13. ágúst 2026
/
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

Mál nr. 403/2026-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 403/2026

Fimmtudaginn 13. ágúst 2026

A gegn Reykjavíkurborg

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur.

Með kæru, dags. 2. júní 2026, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Reykjavíkurborgar, dags. 13. maí 2026, um að synja umsókn hennar um fjárhagsaðstoð.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Með umsókn, dags. 6. mars 2026, sótti kærandi um fjárhagsaðstoð til framfærslu fyrir tímabilið 1. til 31. mars 2026. Umsókn kæranda var synjað og staðfesti áfrýjunarnefnd velferðarráðs þá niðurstöðu með ákvörðun, dags. 13. maí 2026. Kærandi óskaði eftir rökstuðningi fyrir þeirri ákvörðun og var hann veittur með bréfi Reykjavíkurborgar, dags. 4. júní 2026.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 2. júní 2026. Með bréfi, dags. 8. júní 2026, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Reykjavíkurborgar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Reykjavíkurborgar barst 22. júní 2026 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 24. júní 2026. Athugasemdir bárust frá kæranda 25. júní 2026 og voru þær kynntar Reykjavíkurborg með bréfi, dagsettu sama dag. Frekari gögn bárust frá kæranda 2. og 10. júlí 2026.

II.  Sjónarmið kæranda

Í kæru til úrskurðarnefndar kemur fram að kærandi hafi verið skráð og haft fasta búsetu í Reykjavík frá ágúst 2025 til dagsins í dag. Kærandi hafi haldið samfelldum húsnæðisskuldbindingum á þessu tímabili, þar á meðal greiðslum fyrir húsaleigu fyrir mars og apríl. Kærandi hafi haldið nauðsynlegum framfærslukostnaði og fjárhagslegum skuldbindingum í Reykjavík þar á meðal húsnæðiskostnaði, matarkostnaði, læknis- og tannlæknaþjónustu og reglulegum skautaæfingum.

Á tímabilinu 11. til 25. mars 2026 hafi kærandi tímabundið ferðast til útlanda til að aðstoða með nýfætt barn og flutninga fjölskyldu með þrjú ung börn. Þetta ferðalag hafi verið tímabundið og hafi ekki falið í sér nokkurs konar flutning á búsetu né breytingu á lögheimili. Kærandi hafi haft farmiða til baka, áframhaldandi leigusamning og bókaða tíma hjá bæði lækni og tannlækni í apríl í Reykjavík.

Í febrúar 2026, áður en atvik þau sem hafi leitt til þessarar kæru hafi átt sér stað, hafi kærandi einnig keypt sér farmiða frá Reykjavík til Amsterdam og frá Amsterdam til Reykjavíkur. Þetta sé fjögurra daga ferð skipulögð seinna um árið til að kærandi geti mætt í afmæli hjá barnabarni sínu. Kærandi hafi haft áframhaldandi áætlanir, skuldbindingar og væntanleg útgjöld tengd lífi sínu í Reykjavík en hún hafi gert ráð fyrir að halda áfram að búa þar.

Þann 19. mars 2026, eftir langt tímabil án fyrri samskipta við Reykjavíkurborg, hafi verið haft samband við kæranda og hún boðuð á fund þann 21. mars 2026. Kærandi hafi óskað eftir því að fundinum yrði frestað til 26. mars 2026 þar sem að flug hennar til Íslands væri 25. mars 2026. Kærandi hafi veitt bæði skýringar og fylgigögn. Innan nokkurra mínútna hafi kæranda verið tilkynnt að hún uppfyllti ekki skilyrði um búsetu og að fjárhagsaðstoð hennar fyrir marsmánuð yrði felld niður. Í sömu samskiptum hafi kæranda verið tilkynnt að hún gæti lagt fram nýja umsókn 9. apríl 2026, eftir páska. Þrátt fyrir að hafa reynt að útskýra aðstæður sínar í smáatriðum hafi fjárhagsaðstoð til hennar verið stöðvuð daginn eftir á þeirri forsendu að hún byggi ekki í Reykjavík. Til að strá salti í sárið hafi þessari skjótu ákvörðun, sem hafi verið tekin innan nokkurra mínútna, verið komið á framfæri við kæranda með tölvupósti sem hafi innihaldið broskall.

