27. október 2026
/
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

Mál nr. 27/2026 - Úrskurður

KÆRUNEFND HÚSAMÁLA

ÚRSKURÐUR

uppkveðinn 15. október 2026

í máli nr. 27/2026

A

gegn

B

Kærunefndina skipa í þessu máli Auður Björg Jónsdóttir lögmaður, Þorvaldur Hauksson lögmaður og Eyþór Rafn Þórhallsson verkfræðingur.

Aðilar málsins eru:

Sóknaraðili: A.

Varnaraðili: B.

Krafa sóknaraðila er að viðurkennt verði að varnaraðila beri að endurgreiða tryggingarfé að fjárhæð 110.000 kr.

Varnaraðili krefst þess að kröfu sóknaraðila verði hafnað.

Eftirtalin gögn voru lögð fyrir kærunefnd:

Kæra sóknaraðila, dags. 17. mars 2026.

Greinargerð varnaraðila, dags. 7. maí 2026

Athugasemdir sóknaraðila, dags. 13. maí 2026.

I. Helstu málsatvik og ágreiningsefni

Aðilar gerðu munnlegan samning um leigu sóknaraðila á íbúð varnaraðila að C. Ágreiningur er um endurgreiðslu tryggingarfjár og hvort varnaraðili geti gert kröfu á hendur sóknaraðila vegna tjóns sem hann hafi orðið fyrir vegna þess að eitra þurfti fyrir veggjalúsum í eigninni.

II. Sjónarmið sóknaraðila

Sóknaraðili kveður framlögð samskipti aðila staðfesta að eignin hafi verið í slæmu ástandi við upphaf leigutíma 1. febrúar 2026. Hann hafi farið í tíu daga ferð til Evrópu og fljótlega eftir að hann hafi komið til baka hafi hann orðið var við veggjalýs. Hann hafi að lokum flutt út úr eigninni 25. febrúar og viti til þess að eitra hafi þurft fyrir veggjalús í eigninni og að ekki væri mælt með að búið yrði í henni í nokkrar vikur eftir það. Honum hafi því verið nauðugur sá kostur einn að rifta munnlegum leigusamningi enda eignin óíbúðarhæf. Hann vilji fá tryggingarfé, 110.000 kr., endurgreitt enda geti hann ekki borið ábyrgð á ástandi eignarinnar.

III. Sjónarmið varnaraðila

Varnaraðili kveður slæmt ástand eignarinnar við upphaf leigutíma hafi verið að rekja til þess hvernig fyrri leigjandi hafi skilið við hana. Á þeim grunni hafi hann ekki krafið sóknaraðila um leigu fyrstu vikuna sem hann hafi dvalið þar. Það hafi verið 10. febrúar, er sóknaraðili hafi verið að koma erlendis frá, sem hann hafi fyrst lýst einkennum sem þeir hafi síðar áttað sig á að væri að rekja til veggjalúsar. Þá komi veggjalús ekki til vegna ástands hins leigða eða óþrifa heldur ferðist hún með húsgögnum eða með mönnum eða munum eftir ferðalag erlendis. Varnaraðili hafi sett inn ný húsgögn í íbúðina er sóknaraðili hafi flutt inn.

IV. Athugasemdir sóknaraðila

Sóknaraðili kveður gömul og illa farin húsgögn hafa verið í eigninni og veggjalýs hafi hreiðrað um sig í þeim. Þær hafi svo dreifst um íbúðina. Hann hafi ekki sofið almennilega i tuttugu nætur vegna þessa og glími enn í dag við alvarleg svefnvandamál vegna þessa. Því hafi hann orðið að fara úr íbúðinni. Hann sjái ekki réttmæta ástæðu fyrir varnaraðila að halda eftir tryggingarfé hans þar sem honum hafi ekki verið afhend hrein og fullkomlega íbúðarhæf íbúð í upphafi sem hann hafi valdið tjóni á. Hann hafi þvert á móti lagt sig fram um að þrífa og laga íbúðina eins og kostur var líkt og varnaraðili hafi verið þakklátur fyrir svo sem sjá megi á framlögðum samskiptum þeirra.

V. Niðurstaða

Til tryggingar á réttum efndum á leigusamningi aðila lagði sóknaraðili fram tryggingarfé að fjárhæð 110.000 kr. með tveimur jafnháum færslum 19. og 25. janúar 2026. Ágreiningur er með aðilum um hvort varnaraðila sé heimilt að halda tryggingafénu eftir á þeim grunni að sóknaraðili beri ábyrgð á veggjalús sem upp hafi komið í eigninni og hann orðið fyrir fjártjóni vegna þessa. Ekki er ágreiningur um að íbúðin hafi verið óíbúðarhæf 25. febrúar 2026 er sóknaraðili flutti út.

Hvorugur aðila getur sýnt fram á hvaðan veggjalúsin kom og hvort hún hafi verið til staðar við upphaf leigutíma en aðilar gerðu ekki sameiginlega úttekt í samræmi við ákvæði 69. gr. húsaleigulaga, hvorki við upphaf né lok leigutíma. Verður varnaraðili að bera hallann af sönnunarskorti hér um auk þess sem hann hefur ekki lagt fram gögn eða upplýsingar um tjón sitt. Fellst kærunefnd því á kröfu sóknaraðila um að varnaraðila beri að endurgreiða honum framlagt tryggingarfé.

Í 7. mgr. 85. gr. húsaleigulaga er kveðið á um að úrskurðir kærunefndar húsamála séu bindandi gagnvart málsaðilum og sæti ekki kæru til æðra stjórnvalds. Málsaðilum sé heimilt að bera úrskurði nefndarinnar undir dómstóla innan átta vikna frá því að úrskurður sé kveðinn upp og frestast þá réttaráhrif hans uns dómur fellur. Samkvæmt 9. mgr. 85. gr. laganna eru úrskurðir kærunefndar aðfararhæfir án undangengins dóms.

 

ÚRSKURÐARORÐ:

Varnaraðila ber að endurgreiða sóknaraðila tryggingarfé að fjárhæð 110.000 kr. ásamt vöxtum, sbr. 4. tölul. 1. mgr. 40. gr. húsaleigulaga, af 55.000 kr. frá 19. janúar til 25. janúar en af kr. 110.000 kr. frá þeim degi til 26. mars 2026, en með dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga um vexti og verðtryggingu, nr. 38/2001, frá þeim degi til greiðsludags.

 
 

Reykjavík, 15. október 2026

 
 

Auður Björg Jónsdóttir

 

Eyþór Rafn Þórhallsson                                              Þorvaldur Hauksson