmulega máli.

Í fyrsta lagi sé talið að það sé afsakanlegt að kæran hafi ekki borist fyrr, sbr. 1. tölul. 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga. Töfin á innsendingu kærunnar eigi sér fyllilega afsakanlegar og skiljanlegar skýringar sem rekja megi til algjörs andlegs og líkamlegs vanmáttar kæranda. Kærandi hafi orðið fyrir alvarlegu áfalli og sorg vegna skyndilegs barnsmissis. Í kjölfar þess hrikalega áfalls hafi kærandi verið algjörlega andlega og líkamlega óvinnufær. Hún hafi því hvorki haft burði né getu til að sinna stjórnsýsluerindum eða gæta hagsmuna sinna á nokkurn hátt. Læknisvottorð því til staðfestingar verði lagt fram verði eftir því leitað. Vegna algjörs vanmáttar kæranda hafi umboðsmaður hennar og móðir þurft að taka algjörlega við umsóknarferlinu og sækja um sorgarleyfið fyrir hennar hönd, auk þess að kalla eftir skýringum og mati Vinnumálastofnunar í kjölfarið. Allt ferlið hafi því hvílt á herðum umboðsmanns kæranda sem samhliða hafi staðið í djúpri fjölskyldusorg og stuðningi við dóttur sína. Formlegt svar og endanlegt mat Vinnumálastofnunar hafi borist með tölvupósti þann 21. apríl 2026. Lögboðinn kærufrestur hafi runnið út 1. júlí 2026 en kæran borist nefndinni 23. júlí 2026. Um sé að ræða rúmlega þriggja vikna drátt. Í ljósi þeirra hörmulegu andlegu og líkamlegu aðstæðna sem fjölskyldan hafi mátt þola verði að teljast fullkomlega afsakanlegt að innsending kærunnar hafi dregist um þennan skamma tíma.

Í öðru tali sé talið að veigamiklar ástæður mæli með því að kæran verði tekin til meðferðar, sbr. 2. tölul. 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga. Mál þetta varði verulega ríka og óafturkallanlega hagsmuni fyrir kæranda, bæði fjárhagslega og mannlega. Höfnun Vinnumálastofnunar gangi þvert gegn markmiðum laga nr. 77/2022 um sorgarleyfi sem séu, eins og fram komi í 2. gr. þeirra: „að tryggja foreldrum svigrúm til sorgarúrvinnslu í kjölfar barnsmissis og eftir atvikum til að styðja við eftirlifandi systkin við að aðlagast breyttum aðstæðum. Þá er lögunum ætlað að auka líkur á að foreldrar geti átt farsæla endurkomu á vinnumarkað og geti tekið virkan þátt í samfélaginu að nýju í kjölfar barnsmissis“. Auk þess þyki rétt að benda á það sem fram komi í greinargerð um að með því að tryggja foreldrum svigrúm til sorgarúrvinnslu í kjölfar barnsmissis megi auka líkur á að viðkomandi eigi farsæla endurkomu á vinnumarkað.

Tekið er fram að kærandi ásamt eiginmanni sínum hafi verið í því ferli að koma aftur undir sig fótunum á Íslandi eftir námsdvöl í C við andlát barns þeirra. Fjölskyldan hafi nýlega fest kaup á íbúð miðað við áætlaðar vinnutekjur. Höfnun á sorgarleyfi skilji þau eftir í algjöru tekjuleysi á sama tíma og fjölskyldan gangi í gegnum dýpstu sorg. Tekjumissirinn bætist ofan á lamandi áfall foreldra og eftirlifandi eldri bróður. Höfnunin stríði þannig gegn sjálfum tilgangi laga um sorgarleyfi, sem eigi að tryggja framfærslu foreldra í þessari stöðu og gefa þeim þannig tíma til að vinna úr eigin sorg og vera til staðar fyrir eftirlifandi systkini.

