- september 2026 /
Mál nr. 326/2026-Úrskurður
Úrskurðarnefnd velferðarmála
Mál nr. 326/2026
Miðvikudaginn 2. september 2026
A gegn Sjúkratryggingum Íslands
Ú R S K U R Ð U R
Mál þetta úrskurða Kári Gunndórsson lögfræðingur, Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur og Kristinn Tómasson læknir.
Með kæru, sem barst 7. maí 2026, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Sjúkratrygginga Íslands frá 21. apríl 2026 um bætur til kæranda úr sjúklingatryggingu.
I. Málsatvik og málsmeðferð
Kærandi sótti um bætur úr sjúklingatryggingu með umsókn sem barst Sjúkratryggingum Íslands 11. desember 2025 vegna afleiðinga meðferðar sem fór fram á Landspítala þann X. Sjúkratryggingar Íslands synjuðu kæranda um bætur með ákvörðun, dags. 21. apríl 2026, á þeim grundvelli að krafa um bætur úr sjúklingatryggingu væri fyrnd samkvæmt 1. mgr. 19. gr. laga nr. 111/2000 um sjúklingatryggingu.
Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 7. maí 2026. Með bréfi, dags. 8. maí 2026, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Sjúkratrygginga Íslands ásamt gögnum málsins. Greinargerð Sjúkratrygginga Íslands barst með bréfi, dags. 13. maí 2026. Með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 18. maí 2026, var greinargerð Sjúkratrygginga Íslands send kæranda til kynningar. Engar athugasemdir bárust.
II. Sjónarmið kæranda
Kærandi óskar eftir að ákvörðun Sjúkratrygginga Íslands verði endurskoðuð og að viðurkennt verði að kærandi eigi rétt á bótum úr sjúklingatryggingu vegna atviks sem að öllum líkindum megi rekja til þátta sem falli undir gildissvið 2. gr. laga nr. 111/2000.
Í kæru er greint frá því að á árinu X, eftir atvikið öndunarbilun við svæfingu, hafi kærandi sagt lungnalækni, sem hafi skoðað lungun eftir atvikið, að henni hafi verið gefið lyf af hjúkrunarfræðingi rétt fyrir svæfingu. Hann hafi ekki getað séð það skráð í kerfinu og kæranda hafi fundist sér ekkert trúað. Henni hafi verið tilkynnt að 4 mínútna öndunarbilun eigi ekki að valda heilaskemmd svo hún hafi talið sig vera í lagi en hún hafi verið með svakalegar harðsperrur í öllum líkamanum. Hún hafi verið greind með sjálfsofnæmissjúkdóm árið X og H.pilory árið X eftir 2-3 ár þar sem hún hafi alltaf verið veik af henni. Kæranda hafi alltaf grunað einmitt sýkingu en læknar hafi aldrei séð neitt.
Eftir atvik X hafi kærandi farið í skoðun hjá lungnalækni sem hafi sagst ætla að reyna að finna út úr þessu með lyf sem hjúkrunarfræðingur hafi gefið kæranda fyrir aðgerð og sagst ætla láta hana vita, en hafi aldrei gert það. Þessi aðgerð sem hafi átt að gera X hafi síðan ekki verið framkvæmd og þeir hafi frestað þessu til ársins X. Þá hafi ástandið verið cin2 en samt hafi hún verið með eftirfylgni og hafi ekki verið svæfð það skipti, árið X.
Árið X hafi ástand kæranda þróast í cin3 svo þetta hafi endað með legnámi, sem sé sjaldgæft að hpv16 endi með samkvæmt gervigreind. Kærandi hafi alls konar kvilla sem hún hafi tilkynnt Sjúkratryggingum Íslands og landlækni sem sjái hvorki vanrækslu eftir atvikið hvernig þeir hafi reynt að bjarga kæranda né athugavert að hún hafi verið send í svæfingu hóstandi grænu. Í sjúkraskrá sé sagt að aldrei hafi verið nein krísa en samt lesi hún um sama aðila, en hún hafi verið að baslast við að troða slöngu ítrekað vitlaust og beðið eftir öðrum yfirlækni. Það vanti nákvæma tímasetningu hversu lengi hann hafi verið á svæðinu.
