Úrskurður nr. 324/2025
Hinn 30. apríl 2025 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 324/2025
Í stjórnsýslumáli nr. KNU24020156
Kæra [...]
- Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn 20. febrúar 2024 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari Eþíópíu (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 15. febrúar 2024, um að synja umsókn hans um vegabréf fyrir útlending.
Samkvæmt 6. mgr. 8. gr. laga um útlendinga skal kærunefnd meta að nýju alla þætti kærumáls og getur ýmist staðfest ákvörðun, breytt henni eða hrundið að nokkru eða öllu leyti. Þá getur nefndin einnig vísað máli til meðferðar að nýju hjá þeirri stofnun sem tók hina kærðu ákvörðun. Auk þess fer fram skoðun á því hvort formreglum laga um útlendinga og stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hafi verið fullnægt.
Kærandi krefst þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að lagt verði fyrir stofnunina að veita honum vegabréf fyrir útlending.
Kæruheimild er í 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.
- Málsmeðferð
Kærandi kom hingað til lands og lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd 28. júlí 2020. Kærandi framvísaði ekki vegabréfi frá heimaríki við umsókn sína um alþjóðlega vernd.
Með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 5.janúar 2022, var kæranda veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Fram kemur í ákvörðun kæranda að hann hafi m.a. lagt fram ungverskt ferðaskilríki með gildistíma frá 30. júní 2020 til 30. júní 2021. Var það mat Útlendingastofnunar að kærandi hefði ekki sannað hver hann væri með fullnægjandi hætti.
Hinn 1. febrúar 2023 lagði kærandi fram umsókn um vegabréf fyrir útlending. Umsókn hans var samþykkt 10. júlí 2023 með þeim takmörkunum að vegabréfið hefði gildistíma til eins árs og gilti einungis til að ferðast til Svíþjóðar. Umsóknin hafi verið samþykkt í þeim tilgangi að kærandi gæti farið í eþíópíska sendiráðið í Svíþjóð og sótt um að fá útgefin ferðaskilríki frá heimaríki þar. Umrætt vegabréf var hins vegar ekki gefið út þar sem kærandi kom ekki til að kvitta undir yfirlýsingu varðandi útgáfu vegabréfsins. Hinn 8. desember 2023 lagði kærandi fram öðru sinni umsókn um vegabréf fyrir útlending. Með ákvörðun Útlendingastofnunar 15. febrúar 2024 var umsókn kæranda um vegabréf fyrir útlending synjað á grundvelli 3. mgr. 46. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. mgr. 16. gr. reglugerðar um íslensk vegabréf nr. 560/2009 með vísan til þess að kærandi hefði ekki sýnt fram á að geta ekki fengið útgefið ferðaskilríki frá heimaríki. Kærandi kærði ákvörðunina til kærunefndar 20. febrúar 2024. Kærandi lagði fram greinargerð og fylgigögn 22. mars 2024.
- Málsástæður og rök kæranda
Í greinargerð kæranda er vísað til þess að hann hafi fengið útgefið dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða hér á landi með gildistíma til 6. desember 2025. Kærandi hafi lagt fram umsókn um vegabréf fyrir útlending hjá Útlendingastofnun 8. febrúar 2022 en hann hafi í gegnum síma fengið þær upplýsingar að hann gæti ekki fengið vegabréf útgefið ef hann gæti fengið vegabréf útgefið af stjórnvöldum í heimaríki. Með tölvubréfi 12. apríl 2022 hafi kærandi upplýst Útlendingastofnun um að hann hefði haft samband við eþíópíska sendiráðið á Írlandi og óskað eftir að fá útgefið vegabréf, en honum hafi þar verið tjáð að til þess þyrfti hann að leggja fram eldra eþíópískt vegabréf. Kærandi hafi reynt að fá þessar upplýsingar skriflegar, án árangurs. Útlendingastofnun hafi með bréfi 19. maí 2022 óskað eftir því að kærandi legði fram fullnægjandi gögn til staðfestingar á auðkenni sínu. Kærandi hafi 13. júlí 2022 lagt fram fæðingarvottorð og ökuskírteini útgefin af yfirvöldum í Sádi-Arabíu. Kærandi hafi eftir það nokkrum sinnum ítrekað umsókn sína um vegabréf. Honum hafi verið tjáð að hann þyrfti að leggja fram gögn til staðfestingar á því að hann geti ekki útvegað vegabréf frá heimaríki. Kærandi hafi fengið svar við umsókn sinni 10. júlí 2023, tæpu einu og hálfi ári eftir að umsóknin hafi verið lögð fram. Var niðurstaða Útlendingastofnunar á þá leið að umsóknin væri samþykkt með takmörkunum. Vegabréfið hefði gildistíma til eins árs og aðeins til ferðalaga til Svíþjóðar. Kæranda hafi verið tjáð að hann þyrfti að koma til þess að undirrita yfirlýsingu um að hann skildi skilyrði útgáfu vegabréfsins. Hann hafi þó ekki viljað það þar sem hann treysti sér ekki til að mæta í sendiráð Eþíópíu til að sækja um vegabréf vegna forsögu fjölskyldu sinnar.
