24. september 2026
/
Sendiherra afhendir Noregskonungi trúnaðarbréf
Ragnar G. Kristjánsson afhenti í dag Hákoni VIII Noregskonungi trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Íslands í Noregi. Afhendingin fór fram við hátíðlega athöfn í konungshöllinni í Osló. Í samtali konungs og sendiherra við athöfnina var rætt m.a um vinatengsl Íslands og Noregs og samvinnu ríkjanna á alþjóðlegum vettvangi.