Mál nr. 44/2026. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála, aðgangur að gögnum.
Ákvörðun kærunefndar útboðsmála 30. september 2026
í máli nr. 44/2026:
Icelandbus ehf.
gegn
Fjársýslu ríkisins,
Sveitarfélaginu Árborg og
GTS ehf.
Lykilorð
Aðgangur að gögnum.
Útdráttur
I krafðist aðgangs að útfylltum viðaukum útboðsgagna sem stöfuðu frá G. Fyrir kærunefnd útboðsmála var til úrlausnar hvort afhenda ætti fimm nánar tilgreind gögn. G lagðist ekki gegn afhendingu fjögurra þeirra og féllst kærunefnd útboðsmála þegar af þeirri ástæðu á að afhenda þau I. Nefndin hafnaði á hinn bóginn að afhenda I tilboðsbók G sem hafði að geyma nýleg einingarverð fyrirtækisins í hverjum innkaupahluta fyrir sig. Gagnið varðaði viðskiptahagsmuni G og veitti upplýsingar sem væru viðkvæmar í samkeppnislegu tilliti en fyrir lá að G og I væru samkeppnisaðilar. Nefndin taldi því hagsmuni G af trúnaði um þessar upplýsingar mun ríkari en hagsmuni I á að fá aðgang að þeim.
Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 10. júlí 2026 kærði Icelandbus ehf. (hér eftir „kærandi“) ákvörðun Fjársýslu ríkisins, fyrir hönd Sveitarfélagsins Árborgar, (hér eftir „varnaraðilar“), 1. júlí 2026 í útboði nr. 23266 auðkennt „Skólaakstur fyrir Árborg“, um að draga til baka fyrri ákvörðun um val á tilboði kæranda og velja þess í stað tilboð GTS ehf.
Á meðal krafna kæranda í málinu var að sjálfkrafa stöðvun samningsgerðar héldi gildi sínu. Varnaraðili krafðist þess m.a. í greinargerð sinni 16. júlí 2026 að sjálfkrafa stöðvun samningsgerðar yrði aflétt. Með greinargerð 24. sama mánaðar krafðist GTS ehf. þess einnig að sjálfkrafa stöðvun samningsgerðar yrði aflétt.
Með ákvörðun kærunefndar útboðsmála 29. júlí 2026 var fallist á kröfu varnaraðila og GTS ehf. og sjálfkrafa stöðvun samningsgerðar aflétt.
Í kjölfar þessa var varnar- og hagsmunaaðilum gefinn kostur á að skila lokaathugasemdum til nefndarinnar í málinu. Varnaraðili tilkynnti nefndinni 13. ágúst 2026 að hann myndi ekki bæta við frekari athugasemdum.
GTS ehf. upplýsti nefndina sömuleiðis um það 21. sama mánaðar að hann hygðist ekki skila frekari athugasemdum til nefndarinnar.
Kæranda var veittur frestur til 4. september 2026 til að skila lokaathugasemdum til nefndarinnar.
Með tölvubréfi 1. september 2026 óskaði kærandi eftir upplýsingum um hvort „fylgigögn“ með tilboði GTS ehf. lægju fyrir hjá kærunefnd útboðsmála og ef svo er, hvort kærandi gæti fengið afrit af þeim.
Kærunefnd útboðsmála staðfesti við kæranda með tölvubréfi 3. sama mánaðar að gögn sem vörðuðu tilboð GTS ehf. hefðu verið afhent kærunefnd útboðsmála. Þá var jafnframt óskað eftir því að kærandi staðfesti að með erindi sínu væri hann að fara fram á aðgang að gögnum og ef svo væri, að hann skýrði nánar hvaða gagna hann óskaði eftir.
Sama dag upplýsti kærandi nefndina um að hann óskaði eftir því að fá aðgang að útfylltum viðaukum útboðsgagna, sem væru níu talsins. Nánar tiltekið var óskað eftir eftirfarandi gögnum:
„Viðauki 1 – Þjónustusamningur.“
„Viðauki 2 – Samningstrygging.“
„Viðauki 3 – Skilagrein.“
„Viðauki 4 – Almennar upplýsingar um fyrirtæki og starfslið bjóðenda“.
„Viðauki 5 – Nöfn og starfsreynsla helstu yfirmanna og stjórnenda.“
„Viðauki 6 – Yfirlit yfir sambærileg þjónustuverk sem bjóðendur hafa unnið.“
„Viðauki 7 – Skrá yfir hópbifreiðar.“
„Viðauki 8 – Reglur um skólaakstur í grunnskóla.“
„Viðauki 9 – Tilboðsskrá.“
Um leið óskaði kærandi eftir því að frestur hans til að skila lokaathugasemdum til nefndarinnar yrði framlengdur.