Kærandi hafi lagt að nýju fram umsókn um vegabréf 8. desember 2023. Honum hafi verið veittur 30 daga frestur til að leggja fram sönnun fyrir því að hann gæti ekki fengið útgefin ferðaskilríki frá heimaríki. Hinn 14. febrúar 2023 hafi kærandi afhent Útlendingastofnun skjal frá eþíópískum stjórnvöldum, í frumriti, þar sem fram komi að systir kæranda hafi óskað eftir vegabréfi fyrir hans hönd. Í bréfinu segi að beiðninni hafi verið hafnað vegna fjarveru kæranda, auk þess sem talin hafi verið upp fleiri skilyrði fyrir útgáfu vegabréfs. Með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 15. febrúar 2023, hafi umsókn kæranda verið synjað með vísan til þess að fæðingardagur á framlögðu skjali stemmdi ekki við uppgefinn fæðingardag hjá íslenskum stjórnvöldum. Auk þess hafi verið vísað til þess að kærandi hefði ekki lagt fram fullnægjandi staðfestingu á því að hann geti ekki fengið vegabréf frá heimaríki. Kærandi vísar til þess að skráning fæðingardags í heimaríki á þeim tíma sem kærandi sé fæddur og þar til á allra síðustu árum hafi ekki verið áreiðanleg. Kærandi geti raunar ekki með fullri vissu vitað hvaða dag hann hafi fæðst.
Kærandi byggir aðallega á því að 16. gr. reglugerðar um íslensk vegabréf eigi sér ekki lagastoð. Réttur einstaklings til að fá útgefið vegabréf fyrir útlending samkvæmt 3. mgr. 46. gr. laga um útlendinga takmarkist ekki við það að honum sé ómögulegt að útvega sér vegabréf frá heimaríki. Til vara byggir kærandi á því að röng túlkun Útlendingastofnunar á 16. gr. reglugerðarinnar sé langt út fyrir orðalag og inntak laga um útlendinga. Af 3. mgr. 46. gr. laga um útlendinga og athugasemdum við ákvæðið í frumvarpi til laganna megi ætla að það hafi ekki verið vilji löggjafans að setja svo háan þröskuld fyrir útlendinga að fá útgefið vegabréf.
Kærandi vísar til þess að faðir hans og bróðir hafi verið myrtir þegar þeir hafi snúið til Eþíópíu, þegar dvalarheimild þeirra í Sádi-Arabíu hafi fallið úr gildi. Ótti hans til þess að hann verði ekki neyddur til að stíga á yfirráðasvæði eþíópískra stjórnvalda til að afla sér ferðaskilríkja ætti því að teljast skiljanlegur. Kærandi vísar til þess að Útlendingastofnun geti afturkallað vegabréf kæranda hlotnist honum vegabréf frá heimaríki. Áhætta íslenskra stjórnvalda af því að gefa út vegabréf fyrir kæranda sé því engin.
