22. október 2026
/
Utanríkisráðuneytið

Tímabókanir teknar í notkun fyrir Apostille-vottunarþjónustu

{image.Description}
Ljósmyndari: Hari

Frá 26. október 2026 verða tímabókanir teknar í notkun fyrir Apostille-vottunarþjónustu utanríkisráðuneytisins hjá Sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu.

Bóka þarf tíma í gegnum Noona á www.noona.is eða í Noona-appinu. Þjónustan er veitt í Hlíðasmára 1, Kópavogi, frá kl. 8:30 til 14:00.

Utanríkisráðuneytið í samstarfi við Ísland.is sér um að Apostille-votta skjöl fyrir einstaklinga og fyrirtæki sem þurfa staðfestingu áritunar (Apostille-vottun) á skjöl sem gefin eru út af íslensku stjórnvaldi.

Apostille er formleg staðfesting á lögmæti skjala sem nota á erlendis. Apostille-vottun felur í sér staðfestingu á að undirskrift og stimpill séu sannanlega útgefin eða vottuð af til þess bæru íslensku stjórnvaldi.

Sótt er um og greitt fyrir Apostille-vottun á https://island.is/apostille. Fyrirspurnum er svarað í tölvupósti á [email protected].