13. ágúst 2026
/
Dómsmálaráðuneytið

Úrskurður nr. 347/2026

Hinn 13. ágúst 2026 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 347/2026

í stjórnsýslumáli nr. KNU26010034

Kæra [...]

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 12. janúar 2026 kærði einstaklingur að nafni [...], fd. [...], ríkisborgari Albaníu (hér eftir kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 9. janúar 2026, um brottvísun og endurkomubann til Íslands í þrjú ár.

Kærandi krefst þess aðallega að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi. Til vara krefst kærandi þess að ákvörðun um endurkomubann verði felld úr gildi. Til þrautavara krefst kærandi þess að endurkomubanni verði markaður skemmri tími.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

Lagagrundvöllur

Í máli þessu koma einkum til skoðunar ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016 ásamt síðari breytingum, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017 ásamt síðari breytingum, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, ákvæði laga um landamæri nr. 136/2022, reglugerð um för yfir landamæri nr. 866/2017, ásamt síðari breytingum, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, auk annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

II. Málsatvik og málsmeðferð

Í skýrslu lögreglu, dags. 1. nóvember 2025, kemur fram að lögregla hafi stöðvað bifreið sem kærandi hafi ekið. Kærandi kvaðst ekki hafa vegabréf meðferðis en framvísaði albönsku ökuskírteini. Aðili sem var með kæranda hafi greint frá því að hann teldi eiganda bifreiðarinnar vera nafngreinda vinkonu sína. Lögregla hafi fundið þrjá smelluláspoka sem virtust innihalda kannabisefni í bifreiðinni. Kærandi hafi gefið munnvatnssýni sem hafi sýnt jákvæða svörun fyrir kókaíni. Kærandi hafi verið handtekinn ásamt farþega bifreiðarinnar og honum kynnt að hann væri grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna, brot á lögum um útlendinga og fíkniefnamisferli. Kæranda hafi verið kynnt réttarstaða sakbornings og rétt til verjanda. Kærandi kvaðst ekki kannast við meint fíkniefni og kvaðst ekki hafa neytt kókaíns. Samkvæmt upplýsingakerfi lögreglu hafi lögregla síðast haft afskipti af kæranda árið 2022 þegar hann hafi tvisvar verið handtekinn grunaður um sölu og dreifingu fíkniefna. Við skýrslutöku lögreglu kvaðst kærandi ekki vera eigandi bifreiðarinnar, ekki hafa verið undir áhrifum áfengis eða fíkniefna og ekki hafa haft vitneskju um hvað hafi verið í bifreiðinni. Kærandi kvaðst ekki þekkja skráðan eiganda bifreiðarinnar og að hann hafi ekki haft bifreiðina á leigu. Kærandi kvaðst vera ferðamaður og hafa komið til landsins með um 1.500 evrur auk þess að eiga bankareikning og hafa bankakort. Kærandi kvaðst hafa komið hingað til lands með millilendingu í Madrid á Spáni en hafi þó ekki getað tilgreint nákvæman komudag. Þá hafi lögregla farið í húsleit í öðru ótengdu máli og haldlagt gögn en þar á meðal hafi fundist vegabréf kæranda og liggur það fyrir í málinu.

Kæranda var fyrst birt tilkynning um hugsanlega brottvísun 1. nóvember 2025 á grundvelli 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga og lagði kærandi fram andmæli til lögreglu 4. nóvember 2025 ásamt afriti af vegabréfi. Kæranda var birt ný tilkynning um hugsanlega brottvísun 12. nóvember 2025. Í samræmi við 12. gr. laga um útlendinga og 13. gr. stjórnsýslulaga var kæranda veittur þriggja daga frestur til að leggja fram andmæli. Kærandi lagði fram greinargerð ásamt andmælum 14. nóvember 2025. Með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 9. janúar 2026, var kæranda brottvísað og ákveðið endurkomubann til Íslands og Schengen-svæðisins í þrjú ár, sbr. b-lið 1. mgr. 98. gr. og 2. mgr. 101. gr. laga um útlendinga. Með ákvörðuninni var frestur kæranda til sjálfviljugrar heimfarar felldur niður með vísan til e-liðar 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga.