Málið lúti að lögfræðilegu álitamáli um það hvernig meta skuli þátttöku kæranda á vinnumarkaði við flutning heim til Íslands eftir nám og fæðingarorlof erlendis. Kærandi hafi lokið námi erlendis og verið ráðin til starfa við X hjá D. Þar sem tekið sé inn í X í skipulögðum hollum hafi verið gengið frá og undirritaður formlegur ráðningarsamningur þann 8. ágúst 2025, sem gilti fram á árið 2027 með upphaf starfa þann 13. október 2025. Kærandi hafi sýnt ríkan og virkan vilja til tafarlausrar þátttöku á vinnumarkaði strax við komuna til landsins sumarið 2025 og hugðist brúa tveggja mánaða tímabilið þar til X hæfist. Kærandi hafi sett sig í samband við E og hafi verið ráðin þar til tímabundinna starfa í vaktavinnu á íbúðarkjarna, þar sem til stóð að hún myndi vinna frá ágúst og fram í október 2025. Vaktavinnufyrirkomulagið hafi hentað fjölskyldunni best þar sem kærandi og eiginmaður hennar hafi getað skipt með sér umönnun barnsins sem hafi ekki verið komið með dagvistun. Atvinnurekandi hjá E hafi hins vegar síðar ákveðið að hverfa frá ráðningunni þar sem honum hafi þótt þessi tveggja mánaða starfstími kæranda of stuttur og þess í stað kostið að ráða starfsmann sem gæti staldrað lengur við í starfi. Skrifleg staðfesting frá viðkomandi stjórnanda hjá E vegna þessa ferils verði lögð fram verði eftir því leitað. Þessi áform og undirritaður samningur við D sýni ótvírætt að kærandi hafi verið með fasta og virka tengingu við íslenskan vinnumarkað og falli klárlega í hóp þeirra sem lögum um sorgarleyfi sé ætlað að vernda. Það að tímasetning andlátsins leiði til þess að umsókn um sorgarleyfi sé synjað, þegar ljóst sé af heildstæðu mati á kringumstæður að kærandi falli klárlega í hóp þeirra sem lögunum hafi verið ætlað að vernda, stríði gegn réttlætiskennd. Það sé sanngirnismál og samfélagslega mikilvægt að úrskurðarnefndin sýni sveigjanleika og meti þessar sérstöku aðstæður í stað þess að vísa málinu frá á formatatriðum.

Með vísan til alls framangreinds sé þess vinsamlegast krafist að úrskurðarnefnd velferðarmála sýni aðstæðum kæranda skilning, úrskurði dráttinn afsakanlegan og taki kæruna til efnislegrar meðferðar.

III.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 1. apríl 2026, um að synja umsókn kæranda um greiðslur í sorgarleyfi.

Samkvæmt 5. gr. laga nr. 85/2015 um úrskurðarnefnd velferðarmála skal stjórnsýslukæra berast úrskurðarnefnd velferðarmála skriflega innan þriggja mánaða frá því að aðila máls var tilkynnt um ákvörðun, nema á annan veg sé mælt í lögum sem hin kærða ákvörðun byggist á. Kærandi lagði fram kæru hjá úrskurðarnefnd velferðarmála 23. júlí 2026 vegna framangreindrar ákvörðunar Vinnumálastofnunar. Kærufrestur samkvæmt 5. gr. laga nr. 85/2015 var því liðinn þegar kæra barst nefndinni.

Í 5. mgr. 7. gr. laga nr. 85/2015 er vísað til þess að um málsmeðferð, sem ekki er kveðið á um í lögunum, fari samkvæmt ákvæðum stjórnsýslulaga og ákvæðum laga sem málskotsréttur til nefndarinnar byggist á hverju sinni. Í 28. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 segir:

„Hafi kæra borist að liðnum kærufresti skal vísa henni frá nema:

1. afsakanlegt verði talið að kæran hafi ekki borist fyrr, eða

2. veigamiklar ástæður mæla með því að kæran verði tekin til meðferðar.

Kæru skal þó ekki sinnt ef meira en ár er liðið frá því að ákvörðun var tilkynnt aðila.“

Með vísan til þessa er nauðsynlegt að taka til skoðunar hvort fyrir hendi séu atriði sem hafa þýðingu við mat á því hvort afsakanlegt verði talið að kæran hafi borist að liðnum kærufresti eða hvort veigamiklar ástæður mæli með því að kæran verði tekin til meðferðar, sbr. 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga, en ákvæðið mælir fyrir um skyldubundið mat stjórnvalds á því hvort atvik séu með þeim hætti að rétt sé að taka stjórnsýslukæru til efnislegrar meðferðar, þrátt fyrir að lögbundinn kærufrestur sé liðinn.

Fyrir liggur að kæranda var í ákvörðun frá 1. apríl 2026 leiðbeint um kæruheimild til úrskurðarnefndar velferðarmála og um tímalengd kærufrests. Með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 10. ágúst 2026, var kæranda veittur kostur á að koma að athugasemdum og/eða gögnum teldi hún að skilyrði, sem fram kæmu í 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga, gætu átt við í málinu. Í svari kæranda kemur meðal annars fram að töf á innsendingu kærunnar megi rekja til algjörs andlegs og líkamlegs vanmáttar kæranda í kjölfar barnsmissis. Einnig er vísað til þess að málið varði verulega ríka og óafturkallanlega hagsmuni fyrir kæranda, bæði fjárhagslega og mannlega.

Úrskurðarnefndin telur að skýringar kæranda séu ekki þess eðlis að unnt sé að líta svo á að afsakanlegt sé að kæran hafi ekki borist fyrr. Þá verður heldur ekki talið að veigamiklar ástæður mæli með því að kæran verði tekin til meðferðar, enda verður ekki séð að ágalli sé á hinni kærðu ákvörðun sem gæti leitt til ógildingar hennar. Með hliðsjón af framangreindu er kærunni vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála, sbr. 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Kæru A, er vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 
 
 

Var efnið hjálplegt?