28. september 2026 /
Dómsmálaráðuneytið

Úrskurður nr. 413/2026

Hinn 28. september 2026 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 413/2026

í stjórnsýslumálum nr. KNU25090086 og KNU25090087

Kæra [...]

1 Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 10. september 2025 kærðu [...], fd. [...] (hér eftir M) og [...], fd. [...] (hér eftir K), ríkisborgarar Venesúela, ákvarðanir Útlendingastofnunar, dags. 26. ágúst 2025, um að synja þeim um alþjóðlega vernd á Íslandi á grundvelli 1. og 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 en veita þeim dvalarleyfi með vísan til 2. mgr. 74. gr. laganna.

Samkvæmt 6. mgr. 8. gr. laga um útlendinga skal kærunefnd meta að nýju alla þætti kærumáls og getur ýmist staðfest ákvörðun, breytt henni eða hrundið að nokkru eða öllu leyti. Þá getur nefndin einnig vísað máli til meðferðar að nýju hjá þeirri stofnun sem tók hina kærðu ákvörðun. Við meðferð kæru þessarar fer fram endurskoðun á ákvörðunum Útlendingastofnunar sem m.a. felur í sér sjálfstætt efnislegt mat á því hvort kærendur eigi rétt á veitingu alþjóðlegrar verndar á grundvelli 1. eða 2. mgr. 37. gr. laganna, hvort skilyrði séu fyrir veitingu dvalarleyfis á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 74. gr. laganna. Auk þess fer fram skoðun á því hvort formreglum laga um útlendinga og stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hafi verið fullnægt. Kröfur í máli þessu eru í samræmi við framangreint.

Kæruheimild er í 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

2 Málsatvik

Samkvæmt lögregluskýrslu komu kærendur til landsins frá Venesúela og lögðu fram umsóknir um alþjóðlega vernd 21. maí 2023. Kváðust kærendur sækja um alþjóðlega vernd vegna þess að M hafi starfað sem [...] í heimaríki, hann hafi tekið þátt í rannsókn þar sem upplýsingum hafi verið lekið og nú sé verið að reyna að hafa uppi á þeim sem komið hafi að umræddri rannsókn og þeim hótað. M hafi hlotið herþjálfun og þjálfun sem lögreglumaður í Venesúela. M eigi þrjú börn og þá eigi kærendur foreldra í heimaríki. K hafi starfað sem [...] í heimaríki og verið með dvalarleyfi í Panama frá 2016 til 2020.

Með ákvörðunum Útlendingastofnunar, dags. 6. september 2024, var kærendum synjað um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Voru þær ákvarðanir kærðar til kærunefndar útlendingamála 20. september 2024. Með úrskurði kærunefndar nr. 1149/2024, dags. 15. nóvember 2024, voru ákvarðanir Útlendingastofnunar felldar úr gildi og lagt fyrir stofnunina að taka mál kærenda til meðferðar á ný vegna annmarka á málsmeðferð Útlendingastofnunar.

Kærendur komu fyrst til viðtals hjá Útlendingastofnun 11. desember 2023 ásamt löglærðum talmanni sínum og greindu frá ástæðum flótta síns. Komu kærendur aftur til viðtals hjá stofnuninni 27. mars 2025 á grundvelli nýrrar málsmeðferðar í kjölfar úrskurðar kærunefndar, en M hafði jafnframt komið til viðtals 12. desember 2024. Kærendur kváðust vera fædd og uppalin í [...] í Venesúela en hafa verið búsett í [...] í íbúð í eigu M áður en þau hafi yfirgefið heimaríki. M kvaðst eiga þrjú börn úr fyrri samböndum sem séu búsett hjá mæðrum sínum. Eitt af börnum M sé búsett í Ekvador en hin tvö séu búsett í fylkjum utan [...]. K kvaðst hafa starfað við sölu drykkja. M kvaðst hafa gegnt herþjónustu á árunum 2004 til 2006 og hafa stundað laganám sem hann hafi þó ekki klárað eftir að hann hætti í hernum. Síðan hafi hann farið að stunda viðskiptastörf þar til hann hafi hafið störf hjá herleyniþjónustunni [...] (sp. Dirección General de Contrainteligencia Militar). Kærendur kváðust hafa átt fyrir mat og annarri nauðsynjavöru og átt eignir í Venesúela. Kærendur kváðust ekki vera aðilar að stjórnmálaflokki, virk í þágu tiltekins málsstaðar né tilheyra minnihlutahópi í heimaríki.

M kvaðst hafa starfað sem sérstakur fulltrúi (e. special agent) hjá [...] frá byrjun árs 2019 og síðar sem [...] (e. sub inspector) þar til kærendur hafi yfirgefið Venesúela. Hann hafi jafnframt tekið að sér aukaverkefni nokkrum sinnum í mánuði sem lífvörður og fengið aukagreiðslur frá yfirmanni sínum. Aðspurður um stöðu sína innan [...] greindi M frá því að staða sérstakra fulltrúa væri lægsta staðan og einu starfsstigi neðar en staða [...]. M kvaðst hafa starfað innan tveggja deilda hjá [...]. Fyrst hafi hann starfað innan deildar sem sé kennd við sérstök mál (sp. Dirección de Asuntos Especiales), eða DAE, og síðar hafi hann tilheyrt svokallaðri rannsóknardeild (sp. Dirección Especial de Investigaciones Penales y Criminalísticas), eða DEIPC. Af frásögn M má ráða að starf hans hafi einkum falist í því að handtaka einstaklinga og færa þá á starfsstöðvar [...] og færa handtekna einstaklinga til dómstóla. Oft hafi verið um háttsetta stjórnmálamenn að ræða og einstaklinga í viðskiptum eða fyrirtækjaeigendur sem hafi verið andsnúnir stjórnvöldum. M hafi handtekið einstaklinga með valdi og meitt þá ef þeir hafi streist á móti. Hann hafi þurft að framfylgja skipunum og ekki getað óhlýðnast skipunum án refsinga. M greindi frá því að fangar hafi sætt pyndingum í haldi [...] og að sérstakur hópur fulltrúa hafi séð um framkvæmd þeirra en M hafi ekki komið að slíkri háttsemi í störfum sínum. M kvaðst hafa haft aðgang að svæði þar sem fangar hafi verið geymdir og pyndingar farið fram. Hann hafi því verið vitni að framkvæmd þeirra í einhver skipti þegar hann hafi verið á svæðinu.

Kærendur greindu frá því að hafa yfirgefið Venesúela í kjölfar upplýsingaleka innan starfsdeildar M í desember 2022. M kvað sig og samstarfsfélaga sína hafa verið tekna í viðtöl af yfirmönnum sínum þar sem þeir hafi verið spurðir um lekann og þeim hótað. Þá hafi þeim verið gert að vinna tvöfalt meiri vinnu og þurft að sæta ítrekuðum spurningum af hálfu yfirmanna um lekann. Aðspurður kvaðst M ekkert vita um framangreindan leka, en kvaðst hafa tekið þátt í þeirri aðgerð sem upplýsingalekinn hafi varðað. Þá hafi hann almennt ekki fengið upplýsingar um fólkið sem hann hafi verið sendur til að sækja fyrirfram. M hafi haft miklar áhyggjur af því að yfirmenn hans myndu ákveða að hann væri sekur um upplýsingalekann. M kvaðst hafa tekið sér leyfi frá vinnu í desember 2022 en mætt aftur til vinnu í janúar 2023, þá hafi álagið verið búið að minnka en yfirmenn hafi þó haldið áfram að spyrja um lekann. M hafi ákveðið að taka sér leyfi frá vinnu í byrjun mars og kvaðst hafa farið að óttast að hann yrði handtekinn af [...]. M greindi frá því að hafa hugsað að ef hann yrði ekki handtekinn vegna lekans myndi [...] búa til einhverja aðra ástæðu til að handtaka hann. M hafi því ákveðið að flýja Venesúela. M kvað engin úrræði hafa staðið honum til boða og hann hafi ekki getað kvartað til annarra yfirvalda þar sem deildin sem hann hafi starfað innan hafi umfangsmikil tengsl inn í aðrar deildir og stofnanir. M kvað kærendur hafa lifað rólegu og góðu lífi í Venesúela þar til framangreindur leki hafi átt sér stað. M kvaðst telja að ef hann myndi snúa aftur til Venesúela yrði hann álitinn föðurlandssvikari og liðhlaupi sem fyrrum hermaður og lögreglumaður. Hann hafi ekki hætt störfum formlega hjá [...] heldur hætt að svara skilaboðum yfirmanna og látið sig hverfa. K kvaðst hafa séð vaxandi ótta og áhyggjur M í kjölfar upplýsingalekans sem hafi ýtt undir hennar eigin ótta. Hún hafi ekki getað sofið, fundið fyrir [...] og fengið [...] vegna þessa. K hafi farið til læknis í febrúar 2023, verið greind með [...] sem hafi hjálpað henni og hún taki enn.

Með ákvörðunum Útlendingastofnunar var kærendum synjað um alþjóðlega vernd en veitt dvalarleyfi á grundvelli 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Kærendur kærðu ákvarðanirnar til kærunefndar 10. september 2025 og kærunefnd bárust greinargerðir kærenda 23. september 2025.

3 Greinargerð til kærunefndar

Nefndin hefur farið yfir greinargerðir kærenda og lagt mat á þau sjónarmið er þar koma fram. Verða aðeins reifuð hér helstu atriði greinargerðanna.

Í greinargerðum er aðstæðum kærenda lýst með sambærilegum hætti og í viðtölum þeirra hjá Útlendingastofnun.

Í greinargerðum kærenda er vísað til landaskýrslna og er mati Útlendingastofnunar á aðstæðum í Venesúela mótmælt. Þá telja kærendur Útlendingastofnun hafa gert of strangar sönnunarkröfur í máli M sem séu í andstöðu við meginreglur flóttamannaréttar, m.a. um að vafa skuli túlka umsækjanda í hag.

