Mál nr. 46/2026 - Úrskurður
KÆRUNEFND HÚSAMÁLA
ÚRSKURÐUR
uppkveðinn 15. október 2026
í máli nr. 46/2026
A
gegn
B
Kærunefndina skipa í þessu máli Auður Björg Jónsdóttir lögmaður, Þorvaldur Hauksson lögmaður og Eyþór Rafn Þórhallsson verkfræðingur.
Aðilar málsins eru:
Sóknaraðili: A.
Varnaraðili: B.
Krafa sóknaraðila er að viðurkennt verði að varnaraðila beri að greiða sér 124.000 kr. í skaðabætur vegna ástands hins leigða í lok leigutíma.
Varnaraðili krefst þess að kröfu sóknaraðila verði hafnað.
Eftirtalin gögn voru lögð fyrir kærunefnd:
Kæra sóknaraðila, dags. 3. maí 2026
Greinargerð varnaraðila, dags. 11. júní 2026
Athugasemdir sóknaraðila, dags. 22. júní 2026
Athugasemdir varnaraðila, dags. 9. júlí 2026
I. Helstu málsatvik og ágreiningsefni
Aðilar gerðu leigusamning um leigu varnaraðila á íbúð sóknaraðila að C. Ágreiningur er um skaðabótakröfu sóknaraðila á hendur varnaraðila vegna skemmda á hinu leigða.
II. Sjónarmið sóknaraðila
Sóknaraðili kveður leigusamning aðila hafa gilt til 31. mars 2026. Varnaraðili hafi sent honum mynd af lykli á eldhúsborði 19. mars og kvaðst vera fluttur út. Hann hafi skilað eigninni í óviðunandi ástandi. Blaut handklæði hafi verið á gólfi, skilin eftir við fyrsti sem hafði afþiðnað og engin tilraun gerð til að þrífa eða ganga frá, rusl hafi verið óflokkað og íbúðin almennt óhrein og óþrifin. Leggi hann fram vitnisburði þeirra sem að íbúðinni komu fyrir hans hönd og geri kröfu um 124.000 kr. skaðabætur úr hendi varnaraðila vegna þrifa á íbúð og frysti og flokkunar og förgunar á rusli. Miðað sé við að vinnan taki 15,5 klukkustundir og tímagjaldið sé 8.000 kr. í samræmi við almennt markaðsverð.
III. Sjónarmið varnaraðila
Varnaraðili kveðst hafa tekið fjölda mynda er hann rýmdi hina leigðu eign 19. mars 2026 og leggi þær fram í málinu. Staðfesti þær að ástand eignarinnar var í góðu lagi á afhendingardegi. Engar skemmdir hafi verið sjáanlegar né óþrif sem réttlætt geti kröfu sóknaraðila. Sóknaraðili hafi lagt fram mjög afmarkaðar myndir sem hafi sýnt einn kaffibolla og önnur smáatriði. Þá er því sérstaklega mótmælt að varnaraðili hafi afþýtt frysti eða komið nálægt því
IV. Athugasemdir sóknaraðila
Sóknaraðili rekur fyrri athugasemdir og kveður ekki að marka framlagðar myndir varnaraðila. Um rauntjón sé að ræða líkt og staðfest sé á myndum og með vitnisburðum.
IV. Athugasemdir varnaraðila.
Varnaraðili kveður myndir sem teknar hafi verið af eigninni sýna ástand hennar þó sóknaraðili mótmæli því. Þó varnaraðili hafi skilið eftir kaffibolla og gleymt að ganga frá rusli sé ekki hægt að gera kröfu á hendur honum um greiðslu 124.000 kr. Hann hafi verið maður samninga en sóknaraðili ekki sýnt slíkan vilja.
VI. Niðurstaða
Krafa sóknaraðila um skaðabætur vegna viðskilnaðar byggir á 63. gr. húsaleigulaga nr. 36/1994 þar sem kveðið er á um að leigjandi skuli skila húsnæðinu í hendur leigusala við lok leigutíma, í sama ástandi og hann tók við því auk þess sem hann beri óskerta bótaábyrgð á allri rýrnun húsnæðisins eða spjöllum á því að svo miklu leyti sem slíkt telst ekki eðlileg afleiðing venjulegrar eða umsaminnar notkunar húsnæðisins eða stafar af atvikum sem eru leigjanda óviðkomandi.
Aðilar gerðu hvorki sameiginlega úttekt við upphaf né lok leigutíma í samræmi við ákvæði 69. gr. húsaleigulaga, nr. 36/1994 og verður sóknaraðili að bera hallann af því. Þó fallast megi á með sóknaraðila að myndir staðfesti að einhverju leyti óþrif á eigninni liggja einnig fyrir myndir af hálfu varnaraðila sem sýna að eignin hafi verið í viðunandi ástandi við lok leigutíma. Gegn andmælum varnaraðila og vegna skorts á úttektarskýrslum telur kærunefnd ekki unnt að leggja til grundvallar að sannað sé að þrif hafi verið svo slæm að réttlætt geti skaðabótakröfu sóknaraðila.
Í 7. mgr. 85. gr. húsaleigulaga er kveðið á um að úrskurðir kærunefndar húsamála séu bindandi gagnvart málsaðilum og sæti ekki kæru til æðra stjórnvalds. Málsaðilum sé heimilt að bera úrskurði nefndarinnar undir dómstóla innan átta vikna frá því að úrskurður sé kveðinn upp og frestast þá réttaráhrif hans uns dómur fellur.
ÚRSKURÐARORÐ:
Kröfu sóknaraðila er hafnað.
Reykjavík, 15. október 2026
Auður Björg Jónsdóttir
Eyþór Rafn Þórhallsson Þorvaldur Hauksson