Úrskurður nr. 306/2025
Hinn 30. apríl 2025 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 306/2025
Í stjórnsýslumáli nr. KNU24020121
Kæra [...]
Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn 15. febrúar 2024 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari Nígeríu (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 8. febrúar 2024, um að synja umsókn hans um vegabréf fyrir útlending.
Samkvæmt 6. mgr. 8. gr. laga um útlendinga skal kærunefnd meta að nýju alla þætti kærumáls og getur ýmist staðfest ákvörðun, breytt henni eða hrundið að nokkru eða öllu leyti. Þá getur nefndin einnig vísað máli til meðferðar að nýju hjá þeirri stofnun sem tók hina kærðu ákvörðun. Auk þess fer fram skoðun á því hvort formreglum laga um útlendinga og stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hafi verið fullnægt.
Af kæru má ráða að kærandi geri kröfu um að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að kærunefnd leggi fyrir stofnunina að veita honum vegabréf fyrir útlending.
Kæruheimild er í 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.
Málsmeðferð
Móðir kæranda kom hingað til lands og lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd 12. október 2022. Kærandi fæddist hér á landi [...]. Móðir kæranda framvísaði vegabréfi frá heimaríki við umsókn um alþjóðlega vernd.
Með ákvörðunum Útlendingastofnunar, dags. 22. desember 2023, var móður kæranda og kæranda veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða hér á landi. Fram kemur í ákvörðun kæranda að hann hafi fæðst hér á landi og að engin gögn um auðkenni hafi verið lögð fram. Í ákvörðun móður kæranda kemur fram að til að sanna á sér deili hafi hún lagt fram nígerískt vegabréf nr. [...] með gildistíma frá 15. apríl 2021 til 14. apríl 2026. Að því virtu væri það mat Útlendingastofnunar að móðir kæranda hefði sannað hver hún væri með fullnægjandi hætti.
Hinn 17. janúar 2024 lagði kærandi fram umsókn um vegabréf fyrir útlending. Með ákvörðun Útlendingastofnunar 8. febrúar 2024 var umsókn kæranda um vegabréf fyrir útlending synjað á grundvelli 3. mgr. 46. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. mgr. 16. gr. reglugerðar um íslensk vegabréf nr. 560/2009 með vísan til þess að kærandi hefði ekki sýnt fram á að geta ekki fengið útgefið ferðaskilríki frá heimaríki. Kærandi kærði ákvörðunina til kærunefndar 15. febrúar 2024. Kærandi lagði fram fylgiskjal 16. febrúar 2024.
Málsástæður og rök kæranda
Kærandi lagði ekki fram greinargerð til stuðnings kæru sinni en lagði fram fæðingarvottorð sitt.
Niðurstaða kærunefndar útlendingamála
Um kæru þessa gilda lög um útlendinga nr. 80/2016, lög um vegabréf nr. 136/1998 og reglugerð um íslensk vegabréf nr. 560/2009, auk stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi, sbr. lög nr. 10/1979, mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994 og alþjóðasamningur um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951.
Samkvæmt 3. mgr. 1. gr. laga um vegabréf gefur Útlendingastofnun út vegabréf fyrir útlendinga og ferðaskilríki fyrir flóttamenn. Samkvæmt 3. mgr. 46. gr. laga um útlendinga skal útlendingur sem hefur eða fær dvalarleyfi hér á landi á grundvelli umsóknar um alþjóðlega vernd, en án þess að vera veitt alþjóðleg vernd, fá vegabréf fyrir útlending til ferða til útlanda samkvæmt nánari reglum sem ráðherra setur með reglugerð. Þá má og heimila útgáfu vegabréfs fyrir útlendinga í öðrum tilvikum ef sérstakar ástæður mæla með því.
Í VII. kafla reglugerðar um íslensk vegabréf er fjallað um vegabréf til útlendinga. Í 1. mgr. 16. gr. reglugerðarinnar kemur fram að Útlendingastofnun sé heimilt að gefa út vegabréf fyrir útlendinga, sem ekki geti með öðrum hætti aflað sér vegabréfs eða annars ferðaskilríkis. Vegabréf fyrir útlending verður því aðeins gefið út að umsækjandi sé löglega búsettur hér á landi og geti sýnt fram á að hann geti ekki fengið ferðaskilríki frá heimaríki, eða að hann sé ríkisfangslaus, sbr. 2. mgr. 16. gr. reglugerðarinnar. Gildi vegabréfs fyrir útlending megi binda við tiltekið svæði. Einnig megi gefa slíkt vegabréf út með skemmri gildistíma en mælt sé fyrir um í 1. mgr. 18. gr, sbr. 3. mgr. 16. gr. reglugerðarinnar.
Líkt og að framan er rakið synjaði Útlendingastofnun umsókn kæranda um vegabréf fyrir útlending á grundvelli 2. mgr. 16. gr. reglugerðar um íslensk vegabréf með vísan til þess að kærandi hefði ekki sýnt fram á að geta ekki fengið útgefið ferðaskilríki frá heimaríki. Í eyðublaði vegna umsóknar um vegabréf fyrir útlending kemur fram að framvísa þurfi vegabréfi frá heimaríki með umsókninni. Í málaskrá kæranda hjá Útlendingastofnun kemur fram að kæranda hafi verið leiðbeint um að leggja þyrfti fram staðfestingu frá sendiráði þess efnis að kærandi gæti ekki fengið útgefið ferðaskilríki frá heimaríki.
Samkvæmt framangreindu fékk kærandi skýrar leiðbeiningar hjá Útlendingastofnun og hefur fengið nægt ráðrúm til að leggja fram umbeðin gögn, sem hann hefur ekki gert, hvorki með umsókn sinni til Útlendingastofnunar né hjá kærunefnd. Kærandi hefur því ekki sýnt fram á að hann geti ekki fengið ferðaskilríki frá heimaríki líkt gerður er áskilnaður um í 2. mgr. 16. gr. reglugerðar um íslensk vegabréf.
Að öllu framangreindu virtu er ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja umsókn kæranda um útgáfu vegabréfs fyrir útlending staðfest.
Telur kærandi sig geta uppfyllt skilyrði 2. mgr. 16. gr. reglugerðar um íslensk vegabréf, um að sýna fram á að hann geti ekki fengið ferðaskilríki frá heimaríki, er kæranda leiðbeint um að hann getur lagt fram nýja umsókn um vegabréf fyrir útlending hjá Útlendingastofnun.
Úrskurðarorð:
Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.
The decision of the Directorate of Immigration is confirmed.
Valgerður María Sigurðardóttir
Vera Dögg Guðmundsdóttir