Kærendur krefjast þess aðallega að þeim verði veitt alþjóðleg vernd sem flóttamenn hér á landi samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Af greinargerðum kærenda má ráða að þau byggi framangreinda kröfu á því að þau eigi á hættu að verða fyrir ofsóknum af hálfu stjórnvalda í heimaríki vegna stjórnmálaskoðana M og vegna aðildar kærenda að þjóðfélagshópi. M tilheyri þjóðfélagshópi sem fyrrum starfsmaður öryggissveitar sem hafi flúið land en K sem nánasti fjölskyldumeðlimur einstaklings sem sé álitinn svikari og óvinur ríkisins. Byggir M á því að yfirvöld í Venesúela túlki þá háttsemi hans að yfirgefa starf sitt hjá [...] og flýja land sem svik eða pólitíska andstöðu. Sem fyrrum starfsmaður [...], sem búi yfir innherjaupplýsingum, verði M talinn ógn af hálfu stjórnvalda. Kærendur byggja á því að hinar kærðu ákvarðanir um synjun alþjóðlegrar verndar séu ekki í samræmi við meginregluna um lögmæti stjórnvaldsákvarðana, réttmætisregluna og meginreglu um réttmætar væntingar. Þá hafi Útlendingastofnun með töku hinna kærðu ákvarðana brotið gegn reglu um bann við endursendingu. Byggir krafa K um veitingu alþjóðlegrar verndar á málsástæðum og rökstuðningi M. Fari svo að M verði einum veitt alþjóðleg vernd krefst K þess til vara að henni verði veitt alþjóðleg vernd á grundvelli 2. mgr. 45. gr. laga um útlendinga sem maki einstaklings sem nýtur alþjóðlegrar verndar og byggir kröfu sína á meginreglunni um einingu fjölskyldunnar. Þá vísa kærendur til þess að þar sem ótti þeirra við ofsóknir stafi frá yfirvöldum í heimaríki þeirra sé ljóst að þau geti ekki flutt sig um set innanlands og hlotið raunverulega vernd í öðrum landshluta í heimaríki, sbr. 4. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

Verði ekki fallist á aðalkröfu krefjast kærendur þess til vara að þeim verði veitt viðbótarvernd hér á landi með vísan til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærendur byggja framangreinda kröfu á því að þau uppfylli skilyrði fyrir veitingu viðbótarverndar samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærendur vísa til þess að þau hafi réttmætar væntingar fyrir veitingu viðbótarverndar og telji sig eiga rétt á slíkri vernd á þeim grundvelli og þar sem landaupplýsingar um aðstæður í Venesúela beri með sér að þau eigi á hættu að sæta ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu þar í landi. Byggja kærendur jafnframt á því að hinar kærðu ákvarðanir um synjun viðbótarverndar séu ekki í samræmi við meginregluna um lögmæti stjórnvaldsákvarðana, réttmætisregluna og meginregluna um réttmætar væntingar. Telja kærendur þá að Útlendingastofnun hafi brotið gegn reglu um bann við endursendingu með töku hinna kærðu ákvarðana.

Verði ekki fallist á framangreindar kröfur krefjast kærendur þess að hinar kærðu ákvarðanir verði staðfestar.

Með endursendingu kærenda til heimaríkis yrði brotið gegn meginreglunni um bann við endursendingu, sbr. 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Að auki brjóti slík ákvörðun í bága við 1. mgr. 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, 2. og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, 6. og 7. gr. alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og 33. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna.

4 Reglur stjórnsýsluréttar og málsmeðferð samkvæmt lögum um útlendinga

Í greinargerð kærenda eru færð rök fyrir því að ekki hafi verið farið að málsmeðferðarreglum við málsmeðferð og ákvarðanatöku Útlendingastofnunar. Telja kærendur að málsmeðferð stofnunarinnar og hinar kærðu ákvarðanir brjóti gegn grundvallarreglum stjórnsýsluréttarins, m.a. lögmætisreglunni og réttmætisreglunni.

Kærunefnd hefur farið yfir málsmeðferð Útlendingastofnunar og hinar kærðu ákvarðanir sem eru í samræmi við málsmeðferðarreglur stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Er því ekki ástæða til að fella ákvarðanir Útlendingastofnunar úr gildi af þeim sökum.

5 Alþjóðleg vernd

5.1 Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

Í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:

Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.

Í 38. gr. laga um útlendinga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:

Ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.

Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.

Í 4. mgr. 38. gr. kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:

  1. ríkið,

  2. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,

  3. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök samkvæmt b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.

Orðasambandið „ástæðuríkur ótti við að vera ofsóttur“ í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á að hann hafi þegar orðið fyrir ofsóknum í heimaríki, sbr. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við slíkar ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis nema talið verði að miklar líkur séu á því að slíkar ofsóknir yrðu ekki endurteknar, t.d. þar sem aðstæður í heimaríki hans hafi breyst. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki verður umsækjandinn með rökstuddum hætti að leiða líkur að því að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra.

Við mat á umsóknum um alþjóðlega vernd verða stjórnvöld því að leggja mat á auðkenni umsækjanda, landaupplýsingar um það heimaríki umsækjanda sem til meðferðar er og trúverðugleika frásagnar umsækjanda.

Við mat á trúverðugleika er höfð til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2019). Þá er tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).

Samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga er útlendingur einnig flóttamaður ef, verði hann sendur aftur til heimaríkis síns, raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Sama gildir um ríkisfangslausan einstakling.

Við mat á því hvort aðstæður kæranda séu slíkar að þær eigi undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga hefur kærunefnd talið rétt að líta til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um það mat sem þarf að fara fram á því hvort kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem falli undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem bannar pyndingar og ómannlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Hefur dómstóllinn sagt að 3. gr. sáttmálans geti átt við þegar hættan stafar frá einstaklingum eða hópi fólks sem ekki séu fulltrúar stjórnvalda. Kærandi verður þó að geta sýnt fram á að gildar ástæður séu til að ætla að um raunverulega hættu sé að ræða og að stjórnvöld í ríkinu séu ekki í stakk búin til að veita viðeigandi vernd. Ekki er nóg að aðeins sé um að ræða möguleika á illri meðferð og verður frásögn kæranda að fá stuðning í öðrum gögnum (sjá t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008 og H.L.R. gegn Frakklandi (mál nr. 24573/94) frá 29. apríl 1997).

5.2 Auðkenni

Umsækjanda um alþjóðlega vernd er skylt að veita atbeina sinn til að upplýsa hver hann er, sbr. 1. mgr. 14. gr. laga um útlendinga. Í ákvörðunum Útlendingastofnunar kemur fram að til að sanna á sér deili hafi kærendur framvísað venesúelskum vegabréfum. Að því virtu hafi það verið mat Útlendingastofnunar að kærendur hafi sannað auðkenni sitt með fullnægjandi hætti. Ekki er ástæða til að hnekkja framangreindu mati Útlendingastofnunar og verður því lagt til grundvallar að kærendur séu venesúelskir ríkisborgarar.

5.3 Landaupplýsingar

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Venesúela, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:

