Úrskurður nr. 848/2025
Hinn 13. nóvember 2025 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 848/2025
Í stjórnsýslumáli nr. KNU25020060
Kæra [...]
- Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn 12. febrúar 2025 kærði einstaklingur er kveðst heita [...], vera fæddur [...] og vera ríkisborgari Sómalíu (hér eftir nefndur kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 7. febrúar 2025, um að synja umsókn hans um ferðaskírteini fyrir flóttamenn.
Samkvæmt 6. mgr. 8. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 skal kærunefnd meta að nýju alla þætti kærumáls og getur ýmist staðfest ákvörðun, breytt henni eða hrundið að nokkru eða öllu leyti. Þá getur nefndin einnig vísað máli til meðferðar að nýju hjá þeirri stofnun sem tók hina kærðu ákvörðun. Auk þess fer fram skoðun á því hvort formreglum laga um útlendinga og stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hafi verið fullnægt.
Af kæru má ráða að kærandi geri kröfu um að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að kærunefnd leggi fyrir stofnunina að veita honum ferðaskírteini fyrir flóttamenn.
Kæruheimild er í 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.
- Málsmeðferð
Kærandi kom hingað til lands og lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd 12. ágúst 2019. Kærandi lagði ekki fram eigið vegabréf með umsókn sinni um alþjóðlega vernd. Með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 16. júní 2020, var kæranda veitt alþjóðleg vernd hér á landi með vísan til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Fram kemur í ákvörðuninni að kærandi hafi við meðferð málsins ekki lagt fram gögn sem væru til þess fallin að sanna á honum deili. Yrði því leyst úr auðkenni kæranda á grundvelli trúverðugleikamats. Í ákvörðun Útlendingastofnunar var lagt til grundvallar að kærandi væri frá Sómalíu en að öðru leyti væri auðkenni hans óstaðfest.
Hinn 2. júlí 2024 lagði kærandi fram umsókn um ferðaskírteini fyrir flóttamenn. Með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 7. febrúar 2025, var umsókninni synjað á grundvelli e- og f-liða 1. mgr. 46. gr. laga um útlendinga með vísan til þess vafa sem sé uppi um auðkenni kæranda og stefnu íslenskra stjórnvalda um að koma í veg fyrir misnotkun opinberra skjala. Kærandi kærði ákvörðunina til kærunefndar 12. febrúar 2025. Kærandi lagði ekki fram greinargerð til stuðnings kæru.
- Málsástæður og rök kæranda
Kærandi lagði ekki fram greinargerð til stuðnings kæru.
- Niðurstaða kærunefndar útlendingamála
Um kæru þessa gilda lög um útlendinga nr. 80/2016, lög um vegabréf nr. 136/1998 og reglugerð um íslensk vegabréf nr. 560/2009, auk stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi, sbr. lög nr. 10/1979, mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994 og alþjóðasamningur um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951.
Samkvæmt 3. mgr. 1. gr. laga um vegabréf gefur Útlendingastofnun út vegabréf fyrir útlendinga og ferðaskilríki fyrir flóttamenn. Samkvæmt 1. mgr. 46. gr. laga um útlendinga skal þeim sem nýtur alþjóðlegrar verndar, og dvelst eða fær að dveljast löglega í landinu, að fenginni umsókn veita ferðaskírteini fyrir flóttamenn til ferða til útlanda. Heimilt er að synja um útgáfu ferðaskírteinis þegar þær aðstæður eru fyrir hendi sem kveðið er á um í a-d-liðum ákvæðisins nánar tiltekið; aðstæður sem leiða mundu til þess að íslenskum ríkisborgara yrði ekki veitt vegabréf skv. 5. gr. laga um vegabréf, sbr. a-lið ákvæðisins; foreldrar fara saman með forsjá barns og annað þeirra hyggst fara með barnið úr landi án samþykkis hins, sbr. 5. mgr. 28. gr. a barnalaga, sbr. b-lið ákvæðisins; aðstæður sem lýst er í f-lið 1. gr. alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna, sbr. c-lið ákvæðisins; þegar útlendingurinn hefur hlotið endanlegan dóm fyrir mjög alvarlegt afbrot og er talinn hættulegur samfélaginu, sbr. d-lið ákvæðisins; ekki er staðfest hver útlendingurinn er eða vafi leikur á um hver útlendingurinn er, sbr. e-lið ákvæðisins; ástæður sem varða öryggi ríkisins eða stefnu stjórnvalda í utanríkismálum mæla gegn því, sbr. f-lið ákvæðisins.
