22. október 2026 /
Dómsmálaráðuneytið

Úrskurður nr. 428/2026

Hinn 22. október 2026 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 428/2026

í stjórnsýslumáli nr. KNU26010107

Kæra [...]

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 26. janúar 2026 kærði einstaklingur að nafni [...], fd. [...], ríkisborgari Nígeríu (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 16. janúar 2026, um brottvísun frá landinu og endurkomubann til þriggja ára á grundvelli 2. mgr. 98. gr., sbr. 2. mgr. 101. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

Kærandi krefst þess að hin kærða ákvörðun um brottvísun og endurkomubann verði felld úr gildi. Til vara krefst kærandi þess að sér verði ekki ákveðin brottvísun á grundvelli 3. mgr. 102. gr. laga um útlendinga. Til þrautavara krefst kærandi þess að endurkomubanni verði markaður skemmri tími.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

Lagagrundvöllur

Í máli þessu koma einkum til skoðunar ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016 ásamt síðari breytingum, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017 ásamt síðari breytingum, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, ákvæði laga um landamæri nr. 136/2022, reglugerð um för yfir landamæri nr. 866/2017, ásamt síðari breytingum, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, auk annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

II. Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi 1. október 2019. Hinn 8. nóvember 2019 komst Útlendingastofnun að þeirri niðurstöðu að umsókn kæranda skyldi ekki tekin til efnismeðferðar hér á landi. Flutningi kæranda úr landi var frestað en nokkru síðar var tekin sú ákvörðun að mál hans skyldi tekið til efnismeðferðar hér á landi. Með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 13. ágúst 2020, var kæranda synjað um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða og vísað frá landinu. Með úrskurði kærunefndar nr. 348/2020, dags. 15. október 2020, var ákvörðun Útlendingastofnunar staðfest og kæranda veittur 30 daga frestur til að yfirgefa landið sjálfviljugur. Af gögnum málsins er ljóst að kærandi hafi ekki yfirgefið landið innan þess frests.

Kærandi lagði fram umsókn um dvalarleyfi á grundvelli hjúskapar við íslenskan ríkisborgara 24. júlí 2023 í ólögmætri dvöl sem vísað var frá 4. nóvember 2024 á grundvelli 1. mgr. 101. gr. laga um útlendinga í kjölfar þess að Útlendingastofnun tók ákvörðun um brottvísun kæranda frá landinu og tveggja ára endurkomubann. Sú brottvísunarákvörðun var þó aldrei birt fyrir kæranda og tók því ekki gildi. Kærandi yfirgaf landið 9. nóvember 2024 og fór til Ítalíu. Samkvæmt gögnum málsins hafði kærandi ekki löglega heimild til dvalar á Ítalíu og bar því að yfirgefa Schengen-svæðið í kjölfar ákvörðunar Útlendingastofnunar.

Kærandi kom á ný hingað til lands 11. janúar 2026 með flugi frá Mílanó og var stöðvaður af lögreglu á Keflavíkurflugvelli. Var kærandi færður til viðtals hjá lögreglu þar sem hann kvaðst fyrst hafa leyfi til dvalar á Ítalíu en breytti síðar þeirri frásögn. Kærandi kvaðst vera kominn hingað til lands til að hitta barnsmóður sína og son sinn. Kærandi kvaðst ætla að dvelja hér á landi í þrjár vikur en hann ætti ekki bókaðan flugmiða frá Íslandi. Kærandi hafi ætlað að dvelja hjá vini og hafi sýnt fram á 260 evrur í reiðufé en kvaðst ekki hafa aðgang að frekari fjármunum. Kærandi kvaðst hafa verið giftur íslenskum ríkisborgara en þau skilið árið 2024. Kærandi hafi dvalið innan Schengen-svæðisins í 11 ár, á Íslandi frá árinu 2019 til ársins 2024 en annars hafi hann dvalið á Ítalíu. Kærandi hafi ekki sótt um dvalarleyfi á Ítalíu og kvaðst hafa hafst við á götum úti þar í landi. Kæranda var birt tilkynning um hugsanlega brottvísun, dags. 11. janúar 2026, af lögreglu þar sem kæranda var gefið færi á að koma að andmælum við hugsanlegri brottvísun. Kærandi sendi tölvubréf á lögreglu sama dag þar sem hann kvaðst aðeins vilja hitta son sinn eða fá að dvelja með honum hér á landi Eftir nánari skoðun þótti tilefni til að birta tilkynningu á ný um hugsanlega brottvísun og endurkomubann og var honum því birt önnur tilkynning 16. janúar 2026 þar sem fram kemur að Útlendingastofnun hafi til skoðunar að brottvísa honum og ákvarða endurkomubann á grundvelli ólögmætrar dvalar. Kom þar fram að kærandi hefði tækifæri til að færa fram andmæli með munnlegum hætti með vísan til 12. gr. laga um útlendinga og 13. gr. stjórnsýslulaga og er merkt við í þar til gerðan reit að kærandi hafi komið að munnlegum andmælum. Með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 16. janúar 2026, var kæranda brottvísað og ákveðið endurkomubann til Íslands og Schengen-svæðisins í þrjú ár á grundvelli 2. mgr. 98. gr., sbr. og 2. mgr. 101. gr. laga um útlendinga.

