3. nóvember 2026
/
Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

Ráðstefna um menningu og listir á Vestfjörðum 26. nóvember

{image.Description}

Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið stendur fyrir ráðstefnu um menningu, listir og skapandi greinar á Vestfjörðum fimmtudaginn 26. nóvember í Edinborgarhúsinu á Ísafirði.

Skráning er nauðsynleg, en ráðstefnan er opin öllum á meðan húsrúm leyfir og þátttaka er að kostnaðarlausu. Gestir greiða sjálfir fyrir kvöldverð og er sérstök skráning í hann á sama hlekk. Opið er fyrir skráningu til mánudagsins 23. nóvember.

Skráning

Markmið ráðstefnunnar er að leiða saman listafólk, menningarstofnanir, hagaðila, sveitarfélög og ráðuneyti til samtals um stöðu, styrkleika og framtíðartækifæri á Vestfjörðum.

Á ráðstefnunni verður sjónum beint að því hvernig efla megi menningarstarf og skapandi greinar á svæðinu, styrkja innviði og skapa fjölbreyttari tækifæri til listsköpunar og menningarþátttöku. Sérstök áhersla verður lögð á mikilvægi menningar fyrir lífsgæði, byggðaþróun og öflug samfélög, auk þess sem fjallað verður um hvernig tryggja megi aðgengi að listum og menningu óháð búsetu og efnahag.

Viðburðurinn er liður í vinnu ráðuneytisins við að efla samtal við menningarlífið um land allt og byggja upp stuðningskerfi sem tekur mið af sérstöðu, styrkleikum og þörfum hvers landshluta.

Ráðstefnan er haldin í samstarfi við Ísafjarðarbæ, Vestfjarðastofu og Edinborgarhúsið. Hægt verður að fylgjast með ráðstefnunni í beinu streymi.

 

Dagskrá - með fyrirvara um breytingar:

 

Kl. 09:00  Setning ráðstefnu - Gylfi Ólafsson, bæjarstjóri Ísafjarðar

Kl. 09:20  Ávarp menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra  og undirritun menningarsamnings

Kl. 09:40  Stefna Edinborgarhússins, Ingi Björn Guðnason

Kl. 09:55  Arna Kristín Einarsdóttir, skrifstofustjóri menningar og skapandi greina hjá menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti

Kl. 10:20  Kaffihlé

Kl. 10:30  Skúli Gautason, menningarfulltrúi Vestfjarða

Kl. 10:50  Signý Ormarsdóttir, fyrrum menningarfulltrúi Austurlands

Kl. 11:20  Hátíðir - erindi frá listafólki og frumkvöðlum á Vestfjörðum

Kl. 12:15  Hádegisverður í Edinborgarhúsinu í boði ráðuneytisins

Kl. 13:00 Listamiðstöðvar og sjóðir – stutt kynning

Kl. 13:30  Menningarstofnanir og Listaháskólinn – samtal og samstarf við Vestfirði

Kl. 15:00  Gullkistan Vestfirðir – menning og skapandi greinar, Bryggjusalur

Kl. 16:00  Úthlutun úr Uppbyggingarsjóði Vestfjarða, Edinborgarsalur

Kl. 18:30  Kvöldverður - Skráning í kvöldverð

Var efnið hjálplegt?