Í athugasemdum við 1. mgr. 46. gr. í frumvarpi til laga um útlendinga kemur fram að 1. mgr. 46. gr. byggist á 48. gr. þágildandi laga um útlendinga en sé að nokkru breytt. Kveðið sé á um rétt flóttamanns til að fá útgefið ferðaskírteini fyrir flóttamenn og sé ákvæðið í samræmi við 28. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna. Greinin sé nokkuð breytt en breytingarnar feli fyrst og fremst í sér að reglugerðarheimild um synjun og afturköllun ferðaskilríkja sé felld brott en þess í stað séu þau skilyrði lögfest sem áður hafi verið sett í reglugerð. Þetta sé gert vegna þess að um ríka hagsmuni sé að ræða auk þess sem slíkt snerti 66. gr. stjórnarskrárinnar um rétt manna til komu og dvalar.
Í 9. mgr. 46. gr. laganna er kveðið á um heimild ráðherra til að setja í reglugerð nánari ákvæði um útgáfu, gildissvið og endurnýjun ferðaskírteinis fyrir flóttamenn og vegabréfs fyrir útlendinga og nánari skilyrði í þessu sambandi. Í 11. gr. laga um vegbréf, nr. 136/1998 er jafnframt að finna heimild fyrir ráðherra að setja reglugerð um framkvæmd þeirra laga m.a. nánari ákvæði um framkvæmd laganna. Þar skuli meðal annars kveðið á um heimild til að gefa út vegabréf til útlendinga og ferðaskilríki fyrir flóttamenn, sbr. f-lið ákvæðisins. Í VII. kafla reglugerðar um íslensk vegabréf er fjallað um vegabréf til útlendinga og ferðaskilríki fyrir flóttamenn. Í 1. mgr. 17. gr. reglugerðarinnar kemur fram að Útlendingastofnun sé heimilt að gefa út ferðaskilríki fyrir flóttamenn. Ferðaskilríki skuli einungis gefið út til þeirra sem stjórnvöld hafi viðurkennt að hafi stöðu flóttamanna hér á landi og dveljist löglega hérlendis, sbr. 28. gr. samnings um stöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951. Í 2. mgr. 17. gr. kemur fram að gildi ferðaskilríki fyrir flóttamann megi binda við tiltekið svæði. Einnig megi gefa slíkt skilríki út með skemmri gildistíma en mælt er fyrir um í 1. mgr. 18. gr. reglugerðarinnar.
Líkt og að framan er rakið synjaði Útlendingastofnun umsókn kæranda um ferðaskírteini fyrir flóttamenn á grundvelli e-liðar 1. mgr. 46. gr. laga um útlendinga með vísan til þess að vafi leiki á um auðkenni kæranda og með vísan til f-liðar 1. mgr. 46. gr. laganna vegna ástæðna sem varði öryggi ríkisins eða stefnu stjórnvalda í utanríkismálum sem mæli gegn útgáfu ferðaskírteinis. Í ákvörðun vísar Útlendingastofnun m.a. til stefnu íslenskra stjórnvalda um að koma í veg fyrir misnotkun opinberra skilríkja og þess að ekki sé unnt að ætlast til þess að íslensk stjórnvöld gefi út skjal sem opinberlega staðfesti auðkenni í ljósi þess vafa sem sé uppi um auðkenni kæranda.