Ákvörðunin var birt fyrir kæranda sama dag og kærð til kærunefndar útlendingamála 26. janúar 2026. Hinn 9. febrúar 2026 barst greinargerð kæranda. Frekari gögn bárust frá kæranda 13. ágúst 2026. Með kæru lagði kærandi fram beiðni um frestun réttaráhrifa hinnar kærðu ákvörðunar á meðan málið væri til meðferðar hjá kærunefnd, sbr. 2. mgr. 29. gr. stjórnsýslulaga. Með bréfi kærunefndar, dags. 10. febrúar 2026, var beiðni kæranda um frestun réttaráhrifa synjað. Kæranda var fylgt úr landi með heimferða- og fylgdardeild Ríkislögreglustjóra 12. febrúar 2026. Frekari upplýsingar bárust frá kæranda 25. september 2026.

III. Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda eru málavextir raktir í samræmi við framangreint. Kærandi eigi barn hér á landi með íslenskum ríkisborgara og hyggist höfða dómsmál til feðrunar barnsins á grundvelli barnalaga nr. 76/2003. Kærandi hafi verið vistaður á Hólmsheiði þar til brottflutningur hans hafi farið fram og því hafi hann ekki haft tækifæri á að nálgast sönnunargögn úr síma sínum sem styðji við mál hans um faðerni barnsins.

Kærandi byggir á því að ákvörðun Útlendingastofnunar sé haldin verulegum annmarka sem ekki verði bætt úr á kærustigi, þar sem brotið hafi verið gegn andmælarétti hans, sbr. 13. gr. stjórnsýslulaga. Sú málsmeðferð að tilkynna kæranda um íþyngjandi ákvörðun og taka hana samdægurs án þess að veita honum raunhæfan og hæfilegan frest til að bregðast við sé andstætt andmælarétti hans. Þegar um sé að ræða jafn íþyngjandi ákvörðun og brottvísun og endurkomubann verði að gera ríkar kröfur til þess að aðili hafi ráðrúm til að koma afstöðu sinni á framfæri. Kærandi vísar til úrskurðar kærunefndar útlendingamála nr. 615/2017 og álits Umboðsmanns Alþingis nr. 5261/2008 máli sínu til stuðnings. Jafnframt vísar kærandi til úrskurða kærunefndar nr. 621/2024 og nr. 724/2024. Að mati kæranda leiði framangreind fordæmi til þess að fella beri úr gildi hina kærðu ákvörðun. Kærandi telji að ákvörðun Útlendingastofnunar hafi brotið gegn meðalhófsreglu, sbr. 12. gr. stjórnsýslulaga. Kærandi vísar til þess að því tilfinningalegri sem sú skerðing sem leiði af ákvörðun stjórnvalds sé, þeim mun strangari kröfur verði að gera til sönnunar á nauðsyn skerðingar. Vísar kærandi til úrskurðar kærunefndar nr. 115/2017, dags. 23. febrúar 2017, máli sínu til stuðnings. Kærandi telji að vægari úrræði hafi verið fyrir hendi, s.s. að veita honum frest til að sækja um dvalarleyfi á nýjum grundvelli eða bíða niðurstöðu faðernismáls. Kærandi telji framangreindan annmarka leiða til ógildingar hinnar kærðu ákvörðunar.

