Úrskurður nr. 635/2025
Hinn 22. ágúst 2025 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 635/2025
í stjórnsýslumáli nr. KNU24040129
Kæra [...]
I. Málsatvik
Hinn 17. apríl 2024 kærði einstaklingur er kveðst heita [...], vera fæddur [...] og vera ríkisborgari Palestínu (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 5. apríl 2024, um að synja umsókn hans um ferðaskírteini fyrir flóttamenn.
Kærandi krefst þess að ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 5. apríl 2024, verði felld úr gildi og að lagt verði fyrir stofnunina að veita honum ferðaskírteini fyrir flóttamenn.
Kæruheimild er í 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.
Upplýsingar bárust frá Útlendingastofnun 18. júní 2025 um að kærandi hafi fengið útgefið ferðaskírteini fyrir flóttamenn 27. janúar 2025.
II. Málsástæður og rök kæranda
Í ljósi niðurstöðu kærunefndar verða athugasemdir kæranda ekki raktar.
III. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála
Líkt og að framan er rakið fékk kærandi útgefið ferðaskírteini fyrir flóttamenn 27. janúar 2025. Með hliðsjón af því hefur kærandi ekki lögvarða hagsmuni af úrlausn málsins.
Kæru kæranda er því vísað frá kærunefnd.
Úrskurðarorð
Kæru kæranda er vísað frá.
The applicant’s appeal is dismissed.
Valgerður María Sigurðardóttir Vera Dögg Guðmundsdóttir.