Á tímabilinu 19. til 26. mars 2026 hafi kærandi ítrekað haft samband við Reykjavíkurborg og óskað eftir því að ákvörðunin yrði endurskoðuð. Ákvörðunin hafi staðið óbreytt og skilið kæranda eftir án fjárhagslegrar getu til að greiða húsaleigu fyrir apríl og önnur nauðsynleg útgjöld. Þann 27. mars 2026 hafi kærandi kært ákvörðunina til áfrýjunarnefndar velferðarráðs Reykjavíkurborgar. Þann 31. mars 2026 hafi kærandi fengið staðfestingu á því að óskað væri eftir gögnum frá Reykjavíkurborg. Eftir að hafa ekki heyrt neitt frá áfrýjunarnefndinni í margar vikur hafi kærandi haft samband við nefndina um miðjan eða undir lok apríl og þá fyrst hafi henni verið tilkynnt að hún hefði hafnað fundi og að málið gæti ekki fengið frekari meðferð. Kærandi hafi ekki hafnað fundi heldur hafi hún óskað eftir því að fundinum yrði frestað um nokkra daga. Eftir að Reykjavíkurborg hafi fellt niður fjárhagsaðstoð hennar í mars hafi henni verið tilkynnt af Reykjavíkurborg að hún gæti sótt um aftur og/eða mætt á annan fund. Kærandi hafi ekki mætt á þann fund þar sem að hún hafi talið að sveitarfélagið hefði þegar tekið endanlega ákvörðun um að fella niður fjárhagsaðstoðina til hennar fyrir marsmánuð og að endurskoða ætti þá ákvörðun áður en að hún tæki þátt í frekari málsmeðferð.

Afstaða kæranda hafi verið sú að lögmæti niðurfellingarinnar yrði fyrst að vera metið sjálfstætt og að málsmeðferð eftir að ákvörðun hefði verið tekin gæti ekki ráðið því hvort upphaflega ákvörðunin væri kæranleg.

Sú niðurstaða að líta á afstöðu kæranda  sem synjun um samstarf endurspegli ekki að hún hafi verið að mótmæla lögmæti niðurfellingarinnar sjálfrar. Í kjölfarið hafi kærandi leitað til úrskurðarnefndar velferðarmála. Með bréfi dags. 4. maí 2026, hafi úrskurðarnefnd velferðarmála komist að þeirri niðurstöðu að málið hefði ekki enn hlotið formlega meðferð hjá áfrýjunarnefnd velferðarráðs Reykjavíkurborgar og því vísað málinu til þeirrar til meðferðar.

Ekki hafi verið haft samband við kæranda af hálfu áfrýjunarnefnd velferðarráðs Reykjavíkurborgar eftir að málið hafi verið sent þangað. Eftir að hafa beðið eftir svari hafi kærandi haft samband við nefndina til að spyrjast fyrir um stöðu kærunnar. Þann 13. maí 2026 hafi áfrýjunarnefnd velferðarráðs Reykjavíkurborgar staðfest upphaflegu synjunina á fjárhagsaðstoð. Ákvörðunin hafi ekki innihaldið efnislegan rökstuðning fyrir því hvers vegna kærunni væri hafnað. Þann 14. maí 2026 hafi kærandi óskað eftir nánari rökstuðningi fyrir ákvörðuninni samkvæmt 21. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Enginn nánari rökstuðningur hafi verið veittur innan lögbundins 14 daga frests. Þann 1. júní 2026 hafi kærandi ítrekaða beiðni um nánari rökstuðning.

Kærandi spyrji hvort tímabundin ferð af fjölskylduástæðum hafi ranglega verið túlkuð sem missir á fastri búsetu í Reykjavík. Hvort ákvörðunin hafi byggst á fullnægjandi og réttu mati á málsatvikum, hvort meðferð málsins hafi verið í samræmi við stjórnsýslulög nr. 37/1993 og hvort sú vanræksla að veita rökstudda ákvörðun eftir beiðni kæranda samkvæmt 21. gr. stjórnsýslulaga feli í sér annmarka á málsmeðferð.

Að mati kæranda virðist ákvörðunin fyrst og fremst byggjast á tímabundinni fjarveru hennar frá Reykjavík sem sönnun þess að hún hefði ekki lengur búsetu þar. Búseta ráðist hins vegar ekki eingöngu af líkamlegri viðveru á ákveðnum tíma heldur verði að meta hana með hliðsjón af venjubundinni miðju lífs einstaklings, samfellu í búsetu, húsnæðisfyrirkomulagi, fjárhagslegum skuldbindingum og öðrum varanlegum tengslum.

