18. nóvember 2026 /
Dómsmálaráðuneytið

Mál nr. 104/2026 Úrskurður 18. nóvember 2026

Mál nr. 104/2026                  Aðlögun kenninafns: Stálason

Hinn 18. nóvember 2026 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 104/2026.

Með bréfi Þjóðskrár Íslands, dags. 15. október 2026, var óskað úrskurðar mannanafnanefndar um beiðni XX að kenna sig við föður sinn, Ståle,  þannig að nafn hans verði aðlagað að íslensku og kenninafn hans verði Stálason.

Ekkert er í lögum nr. 45/1996, um mannanöfn, sem stendur í vegi fyrir því að fallist sé á ofangreinda beiðni.

Úrskurðarorð:

Fallist er á föðurkenninguna Stálason.

Var efnið hjálplegt?