Úrskurður nr. 305/2025
Hinn 30. apríl 2025 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 305/2025
Í stjórnsýslumáli nr. KNU24020160
Kæra [...]
Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn 20. febrúar 2024 kærði einstaklingur er kveðst heita [...], vera fæddur [...] og vera ríkisborgari Afganistan (hér eftir nefndur kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 15. febrúar 2024, um að synja umsókn hans um ferðaskírteini fyrir flóttamenn.
Samkvæmt 6. mgr. 8. gr. laga um útlendinga skal kærunefnd meta að nýju alla þætti kærumáls og getur ýmist staðfest ákvörðun, breytt henni eða hrundið að nokkru eða öllu leyti. Þá getur nefndin einnig vísað máli til meðferðar að nýju hjá þeirri stofnun sem tók hina kærðu ákvörðun. Auk þess fer fram skoðun á því hvort formreglum laga um útlendinga og stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hafi verið fullnægt.
Af kæru má ráða að kærandi geri kröfu um að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að kærunefnd leggi fyrir stofnunina að veita honum ferðaskírteini fyrir flóttamenn.
Kæruheimild er í 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.
Málsmeðferð
Kærandi kom hingað til lands 19. október 2023 og lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd sama dag. Í gögnum málsins liggur fyrir málaskrá kæranda hjá Útlendingastofnun. Í málaskrá kæranda er skráð að kærandi hafi framvísað vegabréfi þegar hann lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd sem hafi skort upplýsingasíðu. Vegabréfið var haldlagt af lögreglu og metið falsað þar sem búið var að rífa upplýsingasíðu úr því.
Með ákvörðun Útlendingastofnunar 10. janúar 2024 var kæranda veitt viðbótarvernd hér landi, sbr. 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Fram kemur í ákvörðuninni að ekki sé lagt til grundvallar að kærandi hafi sannað auðkenni með fullnægjandi hætti með vísan til 1. mgr. 14. gr. laga um útlendinga en það sé mat stofnunarinnar að hann sé frá Afganistan. Í minnisblaði Útlendingastofnunar vegna veitingu viðbótarverndar, dags. 10. janúar 2024, kemur fram að kærandi hafi ekki framvísað auðkennandi skilríki.
Hinn 30. janúar 2024 lagði kærandi fram umsókn um ferðaskírteini fyrir flóttamenn. Með ákvörðun Útlendingastofnunar 15. febrúar 2024 var umsókn kæranda um ferðaskírteini fyrir flóttamenn synjað á grundvelli e-liðar 1. mgr. 46. gr. laga um útlendinga með vísan til þess að hann hefði ekki sannað á sér deili með fullnægjandi hætti í tengslum við umsókn sína um alþjóðlega vernd. Kærandi kærði ákvörðunina til kærunefndar 20. febrúar 2024 og lagði fram gögn. Frekari gögn voru lögð fram 23. febrúar og 14. mars 2024.
Málsástæður og rök kæranda
Kærandi lagði ekki fram greinargerð til stuðnings kæru. Í tölvubréfi til kærunefndar kemur fram að kærandi þurfi á íslenskum ferðaskilríkjum að halda til að geta aflað sér rafrænna skilríkja. Kærandi hafi týnt afgönsku vegabréfi sínu í Búlgaríu. Kærandi lagði m.a. fram afganskt nafnskírteini og afrit af vegabréfi. Kærandi vísar til þess að hann eigi bróður sem sé búsettur hér á landi. Kærandi lagði m.a. fram afrit af íslenskum ferðaskilríkjum og dvalarleyfisskírteini, afgönsku nafnskírteini og vegabréfi bróður síns.
Lagagrundvöllur
Um kæru þessa gilda lög um útlendinga nr. 80/2016, lög um vegabréf nr. 136/1998 og reglugerð um íslensk vegabréf nr. 560/2009, auk stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi, sbr. lög nr. 10/1979, mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994 og alþjóðasamningur um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951.