Á öllu því tímabili sem um ræði hafi kærandi haldið leigusamningi sínum í Reykjavík, haldið fjárhagslegum skuldbindingum sínum í Reykjavík og haldið áfram heilbrigðisþjónustu og öðru nauðsynlegu fyrirkomulagi á Íslandi. Ferð kæranda hafi verið tímabundin og farin af fjölskylduástæðum. Kærandi hafi haft í hyggju að snúa aftur til Íslands og haldið áfram framtíðaráformum og fjárhagslegum skuldbindingum tengdum lífi hennar í Reykjavík.  Ákvörðunin samræmist ekki meðalhófi í ljósi þeirra alvarlegu afleiðinga sem niðurfelling nauðsynlegrar fjárhagsaðstoðar hafi haft í för með sér og þess að vægari úrræði hafi verið fyrir hendi.

Niðurfelling fjárhagsaðstoðarinnar hafi haft í för með sér verulega erfiðleika, þar á meðal ómöguleika á að standa undir nauðsynlegum framfærsluútgjöldum. Kærandi hafi misst leiguhúsnæði sitt þar sem að leigusali hafi ekki samþykkt að nota tryggingarféð sem greiðslu fyrir húsaleigu í apríl heldur krafist greiðslu og hafi kærandi ekki haft neina fjármuni til þess. Ógreiddar skuldbindingar í mars, þar á meðal reikningur kæranda frá Nova sem hafi nú verið sendur til innheimtufyrirtækisins Motus með áföllnum vöxtum. Þá hafi einnig verið ómögulegt fyrir kæranda að mæta í tannlæknatíma 21. apríl 2026 vegna tannaðgerðar sem hafi verið mjög mikilvæg fyrir heilsu kæranda.

Kærandi óski þess að ákvörðun áfrýjunarnefndar velferðarráðs Reykjavíkurborgar frá 13. maí 2026 verði felld úr gildi. Þá fari kærandi jafnframt fram á að réttur hennar til fjárhagsaðstoðar fyrir mars 2026 verði endurmetinn og að henni verði greidd sú fjárhagsaðstoð sem hún hafi rétt á.

Í athugasemdum við greinargerð Reykjavíkurborgar kemur fram að kærandi haldi uppi öllum fyrri rökum. Kærandi ítreki þær staðreyndir sem hafi ítrekað komið fram.

Á þeim um það bil sjö mánuðum fyrir mars 2026 hafi Reykjavíkurborg ekki gert þá kröfu að kærandi þyrfti að mæta í eigin persónu. Samskipti kæranda við þjónustufulltrúa hafi takmarkast við eitt símtal í þeim tilgangi að ganga frá eyðublaði.

Kærandi hafi ekki hafnað fundinum sem hún hafi verið boðuð á þann 19. mars 2026. Kærandi hafi tilkynnt Reykjavíkurborg að hún væri tímabundið erlendis til 25. mars 2026 og hafi óskað eftir því að fundinum yrði frestað þar til hún kæmi aftur. Engu að síður hafi fjárhagsaðstoð til hennar verið tafarlaust felld niður.

Greinargerð Reykjavíkurborgar hafi beinst að miklu leyti að atburðum sem hafi átt sér stað eftir að aðstoðin hafi verið felld niður fremur en að forsendum sjálfrar ákvörðunarinnar frá 20. mars 2026. Greinargerðin varpi sökinni á kæranda.

Kærandi haldi því fram að kjarni málsins sé hvort ákvörðunin hafi verið lögmæt og nægilega vel rökstudd út frá þeim upplýsingum sem hafi legið fyrir þegar hún hafi verið tekin. Kærandi telji því rétt að lögmæti ákvörðunarinnar frá 20. mars 2026 verði metið óháð síðari atburðum.