Ákvörðunin var birt fyrir kæranda 9. janúar 2026 og kærð til kærunefndar útlendingamála 12. janúar 2026. Hinn 19. janúar 2026 barst greinargerð kæranda ásamt fylgigögnum. Samhliða stjórnsýslukæru óskaði kærandi eftir frestun réttaráhrifa hinnar kærðu ákvörðunar á meðan málið væri til meðferðar hjá kærunefnd, sbr. 2. mgr. 29. gr. stjórnsýslulaga. Með bréfi kærunefndar, dags. 10. febrúar 2026, var beiðni kæranda um frestun réttaráhrifa hafnað. Kæranda var fylgt til heimaríkis með heimferða- og fylgdadeild Ríkislögreglustjóra 18. febrúar 2026.

III. Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda eru málsatvik rakin í samræmi við framangreinda yfirferð. Kærandi vísar til þess að í hinni kærðu ákvörðun hafi verið lagt til grundvallar að hann hafi brotið alvarlega og margsinnis gegn lögum um útlendinga. Sú niðurstaða hafi verið byggð á því að hann hafi ekki framvísað skilríkjum við umferðareftirlit lögreglu, reynt að villa um fyrir lögreglu og veitt ótrúverðugan framburð um tilgang ferðalaga sinna. Jafnframt hafi því verið haldið fram að félagsskapur hans við dæmda sakamenn og fyrri afskipti lögreglu af honum hafi bent til þess að hann væri viðriðinn fíkniefnasölu. Kærandi hafi ekki gerst sekur um refsiverða háttsemi með dómi eða viðurlagaákvörðun.

Kærandi telji lagaskilyrði fyrir brottvísun á grundvelli b-liðar 1. mgr. 98. gr. laga um útlendinga ekki vera fyrir hendi og að málsmeðferðin sé verulegum annmörkum háð. Kærandi hafi framvísað ökuskírteini þegar lögreglan hafi haft afskipti af honum og þó hann hafi ekki verið með vegabréf meðferðis hafi afrit af vegabréfi hans með öllum stimplum verið sent lögreglu þremur dögum síðar auk ljósmyndar af vegabréfi hans. Geti það tæplega talist brot í skilningi laga um útlendinga. . Kærandi byggir á því að túlka skuli ákvæðið með þrengjandi lögskýringu á þann veg að orðalagið „hefur brotið alvarlega eða margsinnis gegn“ verði skilið á þann veg að refsiverð háttsemi hafi verið sönnuð. Sú túlkun sé í samræmi við 2. mgr. 6. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994 og 2. mgr. 70. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944. Kærandi vísar jafnframt til álits Umboðsmanns Alþingis nr. 3786/2003 og dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Lindelöf gegn Svíþjóð, í þessu samhengi.

Útlendingastofnun hafi einnig byggt á því að kærandi hafi reynt að villa um fyrir lögreglu hvað varði auðkenni sitt og lagt til grundvallar að framburður hans um tilgang ferðalaga til Íslands væri ótrúverðugur. Kærandi vísar til þess að um sé að ræða alvarlegar ásakanir sem hvorki séu studdar gögnum né heimfærðar undir tiltekið atvik. Útlendingastofnun hafi borið að rannsaka þessar staðhæfingar og afla gagna þeim til stuðnings eða gera grein fyrir þeim gögnum sem þær hafi verið reistar á, sbr. 10. gr. stjórnsýslulaga. Kærandi hafi ekki reynt að villa um fyrir lögreglu hvað varði auðkenni sitt en hann hafi framvísað ökuskírteini og vegabréfi. Kærandi telji staðhæfinguna vera óljósa og órökstudda sem geri honum ókleift að haga málsvörn í kærumáli með markvissum hætti. Kærandi vísar í því samhengi til úrskurðar kærunefndar nr. 503/2024.

Þá gerir kærandi athugasemd við að byggt hafi verið á fyrri afskiptum lögreglu af honum frá árinu 2022. Slíkt brjóti gegn grundvallarreglu réttarríkisins, þ. á m. sakleysisreglunni. Grunsemdir lögreglu eða mál sem felld hafi verið niður geti ekki jafngilt sönnuðu broti í skilningi ákvæðisins. Þá sé brotið gegn meginreglunni um réttmætar væntingar. Grunur lögreglu um að kærandi sé viðriðinn sölu og dreifingu fíkniefna sé byggður á meintum tengslum hans við aðra einstaklinga. Um sé að ræða ályktun en ekki fullyrðingu sem fái stoð í sönnunargögnum. Kærandi telji framangreint ekki uppfylla skilyrði 10. gr. stjórnsýslulaga. Þá telur kærandi ómálefnalegt að byggja á því að hann hafi reynt að komast undan lögreglu og verið ósamvinnuþýður. Hvergi sé talað um slíka háttsemi í tengslum við b-lið 1. mgr. 98. gr. laga um útlendinga. Stofnunin reisi því íþyngjandi ákvörðun á forsendum sem ekki fái samrýmst því ákvæði sem það beiti, þ.e. b-lið 1. mgr. 98. gr. laga um útlendinga.