Kærunefnd útboðsmála óskaði eftir afstöðu GTS ehf. til gagnabeiðni kæranda með tölvubréfi 4. september 2026. Einnig var óskaði eftir nánari skýringum á gögnum málsins frá varnaraðila 9. sama mánaðar í því skyni að afmarka réttilega þau gögn sem til úrlausnar væri að afhenda kæranda með hliðsjón af beiðni hans.
Varnaraðili svaraði erindi nefndarinnar daginn eftir og upplýsti að suma viðauka hefðu bjóðendur þurft að fylla út með tilboðum sínum en öðrum hefði þeim ekki borið að skila inn með tilboði sínu. Nánar tiltekið sagði eftirfarandi í svari varnaraðila:
Viðauki 1 - Þjónustusamningur ‐ sýnishorn sem bar ekki að skila með tilboði. Sjá kafla 1.6.2. í útboðsgögnum.
Viðauki 2 - Samningstrygging ‐ sýnishorn sem bar ekki að skila með tilboði. Sjá kafla 1.6.9 í útboðsgögnum.
Viðauki 3 - Skilagreinar innkaupahluta ‐ sýnishorn sem bar ekki að skila með tilboði. Sjá kafla 1.6.7 í útboðsgögnum.
Viðauki 5 - Nöfn og starfsreynsla helstu yfirmanna og stjórnenda ‐ eyðublað sem þurfti einungis að fylla út ef viðauki 6 var ekki útfylltur. Sjá kafla 1.2.5. Bjóðendur skiluðu viðauka 6 útfylltum.
Viðauki 8 - Reglur um skólaakstur í grunnskóla – Til upplýsingar og bar ekki að skila með tilboði.
Í tölvubréfum GTS ehf. til nefndarinnar 8. og 9. september 2026 kom fram að félaginu væri ókunnugt um hvort þjónustusamningur milli GTS ehf. og varnaraðila hefði verið afhentur kærunefnd útboðsmála í málinu en ef svo væri, legðist hann ekki gegn afhendingu hans til varnaraðila. Þá var jafnframt vísaði til þess að GTS ehf. teldi óljóst hvort skjalið „Viljayfirlýsing um samningstryggingu“ félli undir viðauka 2 en ekki voru gerðar athugasemdir við afhendingu þess skjals. Einnig kom fram að ekki hefði verið gert ráð fyrir að bjóðendur fylltu út viðauka 3, GTS ehf. hefði ekki fyllt út viðauka 5 heldur viðauka 6 og að viðauki 8 fæli í sér reglur sem ekki væru hluti af tilboðsgögnum GTS ehf. Fyrirtækið gerði að öðru leyti ekki athugasemdir við að eftirfarandi skjöl yrðu afhent kæranda:
„Viðauki 4 – Almennar upplýsingar um fyrirtæki og starfslið bjóðanda“
„Viðauki 6 – Yfirlit yfir helstu sambærileg þjónustuverk sem bjóðandi hefur unnið.“
„Viðauki 7 – Skrá yfir hópbifreiðar sem fyrirhugað er að nota við þjónustuverkið (1)“
GTS ehf. gerði á hinn bóginn athugasemdir við að eftirfarandi gagn yrði afhent kæranda:
„Viðauki 9 – Tilboðsbók 2026 (uppfærð)“
Fram kom í afstöðu GTS ehf. að tilboðskráin innihéldi nýleg einingarverð félagsins. Takmarka ætti aðgang kæranda að gagninu á grundvelli mun ríkari einkahagsmuna í skilningi 17. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993, sbr. einnig til hliðsjónar þær upplýsingar sem tilteknar væru í 17. gr. laga nr. 120/2016.
Með hliðsjón af þeim gögnum sem liggja fyrir hjá kærunefnd útboðsmála og skýringum varnaraðila á þeim er til úrlausnar hvort afhenda eigi kæranda eftirfarandi gögn:
„Viljayfirlýsing um samningstryggingu“
„Viðauki 4 – Almennar upplýsingar um fyrirtæki og starfslið bjóðanda“
„Viðauki 6 – Yfirlit yfir helstu sambærileg þjónustuverk sem bjóðandi hefur unnið.“
„Viðauki 7 – Skrá yfir hópbifreiðar sem fyrirhugað er að nota við þjónustuverkið (1)“
„Viðauki 9 – Tilboðsbók 2026 (uppfærð)“
Litið verður svo á að gagnið „Viljayfirlýsing um samningstryggingu“, sem GTS ehf. afhenti fyrir undirritun þjónustusamnings, falli undir gagnabeiðni kæranda vegna tengsla við viðauka 2. Í málinu liggur ekki fyrir þjónustusamningur GTS ehf. við varnaraðila og kemur því ekki til álita að afhenda hann.