Ákvæði 28. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 hljóðar svo:
- Aðildarríkin skulu láta flóttamönnum, sem löglega dvelja í löndum þeirra, í té ferðaskírteini til ferða utan landa þeirra, nema ríkar ástæður vegna öryggis landsins eða allsherjar reglu sé því til fyrirstöðu, og skulu ákvæði fylgiskjals þessarar samþykktar gilda um slík skírteini. Aðildarríkin geta látið sérhverjum öðrum flóttamanni í landi sínu slík ferðaskírteini í té. Sérstaklega skulu þau taka til velviljaðrar athugunar að láta slík ferðaskírteini í té flóttamönnum, sem dvelja í löndum þeirra og geta ekki fengið ferðaskírteini frá landi því, sem þeir eiga löglegt aðsetur í.
- Ferðaskírteini, sem látin hafa verið flóttamönnum í té samkvæmt fyrri fjölþjóðlegum samningum af aðilum slíks samnings, skulu aðildarríkin viðurkenna og með fara á sama hátt og væru þau gefin út eftir þessari grein.
Ákvæði 1. og 2. mg. 46. gr. laga um útlendinga hljóða svo:
Þeim sem nýtur alþjóðlegrar verndar, og dvelst eða fær að dveljast löglega í landinu, skal að fenginni umsókn veita ferðaskírteini fyrir flóttamenn til ferða til útlanda. Heimilt er að synja um útgáfu ferðaskírteinis þegar:
- þær aðstæður eru fyrir hendi sem leiða mundu til þess að íslenskum ríkisborgara yrði ekki veitt vegabréf skv. 5. gr. laga um vegabréf,
- þær aðstæður eru fyrir hendi að foreldrar fara saman með forsjá barns og annað þeirra hyggst fara með barnið úr landi án samþykkis hins, sbr. [5. mgr.] 28. gr. a barnalaga,
- þær aðstæður eru fyrir hendi sem lýst er í f-lið 1. gr. alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna,
- útlendingurinn hefur hlotið endanlegan dóm fyrir mjög alvarlegt afbrot og er talinn hættulegur samfélaginu,
- ekki er staðfest hver útlendingurinn er eða vafi leikur á um hver útlendingurinn er,
- ástæður sem varða öryggi ríkisins eða stefnu stjórnvalda í utanríkismálum mæla gegn því.
Nú hefur flóttamaður ferðaskilríki gefið út af öðru ríki og skal hann þá því aðeins fá skírteini gefið út að honum hafi verið veitt hér alþjóðleg vernd eða ótímabundið dvalarleyfi eða skylt sé að gefa hér á landi út ferðaskírteini fyrir flóttamenn í samræmi við þjóðréttarsamning.
Í frumvarpi til laga um útlendinga nr. 80/2016 kemur fram að 1. mgr. 46. gr. byggist á 48. gr. þágildandi laga um útlendinga en sé að nokkru breytt. Kveðið sé á um rétt flóttamanns til að fá útgefið ferðaskírteini fyrir flóttamenn og sé ákvæðið í samræmi við 28. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna. Greinin sé nokkuð breytt en breytingarnar feli fyrst og fremst í sér að reglugerðarheimild um synjun og afturköllun ferðaskilríkja sé felld brott en þess í stað séu þau skilyrði lögfest sem áður hafi verið sett í reglugerð. Þetta sé gert vegna þess að um ríka hagsmuni er að ræða auk þess sem slíkt snerti 66. gr. stjórnarskrárinnar um rétt manna til komu og dvalar.
Í 66. gr. stjórnarskrár lýðveldisins kemur m.a. fram að með lögum skuli skipað rétti útlendinga til að koma til landsins og dveljast hér, svo og fyrir hverjar sakir sé hægt að vísa þeim úr landi. Engum verður meinað að hverfa úr landi nema með ákvörðun dómara. Stöðva má þó brottför manns úr landi með lögmætri handtöku. Allir, sem dveljast löglega í landinu, skulu ráða búsetu sinni og vera frjálsir ferða sinna með þeim takmörkunum sem eru settar með lögum. Í 2. mgr. 12. gr. alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi segir að allir menn skuli frjálsir að því að yfirgefa hvaða land sem er, þar með talið sitt eigið land.
Í frumvarpi til stjórnarskipunarlaga nr. 97/1995 sem breyttu m.a. ákvæði 66. gr. stjórnarskrárinnar er vísað til sambærilegra reglna í 1. og 2. mgr. 12. gr. alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi auk 1. og 2. mgr. 2. gr. 4. viðauka við mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994.