Kærandi telji jafnframt að Útlendingastofnun hafi brotið gegn andmælarétti hans, sbr. 13. gr. stjórnsýslulaga. Tilkynning stofnunarinnar frá 12. nóvember 2025 hafi einungis vísað til b-liðar 1. mgr. 98. gr. laga um útlendinga án þess að tilgreina málsástæður en kærandi hafi af þeim sökum ekki getað nýtt rétt sinn til andmæla.

Kærandi telji ákvörðunina þá brjóta gegn meðalhófsreglu 3. mgr. 102. gr. laga um útlendinga. Kærandi telji hina kærðu ákvörðun brjóta gegn reglunni um góða og vandaða stjórnsýsluhætti og reglunni um réttmætar væntingar. Kærandi hafi komið löglega hingað til lands og sýnt fram á með óyggjandi gögnum að dvöl hans væri innan þeirra tímamarka sem lög leyfi. Þegar Útlendingastofnun hafi fallið frá upphaflegum grundvelli fyrirhugaðrar brottvísunar hafi skapast réttmætar væntingar hjá kæranda um að honum yrði ekki brottvísað.

Kærandi byggir á því til vara að ákvörðun um að fella niður frest til sjálfviljugrar heimfarar sé ólögmæt. Kærandi telji að ákvæði e-liðar 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga hafi verið beitt með röngum hætti í málinu en ekki hafi verið heimilt að fella niður frest og ákvörðunin byggi á ólögmætum grunni. Kærandi telji sig hafa orðið fyrir mismunun á grundvelli þjóðernis við töku hinnar kærðu ákvörðunar, sbr. 65. gr. stjórnarskrárinnar, 11. gr. stjórnsýslulaga og 14. gr. mannréttindasáttmálans. Ákvörðun Útlendingastofnunar sé því háð form- og efnisannmörkum og því beri að ógilda hana. Útlendingastofnun hafi ekki sýnt fram á nauðsyn þess að beita svo íþyngjandi úrræði og því sé um óhóflega ráðstöfun að ræða.

Kærandi krefst þess til þrautavara að endurkomubanni verði markaður skemmri tími, sbr. 2. mgr. 101. gr. laga um útlendinga. Ákvörðunin sé úr hófi miðað við málsatvik í heild enda séu meint brot kæranda ósönnuð, sbr. 12. gr. stjórnsýslulaga.

IV. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Í 1. mgr. 49. gr. laga um útlendinga kemur fram að útlendingi sem þarf vegabréfsáritun til landgöngu er ekki heimilt að dveljast hér á landi lengur en áritunin segir til um nema sérstakt leyfi komi til. Öðrum útlendingum er óheimilt án sérstaks leyfis að dveljast hér lengur en 90 daga frá komu til landsins. Dvöl í öðru ríki, sem tekur þátt í Schengen-samstarfinu, telst jafngilda dvöl hér á landi. Samkvæmt 1. mgr. 50. gr. laga um útlendinga þarf útlendingur sem hyggst dveljast hér á landi lengur en honum er heimilt skv. 49. gr. að hafa dvalarleyfi.

Samkvæmt b-lið 1. mgr. 98. gr. er heimilt að vísa útlendingi úr landi sem er án dvalarleyfis ef hann hefur brotið alvarlega eða margsinnis gegn einu eða fleiri ákvæðum laganna, hefur af ásetningi eða stórkostlegu gáleysi gefið efnislega rangar eða augljóslega villandi upplýsingar í máli samkvæmt lögunum eða kemur sér hjá því að hlíta ákvörðun sem felur í sér að hann skuli yfirgefa landið. Í athugasemdum við ákvæðið í frumvarpi til laga um útlendinga kemur fram að í b-lið felist heimild til að vísa útlendingi brott ef hann hefur brotið alvarlega eða margsinnis gegn einu eða fleiri ákvæðum laganna. Hér undir myndu sem fyrr geta fallið fleiri en eitt brot gegn lögunum sem hvert fyrir sig teldist ekki alvarlegt. Í öðru lagi sé heimilt að vísa útlendingi brott sem af ásetningi eða stórkostlegu gáleysi hafi gefið efnislega rangar eða augljóslega villandi upplýsingar í máli samkvæmt lögunum. Þessi heimild sé nýmæli en sambærilegt ákvæði sé í norsku útlendingalögunum og sé það ákvæði haft sem fyrirmynd. Þyki rétt að lögfesta heimild til að bregðast við því þegar útlendingur hafi veitt rangar eða villandi upplýsingar í máli samkvæmt lögunum. Slík upplýsingagjöf sé jafnframt refsiverð skv. b-lið 1. mgr. 116. gr. laganna.