Kærandi byggir á því að málsmeðferðarreglur stjórnsýslulaga hafi verið brotnar við meðferð málsins. Kærandi gerir athugasemd við að Útlendingastofnun vísi til þess að það sé ósamræmi á skráðum fæðingardegi kæranda í hinu framvísaða skjali og kerfum Útlendingastofnunar. Þá hafi stofnunin ekki leitast eftir skýringum hjá kæranda á umræddu misræmi. Kærandi vísar til þess að dagsetningin sem komi fram í framlögðu skjali sé í samræmi við önnur gögn sem kærandi hafi lagt fram frá Sádi-arabískum stjórnvöldum, þ.e. ökuskírteini og fæðingarvottorð. Kærandi gerir athugasemd við að skjalið hafi ekki verið sent í rannsókn hjá skilríkjadeild lögreglu og telur um brot að ræða gegn andmælarétti hans og rannsóknarskyldu íslenskra stjórnvalda.
- Niðurstaða kærunefndar útlendingamála
Um kæru þessa gilda lög um útlendinga nr. 80/2016, lög um vegabréf nr. 136/1998 og reglugerð um íslensk vegabréf nr. 560/2009, auk stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi, sbr. lög nr. 10/1979, mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994 og alþjóðasamningur um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951.
Samkvæmt 3. mgr. 1. gr. laga um vegabréf gefur Útlendingastofnun út vegabréf fyrir útlendinga og ferðaskilríki fyrir flóttamenn. Samkvæmt 3. mgr. 46. gr. laga um útlendinga skal útlendingur sem hefur eða fær dvalarleyfi hér á landi á grundvelli umsóknar um alþjóðlega vernd, en án þess að vera veitt alþjóðleg vernd, fá vegabréf fyrir útlending til ferða til útlanda samkvæmt nánari reglum sem ráðherra setur með reglugerð. Þá má og heimila útgáfu vegabréfs fyrir útlendinga í öðrum tilvikum ef sérstakar ástæður mæla með því. Í athugasemdum við 3. mgr. 46. gr. í frumvarpi til laganna kemur fram að gert sé ráð fyrir að ráðherra kveði á um það hvenær útlendingur geti fengið vegabréf á grundvelli ákvæðisins með reglum. Í 11. gr. laga um vegbréf, nr. 136/1998 er enn fremur að finna heimild fyrir ráðherra að setja reglugerð um framkvæmd þeirra laga m.a. nánari ákvæði um framkvæmd laganna. Þar skuli meðal annars kveðið á um heimild til að gefa út vegabréf til útlendinga og ferðaskilríki fyrir flóttamenn, sbr. f-lið ákvæðisins. Verður af reglugerðarheimildinni og lögskýringargögnum ekki annað skilið en að til að fá útgefið vegabréf fyrir útlendinga verði að uppfylla skilyrði reglugerðarinnar og ekki verður fallist á með kæranda að ákvæði reglugerðarinnar skorti lagastoð.
Í VII. kafla reglugerðar um íslensk vegabréf er fjallað um vegabréf til útlendinga. Í 1. mgr. 16. gr. reglugerðarinnar kemur fram að Útlendingastofnun sé heimilt að gefa út vegabréf fyrir útlendinga, sem ekki geti með öðrum hætti aflað sér vegabréfs eða annars ferðaskilríkis. Vegabréf fyrir útlending verður því aðeins gefið út að umsækjandi sé löglega búsettur hér á landi og geti sýnt fram á að hann geti ekki fengið ferðaskilríki frá heimaríki, eða að hann sé ríkisfangslaus, sbr. 2. mgr. 16. gr. reglugerðarinnar. Gildi vegabréfs fyrir útlending megi binda við tiltekið svæði. Einnig megi gefa slíkt vegabréf út með skemmri gildistíma en mælt sé fyrir um í 1. mgr. 18. gr., sbr. 3. mgr. 16. gr. reglugerðarinnar.