Fram kemur í dagbókarfærslum Útlendingastofnunar að kærandi hafi í tvígang á árunum 2020 og 2022 fengið útgefin ferðaskírteini fyrir flóttamenn og væri umsókn sú sem hér er til meðferðar þriðja umsókn kæranda. Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að í október 2024 hafi vinnsla á umsóknum um ferðaskírteini færst yfir á verndarsvið og með umræddri breytingu hafi ætlunin verið sú að vanda vinnsluna enn frekar og leggja ítarlegra mat á hverja umsókn fyrir sig. Af þessu tilefni áréttar kærunefnd að stofnunin er bundin af jafnræðis- og meðalhófsreglu stjórnsýslulaga. Það að verkefni færist á milli deilda innan sömu stofnunar leiðir ekki eitt og sér til þess að breyting verði á afgreiðslu mála. Ljóst er þó að fyrri framkvæmd Útlendingastofnunar var ekki í fullu samræmi við ákvæði laga um útlendinga. Núverandi framkvæmd er bæði vandaðri og ítarlegri og í samræmi við 46. gr. laga um útlendinga. Verður breytt framkvæmd því ekki talin brjóta gegn framangreindum reglum stjórnsýsluréttarins.
Ákvörðun um synjun á útgáfu ferðaskírteinis er íþyngjandi ákvörðun. Við beitingu á e-lið 1. mgr. 46. gr. laga um útlendinga þarf að gæta meðalhófs og taka mið af rétti einstaklings til ferðafrelsis, sbr. 3. mgr. 66. gr. stjórnarskrár. Ákvæði e-liðar 1. mgr. 46. gr. laga um útlendinga gerir ekki þá fortakslausu kröfu að auðkenni sé óvefengjanlegt heldur að nægar líkur hafi verið leiddar að auðkenni útlendings, svo sem um heimaríki, búsetu í heimaríki og bakgrunn. Þannig búa önnur sjónarmið að baki ákvæðinu en þegar mat er lagt á auðkenni við umsókn um alþjóðlega vernd eða mannúðarvernd. Þarf jafnframt að taka til skoðunar hvernig stöðu og útgáfu skilríkja í heimaríki viðkomandi útlendings sé háttað og hvort hann geti yfirhöfuð aflað sér fullgildra gagna frá heimaríki um auðkenni sitt. Þá verður við beitingu á e-lið 1. mgr. 46. gr. laga um útlendinga jafnframt að hafa í huga að það kann að vera fyrir hendi ákveðinn ómöguleiki fyrir einstakling með alþjóðlega vernd að afla trúverðugra gagna um auðkenni frá heimaríki.
Í ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 16. júní 2020, vegna umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd, kemur fram að kærandi hafi ekki lagt nein gögn fram til að sanna á honum deili og yrði því leyst úr auðkenni kæranda á grundvelli trúverðugleikamats. Með vísan til frásagnar kæranda og niðurstöðu tungumála- og staðháttaprófs var ekki dregið í efa að kærandi væri frá Sómalíu. Þá var uppgefinn aldur kæranda lagður til grundvallar. Af málsmeðferð Útlendingastofnunar vegna umsóknar um ferðaskírteini verður ráðið að rannsókn hafi farið fram á auðkenni kæranda og honum veitt færi á að leggja fram gögn sem leitt gætu líkum að auðkenni hans og leiðbeint um að leggja fram skýringar, væri honum alls ókleift að afla frekari gagna. Í tölvubréfi kæranda til Útlendingastofnunar, dags. 4. nóvember 2024, gaf kærandi þær skýringar að hann hefði ekki vegabréf frá heimaríki undir höndum og gæti ekki aflað fæðingarvottorðs þar sem fæðingar væru sjaldan skráðar í því héraði sem kærandi væri frá.