Í málinu reynir einkum á hvort kærandi hafi brotið alvarlega eða margsinnis gegn lögum um útlendinga og hvort að hann hafi af ásetningi eða stórkostlegu gáleysi gefið efnislega rangar eða augljóslega villandi upplýsingar í máli samkvæmt lögum um útlendinga. Samkvæmt gögnum málsins var kærandi stöðvaður af lögreglu en lögregla hafi fundið þrjá smelluláspoka sem virtust innihalda kannabisefni í bifreiðinni. Tekið hafi verið munnvatnssýni af kærandi sem hafi sýnt jákvæða svörun fyrir kókaíni. Kærandi hafi verið handtekinn og honum kynnt að hann væri grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna, brot á lögum um útlendinga og fíkniefnamisferli. Kærandi kvaðst ekki hafa vegabréf meðferðis en framvísaði albönsku ökuskírteini. Kærandi kvaðst vera kominn hingað til lands sem ferðamaður og neitaði sölu og vörslu fíkniefna.

Samkvæmt gögnum málsins hafi kærandi ekki framvísað vegabréfi þegar hann var stöðvaður af lögreglu framvísað albönsku ökuskírteini og síðar sent lögreglu afrit af vegbréfi sínu og öllum síðum þess sem hafi haft að geyma stimpla. Þá hafi lögregla farið í húsleit í öðru ótengdu máli og haldlagt gögn en þar á meðal hafi fundist vegabréf kæranda og liggur frumrit þess því fyrir í málinu. Kæranda er skylt að sýna lögreglu skilríki og veita upplýsingar svo ljóst sé hver hann er og hvort dvöl hans í landinu sé lögmæt samkvæmt 14. gr. laga um útlendinga. Í athugasemdum við 14 gr. sem fylgdu frumvarpi því er varð að lögum um útlendinga kemur fram að skilríki sem áskilin séu geti verið vegabréf eða annað kennivottorð sem er viðurkennt sem ferðaskilríki, sbr. 19. gr. laganna, en annars konar skilríki myndu og geta verið fullnægjandi, t.d. ökuskírteini, nafnskírteini með mynd og greiðslukort með mynd.

Kærandi er ríkisborgari Albaníu og þarf því ekki vegabréfsáritun til landgöngu, sé hann handhafi vegabréfs með lífkennum. Kæranda er heimilt að dvelja hér á landi í 90 daga frá komu til landsins. Að virtum ákvæðum laga um útlendinga er ljóst að kærandi ber ábyrgð á lögmæti eigin dvalar og ber honum að geta sýnt fram á lögmæti hennar, sbr. 14. gr. laga um útlendinga. Samkvæmt 13. gr. reglugerðar um för yfir landamæri nr. 866/2017 skal miða við dagsetningu er fram kemur á komustimpli í ferðaskilríkjum við mat á lengd dvalar útlendings, sem hvorki er EES- eða EFTA-borgari, á Schengen-svæðinu. Nú hafa ferðaskilríki hans ekki að geyma komustimpil og skal þá miðað við að handhafi þeirra hafi ekki gætt skilyrða um lengd dvalar og er heimilt að vísa honum brott í samræmi við ákvæði laga um útlendinga og reglugerðar um útlendinga. Ákvæði 1. mgr. gildir þó ekki ef útlendingur leggur fram gögn sem með trúverðugum hætti sýna fram á að hann hafi virt skilyrði um lengd dvalar. Samkvæmt stimplum í vegabréfi kæranda má sjá að á síðasta 180 daga tímabili hafi kærandi dvalið frá 9. til 11. ágúst 2025 í Grikklandi og 14. ágúst 2025 til 16. september 2025 á Spáni. Hinn 7. október 2025 hafi kærandi komið inn á Schengen-svæðið á Spáni að nýju. Kærandi var handtekinn af lögreglu 1. nóvember 2025 á Íslandi. Hafði hann því dvalið 63 daga af 90 á Schengen-svæðinu þegar hann var handtekinn og því í lögmætri dvöl á þeim tíma.