Til vara krefst kærandi þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi að honum verði hvorki ákveðin brottvísun á grundvelli 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga né endurkomubann samkvæmt 2. mgr. 101. gr. laga um útlendinga enda njóti hann verndar 3. mgr. 102. gr. laganna. Við mat á því hvort brottvísun raski fjölskyldulífi þurfi að fara fram heildstætt mat á hagsmunum ríkisins af því að framfylgja lögum um útlendinga annars vegar og hagsmunum einstaklings af því að viðhalda fjölskyldulífi hins vegar. Brottvísun og endurkomubann hefði röskun á fjölskyldulífi hans í för með sér. Útlendingastofnun hafi ekki lagt mat á tengsl kæranda hér á landi og því sé ákvörðunin byggð á ófullnægjandi grunni. Barn kæranda hafi rétt á að þekkja báða foreldra sína og njóta umönnunar þeirra, sbr. barnalög nr. 76/2003, 71. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands og alþjóðlegum mannréttindaskuldbindingum, sbr. 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þá hafi í framkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu verið talið að 8. gr. mannréttindasáttmálans nái til sambands milli föður og barns sem hafi enn ekki myndast, sbr. einnig úrskurð kærunefndar nr. 45/2022. Kærandi telji að ekkert hagsmunamat hafi farið fram hjá Útlendingastofnun og því verið hafnað að kærandi ætti nánasta aðstandanda hér á landi þar sem ekki hafi verið lögð fram gögn sem styðji það. Kærandi vísar til þess að mál hans hafi ekki verið rannsakað til fulls, sbr. 10. gr. stjórnsýslulaga, og hann ekki getað lagt fram gögn þar sem ákvörðun hafi verið tekin sama dag og tilkynning um hugsanlega brottvísun hafi verið birt honum. Kærandi vísar til átta matsatriða sem sett hafi verið fram í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu og telur þau mæla gegn brottvísun hans. Kærandi vísar jafnframt til dóms héraðsdóms Reykjavíkur nr. E-3940/2015, þar sem brottvísun hafi verið talin fela í sér ósanngjarna ráðstöfun í garð stefnanda og nánustu aðstandenda hans, m.a. með vísan til þess að íhlutun í friðhelgi fjölskyldu stefnanda hafi krafist sérstakrar lagaheimildar og brýna nauðsyn hafi þurft til vegna réttinda annarra, sbr. 3. mgr. 71. gr. stjórnarskrárinnar. Kærandi byggir á því að ekki sé brýn nauðsyn að brottvísa honum og ákvarða endurkomubann til Íslands og að ákvörðun Útlendingastofnunar hafi brotið gegn stjórnarskrárvörðum rétti hans til friðhelgi einkalífs, heimilis og fjölskyldu.

Til þrautavara krefst kærandi þess að endurkomubanni verði markaður eins stuttur tími og lög leyfi. Byggir kærandi á grundvallarreglu um meðalhóf, sbr. 12. gr. stjórnsýslulaga og 102. gr. laga um útlendinga, auk jafnræðisreglu stjórnsýsluréttar. Þriggja ára endurkomubann sé íþyngjandi og ekki í samræmi við framkvæmd þegar um sé að ræða minniháttar brot.

IV. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Samkvæmt 1. mgr. 49. gr. laga um útlendinga er útlendingi, sem þarf vegabréfsáritun til landgöngu, ekki heimilt að dveljast hér á landi lengur en áritunin segi til um nema sérstakt leyfi komi til. Öðrum útlendingum er óheimilt án sérstaks leyfis að dveljast hér lengur en 90 daga frá komu til landsins. Þá segir í 1. mgr. 50. gr. laganna að útlendingur sem hyggist dvelja hér á landi lengur en honum sé heimilt samkvæmt 49. gr. þurfi að hafa dvalarleyfi.

