Nýr fastafulltrúi Íslands gagnvart alþjóðastofnunum í Vín tekur til starfa
Bryndís Kjartansdóttir nýr sendiherra Íslands í Austurríki gegnir einnig stöðu fastafulltrúa Íslands gagnvart þeim alþjóðastofnunum sem að sendiskrifstofan í Vín fer með fyrirsvar gagnvart. Hefur sendiherra nú afhent fulltrúabréf sín til framkvæmdastjóra Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu (OSCE), Feridun H. Sinirlioğlu, aðalframkvæmdastjóra Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar (IAEA), Rafael Mariano Grossi, aðalritara skrifstofu samningsins um allsherjarbann við tilraunum með kjarnavopn (CTBTO), dr. Robert Floyd og til aðalframkvæmdastjóra skrifstofu Sameinuðu þjóðanna í Vín (UNOV) og fíkniefna- og afbrotaskrifstofu SÞ (UNODC), Monicu Juma.
Átti sendiherra góða fundi með æðstu yfirmönnum stofnananna þar sem farið var yfir brýn mál hverrar stofnunnar og þær áskoranir sem að alþjóðakerfið sendur frammi fyrir. Kom þar einnig fram að Ísland væri fyrirmynd er kæmi að uppbyggilegri þátttöku í alþjóðasamstarfinu með áherslum sínum á mannréttindi, jafnrétti og samvinnu.