26. ágúst 2026 /
Dómsmálaráðuneytið

Mál nr. 16/2024 - Úrskurður

Mál nr. 16/2024

 

Úrskurður kærunefndar jafnréttismála

A

gegn

Lögreglustjóranum á Suðurnesjum,

Skattinum og APA ehf.

 

Mismunun á grundvelli þjóðernisuppruna. Mismunun á grundvelli kynþáttar. Utan vinnumarkaðar. Frávísun að hluta. Ekki fallist á brot.

A hélt því fram að sér hefði verið mismunað vegna tungumálakunnáttu og þjóðernisuppruna þegar kærði, Lögreglustjórinn á Suðurnesjum, hafði tvívegis afskipti af honum í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Þá hélt A því fram að kærði, APA ehf., hefði mismunað sér á sama grundvelli, með því að neita að taka við reiðufé sem greiðslu vegna yfirvigtar og með því að kalla til lögreglu. B hafnaði því að í afskiptum lögreglu hefði falist mismunun í umrætt sinn, en ágreiningur var með aðilum um atvik málsins. Að mati kærunefndar var talið að A hefði ekki leitt líkur að því að honum hefði verið mismunað á grundvelli þjóðernisuppruna eða kynþáttar í umrætt sinn eða að brotið hefði verið gegn lögum nr. 85/2018, um jafna meðferð utan vinnumarkaðar.

  1. Á fundi kærunefndar jafnréttismála hinn 26. ágúst 2026 er tekið fyrir mál nr. 16/2024 og kveðinn upp svohljóðandi úrskurður:
  2. Með kæru, dags. 13. júní 2024, kærði A mismunun á grundvelli þjóðernisuppruna og kynþáttar. Kæran beindist upphaflega að embætti Lögreglustjórans á Suðurnesjum og starfsmönnum tollsins. Kærunefndin óskaði frekari skýringa um aðild málsins hinn 30. júlí s.á. Var kæranda tjáð að æskilegt væri að hann uppfærði kæru málsins með hliðsjón af atvikum. Sama dag bárust skýringar kæranda um að kæran beindist að tollgæslu, lögreglu og yfirmanni sem þjónustaði easyJet á Keflavíkurflugvelli, en kæra málsins var ekki uppfærð. Í kjölfar skýringanna var aðild málsins afmörkuð þannig að kæran beindist að embætti Lögreglustjórans á Suðurnesjum, Skattinum og APA ehf.
  3. Kæran var kynnt kærðu með bréfum, dags. 9. ágúst 2024. Svör kærða, Skattsins, um að tollverðir hefðu ekki haft aðkomu að atvikum samkvæmt kæru, er dags. 3. september s.á. og frekari svör bárust frá kærða, Skattinum, um tilhögun tollgæslu, hinn 4. september. Greinargerð kærða, Lögreglustjórans á Suðurnesjum, er dags. 27. september 2024. Kærði, APA ehf., brást ekki við fyrirspurnarbréfi nefndarinnar.
  4. Greinargerðir kærðu, Lögreglustjórans á Suðurnesjum og Tollsins, ásamt fylgiskjölum voru sendar kæranda til athugasemda hinn 24. september 2024. Með tölvupósti, dags. 30. október s.á., staðfesti kærandi móttöku en gerði ekki efnislegar athugasemdir.