Svæfingarskýrslan, heilalínurit og öndunarvél hafi víst allt verið í lagi samkvæmt landlækni. Það hafi verið smávegis stækkun á hjarta, smávegis þríblöðruleki, smávegis pulmanol leki og lunga hafi fallið saman, miklar harðsperrur, blóðprufur sýni frávik í líkama svo þetta hafi tekið vel á líkamann. Kærandi hafi margoft tilkynnt bæði læknum og sálfræðingum og aldrei hafi verið athugað með heilaskemmdir. Glóandi hausinn af hugsunum sem hún geti ekki stoppað og kærandi spyrji hvort það þurfi ekkert að athuga með að skanna heila hennar. Landlæknir hafi sagt að kærandi gæti átt rétt hjá Sjúkratryggingum Íslands. Legnám hafi verið árið X, það séu liðin X ár síðan svo sá tími sé enn í gildi ef hægt sé að skoða málið frá því sjónarhorni hvað 10 ára fyrningarfrest varði.
III. Sjónarmið Sjúkratrygginga Íslands
Í greinargerð Sjúkratrygginga Íslands segir að kærandi hafi sótt um bætur úr sjúklingatryggingu samkvæmt þágildandi lögum nr. 111/2000 með umsókn sem hafi borist Sjúkratryggingum Íslands þann 11. desember 2025. Sótt hafi verið um bætur vegna afleiðinga meðferðar sem hafi farið fram á kvennadeild Landspítalans X til X. Umsóknin hafi verið til skoðunar hjá stofnuninni og með ákvörðun, dags. 21. apríl 2026, hafi umsókn kæranda verið synjað á þeim grundvelli að bótakrafan væri fyrnd samkvæmt 2. mgr. 19. gr. þágildandi laga um sjúklingatryggingu, Málið hafi því ekki verið skoðað frekar efnislega.
Líkt og fram komi í ákvörðun stofnunarinnar, dags. 21. apríl 2026, sé í 19. gr. þágildandi laga um sjúklingatryggingu er að finna reglur um fyrningu bótakrafna. Í 2. mgr. ákvæðisins segi að krafa um bætur fyrnist eigi síðar en þegar tíu ár séu liðin frá atvikinu sem hafi haft tjón í för með sér. Í ákvæðinu felist því að krafa um bætur fyrnist þegar tíu ár séu liðin frá sjúklingatryggingaratviki, óháð því hvenær tjónþoli hafi fengið eða hafi mátt fá vitneskju um tjón sitt. Umsókn um bætur úr sjúklingatryggingu hafi borist Sjúkratryggingum Íslands þann 11. desember 2025, en þá hafi verið liðin meira en tíu frá meintu atviki. Því sé ljóst að fyrningarfrestur 2. mgr. 19. gr. þágildandi laga um sjúklingatryggingu hafi verið liðinn er tilkynning hafi borist Sjúkratryggingum Íslands og því hafi umsókn kæranda verið synjað og málið ekki skoðað efnislega frekar.
Í kæru, dags. 7. maí 2026, nefni kærandi meðferð er hafi átt sér stað árið X. Telji kærandi sig hafa orðið fyrir tjóni í tengslum við meðferð eða rannsókn sem hafi átt sér stað árið X á heilsugæslustöð, sjúkrahúsi eða annarri heilbrigðisstofnun vilji Sjúkratryggingar Íslands benda kæranda á að senda Sjúkratryggingum Íslands umsókn þar sem nánar sé gert grein fyrir meintu atviki, hvar meðferðin hafi farið fram og hvenær. Rétt sé þó að benda á fyrningarreglur 19. gr. þágildandi laga nr. 111/2000. Samkvæmt 1. mgr. 19. gr. fyrnist kröfur um bætur þegar fjögur ár séu liðin frá því að kærandi hafi fengið eða hafi mátt fá vitneskju um tjón sitt.