III.  Sjónarmið Reykjavíkurborgar

Í greinargerð Reykjavíkurborgar kemur fram að kærandi sé X árs gömul kona frá B sem hafi flutt til Íslands árið 2016. Kærandi sé menntaður kennari en hafi aðallega unnið við þrif hér á landi. Kærandi hafi fengið fjárhagsaðstoð sér til framfærslu samfleytt frá því í ágúst 2025. Frekari upplýsingar um kæranda liggi ekki fyrir þar sem kærandi hafi ekki verið til samstarfs við vinnslu málsins fyrir áfrýjunarnefnd. Kærandi hafi sótt um fjárhagsaðstoð til framfærslu með umsókn, dags. 6. mars 2026, vegna tímabilsins 1. til 31. mars 2026. Þann 19. mars 2026 hafi kærandi verið upplýst í tölvupósti að hún ætti að mæta tvisvar í viku á miðstöð til að sanna á sér deili til að uppfylla skilyrði 2. mgr. 8. gr. reglna um fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg. Kærandi hafi svarað þeim tölvupósti og sagst vera erlendis tímabilið 11. til 25. mars 2026 og kæmist því ekki til að sanna á sér deili á þeim tíma en hafi óskað eftir því að mæta á miðstöð eftir að hún kæmi heim. Framangreindri umsókn hafi verið synjað með bréfi, dags. 20. mars 2026. Kærandi hafi verið ósátt við að umsókn hennar um fjárhagsaðstoð hefði verið synjað og hafi óskað eftir að ræða við yfirmann. Kæranda hafi verið boðið viðtal hjá teymisstjóra ásamt túlki þann 31. mars 2026 sem hún hafi afþakkað.

Kærandi hafi skotið umræddri synjun til áfrýjunarnefndar velferðarráðs sem hafi tekið málið fyrir á fundi sínum þann 13. maí 2026 og afgreitt það með eftirfarandi bókun:

„Áfrýjunarnefnd velferðarráðs staðfesti synjun starfsmanna Vesturmiðstöðvar Reykjavíkurborgar um fjárhagsaðstoð tímabilið 1. mars 2026 til 31. mars 2026, skv. 2. mgr. 8. gr. reglna um fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg.“

Kærandi hafi óskað eftir rökstuðningi sem hafi verið sendur henni með bréfi þann 4. júní 2026. Þann 2. júní 2026 hafi kærandi skotið framangreindri ákvörðun áfrýjunarnefndar velferðarráðs Reykjavíkurborgar til úrskurðarnefndar velferðarmála.

Núgildandi reglur um fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg með áorðnum breytingum hafi tekið gildi þann 1. apríl 2021 og verið samþykktar á fundi velferðarráðs Reykjavíkurborgar þann 24. febrúar 2021 og á fundi borgarráðs þann 4. mars 2021. Umræddar reglur séu settar á grundvelli 21. gr. laga nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga. Litið sé svo á að fjárhagsaðstoð til framfærslu frá sveitarfélagi sé neyðaraðstoð sem ekki beri að veita nema engar aðrar bjargir séu fyrir hendi. Í 1. gr. reglnanna komi fram að skylt sé að veita fjárhagsaðstoð til framfærslu einstaklinga og fjölskyldna sem ekki geti séð sér og sínum farborða án aðstoðar, sbr. IV. og VI. kafla laga nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga, með síðari breytingum, sbr. og III. kafla reglnanna. Um fjárhagsaðstoð til framfærslu frá Reykjavíkurborg gildi sú meginregla að umsækjandi fái einungis greidda fjárhagsaðstoð til framfærslu ef hann geti ekki framfleytt sér. Umrædd meginregla eigi sér stoð í 2. gr. reglna um fjárhagsaðstoð, sbr. 19. gr. laga nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga, sem kveði meðal annars á um skyldu hvers og eins að framfæra sjálfan sig, maka sinn og börn yngri en 18 ára.

Í II. kafla reglna um fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg sé að finna almenn ákvæði sem lúti að umsóknum um fjárhagsaðstoð. Við mat á greiðslu fjárhagsaðstoðar samkvæmt reglunum skuli horfa til 4. gr. reglnanna sem kveði á um að réttur til aðstoðar fylgi lögheimili. Ákvæði 4. gr. reglna um fjárhagsaðstoð sé svohljóðandi:

„Umsókn um fjárhagsaðstoð skal leggja fram í lögheimilissveitarfélagi. Skal umsækjandi dvelja á Íslandi á því tímabili sem hann fær fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg. Þurfi einstaklingur á skyndilegri aðstoð að halda í dvalarsveitarfélagi vegna slysa, veikinda eða af öðrum brýnum orsökum er skylt að veita tímabundna aðstoð. Skal haft samráð við lögheimilissveitarfélag umsækjanda og aðstoð metin og veitt í samræmi við reglur þess. Lögheimilissveitarfélag endurgreiðir dvalarsveitarfélagi kostnaðinn að fullu, sbr. 14. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991.“

