18. nóvember 2026 /
Dómsmálaráðuneytið

Mál nr. 102/2026 Úrskurður 18. nóvember 2026

Mál nr. 102/2026                  Millinafn:       Oddsen

Hinn 18. nóvember 2026 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 102/2026 en erindið barst nefndinni 15. október 2026.

Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt millinafn á mannanafnaskrá þurfa öll skilyrði 6. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn, að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:

  1. Millinafn skal dregið af íslenskum orðstofnum eða hafa áunnið sér hefð í íslensku máli en má þó ekki hafa nefnifallsendingu.
  2. Nöfn sem aðeins hafa unnið sér hefð sem annað hvort eiginnöfn karla eða eiginnöfn kvenna, eru ekki heimil sem millinöfn.
  3. Millinafn skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess
  4. Millinafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

Auk þess má nafnið ekki vera ættarnafn, sbr. 7. gr. laganna.

Nafnið Oddsen telst vera ættarnafn og því er ekki heimilt að samþykkja það á mannanafnaskrá.

Úrskurðarorð:

Beiðni um millinafnið Oddsen er hafnað.

Var efnið hjálplegt?