Líkt og að framan er rakið synjaði Útlendingastofnun umsókn kæranda um vegabréf fyrir útlending á grundvelli 2. mgr. 16. gr. reglugerðar um íslensk vegabréf með vísan til þess að kærandi hefði ekki sýnt fram á að geta ekki fengið útgefið ferðaskilríki frá heimaríki. Við meðferð umsóknar kæranda um vegabréf lagði hann fram skjal frá dómstólum í Eþíópíu er varðar synjun á útgáfu vegabréfs í heimaríki. Skjalið ber með sér að systir kæranda hafi lagt fram umsókn um vegabréf fyrir kæranda í heimaríki og umsókninni hafi verið synjað, m.a. með þeim rökum að kærandi hafi ekki komið sjálfur í persónu og lagt fram umsókn um vegabréf. Þá er vísað til frekari synjunaratriða. Á skjalinu kemur fram að kærandi sé fæddur [...] en hjá íslenskum stjórnvöldum er kærandi skráður með fæðingardaginn [...]. Í ákvörðun Útlendingastofnunar er skjalið metið ótrúverðugt með vísan til framangreinds misræmis. Kærandi var því ekki talin hafa lagt fram fullnægjandi staðfestingu á því að hann geti ekki fengið vegabréf frá heimaríki. Tekið er undir með Útlendingastofnun að misræmi á fæðingardegi kæranda rýri trúverðugleika skjalsins. Framangreint skjal, án tillits til framangreinds misræmis, sýnir ennfremur ekki fram á að kærandi geti ekki aflað sér ferðaskilríkis frá heimaríki. Samkvæmt gögnum málsins var umsókn kæranda um vegabréf fyrir útlending samþykkt 30. október 2023 með gildistíma til eins árs og með því skilyrði að það gilti einungis til að ferðast til Svíþjóðar. Vegabréfið skyldi útgefið á þeim grundvelli að kærandi undirritaði skjal þess efnis að hann skyldi takmarkað gildissvið vegbréfsins og að hann myndi nýta það til að fara í eþíópíska sendiráðið í Svíþjóð og leggja fram umsókn um ferðaskilríki frá heimaríki. Af gögnum málsins verður ekki ráðið að kærandi hafi nýtt sér vegabréfið til að fara í sendiráðið og útvega sér ferðaskilríki frá heimaríki eða fullnægjandi staðfestingu frá sendiráðinu á því að hann geti ekki aflað skilríkjanna. Við meðferð málsins hefur kærandi fengið skýrar leiðbeiningar hjá Útlendingastofnun og nægt ráðrúm til að afla umbeðinna gagna, sem hann hefur ekki gert með fullnægjandi hætti. Kærandi hefur því ekki sýnt fram á að hann geti ekki fengið ferðaskilríki frá heimaríki líkt og gerður er áskilnaður um í 2. mgr. 16. gr. reglugerðar um íslensk vegabréf.
Kærandi telur að Útlendingastofnun hafi brotið gegn 10. og 13. gr. stjórnsýslulaga með því að hafa ekki veitt kæranda kost á að skýra það misræmi sem felist í skráðum fæðingardegi kæranda. Auk þess gerir kærandi athugasemd við að ekki hafi verið gerð áreiðanleikakönnun á skjalinu. Með vísan til framangreindrar umfjöllunar og niðurstöðu kærunefndar verður ekki fallist á með kæranda að um brot gegn framangreindum ákvæðum sé að ræða.
Kærandi vísar til þess að ótti hans við eþíópísk stjórnvöld leiði til þess að hann geti ekki aflað ferðaskilríkja frá heimaríki eða í sendiráði þess. Með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 5. janúar 2022, komst Útlendingastofnun að þeirri niðurstöðu að kærandi sé ekki flóttamaður og að honum skyldi synjað um réttarstöðu flóttamanns og viðbótarvernd á Íslandi. Aftur á móti var kæranda veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Ákvörðun Útlendingastofnunar var ekki kærð til kærunefndar útlendingamála. Verður ekki dregið í efa mat Útlendingastofnunar að kærandi hafi ekki sýnt fram á ástæðuríkan ótta við ofsóknir í heimaríki sínu, sbr. 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Af því leiðir að ekki verður talið að ómöguleiki sé fyrir kæranda að afla vegabréfs frá heimaríki. Verður því ekki fallist á það með kæranda að hann geti ekki ferðast til heimaríkis eða heimsótt sendiráð þess og óskað eftir vegabréfi vegna þess að hann hafi ástæðuríkan ótta við að sæta ofsóknum af hálfu yfirvalda í heimaríki.
Kröfu kæranda um að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi af þeim sökum er synjað.
Að öllu framangreindu virtu er ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja umsókn kæranda um útgáfu vegabréfs fyrir útlending staðfest.
Úrskurðarorð:
Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.
The decision of the Directorate of Immigration is confirmed.
Valgerður María Sigurðardóttir
Vera Dögg Guðmundsdóttir