Í II. kafla reglna um fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg sé að finna ákvæði sem lúti að umsóknum um fjárhagsaðstoð. Í 8. gr. sé fjallað nánar um umsóknir um fjárhagsaðstoð og fylgigögn. Þá segi í 2. mgr. 8. gr. reglna um fjárhagsaðstoð:

„Taki umsækjandi þátt í virkniverkefnum á vegum Virknihúss Reykjavíkurborgar er heimilt að gera kröfu um að hann sanni á sér deili og sýni skilríki með mynd í Virknihúsi. Þá er hvenær sem er, við afgreiðslu umsóknar eða við greiðslu fjárhagsaðstoðar til framfærslu, heimilt að gera kröfu um að umsækjandi sanni deili á sér með því að mæta á viðeigandi miðstöð Reykjavíkurborgar og sýna skilríki með mynd. Bregðist umsækjandi ekki við kröfu um að sanna á sér deili er heimilt að stöðva afgreiðslu umsóknar og/eða greiðslu fjárhagsaðstoðar til framfærslu. Sanna skal á sér deili innan tveggja virkra daga frá því að umsókn var lögð fram nema lögmæt forföll hamli því, s.s. veikindi eða fötlun.“

Þann 19. mars 2026 hafi kæranda verið sendur tölvupóstur þar sem henni hafi verið gert að mæta á Vesturmiðstöð Reykjavíkurborgar tvisvar í viku, alla mánudaga og fimmtudaga, til að sanna á sér deili með því að framvísa persónuskilríkjum með mynd, sbr. 2. mgr. 8. gr. reglna um fjárhagsaðstoð. Kærandi hafi verið erlendis tímabilið 11. til 25. mars 2026 og hafi því svarað að hún hefði ekki tök á að mæta á miðstöð til að sanna á sér deili fyrr en 26. mars 2026. Líkt og greini í 4. gr. reglna um fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg skuli umsækjandi vera á Íslandi á því tímabili sem hann fái fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg. Kærandi hafi ekkert mætt á tímabilinu 1. til 31. mars 2026 til að sanna á sér deili. Líkt og áður greini hafi kærandi verið ósátt við að umsókn hennar um fjárhagsaðstoð hefði verið synjað og hafi óskað eftir að ræða við yfirmann. Kæranda hafi verið boðið viðtal hjá teymisstjóra ásamt túlki þann 31. mars 2026 sem hún hafi afþakkað. Með hliðsjón af framangreindu hafi umsókn kæranda því verið synjað með bréfi Vesturmiðstöðvar þann 20. mars 2026, sbr. 2. mgr. 8. gr. og 4. gr. reglna um fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg.

Með hliðsjón af öllu framansögðu hafi áfrýjunarnefnd velferðarráðs talið rétt að synja umsókn kæranda fyrir tímabilið 1. til 31. mars 2026 á grundvelli 2. mgr. 8. gr. og 4. gr. reglna um fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg. Með vísan til framangreinds hafi áfrýjunarnefnd velferðarráðs staðfest synjun starfsmanna Vesturmiðstöðvar á fjárhagsaðstoð til framfærslu fyrir áðurnefnt tímabil.

Með vísan til alls framangreinds verði að telja að ákvörðun áfrýjunarnefndar velferðarráðs Reykjavíkurborgar hafi hvorki brotið gegn fyrrgreindum reglum um fjárhagsaðstoð, sbr. 21. gr. laga nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga, né öðrum ákvæðum laga nr. 40/1991 eða ákvæðum stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Reykjavíkurborgar, dags. 13. maí 2026, um að synja umsókn kæranda um fjárhagsaðstoð fyrir tímabilið 1. til 31. mars 2026.