Í ljósi þess að ekki verði annað séð en að afstaða Sjúkratrygginga Íslands til kæruefnis hafi nú þegar komið fram í ákvörðun stofnunarinnar frá 21. apríl 2026 þyki ekki efni til að svara kæru frekar og vísi Sjúkratryggingar Íslands til þeirrar umfjöllunar sem fram komi í gögnum málsins. Engin ný gögn hafi verið lögð fram sem taka þurfi afstöðu til.
Með vísan til framangreinds beri að staðfesta hina kærðu ákvörðun.
IV. Niðurstaða
Mál þetta varðar synjun Sjúkratrygginga Íslands um bætur á grundvelli þágildandi laga nr. 111/2000 um sjúklingatryggingu.
Til álita kemur í máli þessu hvort kærandi geti átt rétt til bóta úr sjúklingatryggingu vegna meints sjúklingatryggingaratviks sem hafi átt sér stað við meðferð kæranda sem fór fram á Landspítala X - X. Með hinni kærðu ákvörðun var umsókn kæranda synjað á þeim forsendum að fyrningarfrestur þágildandi 19. gr. laga um sjúklingatryggingu hafi verið liðinn þegar tilkynning hafi borist Sjúkratryggingum Íslands.
Í þágildandi 1. mgr. 19. gr. laga nr. 111/2000 um sjúklingatryggingu segir að kröfur um bætur samkvæmt lögunum fyrnist þegar fjögur ár eru liðin frá því að tjónþoli fékk eða mátti fá vitneskju um tjón sitt. Í 2. mgr. 19. gr. segir að krafan fyrnist þó eigi síðar en þegar tíu ár eru liðin frá atvikinu sem tjón hafði í för með sér.
Samkvæmt 1. mgr. 19. gr. laga um sjúklingatryggingu er það lögbundin forsenda fyrir bótarétti, sbr. 3. gr. laganna, að kröfu hafi verið haldið fram áður en fjögur ár voru liðin frá því að tjónþoli fékk eða mátti fá vitneskju um tjón sitt. Þó fyrnist krafan eigi síðar en þegar tíu ár eru liðin frá atvikinu sem hafði tjón í för með sér, sbr. 2. mgr. 19. gr. laganna. Í ákvæðinu felst því að krafa um bætur fyrnist þegar tíu ár eru liðin frá sjúklingatryggingaratviki, óháð því hvenær tjónþoli fékk eða mátti fá vitneskju um tjón sitt.
Umsókn kæranda um bætur úr sjúklingatryggingu barst Sjúkratryggingum Íslands 11. desember 2025. Ráðið verður af gögnum málsins að meint sjúklingatryggingaratvik hafi átt sér stað vegna meðferðar á kvennadeild Landspítala sem fór fram X til X. Þegar umsókn barst Sjúkratryggingum Íslands voru því liðin rúmlega X ár frá því að hið ætlaða sjúklingatryggingaratvik átti sér stað.
Með vísan til framangreinds er það niðurstaða úrskurðarnefndar velferðarmála að Sjúkratryggingum Íslands hafi verið rétt að synja umsókn kæranda um bætur samkvæmt lögum nr. 111/2000 um sjúklingatryggingu þar sem umsóknin var ekki lögð fram innan lögbundins tíu ára fyrningarfrests sem kveðið er á um í 2. mgr. 19. gr. laganna. Hin kærða ákvörðun er því staðfest.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Ákvörðun Sjúkratrygginga Íslands um að synja A, um bætur samkvæmt lögum nr. 111/2000 um sjúklingatryggingu, er staðfest.
F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála
Kári Gunndórsson