21. maí 2026
/
Dómsmálaráðuneytið

Úrskurður nr. 246/2026

Hinn 21. maí 2026 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 246/2026

í stjórnsýslumáli nr. KNU26010132

Kæra [...]

1. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 29. janúar 2026 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari Úganda (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 29. janúar 2026, um að hafna beiðni kæranda um skipun tiltekins talsmanns.

Af kæru má ráða að kærandi krefjist þess að ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja kæranda um skipun tiltekins talsmanns verði felld úr gildi og að staðfest verði að kostnaður af störfum talsmanns kæranda verði greiddur úr ríkissjóði.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

2. Málsmeðferð og málsatvik

Í samræmi við ákvæði 1. mgr. 30. gr. laga um útlendinga var viðtalsboðun send á skipaðan talsmann kæranda vegna málsmeðferðar hennar hjá Útlendingastofnun 27. janúar 2026 og í kjölfarið gefið út skipunarbréf 28. janúar 2026. Hinn 28. janúar 2026, eftir að kæranda var skipaður talsmaður, óskaði umboðsmaður kæranda eftir því hjá Útlendingastofnun að vera skipuð talsmaður vegna meðferðar umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd á Íslandi. Með tölvubréfi Útlendingastofnunar, dags. 29. janúar 2026, var beiðni um skipun nýs talsmanns synjað með vísan til 3. málsl. 4. mgr. 42. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, ásamt síðari breytingum, en samkvæmt ákvæðinu er útlendingi heimilt að kjósa sér annan talsmann en honum hafi verið skipaður og skal hann undir slíkum kringumstæðum sjálfur greiða kostnað vegna starfa hans. Útlendingastofnun vísaði jafnframt til úrskurðar kærunefndar nr. 367/2023 frá 6. júlí 2023 og synjaði því að kæranda yrði skipaður nýr talsmaður. Kærandi kærði ákvörðunina til kærunefndar útlendingamála 29. janúar 2026. Kærandi lagði ekki fram greinargerð hjá kærunefnd. Samkvæmt upplýsingum frá Útlendingastofnun sem bárust kærunefnd 5. maí 2026 hafi sá talsmaður sem kærandi óskaði eftir að sinnti máli hennar skilað inn umboði og kærandi verið upplýst um að kostnaður yrði ekki greiddur úr ríkissjóði.

3. Málsástæður og rök kæranda

Kærandi lagði ekki fram greinargerð hjá kærunefnd. Í tölvubréfi kæranda með kæru kemur m.a. fram að engin vinna hafi á þessum tímapunkti farið fram af hálfu skipaðs talsmanns, engar tafir hafi verið fyrirsjáanlegar eða aðrir hnökrar vegna yfirfærslu málsins til nýs talsmanns. Af þeim sökum hnígi engin rök til þess að synja um skipun talsmanns út frá þeim viðmiðum sem fram komi í úrskurði kærunefndar nr. 367/2023 frá 6. júlí 2023, sem Útlendingastofnun hafi vísað til í ákvörðun sinni.

4. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Kæruheimild samkvæmt 7. gr. laga um útlendinga

Líkt og áður hefur komið fram var kæranda skipaður talsmaður vegna umsóknar sinnar um alþjóðlega vernd vegna málsmeðferðar sinnar hjá Útlendingastofnun í samræmi við ákvæði 1. mgr. 30. gr. laga um útlendinga með skipunarbréfi, dags. 28. janúar 2026. Hinn sama dag óskaði kærandi eftir því hjá Útlendingastofnun að tiltekinn talsmaður yrði skipaður vegna efnismeðferðar umsóknar hennar um alþjóðlega vernd á Íslandi í stað þess sem Útlendingastofnun hafði skipað. Með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 29. janúar 2026, var beiðni kæranda um skipun talsmanns synjað, m.a. með vísan til þess að henni hafi nú þegar verið skipaður annar talsmaður.