Við meðferð málsins hefur kærandi ekki lagt fram áreiðanleg gögn sem leiða líkum að auðkenni hans. Kærandi hefur ekki sýnt fram á að hann geti ekki fengið gögn frá heimaríki eða sendiráði þess sem varpa einhverju ljósi á eða renna stoðum undir auðkenni hans. Við meðferð málsins hefur kærandi fengið skýrar leiðbeiningar hjá Útlendingastofnun og nægt ráðrúm til að afla umbeðinna gagna, sem hann hefur ekki gert með fullnægjandi hætti. Þar sem engin gögn liggja fyrir sem leiða líkum að auðkenni hans eða sem sýna fram á að honum sé ómögulegt að afla gagna um auðkenni er óhjákvæmilegt að staðfesta niðurstöðu Útlendingastofnunar um að synja útgáfu ferðaskírteinis í máli kæranda, sbr. e-lið 1. mgr. 46. gr. laga um útlendinga.
Í ákvörðun Útlendingastofnunar er vísað til þess að synjun um útgáfu ferðaskírteinis sé einnig byggð á f-lið 1. mgr. 46. gr. laga um útlendinga. Fram kemur að það sé mat Útlendingastofnunar að í ljósi stefnu íslenskra stjórnvalda um að koma í veg fyrir misnotkun opinberra skilríkja, sbr. f-lið 1. mgr. 46. gr. laga um útlendinga, sé ekki unnt að ætlast til þess að íslensk stjórnvöld gefi út skjal sem opinberlega staðfesti auðkenni í ljósi þess vafa sem sé uppi um auðkenni kæranda.
Í f-lið 1. mgr. 46. gr. laga um útlendinga segir að heimilt sé að synja um útgáfu ferðaskírteinis þegar ástæður sem varða öryggi ríkisins eða stefnu í utanríkismálum mæli gegn því. Ekki er skilgreint nánar í ákvæðinu né athugasemdum við ákvæðið í frumvarpi til laga um útlendinga hvaða ástæður geti varðað öryggi ríkisins eða stefnu í utanríkismálum sem mæli gegn útgáfu ferðaskírteinis. Á vef Stjórnarráðs Íslands varðandi stefnur og áætlanir íslenskra stjórnvalda kemur fram að opinber stefna stjórnvalda birtist með formlegum hætti m.a. í lögum, reglugerðum, þingsályktunum, stjórnarsáttmálum, málefnasviðsstefnum, aðgerðaáætlunum og samningum. Í ákvörðun Útlendingastofnunar er ekki rökstutt nánar að hvaða leyti stefna í utanríkismálum íslenskra stjórnvalda mæli gegn því að gefið verði út ferðaskírteini í máli kæranda, að undanskildri tilvísun til stefnu íslenskra stjórnvalda um að koma í veg fyrir misnotkun opinberra skilríkja án þess að tilgreina það með nánari hætti. Þrátt fyrir að kærandi hafi ekki leitt líkum að auðkenni sínu og komist hafi verið að þeirri niðurstöðu að ferðaskírteini verði ekki gefið út á þeim grundvelli, verður það eitt og sér ekki talið leiða til þess að útgáfa ferðaskírteinis í slíkum aðstæðum stríði gegn stefnu íslenskra stjórnvalda um að koma í veg fyrir misnotkun opinberra skilríkja. Hafa ber hliðsjón af eðli mála af þessu tagi og framangreindum sjónarmiðum að baki e-liðar 1. mgr. 46. gr. laga um útlendinga og 3. mgr. 66. gr. stjórnarskrár. Verður því ekki fallist á að unnt sé að synja útgáfu ferðaskírteinis í máli kæranda á grundvelli f-liðar 1. mgr. 46. gr. laga um útlendinga.
Að öllu framangreindu virtu er ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja útgáfu ferðaskírteinis í máli kæranda á grundvelli e-liðar 1. mgr. 46. gr. laga um útlendinga staðfest.
Úrskurðarorð:
Ákvörðun Útlendingastofnunar í máli kæranda er staðfest.
The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.
Valgerður María Sigurðardóttit
Vera Dögg Guðmundsdóttir