Úrskurður nr. 856/2025
Hinn 13. nóvember 2025 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 856/2025
Í stjórnsýslumáli nr. KNU25020089
Kæra [...]
- Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn 19. febrúar 2025 kærði einstaklingur er kveðst heita [...], vera fæddur [...] og vera ríkisborgari Palestínu (hér eftir nefndur kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 14. febrúar 2025, um að synja umsókn hans um ferðaskírteini fyrir flóttamenn.
Samkvæmt 6. mgr. 8. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 skal kærunefnd meta að nýju alla þætti kærumáls og getur ýmist staðfest ákvörðun, breytt henni eða hrundið að nokkru eða öllu leyti. Þá getur nefndin einnig vísað máli til meðferðar að nýju hjá þeirri stofnun sem tók hina kærðu ákvörðun. Auk þess fer fram skoðun á því hvort formreglum laga um útlendinga og stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hafi verið fullnægt.
Af kæru má ráða að kærandi geri kröfu um að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að kærunefnd leggi fyrir stofnunina að veita honum ferðaskírteini fyrir flóttamenn.
Kæruheimild er í 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.
- Málsmeðferð
Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd 5. desember 2020. Með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 25. febrúar 2021, var kæranda veitt alþjóðleg vernd hér á landi með vísan til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Við meðferð málsins lagði kærandi fram grískt ferðaskilríki með gildistíma frá 18. mars 2018 til 17. mars 2021. Fram kemur í ákvörðuninni að kærandi hafi við meðferð málsins ekki lagt fram gögn sem væru til þess fallin að sanna á honum deili. Yrði því leyst úr auðkenni kæranda á grundvelli trúverðugleikamats. Í ákvörðun Útlendingastofnunar var lagt til grundvallar að kærandi væri frá Palestínu en að öðru leyti væri auðkenni hans óstaðfest.
Hinn 3. október 2024 lagði kærandi fram umsókn um ferðaskírteini fyrir flóttamenn. Með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 14. febrúar 2025, var umsókninni synjað á grundvelli a-liðar 1. mgr. 46. gr. laga um útlendinga og a-liðar 2. mgr. 5. gr. laga um vegabréf nr. 136/1998. Kærandi kærði ákvörðunina til kærunefndar 19. febrúar 2025 og lagði jafnframt fram athugasemdir máli sínu til stuðnings þann dag. Samkvæmt upplýsingum í dagbókarfærslum Útlendingastofnunar óskaði kærandi eftir að draga umsókn sína um alþjóðlega vernd til baka 7. apríl 2025. Var kæranda fylgt til Kaupmannahafnar með heimferða- og fylgdadeild Ríkislögreglustjóra 8. maí 2025 þar sem hann fór áfram til Aþenu.
- Málsástæður og rök kæranda
Nefndin hefur farið yfir athugasemdir kæranda og fylgiskjöl og lagt mat á þau sjónarmið er þar koma fram. Í ljósi niðurstöðu kærunefndar er ekki ástæða til þess að reifa athugasemdir kæranda frekar.
- Niðurstaða kærunefndar útlendingamála
Um kæru þessa gilda lög um útlendinga nr. 80/2016, lög um vegabréf nr. 136/1998 og reglugerð um íslensk vegabréf nr. 560/2009, auk stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi, sbr. lög nr. 10/1979, mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994 og alþjóðasamningur um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951.
Samkvæmt 3. mgr. 1. gr. laga um vegabréf gefur Útlendingastofnun út vegabréf fyrir útlendinga og ferðaskilríki fyrir flóttamenn. Samkvæmt 1. mgr. 46. gr. laga um útlendinga skal þeim sem nýtur alþjóðlegrar verndar, og dvelst eða fær að dveljast löglega í landinu, að fenginni umsókn veita ferðaskírteini fyrir flóttamenn til ferða til útlanda.
Líkt og að framan greinir óskaði kærandi eftir að afturkalla alþjóðlega vernd sína hér á landi 7. apríl 2025. Samkvæmt dagbókarfærslu Útlendingastofnunar var kæranda fylgt með heimferða- og fylgdadeild Ríkislögreglustjóra til Kaupmannahafnar 8. maí 2025 og fór hann þaðan til Grikklands þar sem hann er handhafi alþjóðlegrar verndar. Liggur því fyrir að kærandi nýtur ekki lengur alþjóðlegrar verndar á Íslandi eða hefur dvalarleyfi hér á landi. Í ljósi framangreinds er það niðurstaða kærunefndar að vísa kæru um synjun á útgáfu ferðaskilríkis frá kærunefnd.
Úrskurðarorð:
Kæru kæranda er vísað frá.
The applicant’s appeal is dismissed.
Valgerður María Sigurðardóttir Vera Dögg Guðmundsdóttir