  • 2021 Country Reports on Human Rights Practices: Venezuela (U.S. Department of State, 12. apríl 2022);
  • 2022 Country Reports on Human Rights Practices: Venezuela (U.S. Department of State, 20. mars 2023);
  • 2023 Country Reports on Human Rights Practices: Venezuela (U.S. Department of State, 22. apríl 2024);
  • 2024 Country Reports on Human Rights Practices: Venezuela (U.S. Department of State, 12. ágúst 2025);
  • ACCORD - Austrian Centre for Country of Origin and Asylum Research and Documentation: Venezuela, year 2024: Update on incidents according to the Armed Conflict Location & Event Data Project (ACLED) (ACCORD 5. febrúar 2025);
  • ‘All sides need to think about the future they want for Venezuela’, says UN human rights chief (vefsíða Sameinuðu þjóðanna, http://news.un.org/en/story/2023/01/1132957, 28. janúar 2023);
  • Amnesty International Report 2022/23: Venezuela (Amnesty International, 27. mars 2023);
  • Annual Report 2020 – Chapter IV.B: Venezuela (Inter-American Commission on Human Rights, 2021);
  • Annual Report 2022 – Chapter IV.B: Venezuela (Inter-American Commission on Human Rights, 2023);
  • Bolivarian Republic of Venezuela interim country strategic plan 2023-2025 (World Food Programme, 1. febrúar 2023);
  • Country Reports on Terrorism 2022: Venezuela (U.S. Department of State, 30. nóvember 2023);
  • Country Security Report – Venezuela (OCAS, U.S. Department of State, 12. mars 2025);
  • Detailed findings of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela (United Nations. Human Rights Council, 14. október 2024);
  • Detailed findings of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela (United Nations. Human Rights Council, 15. september 2020);
  • Election Observation Mission – Venezuela 2021 (European Union, 22. febrúar 2022);
  • Fostering Impunity: The Impact of the Failure of the Prosecutor of the International Court to Open an Investigation into the Possible Commission of Crimes against Humanity in Venezuela (Organization of American States, OAS, 2. desember 2020);
  • Freedom in the World 2022 – Venezuela (Freedom House, 28. febrúar 2022);
  • Freedom in the World 2023 – Venezuela (Freedom House, 10. mars 2023);
  • Freedom in the World 2024 – Venezuela (Freedom House, 29. febrúar 2024);
  • Freedom in the World 2025 – Venezuela (Freedom House, 26. febrúar 2025);
  • Freedom in the World 2026 – Venezuela (Freedom House, 19. mars 2026);
  • General Country of Origin Information Report. Venezuela 2020 (Netherlands. Ministry of Foreign Affairs, júní 2020);
  • Global Childhood Report 2021 – The Toughest Place to be a Child (Save the Children, 2021);
  • Global Organized Crime Index – Venezuela (Global Initiative Against Transnational Organized Crime, 2023);
  • Guidance Note on International Protection Considerations for Venezuelans – Update I (UNHCR, maí 2019);
  • Human Rights Violations in the Bolivarian Republic of Venezuela: A Downward Spiral with No End in Sight (Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), júní 2018);
  • Humanitære forhold (Landinfo, 2. mars 2023);
  • Humanitarian Access overview (ACAPS, desember 2022);
  • Humanitarian Action for Children 2024 – Bolivarian Republic of Venezuela (UNICEF, 24. ágúst 2023);
  • Humanitarian Action for Children 2024 – Bolivarian Republic of Venezuela (UNICEF, 12. desember 2023);
  • Independence of the justice system and access to justice in the Bolivarian Republic of Venezuela, including for violations of economic and social rights, and the situation of human rights in the Arco Minero del Orinoco region (United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 29. september 2020);
  • Informe Annual de Violencia 2022 (Observatorio Venezolano de Violencia, 29. desember 2022);
  • International Protection Needs of Venezuelan Nationals (Amnesty International, október 2023);
  • Judges on the Tightrope Report on the Independence and Impartiality of the Judiciary in Venezuela (International Commission of Jurists, júní 2021);
  • Latest Asylum Trends (European Union Agency for Asylum, 17. maí 2023);
  • Outcomes of the investigation into allegations of possible violations of the human rights to life, liberty, and physical and moral Integrity in the Bolivarian Republic of Venezuela (Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 17. september 2020);
  • Punished for Seeking Change, Killings, Enforced Disappearences and Arbitrary Detention following Venezuela‘s 2024 Election (Human Rights Watch, 30. apríl 2025);
  • Religious Regulation and Discrimination in Venezuela (Observatory of Religious Freedom in Latin America, janúar 2022);
  • Report of the General Secretariat of the Organization of American States and the Panel of Independent International Experts on the Possible Commission of Crimes Against Humanity in Venezuela. Second Edition (Organization of American States, OAS, mars 2021);
  • Report of the independent international fact-finding mission on the on the Bolivarian Republic of Venezuela (UNHRC, 17. september 2024);
  • Report of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela (Human Rights Council, 18. september 2023);
  • Rise of the Criminal Hybrid State in Venezuela (InSight Crime, júlí 2023);
  • RMNA 2023 – Refugee and Migrant Needs Analysis (Inter-Agency Coordination Platform for Refugees and Migrants from Venezuela, 11. september 2023);
  • RMRP 2023-2024: Regional Refugee and Migrant Response Plan (Inter-Agency Coordination Platform for Refugees and Migrants from Venezuela, 30. nóvember 2022);
  • RMRP 2024 Update: Regional Refugee and Migrant Response Plan (Inter-Agency Coordination Platform for Refugees and Migrants from Venezuela, 2. desember 2023);
  • Situation of human rights in the Bolivarian Republic of Venezuela (Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 16. júní 2021);
  • Situation of human rights in the Bolivarian Republic of Venezuela (The United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 4. júlí 2023);
  • Situation of human rights in the Bolivarian Republic of Venezuela (The United Nations High Commissioner for human rights (OHCHR), 28. ágúst 2025);
  • Situation of Venezuelans who have returned and seek to return to their country in the context of COVID-19 (Organization of American States, OAS, september 2020);
  • Situation Report No. 1 – Venezuela (UNICEF, 30. júní 2023);
  • The World Factbook – Venezuela (Central Intelligence Agency, síðast uppfært 12. janúar 2026);
  • UNHCR Venezuela Operational update, May 2025 (The UN Refugee Agency, 7. maí 2025);
  • UNHCR Venezuela Annual Report 2022 (The UN Refugee Agency, 8. ágúst 2023);
  • UNHCR Venezuela Factsheet April 2025 (The UN Refugee Agency, 9. apríl 2025);
  • Update on Venezuela by High Commissioner Türk (United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 5. júlí 2023);
  • Venezuela (Britannica, síðast uppfært 22. september 2026);
  • Venezuela Country Focus (European Asylum Support Office, EASO, ágúst 2020);
  • Venezuela Country Focus (European Union Agency for Asylum, EUAA, nóvember 2023);
  • Venezuela Country Focus (European Union Agency for Asylum, EUAA, júlí 2026);
  • Venezuela Country Report 2022 (Bertelsmann Stiftung, 2022);
  • Venezuela in 2022: Building solutions with communities affected by armed violence (International Committee of the Red Cross, 6. janúar 2023);
  • Venezuela Organized Crime Observatory (InSightCrime, síðast uppfært 29. maí 2026);
  • Venezuela Situation (UNHCR, janúar 2023);
  • Venezuela Situation Fact Sheet (UNHCR, 8. mars 2023);
  • Venezuela: Availability of health care, including for persons with disabilities and older persons; treatment of persons with disabilities and older persons within the healthcare system (2021-January 2023) (Immigration and Refugee Board of Canada, 13. febrúar Venezuela: Humanitarian Action, (OCHA, 30. nóvember 2022);
  • Venezuela: Humanitarian Response Plan 2022-2023 (OCHA, 7. september 2022);
  • Venezuela: Joint Statement on Venezuela Negotiation in Mexico (The Diplomatic Service of the European Union, 26. nóvember 2022);
  • Venezuela: Los Colectivos (Landinfo, 1. október 2019);
  • Venezuela: Overview of U.S Sanctions (Congressional Research Service, 8. ágúst 2023);
  • Venezuela: Overview of U.S. Sanctions (Congressional Research Service, 30. nóvember 2022);
  • Venezuela: Overview of U.S. Sanctions (Congressional Research Service, 19. desember 2024);
  • Venezuela: Political Crisis and U.S Policy (Congressional Research Service, 1. september 2023);
  • Venezuela: Progress Report March – April 2023 (OCHA, 31. maí 2023);
  • Venezuela: Sikkerhetssituasjonen for sivilbefolkningen (Landinfo, 14. apríl 2020);
  • Venezuela: Situasjonen etter presidentevalget 28. Juli 2024 (Landinfo, 10. desember 2024, uppfærð í apríl 2025);
  • Venezuela: The Perilous Path to a Key Election (International Crisis Group, 30. janúar 2024);
  • Venezuela: Tidligere og nåværende protestaksjoner, og retursituasjonen for personer som deltok i de store demonstrasjonene i 2017-2019 (Landinfo, 30. maí 2023);
  • Venezuela: Treatment of citizens by the authorities based on whether or not they participate in anti-government protests, including whether some are more targeted than others and for what reasons; whether access to social security programs may be affected by political activities (2017-January 2021) (Immigration and Refugee Board of Canada, 3. febrúar 2021);
  • Venezuela: UN Experts warn of persisting attacks on civil society, media and trade union leaders

(UNCHR, 22. mars 2023);

  • Venezuela: Utsatte grupper og reaksjoner fra myndighetene (Landinfo, 11. júní 2020);
  • Venezuela: Ytringsfrihet og kritiske ytringer i sosiale medier (Landinfo, 28. júní 2023);
  • Venezuela’s Humanitarian Emergency (Human Rights Watch, 4. apríl 2019);
  • What’s Ahead for Venezuela’s Crisis (World Politics Review, 20. apríl 2023);
  • World Report 2023 – Venezuela (Human Rights Watch, 12. janúar 2023);
  • World Report 2024 – Venezuela (Human Rights Watch, 11. janúar 2024);
  • World Report 2025- Venezuela (Human Rights Watch, 16. janúar 2025) og
  • World Report 2026 – Venezuela (Human Rights Watch, 12. janúar 2026.

Venesúela er stjórnarskrárbundið lýðveldi með tæplega 30 milljónir íbúa. Í landinu aðhyllast um 96% íbúa kristna trú, þar af meirihlutinn rómversk-kaþólska trú. Hinn 15. nóvember 1945 gerðist Venesúela aðili að Sameinuðu þjóðunum. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi ásamt alþjóðasamning um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi árið 1978. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um afnám allrar mismununar gegn konum árið 1983 og samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri og vanvirðandi meðferð eða refsingu árið 1991.

Í framangreindum skýrslum, þ. á m. skýrslum bandarísku utanríkisþjónustunnar frá 2022 og 2023, bandarísku leyniþjónustunnar frá 2023 og Human Rights Watch frá 2023, kemur fram að Venesúela sé fjölflokka lýðræðisríki að nafninu til. Nicolás Maduro, forseti landsins frá árinu 2013, hafi styrkt völd sín á kostnað löggjafar-, framkvæmdar- og dómsvalds landsins. Stjórnarkreppa hafi ríkt í Venesúela frá árinu 2019 í kjölfar umdeildra forsetakosninga, sem sætt hafi gagnrýni fyrir að vera hvorki óháðar né sanngjarnar. Þrátt fyrir að hluti stjórnarandstöðunnar hafi lýst Juan Guaido yfir sem bráðabirgðaforseta hafi Nicolás Maduro haldið raunverulegum yfirráðum ríkisins með stuðningi öryggissveita. Samkvæmt skýrslu Evrópusambandsins frá árinu 2022 hafi samningaviðræður milli ríkisstjórnar Maduro og stjórnarandstöðunnar leitt til þess að í desember 2022 hafi bráðabirgðastjórn Juan Guaido verið lögð af. Ríkisstjórn Venesúela og stjórnarandstaðan hafi samþykkt á fundi í Barbados 17. október 2023 að halda forsetakosningar í Venesúela seinni hluta ársins 2024 undir alþjóðlegu eftirliti. Alþjóðlegir eftirlitsmenn hafi verið viðstaddir fundinn og samningurinn undirritaður með milligöngu Noregs. Hinn 22. október 2023 hafi stjórnarandstaðan tilnefnt Maríu Corinu Machado sem fulltrúa sinn í kosningunum, en 30. október s.á. hafi Hæstiréttur Venesúela ógilt þá niðurstöðu og frestað forkosningum stjórnarandstöðunnar vegna mögulegs lögbrots. Í kjölfarið hafi stjórnarandstaðan tilnefnt Edmundo Gonzalez, fyrrum stjórnarerindreka, sem fulltrúa sinn og landskjörstjórnin staðfest valið 26. mars 2024. Samkvæmt heimildum fóru forsetakosningar fram í Venesúela 28. júlí 2024 og í kjölfarið hafi landkjörstjórn lýst því yfir að Maduro hafi hlotið endurkjör, á skjön við fullyrðingar stjórnarandstöðunnar. Utanríkisráðherra Bandaríkjanna, aðrar þjóðir og alþjóðlegir aðilar hafi lýst yfir áhyggjum sínum um að niðurstaða kosninganna endurspeglaði ekki vilja eða atkvæði venesúelsku þjóðarinnar og hafi verið kallað eftir því að landskjörstjórnin birti atkvæðatöflur sínar, sem hafi enn ekki verið gert. Í skýrslu Freedom House frá 2026 kemur fram að stjórnarandstaðan hafi sniðgengið þingkosningar í maí 2025 í mótmælaskyni og, líkt og í forsetakosningunum 2024, hafi landskjörstjórnin ekki opinberað niðurstöður kosninganna, hvorki kjörsókn né kosningaúrslit.

Í skýrslu Freedom House frá 2021 kemur fram að strangar hömlur hafi verið settar á grundvallarréttindi venesúelskra ríkisborgara, þ. á m. á tjáningar-, samkomu- og félagafrelsi. Stjórnarandstæðingar, blaðamenn, aðgerðasinnar, mótmælendur og einstaklingar sem taldir séu andsnúnir ríkisstjórninni hafi verið skotmörk yfirvalda og hafi m.a. þurft að sæta handahófskenndum rannsóknum og handtökum. Í skýrslu Freedom House frá 2023 kemur fram að yfirvöld hafi áfram takmarkað borgaraleg réttindi og sótt pólitíska andstæðinga sína til saka án réttlátrar málsmeðferðar. Í samantekt rannsóknarnefndar á vegum mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna frá 22. mars 2023 kemur fram að handtökur og varðhöld yfirvalda á pólitískum andstæðingum, aðgerðir gegn mótmælum, lokun fjölmiðla og pyndingar og ómannúðleg meðferð ætlaðra og raunverulegra stjórnarandstæðinga grafi undan tjáningarfrelsi og rétti til mótmæla. Í skýrslum Freedom House frá 2024, 2025 og 2026 er það mat staðfest að stjórnvöld hafi lokað nánast öllum rásum fyrir pólitíska mótstöðu og viðhaldið kerfisbundnum takmörkunum á borgaralegum og pólitískum réttindum, þar á meðal með handahófskenndum handtökum og pólitískri misnotkun réttarkerfisins. Í skýrslu Human Right Watch frá 2023 kemur fram að ríkisstjórn landsins hafi fangelsað pólitíska andstæðinga sína og öryggissveitir og vopnaðir hópar sem styðji ríkisstjórnina hafi ítrekað beitt mótmælendur ofbeldi, þar á meðal barsmíðum og skotárásum. Dómskerfi landsins hafi hætt að starfa sem óháð ríkisvald árið 2004 og væru dómsmálayfirvöld samsek venesúelskum yfirvöldum í misnotkun á kerfinu, t.a.m. með útgáfu afturvirkra handtökuheimilda og fyrirskipana um gæsluvarðhöld án fullnægjandi sönnunargagna.

