Úrskurður nr. 285/2026
Hinn 22. júní 2026 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 285/2026
í stjórnsýslumáli nr. KNU25120028
Kæra [...]
I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn 4. desember 2025 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari Víetnam (hér eftir kærandi), drátt á afgreiðslu umsóknar sinnar um dvalarleyfi hjá Útlendingastofnun.
Fyrrgreind kæra er lögð fram á grundvelli 9. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.
II. Málsástæður og rök kæranda
Kærandi byggir á því að afgreiðsla máls hennar hafi dregist óhæfilega. Kærandi hafi lagt fram umsókn um dvalarleyfi fyrir maka Íslendings 22. júlí 2024 en liðnir séu rúmlega 16 mánuðir frá því að umsóknin hafi verið lögð fram án þess að ákvörðun hafi verið tekin í málinu. Þá hafi kærandi lagt fram viðbótargögn að fullu samkvæmt beiðni Útlendingastofnunar 26. júní 2025. Útlendingastofnun hafi ekki svarað erindi kæranda frá 6. nóvember 2025 um stöðu málsins. Kærandi vísar til þess að afgreiðsla málsins hafi hvorki krafist umfangsmikillar gagnaöflunar né umsagna annarra stjórnvalda. Meta þurfi svigrúm stofnunarinnar til að leggja mat á innkomin gögn, þ.m.t. lögskilnaðargögn gefin út af sýslumanni. Ekki verði séð að málið krefjist þess að lagt sé mat á því hvort kærandi uppfylli skilyrði laga um útlendinga að verulegu leyti. Af þessu megi ráða að tafir á meðferð umsóknarinnar hafi ekki verið í samræmi við 9. gr. stjórnsýslulaga, sbr. lagaframkvæmd kærunefndar útlendingamála, einkum úrskurð nr. 774/2025. Þá vísar kærandi til þess að almennt verði að gera strangari kröfur til málshraða þegar stjórnsýslumál varði mikilvæga hagsmuni aðila, s.s. rétt til friðhelgi einkalífs, heimilis og fjölskyldu samkvæmt 71. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944. Mikilvægt sé að Útlendingastofnun taki ákvörðun í málinu svo fljótt sem unnt sé.
III. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála
Eins og að framan greinir hefur kærandi til meðferðar umsókn um dvalarleyfi hjá Útlendingastofnun en slíkar ákvarðanir eru kæranlegar til kærunefndar útlendingamála, sbr. 7. gr. laga um útlendinga. Kæran grundvallast á 4. mgr. 9. gr. stjórnsýslulaga þar sem fram kemur að dragist afgreiðsla máls óhóflega sé heimilt að kæra það til þess stjórnvalds sem ákvörðun í málinu verður kærð til. Í 3. mgr. 9. gr. stjórnsýslulaga kemur fram að þegar fyrirsjáanlegt sé að afgreiðsla máls muni tefjast beri að skýra aðila máls frá því. Skuli þá upplýsa um ástæður tafanna og hvenær ákvörðunar sé að vænta.
Í lögum um útlendinga og reglugerð um útlendinga nr. 540/2017 er ekki kveðið á um lögbundinn frest fyrir Útlendingastofnun til þess að afgreiða umsóknir um dvalarleyfi. Um málshraða við meðferð umsókna um dvalarleyfi gildir því almenn málshraðaregla stjórnsýsluréttar, sbr. 1. mgr. 9. gr. stjórnsýslulaga, en þar segir að ákvarðanir í málum skuli teknar svo fljótt sem unnt er. Í reglunni felst m.a. að stjórnvald megi ekki draga afgreiðslu máls nema slíkt sé nauðsynlegt eða réttlætanlegt. Við mat á því hvort tafir séu nauðsynlegar eða réttlætanlegar hefur m.a. verið litið til þess að þótt mönnun og álag á stjórnvöldum kunni að koma til skoðunar þegar metið er hvað sé eðlilegur afgreiðslutími verði að gera þá kröfu að stjórnvöld skipuleggi meðferð mála með þeim hætti að ekki verði óhæfilegur dráttur á meðferð þeirra.