Í 8. gr. reglugerðar um útlendinga, með síðari breytingum, er nánar fjallað um dvöl án dvalarleyfis. Þar segir í 1. mgr. að útlendingur sem þurfi vegabréfsáritun til landgöngu megi ekki dveljast hér á landi lengur en áritunin segi til um nema sérstakt leyfi komi til. Öðrum útlendingum sé óheimilt án sérstaks leyfis að dveljast hér lengur en 90 daga frá komu til landsins. Dvöl í öðru ríki sem tekur þátt í Schengen-samstarfinu teljist jafngilda dvöl hér á landi. Samanlögð dvöl á Schengen-svæðinu megi ekki fara yfir 90 daga á 180 daga tímabili. Þá segir í 2. mgr. 8. gr. að dvalartími útlendings sem sé undanþeginn áritunarskyldu reiknist frá þeim degi er hann kom inn á Schengen-svæðið. Ef útlendingur hefur dvalarleyfi í öðru ríki sem tekur þátt í Schengen-samstarfinu reiknast dvalartíminn frá þeim degi er hann fór yfir innri landamæri Schengen-svæðisins. Samkvæmt 13. gr. reglugerðar um för yfir landamæri nr. 866/2017 skal miða við dagsetningu er fram kemur á komustimpli í ferðaskilríkjum við mat á lengd dvalar útlendings, sem hvorki er EES- eða EFTA-borgari, á Schengen-svæðinu. Nú hafa ferðaskilríki hans ekki að geyma komustimpil og skal þá miðað við að handhafi þeirra hafi ekki gætt skilyrða um lengd dvalar og er heimilt að vísa honum brott í samræmi við ákvæði laga um útlendinga og reglugerðar um útlendinga. Ákvæði 1. mgr. gildir þó ekki ef útlendingur leggur fram gögn sem með trúverðugum hætti sýna fram á að hann hafi virt skilyrði um lengd dvalar.

Í 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga kemur fram að svo framarlega sem 102. gr. eigi ekki við skuli vísa útlendingi úr landi sem dvelst ólöglega í landinu eða þegar tekin hefur verið ákvörðun sem bindur enda á heimild útlendings til dvalar í landinu. Í 2. mgr. 101. gr. laga um útlendinga kemur m.a. fram að brottvísun feli í sér bann við komu til landsins síðar. Endurkomubann skuli að jafnaði ekki vara lengur en fimm ár og eigi skemur en tvö ár. Í f-lið 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga kemur fram að jafnaði skuli lögregla eða Útlendingastofnun veita útlendingi sjö til 30 daga frest til að yfirgefa landið sjálfviljugur. Heimilt sé að veita styttri frest eða fella hann niður ef útlendingi er vísað frá eða brott á ytri landamærum Schengen-svæðisins. Í athugasemdum við ákvæði 2. mgr. 104. gr. í frumvarpi því er varð að lögum um útlendinga kemur m.a. fram að jafnaði sé gefinn frestur til að yfirgefa landið að eigin frumkvæði. Í ákveðnum tilvikum sé ekki veittur slíkur frestur, svo sem hafi útlendingur gefið mjög rangar upplýsingar, hætta sé á að hann reyni að fara í felur eða viðkomandi teljist hættulegur.

Af gögnum málsins verður ráðið að kærandi hafi verið í ólögmætri dvöl á Schengen-svæðinu er hann kom hingað til lands í janúar 2026. Kærandi hefur ekki lagt fram gögn sem sýna fram á með trúverðugum hætti að hann hafi gilt dvalarleyfi á Schengen-svæðinu og samkvæmt framburði hans hefur hann dvalið á Ítalíu frá því að hann yfirgaf Ísland árið 2024 án þess að sækja um heimild til dvalar þar í landi. Kærandi hefur því dvalið hér á landi og á Schengen-svæðinu í ólögmætri dvöl allt frá því að umsókn hans um dvalarleyfi á grundvelli hjúskapar var vísað frá Útlendingastofnun 4. nóvember 2024. Með vísan til framangreinds er skilyrðum 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga um brottvísun vegna ólögmætrar dvalar fullnægt í málinu, svo framarlega sem 102. gr. eigi ekki við.

Samkvæmt 3. mgr. 102. gr. laganna skal brottvísun ekki ákveðin ef hún, með hliðsjón af atvikum, alvarleika brots og tengslum útlendings við landið, felur í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart útlendingi eða nánustu aðstandendum hans. Sérstaklega skal taka tillit til þess ef um barn eða nánasta aðstandanda barns er að ræða og skal það sem barni er fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun. Við mat á því hvort brottvísun feli í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart kæranda verður að hafa ákvæði 71. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. nr. 33/1944 og 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu um friðhelgi einkalífs og fjölskyldu til hliðsjónar. Þegar útlendingur á hagsmuna að gæta í skilningi 8. gr. sáttmálans verður ákvörðun um brottvísun að vera í samræmi við það sem lög mæla fyrir um og nauðsyn ber til í lýðræðislegu þjóðfélagi, sbr. 2. mgr. 8. gr. sáttmálans.