Mál þetta er kært til kærunefndar á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga en þar kemur fram að ákvarðanir Útlendingastofnunar og lögreglunnar samkvæmt lögum um útlendinga sé heimilt að kæra til kærunefndar útlendingamála innan 15 daga frá því að útlendingi var tilkynnt um ákvörðunina.

Í ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 29. janúar 2026, var kæranda leiðbeint um kæruheimild sína til kærunefndar útlendingamála á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga. Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja því að skipa tiltekinn talsmann í máli kæranda lýtur að réttindum hennar og telst því stjórnvaldsákvörðun í skilningi 2. mgr. 1. gr. stjórnsýslulaga. Allar takmarkanir á kæruheimildum, sem meðal annars er ætlað að tryggja réttaröryggi borgaranna, verður að skýra þröngt, sbr. t.d. álit umboðsmanns Alþingis í máli nr. 577/1992. Er því um kæranlega stjórnvaldsákvörðun í skilningi 7. gr. laga um útlendinga að ræða. Verður hinni kærðu ákvörðun því ekki vísað frá.

Ákvörðun Útlendingastofnunar um synjun á skipun tiltekins talsmanns

Hinn 28. janúar 2026 fór umboðsmaður kæranda fram á það í tölvubréfi til Útlendingastofnunar að hún yrði skipaður talsmaður kæranda við meðferð máls kæranda hjá Útlendingastofnun. Með tölvubréfi Útlendingastofnunar til umboðsmannsins, dags. 29. janúar 2026, var beiðninni synjað og vísað til þess að kæranda hafi verið skipaður talsmaður deginum áður. Vísaði Útlendingastofnun til 3. málsl. 4. mgr. 42. gr. reglugerðar um útlendinga en samkvæmt ákvæðinu væri útlendingi heimilt að kjósa sér annan talsmann en honum hafi verið skipaður og skuli hann undir slíkum kringumstæðum sjálfur greiða kostnað vegna starfa hans. Kæranda hafði þegar verið skipaður talsmaður 28. janúar 2026. Útlendingastofnun vísaði jafnframt til úrskurðar kærunefndar nr. 367/2023 frá 6. júlí 2023 og synjaði því að kæranda yrði skipaður nýr talsmaður á kærustigi.

Fram kemur í ákvæði 1. mgr. 30. gr. laga um útlendinga að umsækjandi um alþjóðlega vernd eigi rétt á að Útlendingastofnun skipi honum talsmann við meðferð máls hans hjá stjórnvöldum. Sá réttur haldist við mögulega kærumeðferð. Talsmaðurinn skuli vera lögfræðingur með þekkingu á málum er lúta að alþjóðlegri vernd og flóttafólki. Þá er að finna almenna reglugerðarheimild í 6. mgr. 30. gr. laga um útlendinga þar sem fram kemur að ráðherra sé heimilt að setja í reglugerð nánari ákvæði um framkvæmd greinarinnar, þar á meðal um talsmenn og þjónustu túlka og þær kröfur sem gera skuli til þeirra sem og þóknun vegna hennar. Í 4. mgr. 42. gr. reglugerðar um útlendinga kemur fram að kostnaður vegna réttaraðstoðar við útlendinga skv. 1. og 2. mgr. greiðist úr ríkissjóði og aðeins sé greitt úr ríkissjóði fyrir þjónustu talsmanns þegar hann hafi verið skipaður. Kjósi útlendingur að velja sér annan talsmann en honum er skipaður skuli hann sjálfur greiða kostnað vegna starfa hans.

