Einfaldara regluverk og markvissara byggingareftirlit – frumvarp birt í samráðsgátt
Frumvarp um breytingar á lögum um mannvirki er nú til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda. Markmiðið er að einfalda regluverk og stjórnsýslu mannvirkjamála, skýra ábyrgð þeirra sem koma að byggingaframkvæmdum og gera byggingareftirlit markvissara til að fækka byggingargöllum og styrkja neytendavernd.
Breytingarnar eru liður í aðgerðum stjórnvalda í húsnæðismálum og afar umfangsmikilli vinnu við að einfalda regluverk og greiða fyrir húsnæðisuppbyggingu án þess að slaka á kröfum um gæði og öryggi:
- Fyrir skemmstu birti ráðherra til umsagnar frumvarp um breytingar á skipulagslögum sem ætlað er að einfalda skipulagslöggjöfina að breyttum tímum, auka skilvirkni og stytta ferla þar sem við á.
- Til viðbótar er breytt byggingarreglugerð nú í opnu umsagnarferli hjá Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS).
„Saman miða öll þessi verkefni að því að einfalda og stytta ferla, allt frá skipulagi til byggingar og eftirlits með mannvirkjum. Þetta er kerfisbreyting sem beðið hefur verið eftir svo árum skiptir. Við erum ekki að minnka kröfurnar eða draga úr gæðum mannvirkja heldur taka til í regluverki sem hefur verið of flókið og þungt í vöfum og láta það virka,“ segir Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra.
Eftirlit taki mið af áhættu
Ein helsta breytingin sem lögð er til í frumvarpinu um breytingar á lögum um mannvirki er að mannvirkjum verði skipt í þrjá áhættuflokka og að kröfur um byggingarleyfi og umfang eftirlits ráðist af þeirri flokkun.
- Áhættuflokkur A: Mannvirki verði undanþegin byggingarleyfi en skráningarskyld.
- Áhættuflokkur B: Mannvirki verði byggingarleyfisskyld og háð innra eftirliti hönnuða og iðnmeistara.
- Áhættuflokkur C: Mannvirki verði byggingarleyfisskyld og háð bæði innra og ytra eftirliti.
Með þessu er eftirliti beint sérstaklega að þeim framkvæmdum þar sem áhættan er mest, en ferlar einfaldaðir þar sem umfang og áhætta mannvirkja gefa tilefni til þess. Nánari útfærsla áhættuflokkanna verður ákveðin í reglugerð.
Skýrari ábyrgð og breytt byggingareftirlit
Í frumvarpinu er lagt til að ábyrgð verkeigenda, hönnuða og iðnmeistara verði skýrð og felldar brott kröfur um byggingarstjóra og lögbundna starfsábyrgðartryggingu.
Samkvæmt frumvarpinu myndi HMS bera ábyrgð á áhættumiðuðu ytra eftirliti með mannvirkjum í áhættuflokki C fram að öryggisúttekt. Stofnuninni yrði heimilt að fela sjálfstæðum skoðunarstofum framkvæmd eftirlitsins, að uppfylltum sérstökum kröfum um óhæði, hæfni og gæðastjórnun.
Byggingarfulltrúar myndu áfram annast útgáfu byggingarleyfa og lokaúttektir, auk eftirlits frá öryggisúttekt til lokaúttektar og eftirlits með þegar byggðum mannvirkjum.
Aukið eftirlit með íbúðarhúsnæði eftir að það er tekið í notkun
Til að styrkja neytendavernd er einnig lagt til að tekið verði upp sérstakt notkunareftirlit með íbúðarhúsnæði í áhættuflokki C. Eftirlitið færi fram einu ári eftir öryggisúttekt og aftur fimm árum eftir úttektina.
Tilgangurinn er að greina tímanlega galla eða frávik í mikilvægum byggingarhlutum og kerfum og koma þannig í veg fyrir tjón. Breytingunum er ætlað að fækka byggingargöllum og auka öryggi þeirra sem kaupa, leigja eða búa í húsnæði. Jafnframt er lagt til að umsóknir, leyfisveitingar og gögn um eftirlit verði varðveitt í rafrænni mannvirkjaskrá HMS.
Frumvarpið um breytingar á lögum um mannvirki er til umsagnar til 3. nóvember nk.