27. október 2026
/

Frá 54. fundi nefndar um fæðuöryggi (CFS) hjá FAO

{image.Description}

Frá 54. fundi nefndar um fæðuöryggi (CFS) hjá FAO

Anna K. Vilhjálmsdóttir,  erindreki, sótti fundinn fyrir hönd utanríkisráðuneytisins þar sem Ísland lét til sín taka í mikilvægum umræðum.

Bláfæða skiptir sköpum fyrir fæðuöryggi og næringu á heimsvísu: Ísland minnti á mikilvægi bláfæðu og sjálfbærrar nýtingar auðlinda hafs og vatna til að útrýma hungri.

Jafnrétti kynjanna: Ísland lagði áherslu á mikilvægi jafnréttis kynjanna, þátttöku kvenna og viðurkenningu á þýðingarmiklu framlagi kvenna í fæðukerfum sem grundvallarstoð árangurs í baráttunni gegn hungri og betri næringu.
Matur er ekki vopn: Ísland tók undir yfirlýsingu ESB um að tryggja verði aðgengi að mannúðaraðstoð og að matvælaóöryggi vegna átaka væri enn áhyggjuefni í of mörgum löndum.

Sláandi tölur: 650 milljónir manna svelta í dag og 2,7 milljarðar búa við skert fæðuöryggi.

Hvernig leysum við þetta? Með samvinnu! Við þurfum að taka höndum saman á heimsvísu.