Er hér um grundvallarréttindi að ræða sem krefjast þess að stjórnvald sem tekur ákvörðun um takmörkun á þeim rétti vandi málsmeðferð og tryggi að ákvörðun sé skýr um þær ástæður er liggja að baki hverskonar takmörkun. Í almennri athugasemd mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna nr. 27 er fjallað um ferðafrelsi skv. 12. gr. alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi. Þar kemur fram að rétturinn til að fá útgefin ferðaskilríki sé óhjákvæmilega tengdur réttinum til að yfirgefa ríki og feli því í sér jákvæða skyldu á ríki til að tryggja þau réttindi. Þá kemur fram að í 3. mgr. 12. gr. fyrrgreinds samnings sé að finna heimild til að takmarka ferðafrelsi einstaklings og sé það aðeins heimilt til þess að vernda þjóðaröryggi, allsherjarreglu, almannaheill og frelsi annarra. Allar takmarkanir skuli koma fram í lögum, vera nauðsynlegar í lýðræðislegu þjóðfélagi og í samræmi við önnur réttindi samningsins og meðalhóf. Þá skuli lögin vera skýr um grundvöll takmarkananna og stjórnvöldum ekki heimilt að framfylgja lögunum að eigin geðþótta. Ferðafrelsi er einnig verndað í 2. gr. fjórða viðauka við mannréttindasáttmála Evrópu.
Niðurstaða
Rannsóknarreglan í 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 mælir fyrir um að stjórnvald afli þeirra gagna sem eru nauðsynleg svo mál sé nægilega upplýst áður en ákvörðun er tekin. Gerð er krafa um að rannsókn fari fram sem er fullnægjandi grundvöllur ákvörðunar stjórnvalds en hvorki er gerð krafa um að aflað sé allra upplýsinga sem varpað gætu ljósi á málið né að stjórnvald afli ófáanlegra gagna. Mál telst nægilega rannsakað þegar þeirra upplýsinga hefur verið aflað sem nauðsynlegar eru til þess að hægt sé að taka efnislega rétta ákvörðun í því.
Líkt og að framan er rakið synjaði Útlendingastofnun umsókn kæranda um ferðaskírteini fyrir flóttamenn á grundvelli e-liðar 1. mgr. 46. gr. laga um útlendinga með vísan til þess að hann hefði ekki fært sönnur á auðkenni sínu við umsókn sína um alþjóðlega vernd. Af dagbókarfærslum í málaskrá kæranda hjá Útlendingastofnun verður ekki séð að farið hafi fram frekari rannsókn hjá Útlendingastofnun á auðkenni hans eða að hann hafi verið upplýstur um það áður en ákvörðun var tekin að þar sem auðkenni hans væri ekki staðfest væru líkur á því að honum yrði synjað um ferðaskírteini.
Í 3. mgr. 66. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands er réttur einstaklings til ferðafrelsis verndaður og er sérstaklega tekið fram í ákvæðinu að engum verði meinað að hverfa úr landi nema með ákvörðun dómara. Þá kemur fram í 2. mgr. 2. gr. fjórða viðauka við mannréttindasáttmála Evrópu að öllum beri réttur til brottfarar úr landi og samkvæmt 3. mgr. 2. gr. megi engar hömlur leggja á vernd slíkra réttinda umfram það sem lög standi til og nauðsyn ber til í lýðræðislegu þjóðfélagi vegna þjóðaröryggis eða almannaheilla, í þágu allsherjarreglu, til að firra glæpum, til verndar heilsu manna eða siðgæði eða réttindum og frelsi annarra. Þá segir í 1. mgr. 28. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna að aðildarríkin skuli láta flóttamönnum, sem löglega dvelja í löndum þeirra, í té ferðaskírteini til ferða utan landa þeirra, nema ríkar ástæður vegna öryggis landsins eða allsherjarreglu sé því til fyrirstöðu, og skulu ákvæði fylgiskjals þessarar samþykktar gilda um slík skírteini. Skuli aðildarríkin sérstaklega taka til velviljaðrar athugunar að láta slík ferðaskírteini í té flóttamönnum, sem dvelja í löndum þeirra og geta ekki fengið ferðaskírteini frá landi því, sem þeir eiga löglegt aðsetur í.