Í samræmi við 1. mgr. 30. gr. laga um útlendinga og 4. mgr. 42. gr. reglugerðar um útlendinga heldur Útlendingastofnun utan um skráningu lögfræðinga sem óska eftir því við stofnunina að vera skráðir á lista stofnunarinnar yfir talsmenn. Samkvæmt upplýsingum á heimasíðu Útlendingastofnunar skal, í umsókn um skráningu á umræddan lista, sýna fram á að viðkomandi uppfylli framangreind hæfisskilyrði 1. mgr. 30. gr. laga um útlendinga til að sinna hlutverki talsmanns. Uppfylli lögfræðingur hæfisskilyrði fari nafn hans á lista með skráðum talsmönnum. Ferlið við skipun talsmanns sé þannig að stofnunin hafi samband við lögfræðing og boði hann til viðtals. Þegar hann samþykki viðtalsboð sé honum sent skipunarbréf til undirritunar og hefjist skipunartími talsmanns þar með. Skipun talsmanns ljúki svo við endanlega niðurstöðu stjórnvalds, með ákvörðun Útlendingastofnunar eða eftir atvikum úrskurði kærunefndar útlendingamála. Kveði úrskurður á um að mál skuli sent til efnismeðferðar hjá Útlendingastofnun fari fram ný skipun talsmanns í samræmi við 30. gr. laga um útlendinga.

Lög um útlendinga og reglugerð um útlendinga kveða ekki skýrt á um hvernig haga skuli skipun talsmanna í málum umsækjenda um alþjóðlega vernd. Í athugasemdum með 30. gr. í frumvarpi því sem varð að lögum um útlendinga kemur fram að tilgangur ákvæðisins sé að tryggja rétt umsækjanda og að sjónarmið hans komist á framfæri á öllum stigum málsins en jafnframt að málsmeðferð sé skilvirk. Talsmaður er sá sem talar máli umsækjanda um alþjóðlega vernd hér á landi og annast hagsmunagæslu fyrir hann við meðferð máls gagnvart íslenskum stjórnvöldum meðan mál hans er til meðferðar hjá Útlendingastofnun og kærunefnd útlendingamála. Draga má þá ályktun að markmið löggjafarinnar sé að talsmaður sé fulltrúi umsækjanda um alþjóðlega vernd og eigi að veita honum liðsinni, sbr. jafnframt 2. mgr. 42. gr. reglugerðar um útlendinga. Það er í samræmi við markmið og tilgang laga um útlendinga að umsækjanda sé gefinn kostur á að óska eftir tilteknum talsmanni við upphaf málsmeðferðar áður en honum er skipaður talsmaður og að við skipun skuli að jafnaði virða ósk umsækjanda, sé það mögulegt og í samræmi við hagsmuni hans, svo fremi sem talsmaður uppfyllir skilyrði 30. gr. laga um útlendinga.

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd hér á landi 17. október 2025 og hafði frá þeim tíma tækifæri til að óska eftir skipun tiltekins talsmanns. Líkt og þegar hefur verið rakið lagði kærandi ekki fram beiðni til Útlendingastofnunar um að tiltekinn talsmaður yrði skipaður í máli hennar fyrr en 28. janúar 2026 þegar talsmaður hafði þegar verið skipaður. Þegar málsmeðferð umsækjanda er hafin og talsmaður hefur verið skipaður í samræmi við 30. gr. laga um útlendinga, leiðir skýrt orðalag 4. mgr. 42. gr. reglugerðar um útlendinga til þess að umsækjandi sem velur sér annan talsmann geri það á eigin kostnað.

Með vísan til framangreinds verður talið að kærandi eigi aðeins þess kost að velja sér annan talsmann samkvæmt 4. mgr. 42. gr. reglugerðar um útlendinga, á eigin kostnað. Við þetta mat hefur verið litið til þess að ekkert hefur komið fram í málinu sem bendir til annars en að talsmaðurinn, sem kæranda var skipaður, muni sinna störfum sínum í samræmi við skyldur sínar. Að framangreindu virtu er kröfu kæranda um að ákvörðun Útlendingastofnunar verði ógilt synjað.

Í ljósi framangreinds er ákvörðun Útlendingastofnunar staðfest.

Úrskurðarorð:

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

Þorsteinn Gunnarsson

Jóna Aðalheiður Pálmadóttir