Niðurstaða
Umbeðin gögn teljast til málsgagna í því stjórnsýslumáli sem rekið er fyrir kærunefnd útboðsmála á milli kæranda og varnaraðila. Um meðferð kærumála fyrir nefndinni gilda stjórnsýslulög nr. 37/1993, sbr. 7. mgr. 108. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup. Ber því við úrlausn um aðgang að gögnunum að fara eftir ákvæðum stjórnsýslulaga sem ganga framar ákvæðum upplýsingalaga nr. 140/2012, sbr. 2. mgr. 4. gr. síðarnefndu laganna.
Samkvæmt 15. gr. stjórnsýslulaga á aðili máls rétt á aðgangi að skjölum og öðrum gögnum er mál varða. Hefur óheftur aðgangur að gögnum máls verið talinn nauðsynlegur til að tryggja að réttur aðila til að koma að skýringum og leiðrétta fyrirliggjandi gögn nýtist að fullu. Gerðar eru undantekningar frá þessari grunnreglu í 16. og 17. gr. laganna, en að mati nefndarinnar er ljóst að einungis 17. gr. laganna getur komið til álita um þau gögn sem kærandi krefst aðgangs að. Samkvæmt þeirri grein er stjórnvaldi heimilt að takmarka aðgang aðila að gögnum ef hagsmunir hans af því að notfæra sér vitneskju úr þeim þykja eiga að víkja fyrir mun ríkari almanna- eða einkahagsmunum. Við mat á þessum skilyrðum ákvæðisins verður meðal annars að horfa til þess að ákvæði 17. gr. laganna er undantekning frá þeirri meginreglu að málsaðili eigi rétt á því að kynna sér málsgögn auk þess sem líta ber til þeirra hagsmuna sem reglum um opinber innkaup er ætlað að þjóna, þar á meðal hvort afhending upplýsinga getur raskað jafnræði fyrirtækja við opinber innkaup.
Í ljósi þess að GTS ehf. gerir ekki athugasemdir við afhendingu eftirfarandi gagna verða þau afhent kæranda:
„Viljayfirlýsing um samningstryggingu“
„Viðauki 4 – Almennar upplýsingar um fyrirtæki og starfslið bjóðanda“
„Viðauki 6 – Yfirlit yfir helstu sambærileg þjónustuverk sem bjóðandi hefur unnið.“
„Viðauki 7 – Skrá yfir hópbifreiðar sem fyrirhugað er að nota við þjónustuverkið (1)“
Kærunefnd útboðsmála hefur kynnt sér gagnið „Viðauki 9 – Tilboðsbók 2026 (uppfærð)“. Í því er að finna sundurliðun tilboðs GTS ehf. með tilliti til nýlegra einingarverða fyrirtækisins í hverjum innkaupahluta fyrir sig. Ljóst er því að umrætt gagn varðar viðskiptahagsmuni GTS ehf. og veitir upplýsingar sem eru viðkvæmar í samkeppnislegu tilliti en fyrir liggur að GTS ehf. og kærandi eru samkeppnisaðilar. Að þessu virtu telur nefndin hagsmuni GTS ehf. af trúnaði um þessar upplýsingar mun ríkari en hagsmuni kæranda á að fá aðgang að þeim. Verður aðgangi kæranda á gagninu „Viðauki 9 – Tilboðsbók 2026 (uppfærð)“ því hafnað.
Ákvörðunarorð
Kæranda, Icelandbus ehf., er veittur aðgangur að eftirfarandi skjölum:
„Viljayfirlýsing um samningstryggingu“
„Viðauki 4 – Almennar upplýsingar um fyrirtæki og starfslið bjóðanda“
„Viðauki 6 – Yfirlit yfir helstu sambærileg þjónustuverk sem bjóðandi hefur unnið.“
„Viðauki 7 – Skrá yfir hópbifreiðar sem fyrirhugað er að nota við þjónustuverkið (1)“
Kæranda er synjað um aðgang að eftirfarandi skjali:
„Viðauki 9 – Tilboðsbók 2026 (uppfærð)“
Reykjavík, 30. september 2026
Reimar Pétursson
Kristín Haraldsdóttir
Auður Finnbogadóttir