Markmið félagsþjónustu á vegum sveitarfélaga er að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi og stuðla að velferð íbúa á grundvelli samhjálpar, sbr. 1. mgr. 1. gr. laga nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga. Samkvæmt 2. mgr. 1. gr. laganna skal þess gætt við framkvæmd félagsþjónustunnar að hvetja einstaklinginn til ábyrgðar á sjálfum sér og öðrum, virða sjálfsákvörðunarrétt hans og styrkja hann til sjálfshjálpar. Um leið skulu við framkvæmd félagsþjónustunnar sköpuð skilyrði til að einstaklingurinn geti tekið virkan þátt í samfélaginu á eigin forsendum. Félagsleg þjónusta skuli í heild sinni miða að valdeflingu og miðast við einstaklingsbundnar þarfir og aðstæður. Með félagsþjónustu er átt við þjónustu, aðstoð og ráðgjöf, meðal annars í tengslum við fjárhagsaðstoð, sbr. 1. mgr. 2. gr.

Í 1. mgr. 12. gr. laganna kemur fram að sveitarfélag skuli sjá um að veita íbúum þjónustu og aðstoð samkvæmt lögunum og jafnframt tryggja að þeir geti séð fyrir sér og sínum. Sveitarfélög skuli tryggja að stuðningur við íbúa sem hafi barn á framfæri sé í samræmi við það sem sé barninu fyrir bestu. Þá segir í 2. mgr. 12. gr. að aðstoð og þjónusta skuli jöfnum höndum vera til þess fallin að bæta úr vanda og koma í veg fyrir að einstaklingar og fjölskyldur komist í þá aðstöðu að geta ekki ráðið fram úr málum sínum sjálf. Í athugasemdum með ákvæði 12. gr. í frumvarpi til laga nr. 40/1991 kemur fram að skyldur sveitarfélaga miðist annars vegar við að veita þjónustu og aðstoð samkvæmt lögunum og hins vegar að tryggja að íbúar geti séð fyrir sér og fjölskyldum sínum.

Í VI. kafla laga nr. 40/1991 er kveðið á um fjárhagsaðstoð en í 19. gr. laganna kemur fram sú grundvallarregla að hverjum manni sé skylt að framfæra sjálfan sig, maka sinn og börn yngri en 18 ára. Samkvæmt 21. gr. laganna skal sveitarstjórn setja reglur um framkvæmd fjárhagsaðstoðar að fengnum tillögum félagsmálanefndar er metur þörf og ákveður fjárhagsaðstoð til einstaklinga í samræmi við reglur sveitarstjórnar, sbr. 2. mgr. sömu greinar. Lög nr. 40/1991 veita þannig sveitarfélögum ákveðið svigrúm til útfærslu á fjárhagsaðstoð til einstaklinga. Í samræmi við það og ákvæði stjórnarskrárinnar um sjálfstjórn sveitarfélaga er mat á þeirri útfærslu að meginstefnu til lagt í hendur hverrar sveitarstjórnar er þjónustuna veitir. Verður ekki við því mati hróflað af hálfu úrskurðarnefndar velferðarmála, svo fremi það byggi á lögmætum sjónarmiðum og sé í samræmi við lög að öðru leyti.

Í 1. gr. reglna um fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg er kveðið á um lagagrundvöll fjárhagsaðstoðar. Þar kemur fram í 1. mgr. að skylt sé að veita fjárhagsaðstoð til framfærslu einstaklinga og fjölskyldna sem ekki geta séð sér og sínum farborða án aðstoðar. Í 2. gr. reglnanna kemur einnig fram sama grundvallarregla og í 19. gr. laga nr. 40/1991 að hverjum manni sé skylt að framfæra sjálfan sig, maka sinn og börn yngri en 18 ára.

Samkvæmt 4. gr. framangreindra reglna skal leggja fram umsókn um fjárhagsaðstoð í lögheimilissveitarfélagi. Umsækjandi skal dvelja á Íslandi á því tímabili sem hann fær fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg. Þurfi einstaklingur á skyndilegri aðstoð að halda í dvalarsveitarfélagið vegna slysa, veikinda eða af öðrum brýnum orsökum sé skylt að veita tímabundna aðstoð. Samráð skuli haft við lögheimilissveitarfélag umsækjanda og aðstoð metin og veitt í samræmi við reglur þess. Lögheimilissveitarfélag skal endurgreiða dvalarsveitarfélagi kostnaðinn að fullu, sbr. 14. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga. Þá segir í 6. gr. reglnanna að fjárhagsaðstoð til framfærslu skuli greidd einn mánuð í senn og að ákvarðanir um aðstoð skuli að jafnaði ekki ná yfir lengra tímabil. Móttaka umsóknar um fjárhagsaðstoð til framfærslu ákvarði fyrir hvaða mánuð umsókn gildi.

