30. september 2026
/
Atvinnuvegaráðuneytið

Magnús stýrir Stofnun atvinnuveganna

{image.Description}
Sigurjón Ragnar
Magnús Kristjánsson er nýskipaður forstjóri Stofnunar atvinnuveganna.

Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra hefur skipað Magnús Kristjánsson í embætti forstjóra Stofnunar atvinnuveganna.

Hin nýja stofnun verður til við sameiningu Matvælastofnunar, Fiskistofu og Verðlagsstofu skiptaverðs. Einnig flytjast verkefni á sviði matvælaeftirlits heilbrigðisnefnda sveitarfélaga til stofnunarinnar.

Forstjóri er skipaður til fimm ára og mun leiða undirbúning, móta skipulag og stýra starfsemi stofnunarinnar sem mun taka til starfa þegar lög nr. 85/2026 taka gildi 1. janúar 2027.

Embættið var auglýst laust til umsóknar í júlí sl. Atvinnuvegaráðherra skipaði þriggja manna ráðgefandi hæfnisnefnd sem lagði mat á hæfni 12 umsækjenda um embættið.

Magnús Kristjánsson lauk B.Sc. gráðu í tölvunarfræði árið 2000 frá Háskóla Íslands og MBA prófi í viðskiptafræði árið 2009 frá sama skóla. Magnús hefur farsæla reynslu af stjórnun og stefnumótun innan opinbers rekstrarumhverfis og á samkeppnismarkaði. Hann gegndi starfi forstjóra Orkusölunnar á árunum 2008 til 2026. Áður var hann upplýsingatæknistjóri hjá Rarik á árunum 2003 til 2006. Þá starfaði Magnús hjá TM Software – Business Solution sem verkefnastjóri á árunum 1999 til 2003 og sem aðstoðarframkvæmdastjóri á árunum 2006 til 2008. Magnús hefur gegnt formennsku í stjórnum Sunnlenskrar orku og Sjávarorku, verið stjórnarmaður og varaformaður stjórnar Samorku og sat í fulltrúaráði Samtaka atvinnulífsins.