18. september 2026
/
Bryndís Kjartansdóttir nýr sendiherra Íslands í Austurríki
Bryndís Kjartansdóttir, sendiherra, afhenti forseta Austurríkis, dr. Alexander Van der Bellen, trúnaðarbréf sitt í gær við hátíðlega athöfn í Hofburg forsetahöllinni.
Á fundi sendiherra með forsetanum ræddu þau vinsamleg samskipti ríkjanna tveggja og minntist forsetinn með ánægju síðustu heimsóknar sinnar til Íslands sem og nýliðinnar heimsóknar utanríkisráðherra Austurríkis til Íslands í júní sl.
Ræddu þau málefni líðandi stundar og þær áskoranir sem að blasa við á alþjóðasviðinu.