Málatilbúnaður kæranda byggist á því að lagaskilyrði fyrir brottvísun á grundvelli b-liðar 1. mgr. 98. gr. laga um útlendinga séu ekki fyrir hendi og að málsmeðferð Útlendingastofnunar sé verulegum annmörkum háð. Kærandi hafi framvísað ökuskírteini þegar lögreglan hafi haft afskipti af honum en þrátt fyrir að hann hafi ekki verið með vegabréf meðferðis hafi afrit af vegabréfi hans með öllum stimplum verið sent lögreglu þremur dögum síðar. Kærandi vísar til þess að þrátt fyrir að hann hafi ekki haft vegabréf meðferðis við umferðareftirlit hafi hann framvísað öðrum persónuskilríkjum og útvegað afrit af vegabréfi skömmu síðar og geti það ekki talist brot í skilningi laga um útlendinga.

Með hliðsjón af afskiptum lögreglu af kæranda var það mat hennar að ekki væri hafið yfir allan vafa með framvísan afriti vegabréfs og stimplum úr því að kærandi dveldi hér á landi í lögmætri dvöl. Útlendingastofnun lagði til grundvallar að kærandi hefði ekki afhent lögreglu vegabréf sitt í tengslum við rannsókn málsins og með framferði sínu brotið alvarlega og margsinnis gegn ákvæðum laga um útlendinga, bæði með að framvísa ekki skilríkjum við rannsókn málsins hjá lögreglu og fyrir að reyna að villa um fyrir lögreglu hvað varðar auðkenni hans. Var það mat stofnunarinnar, með hliðsjón af gögnum lögreglu, að ekki yrði framhjá því litið að við komu kæranda hingað til lands árið 2022 og nú hafi hann leitast við að vera í félagsskap með dæmdum sakamönnum sem stundi sölu- og dreifingu fíkniefna hér á landi. Þá hafi framburður hans um tilgang ferðalaga til Íslands í það minnsta verið ótrúverðugur. Í hinni kærðu ákvörðun eru ekki færð frekari rök fyrir því hvernig háttsemi kæranda sé heimfærð undir ákvæði laga um útlendinga. Þá er ekki rökstutt með hvaða móti kærandi hafi gefið efnislega rangar eða augljóslega villandi upplýsingar í málinu samkvæmt lögum um útlendinga. Að framangreindu virtu var það niðurstaða Útlendingastofnunar að brottvísa kæranda á grundvelli b-liðar 1. mgr. 98. gr. laga um útlendinga.

Líkt og að framan greinir fannst vegabréf kæranda við húsleit í ótengdu máli. Við skoðun þess koma upplýsingasíða og stimplar í vegabréfinu heim og saman við þær upplýsingar sem kærandi sendi lögreglu. Er því staðfest að kærandi hafi verið hér á landi í lögmætri dvöl þegar lögregla handtók hann 1. nóvember 2025. Enn fremur er ljóst að kærandi framvísaði ökuskírteini þegar lögregla stöðvaði bifreið kæranda og upplýsti því um auðkenni sitt líkt og fyrir hann var lagt. Þrátt fyrir að fallast megi á það með lögreglu að með því að framvísa ekki frumriti vegabréfs síns við lögreglu hafi hann að einhverju leyti verið ósamvinnuþýður við vinnslu málsins þá er ljóst af gögnum málsins að kærandi hafi ekki gefið efnislega rangar eða augljóslega villandi upplýsingar í máli samkvæmt lögunum, sbr. b-lið 1. mgr. 98. gr. laga um útlendinga. Af þeim sökum er ekki heimilt að brottvísa kæranda frá landinu á grundvelli b-liðar 1. mgr. 98. gr. laga um útlendinga.

Að framangreindu virtu er ákvörðun Útlendingastofnunar um brottvísun og endurkomubann kæranda á grundvelli b-liðar 1. mgr. 98. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. mgr. 101. gr. laganna, felld úr gildi.

Í ljósi framangreindrar niðurstöðu er ekki ástæða til að fjalla um málsástæður kæranda.

Úrskurðarorð:

Ákvörðun Útlendingastofnunar er felld úr gildi.

The decision of the Directorate of Immigration regarding the appellant‘s expulsion is vacated.

Jóna Aðalheiður Pálmadóttir

Vera Dögg Guðmundsdóttir