MÁLAVEXTIR

  1. Af gögnum málsins má ráða að aðilum beri ekki saman um atvik og tildrög málsins.
  2. Fyrir liggur að […] 2024 átti kærandi far með flugfélaginu easyJet þegar ágreiningur kom upp milli kæranda og starfsfólks á innritunarborði Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar vegna greiðslu fyrir yfirvigt. Fyrir liggur að lögregla hafði afskipti af kæranda sem lyktaði með þvi að hann fór aftur að innritunarborðinu. Aftur kom til ágreinings milli kæranda og starfsmanns í innritun þegar starfsmaður sagðist ekki geta tekið við reiðufé heldur aðeins greiðslukortum. Kærandi varð þá reiður. Lögregla var aftur kölluð til. Afskiptum við innritunarborðið lauk með því að kærandi var tekinn í lögreglutök og færður í aðstöðu tollgæslu. Lögregla mun þar hafa greint kæranda að hann hefði tvo valkosti, þ.e. að yfirgefa flugstöðina af sjálfsdáðum eða vera handtekinn. Kærandi yfirgaf flugstöðina í kjölfarið.
  3. Kærði, Lögreglustjórinn á Suðurnesjum, lýsir atvikum á þá leið að við innritunarborð hafi starfsmaður í innritun greint kæranda frá því að hann þyrfti að greiða 100 evrur fyrir yfirvigt. Kærandi hafi þá sagst ekki ætla að taka stóra tösku með sér, en honum hafi verið greint frá því að hann yrði að greiða 40 evrur. Kærandi vildi greiða fjárhæðina með 200 evru seðli. Starfsmaður á innritunarborði hafi sagst ekki geta gefið til baka þannig að þau þyrftu þá að taka allan seðilinn.
  4. Kærandi kveðst hafa verið ósáttur við þetta og hafi þá lögregla verið kölluð til sem hafi farið afsíðis með kæranda og farangurinn. Lögregla hafi opnað minni tösku kæranda sem hafi brotnað við meðferð lögreglu. Lögregla hafi fært farangur hans í plastpoka og sagt kæranda að fara aftur í innritunarröð.
  5. Við innritunarborðið hafi kærandi verið með báðar töskurnar og sagt starfsmanni að taka 200 evru seðilinn. Annar starfsmaður en sá sem áður afgreiddi kæranda hafi þá sagt að ekki væri hægt að taka við reiðufé heldur aðeins greiðslukorti. Kærandi hafi orðið reiður við þetta og lögregla hafi aftur verið kölluð til. Lögregla hafi komið og leitt kæranda í burtu og neitað honum um að ganga sjálfum. Lögreglumaður hafi gefið kæranda olnbogaskot í kviðinn.
  6. Lögregla hafi neitað að hlusta á útskýringar kæranda, leitt kæranda á skrifstofu og sagt honum að hann hefði um tvennt að velja, fara heim, eða vera settur í fangaklefa. Kæranda hafi verið haldið þar þangað til flugvél sem hann átti far með var farin en þá hefði honum verið sleppt.
  7. Kærði, Lögreglustjórinn á Suðurnesjum, lýsir atvikum með þeim hætti að öryggisgæsla á Keflavíkurflugvelli hafi haft samband við lögreglu kl. 17:55 eftir að kærandi hafði hlaupið burtu frá töskum sínum í innritunarsal. Við komu hafi öryggisvörður greint frá því að hann hafi tekið töskurnar og farið með þær í tollsal þar sem leitað hafi verið í töskunum, en ekkert saknæmt hafi fundist. Lögregla hafi í kjölfarið rætt við kæranda um að skilja ekki töskur eftir eftirlitslausar í flugstöðinni. Kærandi hafi sagst hafa gert það þar sem hann hafi verið ósáttur við að hafa ekki fengið að greiða fyrir farangur með reiðufé. Lögregla hafi fylgt kæranda í tollsal og síðan til öryggisgæslu sem gæti aðstoðað hann við að finna töskurnar þar sem hún skildi við hann. Kærði hafnar því að lögreglumenn hafi haft aðkomu að því að opna töskur kæranda eða leita í þeim.
  8. Klukkan 18:02 hafi lögreglu borist tilkynning um mjög ógnandi mann við innritunarborð sem öskraði á starfsfólk. Þrír lögreglumenn hafi farið á forgangi á vettvang þar sem í ljós kom að um kæranda hefði verið að ræða. Starfsmaður á innritunarborði hafi greint frá því að kærandi hefði orðið mjög reiður og æstur þegar hann fékk ekki að greiða fyrir farangur með reiðufé. Starfsmaðurinn hafi greint frá því að kærandi hefði sveiflað tösku í átt að henni og hann hefði hótað sér ofbeldi. Lögreglumenn hafi rætt við kæranda um að koma með sér afsíðis í aðstöðu tollgæslu sem hann hafi neitað. Við innritunarborðið hafi verið umtalsvert af fólki sem beið innritunar í flug. Tveir lögreglumenn hafi þá tekið kæranda í lögreglutök og fært hann þangað.
  9. Lögreglumaður hafi tjáð kæranda að framkoma hans væri algjörlega óboðleg og ef hann yfirgæfi ekki flugstöðina yrði hann handtekinn. Lögregla hafi greint honum frá því að stefna flugfélagsins heimilaði ekki að greiða fyrir farangur með reiðufé. Kærandi hafi verið mjög æstur og ósáttur vegna þessa og rifist. Kærandi hafi að lokum róast niður eftir síðustu viðvörun og samþykkt að yfirgefa flugstöðina. Hafi tveir lögreglumenn fylgt honum út í góðu og yfirgefið flugstöðina í kjölfarið.