Í II. kafla framangreindra reglna er að finna ákvæði sem lúta að umsóknum um fjárhagsaðstoð. Þar segir meðal annars í 1. mgr. að þegar sótt sé um fjárhagsaðstoð til framfærslu í fyrsta skipti eða þegar liðnir séu sex mánuðir frá því síðast hafi verið sótt um fjárhagsaðstoð til framfærslu sé umsækjanda skylt að sanna á sér deili með því að mæta á viðeigandi miðstöð Reykjavíkurborgar og sýna skilríki með mynd. Bregðist umsækjandi ekki við kröfu um að sanna á sér deili sé heimilt að stöðva afgreiðslu umsóknar og/eða greiðslu fjárhagsaðstoðar til framfærslu. Þá kemur eftirfarandi fram í 2. mgr. 8. gr. :

„Taki umsækjandi þátt í virkniverkefnum á vegum Virknihúss Reykjavíkurborgar er heimilt að gera kröfu um að hann sanni á sér deili og sýni skilríki með mynd í Virknihúsi. Þá er hvenær sem er, við afgreiðslu umsóknar eða við greiðslu fjárhagsaðstoðar til framfærslu, heimilt að gera kröfu um að umsækjandi sanni deili á sér með því að mæta á viðeigandi miðstöð Reykjavíkurborgar og sýna skilríki með mynd. Bregðist umsækjandi ekki við kröfu um að sanna á sér deili er heimilt að stöðva afgreiðslu umsóknar og/eða greiðslu fjárhagsaðstoðar til framfærslu. Sanna skal á sér deili innan tveggja virkra daga frá því að umsókn var lögð fram nema lögmæt forföll hamli því, s.s. veikindi eða fötlun.“

Reykjavíkurborg hefur vísað til þess að kæranda hafi verið sendur tölvupóstur þann 19. mars 2026 þar sem henni var gert að mæta á Vesturmiðstöð Reykjavíkurborgar tvisvar í viku, alla mánudaga og fimmtudaga, til að sanna á sér deili með því að framvísa persónuskilríkjum með mynd, sbr. 2. mgr. 8. gr. reglna um fjárhagsaðstoð. Kærandi hefur viðurkennt að hafa verið erlendis tímabilið 11. til 25. mars 2026 og svaraði hún því til að hún hefði ekki tök á að mæta fyrr en 26. mars 2026. Í kjölfarið var umsókn kæranda um fjárhagsaðstoð til framfærslu fyrir marsmánuð 2026 synjað. Kærandi hefur vísað til þess að hún hafi verið erlendis af fjölskylduástæðum og að hún hafi ekki hafnað þátttöku á fundi heldur beðið um nýjan fund.

Líkt og að framan greinir er það hlutverk sveitarfélaga að tryggja að íbúar þess geti séð fyrir sér og sínum, sbr. 1. mgr. 12. gr. laga nr. 40/1991. Nánari útfærsla á þeirri skyldu er í höndum hvers sveitarfélags, með setningu reglna þar um. Í reglum Reykjavíkurborgar um fjárhagsaðstoð kemur skýrt fram að umsækjandi skuli dvelja á Íslandi á því tímabili sem hann fái fjárhagsaðstoð frá Reykjavík. Einnig kemur skýrt fram að heimilt sé að gera kröfu um að umsækjandi um fjárhagsaðstoð sanni á sér deili með því að mæta á viðeigandi miðstöð Reykjavíkurborgar og sýni skilríki með mynd. Þá kemur skýrt fram að heimilt sé að stöðva greiðslu fjárhagsaðstoðar til framfærslu ef einstaklingur bregðist ekki við þeirri kröfu.

Óumdeilt er að kærandi var erlendis á tímabilinu 11. til 25. mars 2026 og mætti ekkert á Vesturmiðstöð í marsmánuði 2026 til að sanna á sér deili eins og Reykjavíkurborg hafði farið fram á. Að því virtu og með vísan til framangreinds er ákvörðun Reykjavíkurborgar um að synja kæranda um fjárhagsaðstoð fyrir tímabilið 1. til 31. mars 2026 því staðfest.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Reykjavíkurborgar, dags. 13. maí 2026, um að synja umsókn A, um fjárhagsaðstoð fyrir tímabilið 1. til 31. mars 2026, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir