Samkeppni um merki í tilefni af 75 ára afmæli stjórnmálasambands Íslands og Þýskalands
Í tilefni af 75 ára afmæli stjórnmálasambands Íslands og Þýskalands árið 2027 efna sendiráð Íslands í Berlín og sendiráð Þýskalands í Reykjavík til samkeppni um hönnun afmælismerkis (e. commemorative logo) sem notað verður af báðum löndum fyrir kynningarefni og viðburði.
Hæfniskröfur
Keppnin er opin hönnunarnemum og grafískum hönnuðum á Íslandi og í Þýskalandi, með áherslu á nemendur í hönnunarnámi á háskólastigi.
Viðmið hönnunar
- Afmælismerkinu er ætlað að endurspegla 75 ára vináttu og samstarf milli Íslands og Þýskalands.
- Afmælismerki skal innihalda hönnunarþætti sem höfða til beggja ríkja.
- Tryggja þarf að merkið henti til formlegrar diplómatískrar notkunar (prentað og stafrænt).
Skilmálar
Höfundarréttur og vörumerkjaréttur mun tilheyra Íslandi og merkið verður aðgengilegt ráðuneytum og sendiráðum beggja landa til notkunar á opinberum vettvangi.
Um samkeppnina
- Umsóknarfestur er 15. nóvember.
- Skila skal inn tillögum í PDF-formi í stærð A4 ásamt stuttri lýsingu á tillögunni og hugmyndinni sem liggur henni að baki.
- Tillögur skulu sendar á [email protected] .
- Í t-póstinum þarf að koma fram nafn hönnuðar, upplýsingar um hönnuð og símanúmer og netfang.
Verðlaun
Tilkynnt verður um (einn) sigurvegara í janúar 2027.
Sigurvegari mun hljóta verðlaun frá sendiráði Íslands í Berlín og frá sendiráði Þýskalands í Reykjavík: 2,000 evrur eða 280,000 krónur.
Valnefnd
Valnefnd mun samanstanda af fulltrúm frá Íslandi og Þýskalandi.