SJÓNARMIÐ KÆRANDA

  1. Kærandi byggir á því að afskipti lögreglu í umrætt sinn, sem og starfsmanns kærða, APA ehf., hafi falið í sér mismunun á grundvelli þjóðernisuppruna og kynþáttar. Kærandi tekur fram að hann hafi íslenskt ríkisfang, sé upprunninn frá […] og líti ekki út eins og dæmigerður Íslendingur.
  2. Kærandi telur sig hafa verið beittan miklu misrétti. Það hafi verið mjög niðurlægjandi að vera fylgt í gegnum flugstöðina eins og glæpamanni. Engin ástæða hafi verið fyrir því að fara í gegnum farangur kæranda, skemma tösku hans, beita hann ofbeldi og sýna honum lítilsvirðingu. Kærandi hafi auk þess orðið fyrir verulegu beinu fjárhagstjóni vegna tapaðs flugmiða upp á 160 þúsund krónur og skemmda á tösku. Hann hafi jafnframt misst af tveimur atvinnutækifærum fyrir vikið.
  3. Kærandi telur ekki nokkurn vafa á því að meðferð lögreglu á honum hafi átt sér rót í rasisma og að honum hafi verið gróflega mismunað á grundvelli þjóðernisuppruna. Það sem hafi komið fyrir kæranda sé ekkert einsdæmi, en kærandi hafi heyrt marga menn frá Arabaríkjum lýsa svipaðri framkomu lögreglu gagnvart þeim.

SJÓNARMIÐ KÆRÐA, LÖGREGLUSTJÓRANS Á SUÐURNESJUM

  1. Kærði hafnar því alfarið að afskipti lögreglu af kæranda geti með nokkru móti talist fela í sér mismunun á grundvelli þeirra þátta sem um getur í 1. mgr. 1. gr. laga nr. 85/2018, um jafna meðferð utan vinnumarkaðar, sbr. einnig 9. og 15. gr. sömu laga.
  2. Samkvæmt gögnum málsins hafi verið tilkynnt um kæranda vegna hegðunar hans í Flugstöð Leifs Eiríkssonar tvisvar sinnum með skömmu millibili. Hafi verið óskað aðstoðar og aðkomu lögreglu. Í seinni tilkynningu hefði tilkynnandi lýst ógnandi hegðun kæranda og hótunum um ofbeldi.
  3. Kærða hafi borið samkvæmt 1. og 15. gr. lögreglulaga, nr. 90/1996, að bregðast við og hafa afskipti af kæranda vegna hegðunar hans og frásagna tilkynnenda. Þeir þættir sem um getur í 1. mgr. 1. gr. laga nr. 85/2018 hafi engin áhrif haft hvernig lögregla hagaði afskiptum sínum af kæranda í umrætt sinn.
  4. Kærði telur í reynd að lögreglumenn hafi í hvívetna sýnt meðalhóf í aðgerðum sínum. Þannig hafi lögregla beðið kæranda að koma afsíðis frá innritunarborði. Kærandi, hafi ekki þegið það, verið æstur og neitað að fylgja lögreglu. Eftir synjun kæranda hafi lögreglumenn tekið hann í lögreglutök og farið með hann afsíðis. Þá hafi kærða verið gefinn kostur á að yfirgefa flugstöðina af sjálfsdáðum í stað þess að handtaka hann, en á þeim tímapunkti hafi legið fyrir grunur um að kærandi hefði sveiflað tösku í átt að starfsmanni í innritun, hótað viðkomandi ofbeldi, og neitað að hlýða fyrirmælum lögreglu, sbr. 19. gr. lögreglulaga.
  5. Kærði hafnar því að lögreglumaður hafi gefið kæranda olnbogaskot í kviðinn og ekkert liggi fyrir um það í gögnum málsins eða annars staðar.
  6. Kærði bendir á að ákvæði 9. gr. laga nr. 85/2018 fjalli um bann við mismunun í tengslum við vörukaup og þjónustu. Afskipti lögreglu séu allt annars eðlis og byggi mun frekar á lögbundnu hlutverki lögreglu samkvæmt lögreglulögum.
  7. Að endingu tekur kærði fram að til séu upptökur úr búkmyndavélum lögreglumanna er sýndu afskipti lögreglumanna af kæranda umræddan dag.