Samkvæmt landaupplýsingum, m.a. í skýrslum Human Rights Watch og Freedom House frá 2026, kemur fram að í kjölfar forsetakosninganna árið 2024 hafi stjórnvöld, með aðstoð vopnaðra hópa, haldið áfram að fremja umfangsmikil mannréttindabrot. Í skýrslu Freedom House kemur ennfremur fram að þrátt fyrir að venesúelsk stjórnvöld hafi látið um tvö hundruð pólitíska fanga lausa frá júlí fram í desember 2025 bendi heimildir til þess að rúmlega níu hundruð pólitískir fangar hafi enn verið í haldi í árslok 2025.

Í niðurstöðuskýrslu óháðrar nefndar á vegum mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna (e. Detailed findings of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela) frá 2020 kemur fram að yfirvöld í Venesúela og vopnahópar á þeirra vegum hafi framið alvarleg og kerfisbundin mannréttindabrot frá árinu 2014, þ. á m. kerfisbundnar pyndingar og aftökur án dóms og laga, sem geti fallið undir skilgreiningu á glæp gegn mannkyni (e. Crimes against humanity). Meirihluti glæpanna hafi verið hluti af kerfisbundnu ofbeldi gegn almenningi í því skyni að þagga niður andstöðu við ríkisstjórn Maduro og hafi háttsettir embættismenn og herforingjar haft vitneskju um glæpina og ekki gripið til aðgerða til að sporna gegn þeim. Samtök Ameríkuríkja (e. Organization of American States (OAS)) komust að sambærilegri niðurstöðu í skýrslum sínum frá 2020 og 2021, þar sem m.a. er greint frá þúsundum tilvika aftaka án dóms og laga, handahófskenndum handtökum, þvinguðum mannshvörfum og ýmsum aðferðum pyndinga s.s. kynferðislegu ofbeldi. Samkvæmt skýrslu Human Rights Watch frá 2023 hafi saksóknara Alþjóðlega sakamáladómstólsins (e. International Criminal Court (ICC)) í mars 2022 verið heimilt að hefja rannsókn á ætluðum glæpum gegn mannkyni í Venesúela. Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2024 kemur fram að dómstóllinn hafi tilkynnt um áframhaldandi rannsókn meintra glæpa gegn mannkyni í Venesúela og opnun skrifstofu þarlendis í júní 2023. Samkvæmt skýrslu Human Rights Watch frá 2026 var rannsóknin enn yfirstandandi árið 2025.

Í skýrslu rannsóknarnefndar á vegum Mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna, dags. 17. september 2024, kemur fram að brot hafi verið framin gegn raunverulegum eða ætluðum andstæðingum ríkisstjórnarinnar. Í kjölfar kosninganna í júlí 2024 hafi 915 mótmæli átt sér stað og ásakanir um óréttmætar kosningar aukist. Í kjölfarið hafi ríkisstjórnin hert aðgerðir sínar til að þagga niður og stöðva andstöðu við ríkisstjórnina og koma í veg fyrir friðsamleg mótmæli. Aðgerðir hafi m.a. beinst að þeim sem gagnrýnt hafi niðurstöður kosninganna, mótmælt með virkum hætti eða verið grunaðir um slíkt, sem og að yfirvöldum á kjörstöðum og umsjónarmönnum. Öryggissveitir hafi verið sendar á heimili einstaklinga og margir handteknir. Þá hafi stjórnvöld áreitt, hótað eða handtekið blaðamenn. Nefndin hafi skjalfest handtökur einstaklinga sem tengst hafi kosningaviðburðum stjórnarandstöðunnar, þar á meðal fyrirtækjaeigenda, starfsmanna og fjölskyldna þeirra, m.a. fyrir að útvega ýmis aðföng vegna slíkra viðburða. Þeir einstaklingar hafi þó almennt verið í haldi í stuttan tíma, án ákæru og látnir lausir án endurgjalds. Í kjölfar mótmæla hafi fjöldi þátttakenda verið handteknir, þ. á m. börn. Nefndin hafi jafnframt rannsakað markvissar handtökur pólitískra leiðtoga, aðgerðasinna, blaðamanna og mannréttindasinna, þar á meðal áberandi meðlima stjórnarandstöðuflokka í aðdraganda kosninganna og í kjölfar þeirra. Handtökur og meðferð fanga hafi hvorki farið fram með lögbundnum hætti né hafi verið gætt að réttlátri málsmeðferð. Telji nefndin að stjórnvöld hafi með þessum aðgerðum framið verknað sem geti talist glæpur gegn mannkyni, gegn einstaklingum sem hafi verið gagnrýnir á ríkisstjórnina og teljist raunverulegir eða ætlaðir pólitískir andstæðingar. Í skýrslu rannsóknarnefndar á vegum Mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna, dags. 28. ágúst 2025, kemur fram að frá því í maí 2024 og fram í apríl 2025 hafi takmarkanir á borgaralegum réttindum almennings í Venesúela aukist enn frekar.

Samkvæmt m.a. skýrslu bandarísku leyniþjónustunnar (CIA) frá árinu 2023 og skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2022, heyra lögreglu- og öryggismál landsins m.a. undir alríkislögregluna, herlögregluna, svæðisbundin lögregluembætti og lögregluembætti sveitarfélaga. Um 45 þúsund lögreglumenn starfi hjá alríkislögreglunni og hafi yfirvöld stefnt að því að fjölga þeim í 100 þúsund árið 2024. Samkvæmt skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins hafi stjórn yfirvalda á öryggissveitum landsins minnkað undanfarin ár og ríkisstjórn Maduro í auknum mæli treyst á hersveitir-, leyniþjónustu og vopnahópa (Colectívos) til þess að veikja stöðu stjórnarandstæðinga og draga úr mótmælum. Í skýrslu Landinfo frá 2019 kemur fram að Colectívos sé sameiginlegt heiti yfir fjölda vopnaðra hópa sem starfa víða um landið og styðja ríkisstjórnina. Þótt óljóst sé að hve miklu leyti yfirvöld hafi formlega stjórn á þessum hópum, hafi þeir tekið þátt í aðgerðum yfirvalda gegn mótmælendum og stjórnarandstæðingum ríkisstjórnar Maduro. Nýrri heimildir, m.a. skýrsla Human Rights Watch frá 2026 og upplýsingar á vefsíðu Insight Crime, renna jafnframt stoðum undir hlutverk Colectívos sem hópa sem starfi að undirlagi yfirvalda.

Í skýrslu EUAA frá 2023 og 2026 kemur fram að tíðni dauðsfalla af völdum ofbeldis í Venesúela sé ein sú hæsta í Mið- og Suður-Ameríku. Þrátt fyrir fækkun slíkra dauðsfalla á árunum 2018 til 2019 sé það ekki talið til marks um minnkandi ofbeldi í landinu, fremur hafi vopnahópum tekist að viðhalda yfirráðasvæðum sínum og komið á fót eiginlegum smáríkjum (e. micro-states),sem dregið hafi úr átökum milli stríðandi fylkinga. Þá megi einnig rekja fækkun dauðsfalla af völdum ofbeldis til aukinnar fátæktar og flutnings fólks úr landi. Mannránum hafi einnig fækkað m.a. vegna erfiðleika við greiðslu lausnargjalda í kjölfar óðaverðbólgu. Nú á síðari árum hafi orðið aukning á glæpum á borð við rán, mannrán og fjárkúgun, einkum í tengslum við lögleiðingu og greiðara aðgengi að erlendum gjaldmiðlum, sem hafi jafnframt leitt til þess að smærri glæpahópar hafa sameinast við stærri glæpasamtök. Samkvæmt skýrslu EUAA frá júlí 2026 hafi áætluð morðtíðni árið 2024 vegna dauðsfalla af völdum ofbeldis verið 26,2 á hverja hundrað þúsund íbúa skv. Venezuealan Observatory of Violence sem sé fækkun frá árinu 2023, sem var 26,8, og enn frekar frá árinu 2022 sem var 40,4.

Samkvæmt skýrslum EUAA frá 2023 og 2026 hafi fjárkúgun aukist í Venesúela undanfarin ár. Fjölbreyttir aðilar standi þar að baki, þar á meðal öryggissveitir ríkisins, vopnaðir hópar og skipulögð glæpasamtök. Aðferðirnar séu margvíslegar og feli meðal annars í sér svokölluð verndargjöld, ólögmæta skatta, mannrán gegn lausnargjaldi, hótanir og ofbeldi. Helstu fórnarlömb séu almennir borgarar, fyrirtæki, kaupmenn, flutningafyrirtæki og einstaklingar í viðkvæmri stöðu. Árið 2026 hafi upplýsingar bent til aukinna fjárkúguna og ofbeldis gegn bændum, þar á meðal morðum, íkveikjum og hótunum af hálfu skipulagðra glæpahópa. Einnig hafi meðlimir glæpagengis í Aragua verið handteknir fyrir að hafa kúgað fjölda fyrirtækja. Samhliða efnahagskreppunni hafi sum venesúelsk glæpagengi fært starfsemi sína til annarra ríkja í Suður-Ameríku, en haldi jafnframt áfram að kúga íbúa innanlands, einkum í fátækum hverfum þar sem yfirvöld grípi sjaldan til árangursríkra aðgerða. Fjárkúgun af hálfu öryggissveita ríkisins byggist oft á því að einstaklingar séu stöðvaðir við eftirlitsstöðvar eða handteknir með upplognum ásökunum. Einstaklingum sé síðan boðið að greiða háar fjárhæðir til að forðast ákæru eða langvarandi málsmeðferð. Ef einstaklingar neiti greiðslu geti þeir orðið fyrir frekari kúgun innan réttarkerfisins af hálfu dómara, saksóknara eða annarra embættismanna. Þessi framkvæmd bitni einkum á ungu fólki og eldri einstaklingum, þar sem talið sé að fjölskyldur þeirra geti greitt lausnargjöld sem nemi oft nokkrum þúsundum Bandaríkjadala. Glæpasamtök beiti einnig harðri fjárkúgun og grípi til hefndaraðgerða, svo sem eignaspjalla, þjófnaðar, líkamsárása eða mannrána, ef fórnarlömb greiði ekki. Aðstoð frá yfirvöldum sé almennt takmörkuð vegna útbreiddrar spillingar, samráðs embættismanna við glæpasamtök og veikra stofnana. Þótt til staðar séu staðbundin forvarnarverkefni hafi raunverulegur árangur verið lítill og efnahagsástand landsins, þar á meðal aukin dollaravæðing hagkerfisins, hafi gert fjárkúgun að enn arðbærari tekjulind fyrir skipulagða glæpastarfsemi.

Samkvæmt skýrslu Observatory of Religious Freedom in Latin America frá 2022 kveður stjórnarskrá Venesúela á um trúfrelsi, að því tilskildu að iðkun trúar brjóti ekki í bága við almennt siðgæði, velsæmi og allsherjarreglu. Stjórnarskráin tryggi jafnframt sjálfstæði kirkna í landinu, rétt foreldra til að velja trúarbragðafræðslu fyrir börn sín og banni dreifingu áróðurs gegn trúarbrögðum. Samkvæmt skýrslunni ríki almennt umburðarlyndi gagnvart ólíkum trúarbrögðum í landinu, einstaklingar sæti að jafnaði ekki fordómum vegna trúar sinnar og lítið sé um deilur á milli hópa með ólík trúarbrögð. Þó hafi verið dæmi um að glæpahópar Colectivos, hafi að undirlagi stjórnvalda ógnað trúarleiðtogum sem gagnrýnt hafi stjórnvöld.

Í skýrslum bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2023 og 2024 kemur fram að konur njóti sömu réttinda og karlar samkvæmt stjórnarskrá landsins. Konur og karlar séu lagalega jöfn í hjónabandi, lögin kveði á um jafnrétti kynjanna á vinnumarkaði og vinnuveitendur megi ekki mismuna konum varðandi laun eða vinnu. Engu að síður sé ójöfnuður á vinnumarkaði viðvarandi og lögum ekki framfylgt. Í skýrslunni kemur einnig fram að sérstakar deildir í höfuðstöðvum lögreglunnar sérhæfi sig í kynbundu ofbeldi og í tveimur þriðju hluta fylkja í Venesúela séu dómstólar sem fjalli eingöngu um mál er varða kynbundið ofbeldi. Dómsmálaráðherra Venesúela hafi sett á fót stofnun sem taki á móti kvörtunum vegna ofbeldis gegn konum og börnum. Ráðherra hafi sett saman teymi lögfræðinga, geðlækna og annarra sérfræðinga sem eingöngu hafi sinnt málum er tengjast morðum á konum, kynbundnu ofbeldi og öðrum glæpum gegn konum. Nauðgun sé refsiverð í Venesúela og geti varðað fangelsi allt að 14 árum. Þá kveði lögin á um tuttugu til þrjátíu ára fangelsisrefsingu fyrir morð á konum og refsingu fyrir líkamlegt, kynferðislegt eða andlegt ofbeldi. Þrátt fyrir að lög í landinu kveði á um refsingar fyrir ofbeldi gegn konum hafi eftirfylgni með lögunum og aðgangur að réttlæti verið ófullnægjandi auk þess sem almenningur sé ekki meðvitaður um þau úrræði sem í boði séu s.s. stuðning til þolenda. Í landinu séu starfandi félagasamtök sem berjist gegn kynbundu ofbeldi og hægt sé að leita til þeirra eftir stuðningi auk þess sem starfræktar séu hjálparlínur sem konur geti hringt í til að fá upplýsingar og aðstoð.

Í framangreindri skýrslu EASO frá 2020 kemur fram að herskylda sé ekki við líði í Venesúela og að ekki sé hægt að neyða einstaklinga til að ganga til liðs við herinn. Bæði karlmenn og kvenmenn á aldrinum 18 til 60 ára þurfi þó að sinna ákveðinni herþjónustu. Herskylda vari í 24 til 30 mánuði en að þeim tíma loknum séu einstaklingar skráðir í varalið hersins. Samkvæmt 25. gr. laga um herkvaðningu (s. Ley de conscripción y Alistamiento Militar) megi kveða varaliða til endurþjálfunar eða herþjálfunar að undangenginni beiðni forseta eða herforingja. Hermenn sem hafi yfirgefið starfsstöð sína án leyfis og verið fjarverandi í sex daga eða meira séu álitnir liðhlaupar samkvæmt 523. og 524. gr. Hermálalaga landsins (s. Código Orgánico de Justicia Militar). Rannsóknarnefndir (s. Consejos de Investigación) hafi tekið liðhlaupa til rannsóknar og dæmt í málum þeirra. Liðhlaupum hafi verið vísað úr hersveitum og í sumum tilvikum hafi þeir verið ásakaðir um að taka þátt í samsæri gegn ríkisstjórninni. Hermenn sem hafi sætt slíkum ásökunum hafi verið skotmörk yfirvalda og eigi á hættu að vera færðir í varðhald og yfirheyrðir.

Í skýrslu EUAA frá 2023 kemur fram að samkvæmt lögum í Venesúela teljist óheimil og óréttmæt fjarvera frá herstöð alvarlegt brot. Beiðnum hermanna um lausn frá hernum sé almennt hafnað af yfirmönnum með þeim rökum að viðkomandi viti of mikið um störf hersins eða að það myndi hafa skaðleg pólitísk áhrif í för með sér. Fram kemur að heimildarmaður hafi greint frá því að yfirmenn seinki því gjarnan að taka ákvarðanir um lausn hermanna í meira en tvö ár og því endi hermenn venjulega á því að gerast liðhlaupar áður en ákvörðun sé tekin. Yfirvöld beini spjótum sínum að dyngja liðhlaupum með því að áreita þá og birta nöfn þeirra opinberlega í blöðum. Þá hafi óháð nefnd á vegum mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna gefið til kynna að fjölskyldumeðlimir handtekinna hermanna standi frammi fyrir hótunum, hefndum og að þeim og lögfræðingum þeirra sé meinaður aðgangur að fanganum. Liðhlaupar úr hernum sem snúi aftur til Venesúela frá öðrum ríkjum séu álitnir föðurlandssvikarar. Í skýrslu EUAA frá 2020 kemur fram að andófsmenn og liðhlaupar séu rannsakaðir af sérstökum rannsóknarráðum (s. Consejos de Investigación) sem framkvæmi stjórnsýslu- og agarannsóknir og fjarlægi þá úr hernum. Í sumum tilfellum séu liðhlaupar sakaðir um að taka þátt í samsæri gegn stjórnvöldum. Samkvæmt skýrslunni gefi heimildir þó einnig til kynna að í öðrum tilvikum séu hermenn sendir heim með laun eftir að hafa lýst yfir andstöðu sinni viðstjórnvöld. Þá geti fjölskyldumeðlimir liðhlaupa eða andófsmanna og aðrir sem taldir séu eiga þátt í uppreisnaraðgerðum sætt þvinguðum mannshvörfum til að knýja fram svör um dvalarstað þeirra og til að þvinga þá til að gefa sig fram. Einnig gefi heimildir til kynna að liðhlaupar hafi sætt pyndingum og morðum til að fæla aðra hermenn frá því að gerast liðhlaupar. Stjórnvöld hafi vilja til að hafa uppi á liðhlaupum en skorti getu til þess. Háttsettir hermenn lendi almennt ekki í vandræðum með að öðlast eða endurnýja vegabréf sín en lægra settir eigi erfiðara með að gera það.

Samkvæmt skýrslu EASO frá 2020, sem uppfærð var með skýrslu EUAA frá 2023, leiddi mikil lækkun olíuverðs í kjölfar þess að Maduro varð forseti árið 2013, ásamt efnahagsstefnu stjórnvalda og íþyngjandi regluverki gagnvart atvinnulífinu, til djúprar niðursveiflu efnahags Venesúela. Olía hafi lengi verið helsta tekjulind ríkisins og um helmingur tekna ríkissjóðs komið frá olíuvinnslu. Óðaverðbólga og efnahagskreppa hafi dregið verulega úr kaupmætti almennings í landinu og orsakað skort á matvælum, lyfjum og öðrum nauðsynjavörum. Þrátt fyrir hækkanir á lágmarkslaunum hafi meginþorri almennings ekki getað framfleytt sér án fjárhagsaðstoðar. Í skýrslunni kemur fram að öll félagsleg aðstoð sé veitt í gegnum föðurlandskerfi og föðurlandskortið (s. Sistema Patria, Carnet de la Patria) en kortið sé forsenda fyrir aðgangi að opinberri aðstoð, m.a. matvælaaðstoð í formi CLAP matarpakka (s. Comité Local de Abastecimiento y Producción). Kerfið hafi verið notað til eftirlits með íbúum og sumum einstaklingum neitað um aðstoð vegna þess að þeir verið taldir á móti ríkisstjórninni og þannig hafi föðurlandskortið verið verkfæri til samfélagsstjórnunar. Árið 2022 hafi stjórnvöld hafið notkun smáforritsins VenApp, sem geri íbúum kleift að tilkynna truflanir á veitingu grunnþjónustu, s.s. vatns, gas eða rafmagns, en notkun þess krefjist samþykkis fyrir aðgang að persónuupplýsingum og staðsetningu notanda og sé því jafnframt tæki til að fylgjast með íbúum. Samkvæmt skýrslu Human Rights Watch frá árinu 2023 hafi flestir íbúar Venesúela þá verið í þörf fyrir aðstoð vegna skorts á mat, vatni, heilbrigðisþjónustu og hreinlæti. Þá hafi rúmlega sjö milljónir venesúelskra ríkisborgara lagt á flótta eða verið á vergangi vegna ástandsins í landinu og venesúelska flóttamannakrísan sé talin eitt alvarlegasta vandamál nútímans og fólksflutningarnir þeir fjölmennustu í nútímasögu Suður-Ameríku. Samkvæmt skýrslu Human Rights Watch frá árinu 2026 hafi tæplega átta milljónir venesúelskra ríkisborgara lagt á flótta frá því árið 2014.

Í skýrslu Landinfo frá mars 2023 segir að hagkerfi Venesúela hafi byrjað að sýna merki um bata frá árinu 2021 í kjölfar aukningu á olíuframleiðslu slökunar á ströngum reglum um gjaldeyrismál og leyfi fyrir auknum viðskiptum í erlendri mynt. Þrátt fyrir aukið framboð matvæla og lyfja eftir lægri verðbólgu og rýmkun innflutningsreglna hafi stór hluti íbúa ekki efni á nauðsynjavörum vegna lágra launa. Í skýrslunni kemur fram að frá árinu 2019 hafa Sameinuðu þjóðirnar aukið viðveru sína og mannúðaraðstoð í landinu. Þá hefur aðgengi ýmissa hjálparsamtaka að landinu aukist en aðstoðin komi aðallega frá Sameinuðu þjóðunum, Rauða krossinum og öðrum alþjóðlegum félagasamtökum. Í skýrslu Human Right Watch frá árinu 2023 er jafnframt fjallað um endurnýjuð stjórnmálasamskipti Venesúela við önnur ríki frá árinu 2022, m.a. enduropnun landamæra við Kólumbíu, endurnýjun stjórnmálasambands við argentínsk yfirvöld og samkomulag stjórnvalda í Venesúela og stjórnarandstöðunnar í nóvember 2022 um aukna mannúðaraðstoð. Samkomulagið hafi falið í sér úthlutun þriggja milljarða Bandaríkjadala til velferðarmála, m.a. til að tryggja betri heilbrigðisþjónustu, fæðuöryggi og rafmagn í landinu, en fram að þessum tíma hafi Maduro, forseti landsins, verið tregur við að þiggja mannúðaraðstoð þrátt fyrir þrýsting frá Sameinuðu þjóðunum, Bandaríkjunum og öðrum löndum.

Samkvæmt skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna frá apríl 2025 hafi fólksflutningur yfir landamæri Venesúela verið stöðugur, bæði inn í landið og út úr því. Á landamærum við Kólumbíu hafi fleiri snúið aftur til Venesúela en farið úr landi, en á landamærum við Brasilíu séu fleiri sem leiti þangað en áður í von um atvinnu og grunnþjónustu. Þá hafi fjöldi fólks snúið til baka til Venesúela í gegnum ríkisstyrktu áætlunina Vuelta a la Patria og vegna brottvísana frá Bandaríkjunum og öðrum nágrannaríkjum. Þrátt fyrir áframhaldandi efnahagslegan bata hafi vaxandi verðbólga og lækkun gjaldmiðilsins dregið úr kaupmætti og matvælaöryggi stórs hluta íbúanna, einkum meðal opinberra starfsmanna og lífeyrisþega. Flóttamannastofnunin hafi leitast við að aðstoða þá sem verst sé settir í landinu með auknu samstarfi við önnur mannúðarsamtök og alþjóðlega aðila í landinu með það að markmiði að stuðla að sjálfbærri endurkomu fólks til Venesúela. Stofnunin áætli að einn af hverjum fjórum Venesúelabúum þurfi á mannúðaraðstoð að halda og sérstökum aðgerðum sé beint að um 2,7 milljónum manna sem séu í sérstaklega viðkvæmri stöðu.

Samkvæmt skýrslum mannréttindastofnunar Sameinuðu þjóðanna (e. OHCHR), innflytjenda- og flóttamannanefndar Kanada og Landinfo frá 2023 er heilbrigðiskerfi Venesúela veikburða. Þótt bæði opinberar og einkareknar heilbrigðisstofnanir starfi í landinu hafi aðeins um 3% íbúa tök á að nýta sér einkarekna þjónustu. Opinber sjúkrahús hafi glímt við langvarandi skort á lyfjum, búnaði og starfsfólki, og aðgangur að rafmagni og vatni hafi verið ótryggur. Barnadauði og útbreiðsla sjúkdóma sem hægt væri að koma í veg fyrir með bólusetningum hafi aukist og heilbrigðiskerfið hafi verið illa í stakk búið til að takast á við Covid-19 faraldurinn. Þrátt fyrir að stjórnvöld hafi árið 2022 stutt við aðgengi að heilbrigðisþjónustu og lyfjum á fátækustu svæðum landsins sé aðbúnaði áfram ábótavant og mikill skortur á heilbrigðisstarfsfólki, meðal annars vegna þess að það hafi flúið land í miklum mæli. Þá hafi læknar og annað heilbrigðisstarfsfólk sætt hótunum og jafnvel handtökunum af hálfu yfirvalda vegna opinberrar gagnrýni á stöðu heilbrigðiskerfisins. Í skýrslu Human Rights Watch frá 2023 og 2025 kemur fram að Venesúela standi enn frammi fyrir alvarlegri mannúðarkrísu þar sem milljónir íbúa hafi ekki aðgang að fullnægjandi heilbrigðisþjónustu og næringu. Í mars 2023 hafa rúmlega átta milljónir alvarlega veikra einstaklinga átt í erfiðleikum með að fá heilbrigðisþjónustu og yfir níu milljónir ekki haft efni á nauðsynlegum lyfjum eða meðferð. Samkvæmt skýrslum Landinfo frá 2023 og Human Rights Watch frá 2025 hafi Venesúela um árabil glímt við alvarlegan lyfjaskort, þótt aðgengi hafi farið batnandi frá árinu 2019. Aðgengi sé að lyfjum fyrir þau sem geti greitt fyrir það en mörg fái lyf send frá útlöndum. Í skýrslu Human Rights Watch frá 2026 kemur fram að margir hafi neyðst til að grípa til sjálfslyfjameðferðar eða treysta á stuðning fjölskyldu og annarra persónulegra tengslaneta til að afla sér meðferðar.

Hinn 15. nóvember 2023 aðstoðuðu Útlendingastofnun og embætti ríkislögreglustjóra, í samvinnu við Landamæra- og strandgæslustofnun Evrópu (Frontex), 180 venesúelska ríkisborgara við sjálfviljuga heimför til Venesúela. Í kjölfarið bárust fregnir af því að sumir hefðu ekki fengið að fara frjálsir ferða sinna af flugvellinum í Karakas, vegabréf þeirra hafi verið haldlögð og einhverjir sætt yfirheyrslum af hálfu yfirvalda. Íslensk stjórnvöld settu sig í samband við þá einstaklinga sem náðist til og óskuðu eftir upplýsingum um afdrif þeirra. Voru meginniðurstöður þeirra svara sem bárust að nær allir hafi komist á áfangastað eða væru á leið þangað auk þess sem einn aðili var kominn til annars ríkis. Þá hafi allir sem svöruðu verið með vegabréf sín og flestir haft ferðastyrk íslenskra stjórnvalda í fórum sínum. Fyrir umrætt leiguflug höfðu íslensk stjórnvöld veitt alls 135 ríkisborgurum Venesúela aðstoð við sjálfviljuga heimför með hefðbundnu áætlunarflugi án vandkvæða við komu til Venesúela. Samkvæmt upplýsingum sem kærunefnd aflaði frá Útlendingastofnun 23. janúar 2025 fengu 971 venesúelskur ríkisborgari aðstoð við sjálfviljuga heimför til Venesúela á árinu 2024. Hafi íslenskum stjórnvöldum ekki borist upplýsingar um að þeir hafi lent í erfiðleikum við endurkomu sína til Venesúela. Þá kemur fram í tölfræði Útlendingastofnunar fyrir árið 2025 að á árinu hafi verið afgreiddar beiðni 345 einstaklinga frá Venesúela um aðstoð við sjálfviljuga heimför.

Heimildum kemur saman um að á árunum 2024 og 2025 hafi bandarísk stjórnvöld haldið áfram viðskiptaþvingunum gegn Venesúela, þar á meðal aðgerðum sem beinst hafi að olíuútflutningi, sjóflutningum og fjármálastarfsemi. Í desember 2025 tilkynnti fjármálaráðuneyti Bandaríkjanna um nýjar markvissar refsiaðgerðir gegn háttsettum aðilum innan stjórnkerfis Venesúela, ættingjum eiginkonu forsetans, Ciliu Flores, auk fyrirtækja og skipa sem talin hafi verið tengjast ólöglegum olíuflutningum. Nokkur olíuskip hafi verið talin veita stjórnvöldum í Karakas fjárhagslegan stuðning og vera hluti af svokölluðum skuggaflota (e. Shadow-fleet) sem hafi reynt að komast undan refsiaðgerðum Bandaríkjanna. Hinn 7. ágúst 2025 birti dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna myndskeið hvar þáverandi dómsmálaráðherra landsins, Pam Bondi, hét því að verðlauna hvern þann sem veitt gæti upplýsingar sem leitt gætu til handtöku Maduro 50 milljónir bandaríkjadollara. Á seinni hluta árs 2025 hafi þrýstingur Bandaríkjanna á Venesúela aukist enn frekar í formi aukinna refsiaðgerða, hernaðarlegra aðgerða og efnahagsþvingana. Samkvæmt fréttatilkynningum fjármála- og dómsmálaráðuneytis Bandaríkjanna í desember 2025 hóf Bandaríkjastjórn átak með það að markmiði að stöðva olíuútflutning sem talinn var styðja við stjórn Maduro og fjármagna stjórnvöld í Karakas. Á sama tíma hafi bandarísk yfirvöld kyrrsett fjölda olíuskipa sem þau hafi talið reyna að komast hjá refsiaðgerðum og flytja olíu ólöglega úr landi. Samkvæmt heimildum, þ. á m. frétt á vefsíðu The Washington Post 16. desember 2025, tilkynnti Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, í færslu á Truth Social um algert hafnarbann gegn öllum skipum sem reyndu að flytja olíu til eða frá Venesúela. Í fréttinni er aðgerðinni lýst sem hluta af víðtækari stefnu til að rjúfa flutningsleiðir olíugeirans og auka þrýsting á stjórnvöld í Venesúela.

Í skýrslu EUAA frá júlí 2026 kemur fram að í byrjun árs 2026 hafi verulegar pólitískar breytingar átt sér stað í Venesúela í kjölfar hernaðarinngrips Bandaríkjanna. Hinn 3. janúar 2026 framkvæmdu bandarískir hermenn aðgerð í Karakas sem leiddi til handtöku Nicolás Maduro forseta og eiginkonu hans. Í kjölfarið hafi yfirvöld í Bandaríkjunum lýst því yfir að þau myndu styðja tímabundin umskipti í Venesúela og jafnframt endurskipuleggja samskipti ríkjanna, þar á meðal aflétta hluta viðskiptaþvingana. Fjöldi þeirra sem hafi fallið í aðgerðinni sé ekki ljós, en heimildir bendi til þess að tugir meðlima öryggissveita Venesúela og kúbverskra hermanna hafi látið lífið. Hinn 5. mars 2026 hafi Delcy Rodríguez verið skipuð bráðabirgðaforseti af þjóðþinginu. Þrátt fyrir að stjórnskipan landsins hafi að mörgu leyti haldist óbreytt hafi Rodríguez að sögn tekið nokkra stefnumarkandi fjarlægð frá stjórnarháttum Maduro og hafið náið samstarf við Bandaríkin. Sama dag hafi stjórnmálasambönd ríkjanna verið endurvakin eftir sjö ára hlé og nokkrum dögum síðar hafi Bandaríkin viðurkennt Rodríguez formlega sem forseta.

Í kjölfar valdatökunnar hafi verið gerðar breytingar á framkvæmdavaldinu í Venesúela, hernum og öryggisstofnunum. Meðal annars hafi varnarmálaráðherra verið leystur frá störfum, nýir herforingjar skipaðir og breytingar gerðar á stjórn leyniþjónustunnar og forsetavarðliðsins. Hins vegar hafi kröfum um tafarlausar forseta- og þingkosningar verið hafnað og þeim frestað um óákveðinn tíma. Heimildir bendi til þess að borgaralegt og pólitískt svigrúm hafi aukist eftir brottvikningu Maduro. Skoðanakannanir sýni að meirihluti svarenda telji að borgaraleg réttindi og lýðræðisleg skilyrði hafi batnað. Stjórnmálaflokkar og frjáls félagasamtök hafi endurvakið starfsemi sína, rannsóknir og opinbera gagnrýni, auk þess sem þátttaka í mótmælum hafi aukist. Þrátt fyrir þessar jákvæðu breytingar beiti stjórnvöld sér enn gegn stjórnarandstæðingum og enn sé hætta á mannréttindabrotum af þeirra hálfu.

Þrátt fyrir framangreindar aðgerðir Bandaríkjanna liggur ekki fyrir að almennt öryggi borgara í Venesúela hafi raskast verulega í kjölfarið. Alþjóðlegir fjölmiðlar og opinberar yfirlýsingar bandarískra stjórnvalda hafa ekki greint frá því að viðvarandi átök, almennar óeirðir eða víðtæk mótmæli hafi brotist út í kjölfar aðgerðanna, heldur virðist öryggisástand að mestu hafa haldist stöðugt utan þeirra afmörkuðu hernaðaraðgerða sem framkvæmdar voru í Karakas við handtöku Maduro. Fjölmiðlar hafa greint frá því að stjórnsýsla og opinber þjónusta hafi að meginstefnu haldið áfram starfsemi sinni, þrátt fyrir pólitíska óvissu í kjölfar aðgerðanna. Jafnframt liggja ekki fyrir heimildir um að aðgangur að heilbrigðisþjónustu eða lyfjum hafi almennt verið hindraður. Þá benda heimildir til þess að landamæri Venesúela séu opin og að almenningur geti ferðast til og frá landinu. Að lokum liggja ekki fyrir heimildir sem benda til þess að einstaklingar sem snúi aftur til Venesúela eigi almennt hættu á að verða fyrir handahófskenndri meðferð, auknu eftirliti eða refsiaðgerðum einungis vegna aðgerða Bandaríkjanna. Stjórnvöld í Venesúela hafi þá unnið að því að láta lausa pólitíska fanga og samkvæmt upplýsingum á heimasíðu frjálsu félagasamtakanna Foro Penal frá 8. mars 2026, hafði 670 pólitískum föngum verið sleppt frá 8. janúar 2026. Frá febrúar 2026 til 31. ágúst 2026 hafi 188 einstaklingum verið sleppt án nokkurra takmarkana á grundvelli sakaruppgjafa laganna og 582 sleppt úr fangelsi en þurfi þó að sæta einhverskonar eftirliti. Telja samtökin að enn séu um 328 pólitískir fangar séu enn í haldi. Svokölluð sakaruppgjafarlög (e. Amnesty law) voru samþykkt á venesúelska þjóðþinginu í byrjun árs 2026 sem ætlað var að stuðla að auknu jafnvægi á pólitíska sviðinu. Á grundvelli laganna hefur fjölda pólitískra fanga verði sleppt en þau hafi þó verið gagnrýnd fyrir að vera óskýr og að einstaklingar hafi mætt hindrunum við að sækja um sakaruppgjöf. Lögunum hafi ekki verið ætlað að ná til þeirra sem hafi verið ákærðir eða sakfelldir fyrir að hvetja til hernaðaraðgerða gegn landinu. Hafa stjórnvöld verið hvött til þess að ganga úr skugga um að aðeins þeir sem hafi verið handteknir fyrir að nýta sér rétt sinn til tjáningar, skoðunar og samkomu/funda njóti verndar laganna en ekki aðilar sem hafi gerst sekir um alvarleg mannréttindabrot og glæpi gegn mannkyni, s.s. herlið á vegum yfirvalda og skæruliða. Varaforseti landsins lýsti því yfir í apríl 2026 að lögin yrðu felld úr gildi en nýjustu heimildir benda til þess að þau séu enn í gildi en stjórnvöld hafi nú þegar látið lausa þá einstaklinga sem falli undir gildissvið laganna og hægst hafi á lausn pólitískra fanga í landinu.

5.4 Niðurstaða um réttarstöðu flóttamanns samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Kærendur byggja á því að þau tilheyri sérstökum þjóðfélagshópi, M sem fyrrum starfsmaður öryggissveitar sem flúið hefur land og K sem nánasti fjölskyldumeðlimur einstaklings sem sé álitinn svikari og óvinur ríkisins. Byggir M jafnframt á því að hann eigi á hættu að verða fyrir ofsóknum á grundvelli stjórnmálaskoðana.

Mat á trúverðugleika frásagnar kærenda er byggt á endurritum af viðtölum þeirra hjá Útlendingastofnun, öðrum gögnum málsins og upplýsingum um heimaríki þeirra.

Í viðtölum hjá Útlendingastofnun kváðust kærendur hafa yfirgefið heimaríki vegna atburða sem megi rekja til þess að í desember 2022 hafi átt sér stað upplýsingaleki innan deildar M hjá [...]. Að sögn M hafi hann og aðrir ótilgreindir samstarfsmenn hans legið undir grun hjá yfirmönnum sínum um að hafa borið ábyrgð á lekanum og verið yfirheyrðir í fjölda skipta vegna lekans. Aðspurður kvaðst M ekki vita nákvæmlega hvert efni lekans hafi verið en telja upplýsingarnar hafa varðað flutning á fanga sem hann og hans deild hafi komið að. M hafi tekið sér frí frá vinnu í kjölfar lekans í desember og snúið aftur í janúar 2023. Hann hafi síðan farið í leyfi frá vinnu á ný í mars 2023 og ekki snúið aftur til starfa. M telji sig vera í hættu í Venesúela vegna fyrrum starfs síns hjá [...] og vitneskju sinnar um spillingu innan stofnunarinnar. Greindi M frá ýmis konar háttsemi og atriðum hvað framangreint varðar. Kvaðst M jafnframt hafa verið gert að framkvæma aðgerðir gegn vilja sínum í starfi sínu, t.d. að beita einstaklinga ofbeldi við handtöku ef þeir streittust á móti. M kvað að sér hefði verið refsað hefði hann neitað að framfylgja slíkum skipunum.

Kærendur hafa lagt fram ýmis gögn til að sýna fram á að M hafi starfað fyrir [...], m.a. ljósmynd af skjali, dags. 6. október 2022. Af vélrænni þýðingu á framangreindu skjali má ráða að það sé undirritað af tilgreindum stjórnanda DEIPC deildar [...] til staðfestingar á að M hafi starfað undir stjórn umrædds einstaklings frá 6. október 2022 og sé handhafi og beri ábyrgð á tiltekinni skammbyssu vegna þeirra starfa sinna. Í skjalinu er tekið fram að það gildi til 31. desember 2022. Þá lögðu kærendur einnig fram fjölda ódagsettra ljósmynda sem bera með sér að sýna M að störfum fyrir [...]. Framlögð gögn renna stoðum undir frásögn M um að hann hafi starfað hjá herleyniþjónustunni [...] og verður því lagt til grundvallar að M hafi gegnt slíkum störfum. Af gögnum málsins verður þó ekki ráðið hvenær M hóf störf fyrir [...] eða að hann hafi starfað áfram þar eftir gildistíma framlagðs skjals, til 31. desember 2022. Hafa kærendur því ekki lagt fram gögn sem styðja við þá frásögn M að hann hafi yfirgefið starf sitt án leyfis.

Með vísan til landaupplýsinga, framlagðra gagna og frásagna kærenda er ekki ástæða til að draga í efa að M hafi starfað fyrir [...] og gert að framfylgja skipunum sem honum hafi mislíkað í starfi sínu ellegar sæta refsingum. Kærendur hafa þó ekki lagt fram nein gögn til stuðnings frásagnar M um að hann hafi legið undir grun hjá yfirmönnum sínum um að hafa borið ábyrgð á upplýsingaleka innan starfsdeildar M í desember 2022. Þrátt fyrir það er ekki hægt að útiloka að framangreindur leki haft átt sér stað og að M hafi þurft að sæta yfirheyrslum ásamt samstarfsmönnum sínum vegna lekans. Framangreindar yfirheyrslur og mögulegar grunsemdir um ábyrgð M bera það þó ekki með sér að ná marki ofsókna í skilningi 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Við það mat lítur kærunefnd m.a. til þess að ekkert í frásögn M eða gögnum málsins bendir til þess að M hafi orðið fyrir einhverjum aðgerðum, s.s. handtöku eða tilfærslu í starfi af hálfu yfirvalda eftir að meintur leki hafi átt sér stað og þar til kærendur yfirgáfu heimaríki í maí 2023. Af frásögn M má ráða að hann hafi getað tekið sér leyfi frá störfum í tvígang í kjölfar lekans án vandkvæða. Þá hafi M að eigin sögn getað slegið endurkomu sinni til vinnu á frest með ítrekuðum hætti er yfirmenn hans hafi hringt í hann og hann tjáð þeim að hann myndi snúa aftur á nánar tilgreindum tíma en aldrei mætt. Þá bendir það ekki til þess að ótti M við að hann yrði gerður ábyrgur á umræddum leka að ósekju hafi verið ástæðuríkur í ljósi þess að M hafi getað fengið útgefið vegabréf 27. febrúar 2023 og samkvæmt útstimpli frá Simón Bolivár flugvellinum 18. maí 2023 og frásögn M hafi kærendur farið úr landi án vandkvæða. Hafi M legið sérstaklega undir grun að hafa staðið að baki slíkum öryggisbresti hjá leyniþjónustustofnun á borð við [...] benda heimildir til þess að yfirvöld hefðu reynt að hindra brottför hans úr landi, s.s. með því að synja honum um að fá útgefið vegabréf.