Samkvæmt framangreindum ákvæðum er ljóst að réttur einstaklings til ferðafrelsis er mjög ríkur og mikið þurfi til að koma til að lagðar verði hömlur á þann rétt, svo sem ef ríkar ástæður eru vegna öryggis landsins eða vegna allsherjarreglu. Þá er í alþjóðasamningi um réttarstöðu flóttamanna kveðið á um þá skyldu aðildarríkja samningsins að láta flóttamönnum ferðaskírteini í té. Ljóst er af framangreindum ákvæðum um ferðafrelsi einstaklinga og rétt flóttamanna til að fá útgefin ferðaskírteini að beita verði ákvæðum 1. mgr. 46. gr. laga um útlendinga af varkárni, einkum e-lið 1. mgr. Þá verður við beitingu á e-lið 1. mgr. 46. gr. laga um útlendinga jafnframt að hafa í huga að það kunni að vera fyrir hendi ákveðinn ómöguleiki fyrir einstakling með alþjóðlega vernd að afla trúverðugra gagna um auðkenni frá heimaríki.
Ljóst er af ákvörðun Útlendingastofnunar að engin sjálfstæð rannsókn fór fram á auðkenni kæranda áður en honum var synjað um ferðaskilríki fyrir flóttamenn. Byggðist hin kærða ákvörðun eingöngu á því að hann hefði ekki fært sönnur á auðkenni sitt við umsókn sína um alþjóðlega vernd. Ákvæði e-liðar 1. mgr. 46. gr. laga um útlendinga gerir ekki þá fortakslausu kröfu að auðkenni sé óvefengjanlegt heldur að nægar líkur hafi verið leiddar að auðkennum útlendings, svo sem um heimaríki, búsetu í heimaríki og bakgrunn. Þannig búa önnur sjónarmið að baki ákvæðinu en þegar mat er lagt á auðkenni við umsókn um alþjóðlega vernd eða mannúðarvernd. Þarf jafnframt að taka til skoðunar hvernig stöðu og útgáfu skilríkja í heimaríki viðkomandi útlendings sé háttað og hvort hann geti yfirhöfuð aflað sér fullgildra gagna frá heimaríki um auðkenni sitt. Verður ekki séð af meðferð máls kæranda að slík skoðun hafi átt sér stað.
Útlendingastofnun bar að rannsaka málið sjálfstætt og leita eftir sjónarmiðum og afstöðu kæranda í málinu áður en ákvörðun var tekin í máli hans, sbr. 10. og 13. gr. stjórnsýslulaga, einkum þegar haft er í huga hve miklir hagsmunir voru í húfi fyrir hann. Leiði slík rannsókn til þess að auðkenni teljist ekki staðfest ber stjórnvaldi að meta hvort sá vafi sé slíkur að rétt sé að synja um útgáfu ferðaskírteinis, með hliðsjón af þeim sjónarmiðum sem hér hafa verið reifuð.
Í minnisblaði Útlendingastofnunar vegna veitingu viðbótarverndar, dags. 10. janúar 2024, eru rakin sjónarmið og gögn sem tilefni er til að taka til skoðunar við mat á því hvort kærandi hafi rennt nægum stoðum undir auðkenni sitt.
Meginmarkmið stjórnsýslukæru er að stuðla að réttaröryggi aðila máls með skoðun máls hans á tveimur stjórnsýslustigum. Með vísan til 10. gr. stjórnsýslulaga er það mat kærunefndar að málið þarfnist frekari rannsóknar að því er varðar auðkenni kæranda og hvort rétt sé í ljósi fyrrgreindra ákvæða um ferðafrelsi einstaklinga að synja honum um ferðaskírteini fyrir flóttamenn. Þar sem kærunefnd getur ekki bætt úr þeirri rannsókn er málinu vísað aftur til meðferðar hjá Útlendingastofnun.
Að öllu framangreindu virtu er ákvörðun Útlendingastofnunar felld úr gildi og lagt fyrir stofnunina að taka málið til meðferðar á ný.
Úrskurðarorð:
Ákvörðun Útlendingastofnunar í máli kæranda er felld úr gildi. Lagt er fyrir stofnunina að taka mál kæranda til meðferðar á ný.
The decision of the Directorate of Immigration is vacated. The Directorate is instructed to re-examine the case.
Valgerður María Sigurðardóttir
Vera Dögg Guðmundsdóttir