Við mat á því hvort brottvísun feli í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart kæranda eða nánustu aðstandendum hans verður að hafa ákvæði 71. gr. stjórnarskrár og 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu um friðhelgi einkalífs og fjölskyldu til hliðsjónar. Í dómaframkvæmd hefur Mannréttindadómstóll Evrópu vísað til þeirrar viðurkenndu meginreglu þjóðaréttar að ríki hafi, með fyrirvara um alþjóðlegar skuldbindingar sínar, rétt til að stjórna aðgengi erlendra ríkisborgara að landsvæði sínu og dvöl þeirra þar. Þá hefur dómstóllinn lagt til grundvallar að aðildarríki mannréttindasáttmálans hafi vald til þess að brottvísa útlendingi sem hefur hlotið dóma fyrir refsiverð afbrot enda sé það nauðsynlegt með tilliti til allsherjarreglu, svo sem í máli Üner gegn Hollandi (46410/99) frá 18. október 2006. Þó verði að horfa til þess hvort ákvörðunin skerði rétt viðkomandi til friðhelgi einkalífs og fjölskyldu samkvæmt 8. gr. mannréttindasáttmálans. Þegar útlendingur á hagsmuna að gæta í skilningi 8. gr. sáttmálans verður ákvörðun um brottvísun að vera í samræmi við það sem lög mæla fyrir um og nauðsyn ber til í lýðræðislegu þjóðfélagi, sbr. 2. mgr. 8. gr. sáttmálans. Þau sjónarmið sem mannréttindadómstóll Evrópu hefur lagt til grundvallar í málum af þessum toga eru t.a.m. eðli þess brots sem viðkomandi hefur gerst sekur um, lengd dvalar viðkomandi í því ríki sem tekur ákvörðun um brottvísun og félags-, menningar- og fjölskyldutengsl viðkomandi við dvalarríki og heimaríki, sbr. t.d. mál Balogun gegn Bretlandi (nr. 60286/09) frá 4. október 2013 og Ndidi gegn Bretlandi (nr. 41215/15) frá 14. september 2017. Dómstóllinn hefur almennt veitt ríkjum talsvert svigrúm til mats þegar kemur að brottvísun aðila vegna alvarlegra afbrota með vísan til allsherjarreglu þótt aðili hafi fjölskyldutengsl við ríkið, sbr. t.d. mál Üner gegn Hollandi.

Með hinni kærðu ákvörðun var kæranda ákveðin brottvísun og endurkomubann á grundvelli 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. mgr. 101. gr. laganna. Kærandi kvaðst hafa verið giftur íslenskum ríkisborgara en þau skilið árið 2024. Samkvæmt gögnum málsins eigi kærandi barn hér á landi sem sé íslenskur ríkisborgari og hafi fæðst [...]. Við meðferð málsins hjá kærunefnd lagði kærandi fram fæðingarvottorð þar sem fram kemur að kærandi sé skráður faðir barnsins í þjóðskrá Íslands. Með tölvubréfi kærunefndar, dags. 14. september 2026, var kæranda veittur frestur til að koma á framfæri upplýsingum um tengsl sín við barn sitt hér á landi og hvernig samskiptum hans við barnið væri háttað. Með tölvubréfi kæranda, dags. 25. september 2026, kemur fram að kærandi eigi í daglegum samskiptum við barn sitt og barnsmóður í gegnum myndsímtöl. Þar sem kærandi sé ekki staddur á landinu séu þetta einu samskiptaleiðirnar sem honum bjóðist að svo stöddu. Kærandi sé ákveðinn í því að halda tengslum við fjölskyldu sína og styrkja dagleg tengsl við barn sitt. Af lestri ákvörðunar Útlendingastofnunar er ekki að finna nánari umfjöllun um tengsl kæranda við barn sitt hér á landi en samkvæmt gögnum málsins hafi legið fyrir að kærandi og barnsmóðir hans hafi verið í daglegum samskiptum fyrir komu kæranda hingað til lands og þau áður verið í hjúskap. Kærunefnd gerir athugasemd við skort á umfjöllun um framangreint atriði. Kærunefnd telur þó að framangreindur annmarki leiði ekki til ógildingar ákvörðunarinnar enda hefur nefndin bætt úr annmarkanum á kærustigi.

