20. nóvember 2026 /
Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Mál nr. 50/2026. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála.

Ákvörðun kærunefndar útboðsmála 16. október 2026

í máli nr. 50/2026:

Vélsmiðja Orms og Víglundar ehf.

gegn

Isavia ohf. og

Stálorku ehf.

 

Lykilorð

Stöðvunarkröfu hafnað. Bindandi samningur.

Útdráttur

Kærunefnd útboðsmála hafnaði stöðvunarkröfu kæranda þar sem kominn var á bindandi samningur milli varnaraðila og S, sbr. 1. mgr. 114. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup.

 

Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 5. október 2026 kærði Vélsmiðja Orms og Víglundar ehf. (hér eftir „kærandi“) ákvörðun Isavia ohf. (hér eftir „varnaraðili“) um að velja og samþykkja tilboð Stálorku ehf. í samningskaupum nr. B26023 auðkennd „NTA25-fuel“.

Kærandi krefst að felld verði úr gildi ákvörðun varnaraðila, dags. 15. september 2026, um að velja og samþykkja tilboð Stálorku ehf. í hinu kærða innkaupaferli. Þá krefst kærandi þess að kærunefnd útboðsmála láti í té álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðila gagnvart honum og að varnaraðila verði gert að greiða honum málskostnað. Loks krefst kærandi þess að innkaupaferli og frekari samningsgerð varnaraðila við Stálorku ehf. vegna hinna kærðu innkaupa verði stöðvuð um stundarsakir þar til endanlega hefur verið leyst úr kæru.

Varnaraðila og Stálorku ehf. var kynnt kæran og gefinn kostur á að koma á framfæri athugasemdum. Varnaraðili gerði athugasemdir við stöðvunarkröfu kæranda með tölvupósti til nefndarinnar 8. október 2026 og lagði fram athugasemdir 12. sama mánaðar. Varnaraðili krefst þess að stöðvunarkröfu kæranda verði hafnað og vísar til þess að bindandi samningur milli varnaraðila og Stálorku ehf. hafi komist á 15. september 2026. Stöðvunarkrafa kæranda geti því ekki náð tilgangi sínum enda hafi samningsgerð verið lokið þegar kæran hafi borist kærunefnd útboðsmála. Stálorka ehf. lagði fram athugasemdir 12. október 2026 og krefst þess að öllum kröfum kæranda verði hafnað.

Varnaraðili sendi tilkynningu 15. september 2026 til kæranda og Stálorku ehf. og tilkynnti að tilboðið Stálorku ehf. í innkaupaferlinu hefði verið valið og endanlega samþykkt. Með samþykki tilboðsins hefði komist á bindandi samningur milli aðila. Þá kom fram í tilkynningunni að innkaupin færu fram með samningskaupum án undangenginnar útboðsauglýsingar á grundvelli a. liðar 53. gr. reglugerðar nr. 340/2017, um innkaup aðila sem annast vatnsveitu, orkuveitu, flutninga og póstþjónustu, og ákvæði um biðtíma ættu ekki við um þessa samningsgerð samkvæmt 95. gr. reglugerðarinnar.

Í ákvörðun þessari verður tekin afstaða til stöðvunarkröfu kæranda en málið bíður að öðru leyti efnislegrar úrlausnar.

 

Niðurstaða

Á þessu stigi málsins verður miðað við að hin kærðu innkaup falli undir gildissvið fyrrgreindrar reglugerðar nr. 340/2017. Kærandi hefur meðal annars uppi stöðvunarkröfu eftir 1. mgr. 110. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup.

Í 1. mgr. 114. gr. laga nr. 120/2016, sbr. 1. mgr. 9. gr. laganna, kemur fram að eftir að bindandi samningur samkvæmt lögunum hefur komist á verði hann ekki felldur úr gildi eða honum breytt þótt ákvörðun kaupanda um framkvæmd útboðs eða gerð samnings hafi verið ólögmæt. Svo sem fyrr segir sendi varnaraðili tilkynningu 15. september 2026 til bjóðenda þar sem kom fram að tilboð Stálorku ehf. hefði verið valið og endanlega samþykkt. Hefur þannig komist á bindandi samningur samkvæmt 1. mgr. 114. gr. laga nr. 120/2016, sbr. til hliðsjónar 3. mgr. 95. gr. reglugerðar nr. 340/2017. Verður þegar af þessari ástæðu að hafna stöðvunarkröfu kæranda.

Úr öðrum kröfum aðila verður leyst með úrskurði þegar þeir hafa skilað endanlegum sjónarmiðum sínum í málinu og lagt fram þau gögn sem þeir telja máli skipta.

 

Ákvörðunarorð

Stöðvunarkröfu kæranda, Vélsmiðju Orms og Víglundar ehf., varðandi innkaup varnaraðila, Isavia ohf., nr. B26023, auðkennd „NTA25-fuel“, er hafnað.

 

Reykjavík, 16. október 2026.

 

Reimar Pétursson

 

Kristín Haraldsdóttir

 

Hersir Sigurgeirsson

Var efnið hjálplegt?