26. október 2026
/
Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Kynning á greiningu á tillögu framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins um endurskoðun ETS-kerfisins

{image.Description}
Sléttanes

Starfshópur stjórnvalda um endurskoðun ETS-kerfisins stendur miðvikudaginn 28. október kl. 15 fyrir kynningu á tillögu framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins um endurskoðun ETS viðskiptakerfisins með losunarheimildir.

Á fundinum fara sérfræðingar Umhverfis- og orkustofnunar yfir greiningu stofnunarinnar á tillögu framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins frá 17. júlí sl. Formaður starfshópsins greinir jafnframt frá næstu skrefum í vinnu hópsins.

Markmið með endurskoðun framkvæmdastjórnar ESB með endurskoðuninni er meðal annars að samræma ETS-kerfið við loftslagsmarkmið ESB fyrir 2040 en jafnframt að styðja samkeppnishæfni iðnaðarins. Tillögurnar eru viðamiklar og taka m.a. til millilandaflugs, sjóflutninga og iðnaðar.

Kynningin fer fram á Teams og geta áhugasamir skráð sig á fundinn með því að senda tölvupóst á [email protected].