 

NIÐURSTAÐA

  1. Svo sem að framan er rakið beindist upphafleg kæra annars vegar að kærða, Lögreglustjóranum á Suðurnesjum og hins vegar að tollgæslu. Kærandi var við meðferð málsins inntur eftir nánari skýringum á aðild málsins og mælst var til þess að hann uppfærði kæruna. Kærandi veitti þær skýringar að kæran beindist að tollgæslu, lögreglu og yfirmanni sem þjónustaði easyJet á Keflavíkurflugvelli, en uppfærði ekki kæru málsins. Var málið þannig afmarkað að það beindist að Lögreglustjóranum á Suðurnesjum, Skattinum og APA ehf., þjónustuaðila easyJet og var kærandi upplýstur um það.
  2. Í svörum kærða, Skattsins, kom fram að tollgæsla hefði engin afskipti haft af kæranda í umrætt sinn en það fær jafnframt stuðning í greinargerð kærða, Lögreglustjórans á Suðurnesjum. Að því athuguðu er óhjákvæmilegt að vísa kæru á hendur Skattinum frá nefndinni, sbr. 23. gr. reglugerðar nr. 1320/2024, um kærunefnd jafnréttismála.
  3. Eins og að framan er rakið var að fengnum skýringum kæranda talið að málið beindist jafnframt gegn kærða, APA ehf., sem er þjónustuaðili flugfélagsins easyJet á Keflavíkurflugvelli. Af kæru málsins verður ráðið að kærandi telji að synjun um að greiða með reiðufé og að kalla til lögreglu hafi falið í sér mismunun í tengslum við vörukaup og þjónustu, samkvæmt 9. gr. laga nr. 85/2018. Kærði, APA ehf., brást hins vegar ekki við fyrirspurnarbréfi kærunefndar. Að mati nefndarinnar liggja hins vegar fyrir í málinu upplýsingar og gögn þannig að málið teljist nægilega rannsakað að þessu leyti.
  4. Að framangreindu athuguðu snýr mál þetta annars vegar að því hvort kærði, Lögreglustjórinn á Suðurnesjum, hafi með afskiptum af kæranda, mismunað honum á grundvelli þjóðernisuppruna og kynþáttar. Hins vegar snýr það að því hvort kærði, APA ehf., hafi mismunað kæranda með sama hætti, með því að synja kæranda um að greiða með reiðufé og að kalla til lögreglu.
  5. Í 2. gr. laga nr. 85/2018, um jafna meðferð utan vinnumarkaðar, kemur fram að markmið laganna sé að vinna gegn mismunun og koma á og viðhalda jafnri meðferð einstaklinga óháð þeim þáttum sem um geti í 1. mgr. 1. gr. laganna, þ.e. kynþætti, þjóðernisuppruna, trú, lífsskoðun, fötlun, aldri, kynhneigð, kynvitund, kyneinkennum eða kyntjáningu á öllum sviðum samfélagsins, utan vinnumarkaðar, sbr. lög um jafna meðferð á vinnumarkaði. Samkvæmt 1. mgr. 7. gr. laganna er hvers kyns mismunun á öllum sviðum samfélagsins, utan vinnumarkaðar, hvort heldur bein eða óbein, vegna einhverra þeirra þátta sem um getur í 1. mgr. 1. gr. óheimil, sbr. einnig lög um jafna meðferð á vinnumarkaði. Samkvæmt 9. gr. laganna er hvers konar mismunun vegna einhverra þeirra þátta sem um getur í 1. mgr. 1. gr. í tengslum við aðgang að eða afhendingu á vöru óheimil. Hið sama gildir um þjónustu og aðgang að þjónustu og jafnframt um húsnæði sem er í boði fyrir almenning.
  6. Samkvæmt 1. gr. laga nr. 151/2020, um stjórnsýslu jafnréttismála, gilda lögin um stjórn-sýslu á sviði jafnréttismála á því sviði sem löggjöf um jafnréttismál tekur til, þ.e. lög um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna, lög um jafna meðferð utan vinnumarkaðar og lög um jafna meðferð á vinnumarkaði. Tekið er fram að lögin gildi m.a. um störf kærunefndar jafnréttismála. Samkvæmt 1. mgr. 8. gr. laganna tekur kærunefnd jafnréttismála til meðferðar kærur sem til hennar er beint eftir því sem mælt er fyrir um í lögum um jafnréttismál, sbr. 1. gr., og kveður upp skriflegan úrskurð um hvort ákvæði þeirra laga hafi verið brotin.