Samkvæmt gögnum og upplýsingum í málinu lagði kærandi fram umsókn um dvalarleyfi 23. júlí 2024. Hinn 13. febrúar 2025 óskaði kærandi eftir upplýsingum um stöðu málsins. Hinn 28. mars 2025 óskaði Útlendingastofnun eftir frekari gögnum frá kæranda. Kærandi óskaði eftir fresti til gagnaframlagningar 5. maí 2025 og lagði fram viðbótargögn í málinu 9. maí 2025. Málið hafi verið tekið fyrir á fundi Útlendingastofnunar 30. maí 2025 og í kjölfarið verið sent til lögfræðiteymis til vinnslu. Maki kæranda hafi sent Útlendingastofnun tölvubréf 8. ágúst 2025 með gögnum um lögskilnað sinn og fyrrum maka. Þá hafi kærandi óskað eftir upplýsingum um stöðu máls síns með tölvubréfi 4. september 2025. Kærandi hafi þá fengið þau svör að málið væri hjá lögfræðiteymi stofnunarinnar og að það geti tekið sex til átta mánuði að fá niðurstöðu. Kærandi hafi aftur óskað eftir upplýsingum um stöðu málsins 11. nóvember 2025. Samkvæmt málsferilsyfirliti Útlendingastofnunar var málið sent til meðferðar hjá lögfræðiteymi leyfasviðs en hvorki hefur verið tekin ákvörðun um umsóknina né óskað frekari skýringa eða gagna til þess að varpa betra ljósi á málið. Hefur umsóknin nú legið óhreyfð hjá stofnuninni í um 10 mánuði. Samkvæmt upplýsingum á vefsíðu stofnunarinnar liggur fyrir að teknar hafa verið til vinnslu umsóknir um önnur dvalarleyfi, þ.m.t. dvalarleyfi vegna sérstakra tengsla, frá því í september 2025.
Umsóknir um dvalarleyfi á grundvelli hjúskapar, sbr. 70. gr. laga um útlendinga, geta krafist nokkurrar gagnaöflunar. Með tölvubréfi kærunefndar, dags. 3. júní 2026, var óskað eftir skýringum frá Útlendingastofnun á töfum málsins og hvenær mætti vænta niðurstöðu. Með tölvubréfi stofnunarinnar til kærunefndar, dags. 16. júní 2026, er hluti framangreindrar málsmeðferðar rakinn en stofnunin færði ekki fram frekari skýringar á töfum í málinu eða hvenær niðurstöðu í málinu væri að vænta.
Líkt og að framan greinir sendi maki kæranda inn gögn um lögskilnað sinn og fyrrum maka 8. ágúst 2025. Játa verður stjórnvöldum svigrúm til þess að leggja mat á innkomin gögn vegna stjórnsýslumála, einkum ef í þeim felast matskenndar upplýsingar. Ljóst er að dvalarleyfi á grundvelli 70. gr. laga um útlendinga er háð mati stjórnvalda að töluverðu leyti. Þrátt fyrir framangreint er ljóst að tíminn sem leið frá gagnaframlagningu kæranda 8. ágúst 2025 jafnast á við vinnslu umsóknar frá grunni, að teknu tilliti til upplýsinga á vefsíðu stofnunarinnar. Hefur meðferð málsins því farið úr hófi og er því beint til Útlendingastofnunar að taka ákvörðun í málinu svo fljótt sem unnt er.
Samkvæmt framansögðu eru þær tafir sem orðið hafa á meðferð Útlendingastofnunar á umsókn kæranda, dags. 23. júlí 2024, ekki í samræmi við 9. gr. stjórnsýslulaga.
Úrskurðarorð:
Málsmeðferð Útlendingastofnunar í máli kæranda er ekki í samræmi við 9. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka ákvörðun í málinu svo fljótt sem unnt er.
The Directorate of Immigration‘s processing of the case is not in accordance with Article 9 of the Administrative Procedures Act no. 37/1993. The Directorate of Immigration is instructed to issue a decision as soon as possible.
Þorsteinn Gunnarsson
Vera Dögg Guðmundsdóttir