Í viðtölum hjá Útlendingastofnun kvaðst M óttast það að verða handtekinn við endurkomu til heimaríkis sökum þess að hafa yfirgefið starf sitt hjá [...] án heimildar á meðan hann hafi verið í formlegu leyfi og sé því liðhlaupi. Kærendur hafa ekki lagt fram nein skjöl framangreindu til stuðnings og ekkert í frásögnum kærenda bendir til þess að yfirvöld í Venesúela líti á brotthvarf M úr landi sem liðhlaup. Heimildir um Venesúela benda til þess að stjórnvöld í Venesúela beiti ströngu innra eftirliti til að koma í veg fyrir flótta og liðhlaup úr her- og öryggisstofnunum. Í skýrslu EUAA kemur fram að meðlimum hersins sé bannað að yfirgefa landið án fyrirliggjandi og skriflegs samþykkis (sp. permiso de salida) yfirmanns síns eða varnarmálaráðuneytisins og að auðkenni þeirra sé flaggað í landamæraeftirlitskerfi SAIME.

Ekki er vikið sérstaklega að stöðu fyrrum borgaralegra meðlima [...] í viðurkenndum heimildum og skýrslum sem kærunefnd lítur til við rannsókn og úrlausn kærumála vegna umsókna um alþjóðlega vernd. Virðist opinber umfjöllun um stöðu fyrrum meðlima [...] fyrst og fremst taka mið af stöðu þeirra meðlima sem skráðir séu í herinn og komi þaðan til starfa hjá [...]. Að mati kærunefndar er ekki unnt að líta svo á að M sé í sambærilegri stöðu og slíkir einstaklingar, en eðli máls samkvæmt bera meðlimir hersins annars konar skyldur og lúta annars konar boðvaldi og stjórnskipan en almennir borgarar. Þegar litið er til frásagnar M af eðli starfa sinna hjá [...], þ.e. að hann hafi annars vegar handtekið einstaklinga og flutt þá til höfuðstöðva [...] eða til dómstóla og hins vegar sinnt gæslu eða lífvarðastörfum fyrir háttsetta einstaklinga, telur kærunefnd að störf M hafi um margt svipað til starfa lögreglumanna. Með vísan til þessa og í ljósi þess að ekkert í frásögnum kærenda eða gögnum málsins bendir til þess að M hafi verið virkur meðlimur í hernum á starfstíma hans hjá [...] verður lagt til grundvallar að M hafi verið borgaralegur starfsmaður innan [...] og því undanskilinn refsiákvæðum herlaga Venesúela vegna liðhlaups.

Af landaupplýsingum verður ekki ráðið að almennir lögreglumenn eða borgaralegir meðlimir öryggissveita sem yfirgefi störf sín eigi á hættu að sæta áreiti eða annarri meðferð sem nái því marki að teljast ofsóknir snúi þeir aftur til heimaríkis. Með vísan til þess sem að framan greinir telst M ekki hafa sýnt fram á að hann eigi á hættu ofsóknir í heimaríki vegna starfa sinna þar í landi. Lítur kærunefnd m.a. til þess að M kvað fjölskyldumeðlimi sína í Venesúela, þ. á m. móður sína og tvö börn, ekki hafa orðið fyrir nokkurs konar áreiti af hálfu yfirvalda þar í landi né hafa verið spurð um M og staðsetningu hans eftir að kærendur yfirgáfu landið. Þá hafi kærendur fengið útgefið vegabréf í febrúar 2023 og getað farið úr landi án vandkvæða í maí 2023. Framangreint bendir ekki til þess að kærendur, einkum M, hafi sætt eða eigi á hættu að sæta ofsóknum af hálfu venesúelskra stjórnvalda eða að kærendur séu undir sérstöku eftirliti þeirra. Hafa kærendur því ekki sýnt fram á að venesúelsk stjórnvöld líti svo á að M hafi gerst sekur um liðhlaup með því að hafa ekki snúið aftur til starfa eftir að hafa fengið formlegt leyfi frá störfum og yfirgefið heimaríki eða að M sé í hættu í heimaríki sökum þessa.

Í greinargerð M er byggt á því að hann hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir á grundvelli ætlaðra stjórnmálaskoðana þar sem sú háttsemi hans að yfirgefa störf hjá [...] og flýja land sé túlkuð sem svik eða pólitísk andstaða af yfirvöldum þar í landi. Í viðtölum hjá Útlendingastofnun kváðust kærendur ekki vera aðilar að stjórnmálaflokki, virk í þágu tiltekins málsstaðar né tilheyra minnihlutahópi í heimaríki. Í ódagsettu bréfi M til Útlendingastofnunar greinir M frá því að hafa allt aðrar skoðanir en stjórnvöld í Venesúela án þess að veita nánari skýringar á framangreindu. M kveðst hafa verið mótfallinn fyrirskipunum yfirmanna sinna í talsverðan tíma en verið skyldugur til að fylgja þeim ellegar verða handtekinn. Með vísan til þessa og framangreindrar umfjöllunar um meðferð löggæslumanna sem yfirgefi störf sín verður ekki talið að M hafi sýnt fram á að hann eigi á hættu að sæta ofsóknum í heimaríki á grundvelli stjórnmálaskoðana, hvort sem þær séu raunverulegar eða ætlaðar. Þá er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að M sé eftirlýstur á grundvelli þess að hafa yfirgefið starf sitt án formlegrar uppsagnar og benda heimildir ekki til þess að litið sé á meðlimi löggæslustofnana sem yfirgefi störf sín án heimildar sem stjórnarandstæðinga.

Þegar frásagnir kærenda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum þeirra í heimaríki, teljast kærendur ekki hafi sýnt fram á með rökstuddum hætti að þau eigi á hættu ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Sama á við þegar litið er til samsafns athafna. Kærendur uppfylla því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamenn hér á landi, sbr. 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

5.5 Niðurstaða um viðbótarvernd samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Kærendur byggja kröfu sína um viðbótarvernd á því að ástandið almennt í Venesúela auk persónulegra aðstæðna þeirra nái því alvarleikastigi að það falli undir verndarsvið 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

Þó öryggisástand í Venesúela sé á ákveðnum svæðum ótryggt og glæpa- og morðtíðni há hafa átök að mestu verið staðbundin við svæði við landamæri Kólumbíu og Brasilíu. Benda almennar heimildir ekki til þess að aðstæður í landinu nái því marki að sérhver einstaklingur sem þangað fari eigi á hættu að láta lífið eða verða fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum. Stjórnvöld í Venesúela hafi viðurkennt þörfina á mannúðaraðstoð og unnið að því í samstarfi við alþjóðasamfélagið að bæta slíka aðstoð. Samkvæmt alþjóðlegum skýrslum virðist efnahagur landsins hafa þokast í rétta átt síðustu árin hagvöxtur hafi aukist þrátt fyrir viðskiptaþvinganir og vöruframboð aukist að einhverju leyti þrátt fyrri hátt verðlag. Þrátt fyrir að viðbrögð stjórnvalda í kjölfar forsetakosninga í júlí 2024 hafi verið harkaleg og alþjóðasamfélagið hafi gagnrýnt þær aðfarir verður ekki ráðið að þær aðgerðir hafi beinst að eða beinist að öllum almenningi í landinu. Hvað varðar hernaðaraðgerðir Bandaríkjanna í Venesúela og handtöku Maduro og eiginkonu hans af hálfu bandarískra stjórnvalda er ekkert sem bendir til þess að þær aðgerðir hafi leitt til þess að aðstæður í landinu hafi versnað fyrir almenning í landinu. Benda heimildir til þess að stjórnvöld hafi brugðist við með því að setja í embætti varaforseta landsins og að stjórn og innviðir landsins séu eins og er stöðugir. Þá hafa ekki brotist út mótmæli eða vopnuðu átök sem eða komið upp önnur atvik sem benda til þess að almennar aðstæður séu slíkar að hver sem þar sé staddur teljist eiga á hættu dauðarefsingu eða ómannúðlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

Með vísan til framangreinds verða frekari persónulegir þættir að vera til staðar svo umsækjandi um alþjóðlega vernd frá Venesúela teljist eiga áhættu meðferð í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

Með vísan til umfjöllunar undir 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga um aðstæður kærenda er ljóst að þau atvik sem kærendur hafa lýst ná ekki því marki að teljast ómannúðleg eða vanvirðandi meðferð í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þá er ekkert í gögnum málsins eða framburðum kærenda sem gefur tilefni til að ætla að einstaklingsbundnar aðstæður kærenda leiði til þess að þau eigi á hættu að sæta ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu snúi þau til baka.

Í viðtölum hjá Útlendingastofnun greindu kærendur frá því að hafa verið búsett í [...] í Venesúela. Samkvæmt landaupplýsingum eru almennar aðstæður í höfuðborginni mun betri en á strjálbýlli stöðum í landinu. Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2023, kemur fram að ríkislögreglan sé aðallega við störf í höfuðborginni og nágrenni hennar og þá bera heimildir ekki með sér að vopnuð átök eða árásir á almenna borgara séu tíðar í [...]. Samkvæmt landaupplýsingum, m.a. korti og upplýsingum á vefsíðu ACLED (e. The Armed Conflict Location & Event Data Project), eru ekki virk átök eða óeirðir á því svæði sem kærendur hafa tengsl við eða í Venesúela almennt. Með vísan til framangreinds verður ekki talið að kærendur eigi á hættu að verða fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum við komu aftur til heimaríkis.

Þegar frásögn kærenda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kærenda í heimaríki, er það niðurstaða kærunefndar að einstaklingsbundnar aðstæður kærenda séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærendur uppfylla því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamenn hér á landi, sbr. 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

5.6 Alþjóðleg vernd á grundvelli 40. gr. laga um útlendinga

Þar sem kærendur eru ekki flóttamenn samkvæmt 37. gr. laga um útlendinga eiga þau ekki rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi, sbr. 40. gr. laga um útlendinga.

6 Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða

Með vísan til hinna kærðu ákvarðana og kröfugerðar kærenda eru ákvarðanir Útlendingastofnunar um veitingu dvalarleyfis á grundvelli mannúðarsjónarmiða með vísan til 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga staðfestar.

7 Athugasemdir, samantekt og leiðbeiningar

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinna kærðu ákvarðana eru þær staðfestar.

Úrskurðarorð:

Ákvarðanir Útlendingastofnunar eru staðfestar.

The decisions of the Directorate of Immigration are affirmed.

F.h. kærunefndar útlendingamála, skv. 3. mgr. 8. gr. laga um útlendinga,

Jóna Aðalheiður Pálmadóttir

Var efnið hjálplegt?