1. október 2026
/
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

Vel heppnuð 90 ára afmælisráðstefna

{image.Description}
Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, ávarpar ráðstefnuna.

Níutíu ára afmæli almannatrygginga var fagnað með ráðstefnu í Hörpu í gær, sem Tryggingastofnun, Sjúkratryggingar Íslands og Vinnumálastofnun stóðu að. Þar var farið yfir sögu almannatrygginga, þróun og horft til framtíðar bæði hér á landi og alþjóðlega. Um 400 manns sóttu ráðstefnuna sem þótti takast mjög vel.

Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra og Alma Möller heilbrigðisráðherra ávörpuðu bæði ráðstefnuna og ræddu meðal annars um mikilvægi og umfang málaflokksins, sem öryggisnets í samfélaginu.

Forstjórar stofnananna þriggja sem stóðu að ráðstefnunni fluttu síðan erindi og fjölluðu um söguna, þróun almannatrygginga sem og starfsemi stofnana ásamt því að horfa til framtíðar. Í pallborði hagaðila var meðal annars ítrekað hvað samráð og samstarf skipti miklu máli.

Þrjú erindi voru flutt um samspil atvinnulífs og almannatrygginga og þar var meðal annars fjallað um mikilvægi lífeyrissjóða og þá stoð sem þeir mynda í lífeyriskerfinu. Einnig var fjallað um aðkomu verkalýðshreyfingarinnar sem og atvinnurekenda að lífeyriskerfinu.

Rannsókn sem TR gerði ásamt Vinnueftirlitinu, Velferðarvaktinni og félags- og húsnæðismálaráðuneytinu á árinu 2025 um reynslu og aðstæður kvenna með örorkulífeyri var kynnt. Þar kom meðal annars fram að yfir 20% kvenna frá 60 ára eru með örorkulífeyri og fjölmargar þeirra hafa unnið líkamlega erfið störf og borið ábyrgð á umönnun barna sinna.

Alþjóðlegir gestir frá OECD, Alþjóðasamtökum almannatryggingastofnana (ISSA) og fjölskyldumálaráðuneyti Möltu ræddu stöðuna í almannatryggingum í dag og þá framtíðarsýn sem blasir við.

Í pallborði þar sem forstjórar og framkvæmdastjórar frá Finnlandi, Svíþjóð, Noregi og Íslandi ræddu um norræna módelið, stöðu þess og framtíðarsýn kom meðal annars fram að stofnanirnar allar leggja mikla áherslu á að þjónusta viðskiptavini með sem bestum hætti. Eitt af krefjandi verkefnunum er að skapa og viðhalda trausti og vera fær um að sýna sveigjanleika í samræmi við síbreytilegar kröfur samtímans.

Síðast á dagskránni var afhending afmælisgjafar TR til ungs fólks í framhaldsskólum í formi kennsluefnis um almannatryggingar og velferð. Við gjöfinni tóku fulltrúar Félags lífsleiknikennara í framhaldsskólum.

Dagskrána í heild og fleira fróðlegt efni má nálgast á vefnum almannatryggingar.is

Sjá einnig lengri frétt um ráðstefnuna á vef Tryggingastofnunar.