  7. Í 15. gr. laga nr. 85/2018 kemur fram að ef leiddar eru líkur að því að mismunun hafi átt sér stað skuli sá sem talinn er hafa mismunað sýna fram á að ástæður þær sem legið hafi til grundvallar meðferðinni tengist ekki einhverjum af þeim þáttum sem um geti í 1. mgr. 1. gr. laganna. Af framangreindu er ljóst að það kemur í hlut kæranda að færa fram staðreyndir eða önnur gögn og upplýsingar sem leiða líkur að því að þjóðernisuppruni eða kynþáttur hafi haft áhrif á ákvarðarnir eða aðgerðir kærðu sem liggja til grundvallar málinu.
  8. Að framan er rakið að kæranda og kærða, Lögreglustjóranum á Suðurnesjum, ber ekki saman um ýmis atvik málsins eða aðdraganda þeirra. Fyrir liggja í gögnum málsins skýrslur lögreglu, sem gerðar voru eftir að tilkynnt var um kæru í máli þessu. Þá kemur fram í svörum lögreglu að til séu upptökur úr búkmyndavélum vegna afskipta lögreglu af kæranda.
  9. Í svörum kærða, Lögreglustjórans á Suðurnesjum, kemur fram að fyrri afskipti lögreglu af kæranda hafi komið til á grundvelli tilkynningar öryggisvörslu eftir að kærandi hafði yfirgefið töskur sínar í brottfararsal. Þau afskipti hafi verið einskorðuð við að ræða við kæranda og að leiðbeina honum um hvar hann gæti nálgast töskurnar aftur. Lögregla hafi hins vegar engin afskipti haft af farangri kæranda eða leitað í honum heldur hafi það verið gert af öryggisgæslu á flugvellinum. Lýsing kæranda af atvikum í kæru var sú að kallað hefði verið til lögreglu þegar kærandi var ósáttur við svör starfsfólks á innritunarborði um greiðslu í reiðufé og að lögregla hefði farið afsíðis með kæranda og farangur hans. Kærandi gerði aftur á móti ekki athugasemdir við fyrrgreinda lýsingu kærða, Lögreglustjórans á Suðurnesjum, í svörum til nefndarinnar eða mótmælti lýsingu á atvikunum, þar með talið að hann hefði yfirgefið farangur sinn í brottfararsal og að lögregla hefði ekki haft afskipti af farangri kæranda.
  10. Að öllu þessu virtu, verður ekki talið að kærandi hafi leitt líkur að því að fyrri afskipti lögreglu af honum í umrætt sinn hafi falið í sér mismunun á grundvelli þjóðernisuppruna og kynþáttar gagnvart kæranda. Þvert á móti verður ekki betur séð en að aðgerðir lögreglu hafi verið til samræmis við lögbundið hlutverk lögreglu samkvæmt lögreglulögum. Samkvæmt því verður ekki fallist á að kærði hafi gerst brotlegur við lög nr. 85/2018.
  11. Um tildrög þess að lögregla hafði afskipti af kæranda síðar sama dag við innritunarborð er ágreiningslaust að kæranda hafði verið synjað um að greiða fyrir yfirvigt með reiðufé. Fram kemur í svörum kærða, Lögreglustjórans á Suðurnesjum, að þegar lögreglumenn komu á staðinn hafi kærandi verið æstur, hafi neitað að hlýða fyrirmælum lögreglu að fylgja þeim afsíðis. Hafi hann í kjölfarið verið tekinn lögreglutökum og færður afsíðis.
  12. Í kæru greinir kærandi frá því að hann hafi orðið reiður þegar honum var synjað um að greiða fyrir yfirvigt í reiðufé og starfsmaður hafi þá kallað á lögreglu. Kærandi rekur í kæru að lögregla hafi neitað að hlusta á útskýringar hans, heldur leitt hann í burtu og neitað honum að fá að ganga sjálfur. Þá hafi annar lögreglumaðurinn gefið honum olnbogaskot í kviðinn. Kærði, lögreglustjórinn á Suðurnesjum, þvertekur fyrir að kæranda hafi verið veitt olnbogaskot, þegar hann var leiddur afsíðis.