Kærandi hefur aldrei haft dvalarleyfi á Íslandi. Gögn málsins bera með sér að kærandi hafi ekki verið umönnunaraðili barns síns og umgengni engin. Samkvæmt framburði kæranda sé hann í daglegum samskiptum við barn sitt hér á landi í gegnum myndsímtöl. Þrátt fyrir að ljóst sé að möguleikar kæranda til að rækta samband sitt við barn sitt eftir brottvísun hans frá landinu muni aðallega felast í samskiptum í gegnum símtöl og/eða samskiptaforrit getur sú hindrun sem verður á samskiptum kæranda og barn hans, ekki ein og sér orðið til þess að um ósanngjarna ráðstöfun sé að ræða í skilningi 3. mgr. 102. gr. laga um útlendinga, sbr. málsgrein 65 í áðurnefndu máli Üner gegn Hollandi. Með vísan til framangreinds er það mat kærunefndar að kærandi hafi ekki sýnt fram á að hann hafi slík tengsl hér á landi að ákvörðun um brottvísun feli í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart kæranda eða nánustu aðstandendum hans í skilningi 3. mgr. 102. gr. laga um útlendinga. Verður þá talið að skilyrði 2. mgr. 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu séu jafnframt uppfyllt.

Kærandi byggir á því að ákvörðun Útlendingastofnunar sé haldin annmarka þar sem brotið hafi verið gegn andmælarétti hans, sbr. 13. gr. stjórnsýslulaga. Sú málsmeðferð að tilkynna kæranda um íþyngjandi ákvörðun og taka hana samdægurs án þess að veita honum raunhæfan og hæfilegan frest til að bregðast við sé andstætt andmælarétti hans. Þegar um sé að ræða jafn íþyngjandi ákvörðun og brottvísun og endurkomubann verði að gera ríkar kröfur til þess að aðili hafi ráðrúm til að koma afstöðu sinni á framfæri. Kæranda var fyrst birt tilkynning um hugsanlega brottvísun og endurkomubann 11. Janúar 2026 og gefið færi á að koma að skriflegum andmælum sem og hann gerði. Þá var honum jafnframt gefið færi á að koma að munnlegum andmælum við síðari tilkynningu um hugsanlega brottvísun, dags. 16. janúar 2026, sem hann virðist hafa gert. Með hliðsjón af atvikum og gögnum málsins verður ekki talið að um brot á 13. gr. stjórnsýslulaga sé að ræða en kærandi hefur einnig haft færi á að koma á framfæri athugasemdum og gögnum í gegnum skipaðan talsmann sinn á kærustigi.

Með hinni kærðu ákvörðun var kæranda bönnuð endurkoma til Íslands í þrjú ár, sbr. 2. mgr. 101. gr. laga um útlendinga. Með vísan til úrskurðarframkvæmdar kærunefndar er ákvörðun Útlendingastofnunar staðfest. Athygli er vakin á því að samkvæmt 3. mgr. 101. gr. laga um útlendinga er samkvæmt umsókn heimilt að fella endurkomubann úr gildi hafi aðstæður breyst frá því að ákvörðun um brottvísun var tekin. Þegar sérstaklega stendur á, að jafnaði þó ekki fyrr en að tveimur árum liðnum, má samkvæmt umsókn heimila þeim sem vísað hefur verið brott að heimsækja landið án þess þó að endurkomubann falli úr gildi.

Samkvæmt 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga skal að jafnaði veita útlendingi frest í 7-30 daga til að yfirgefa landið sjálfviljugur. Samkvæmt a-lið ákvæðisins er heimilt að veita styttri frest eða fella hann niður í tilvikum þegar hætta er á að útlendingur muni koma sér undan framkvæmd ákvörðunar. Með vísan til a-liðar 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga verður staðfest niðurstaða Útlendingastofnunar að fella niður frest kæranda til sjálfviljugrar heimfarar. Samkvæmt gögnum málsins var kæranda fylgt til heimaríkis af heimferða- og fylgdardeild Ríkislögreglustjóra 12. febrúar 2026 og hófst því endurkomubann kæranda þann dag. Í málatilbúnaði kæranda er vísað til úrskurðar kærunefndar útlendingamála nr. 115/2017, dags. 23. febrúar 2017, og talið að málsatvik þess máls séu sambærileg því máli sem hér er til meðferðar. Í tilvísuðum úrskurði lá ekki fyrir rökstuðningur fyrir því af hverju kæranda var ekki veittur frestur til að yfirgefa landið annar en almenn tilvísun til laga og atvika málsins. Eru málsatvik í tilvísuðum úrskurði því ekki sambærileg máli kæranda.

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

Úrskurðarorð:

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

Þorsteinn Gunnarsson

Jóna Aðalheiður Pálmadóttir

Var efnið hjálplegt?