  13. Að virtum gögnum málsins er óumdeilt að kærandi reiddist vegna synjunar um greiðslu í reiðufé og að lögregla var kölluð til. Fyrir liggur jafnframt að lögregla hafði áður haft afskipti af kæranda sem var ósáttur við fyrri afgreiðslu á innritunarborði. Í gögnum málsins kemur fram að starfsmaður á innritunarborði hafði greint frá því að kærandi hefði sveiflað ferðatösku í átt að henni og hótað sér ofbeldi.
  14. Með hliðsjón af ofanröktu verður ekki annað séð en að afskipti lögreglu af kæranda í síðara skiptið, eða aðgerðir hennar, hafi verið til samræmis við lögbundið hlutverk hennar samkvæmt lögreglulögum. Með hliðsjón af hugarástandi kærða, fyrri afskiptum lögreglu af honum, sem og upplýsingum sem lögregla fékk þegar hún kom á staðinn, verður heldur ekki séð að lögregla hafi farið strangar í sakirnar en nauðsynlegt var.
  15. Að öllu framangreindu virtu telur nefndin að kærandi hafi ekki leitt líkur að því að kærði hafi mismunað honum á grundvelli þjóðernisuppruna eða kynþáttar með aðgerðum sínum í umrætt sinn. Samkvæmt því verður ekki fallist á að kærði, Lögreglustjórinn á Suðurnesjum, hafi gerst brotlegur við lög nr. 85/2018 hvað það varðar.
  16. Eftir stendur þá að taka afstöðu til þess hvort að synjun kærða, APA ehf., að taka á móti reiðufé eða að kalla til lögreglu hafi falið í sér mismunun sem andstæð er ákvæðum laga nr. 85/2018.
  17. Fyrir liggur í lögregluskýrslu sem er meðal gagna málsins, að lögregla hafi greint kæranda frá þeirri stefnu flugfélagsins að taka ekki á móti reiðufé. Við nánari eftirgrennslan nefndarinnar má t.d. sjá að í skilmálum flugfélagsins easyJet kemur fram í gr. 4.8 að þegar greitt sé á flugvelli skuli nota greiðslukort þar sem verið gæti að annar greiðslumáti yrði ekki samþykktur.  Af vefleitarvélinni waybackmachine má ráða að sömu skilmálar að þessu leyti hafi gilt þegar atvik málsins áttu sér stað. Af því verður ekki annað ályktað en að synjun kærða, APA ehf., hafi byggst á almennu verklagi um samþykkta greiðslumáta á innritunarborði, en hafi ekki beinst sérstaklega að kæranda.
  18. Að öllu þessu virtu verður ekki talið að kærandi hafi leitt líkur að því að synjun kærða, APA ehf., hafi falið í sér mismunun á grundvelli þjóðernisuppruna eða kynþáttar. Með hliðsjón af því sem að framan er rakið um framkomu kæranda og það sem haft var eftir starfsmanni á innritunarborði, verður heldur ekki talið að kærandi hafi leitt líkur að því að honum hafi verið mismunað á sama grundvelli þegar óskað var aðstoðar lögreglu. Samkvæmt því verður ekki fallist á að kærði, APA ehf., hafi gerst brotlegt við lög nr. 85/2018 hvað það varðar.
  19. Uppkvaðning úrskurðar í málinu hefur tafist umfram þann tveggja mánaða frest sem nefndin hefur til að úrskurða í máli eftir að gagnaöflun í því er lokið samkvæmt 5. mgr. 9. gr. laga nr. 151/2020, um stjórnsýslu jafnréttismála. Er ástæða þess einkum mikill fjöldi mála sem er til meðferðar hjá nefndinni auk breytinga á vistun nefndarinnar og starfsmannahaldi hennar.

 

Ú r s k u r ð a r o r ð

Þeim þætti málsins sem beinist gegn Skattinum er vísað frá kærunefnd jafnréttismála.

Kærði, Lögreglustjórinn á Suðurnesjum, braut ekki gegn lögum nr. 85/2018, um jafna meðferð utan vinnumarkaðar, á grundvelli þjóðernisuppruna eða kynþáttar við afskipti af honum […] 2024.

Kærði, APA ehf., braut ekki gegn lögum nr. 85/2018, um jafna meðferð utan vinnumarkaðar, á grundvelli þjóðernisuppruna eða kynþáttar með því að synja kæranda um að greiða með reiðufé og óska aðstoðar lögreglu […] 2024.

 

Ari Karlsson

Andri Árnason

Maren Albertsdóttir

Var efnið hjálplegt?