13. nóvember 2025 /

Úrskurður nr. 859/2025

Hinn 13. nóvember 2025 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 859/2025

Í stjórnsýslumáli nr. KNU25010060

Kæra [...]

  1. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 20. janúar 2025 kærði karlmaður að nafni [...], kt. [...], ríkisborgari Aserbaísjan (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 7. janúar 2025, um að synja umsókn hans um ferðaskírteini fyrir flóttamenn.

Samkvæmt 6. mgr. 8. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 skal kærunefnd meta að nýju alla þætti kærumáls og getur ýmist staðfest ákvörðun, breytt henni eða hrundið að nokkru eða öllu leyti. Þá getur nefndin einnig vísað máli til meðferðar að nýju hjá þeirri stofnun sem tók hina kærðu ákvörðun. Auk þess fer fram skoðun á því hvort formreglum laga um útlendinga og stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hafi verið fullnægt.

Kærandi krefst þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að lagt verði fyrir Útlendingastofnun að gefa út ferðaskilríki fyrir flóttamenn. Til vara er þess krafist að mál kæranda verði tekið til löglegrar meðferðar hjá Útlendingastofnun.

Kæruheimild er í 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

  1. Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á grundvelli fjölskyldusameiningar 25. október 2018. Kæranda var veitt alþjóðleg vernd á þeim grundvelli með útgáfudaginn 27. júní 2019. Dvalarleyfi kæranda var síðast endurnýjað 26. mars 2024 með gildistíma til 26. mars 2028.

Kærandi lagði fram umsókn um ferðaskírteini fyrir flóttamenn 22. maí 2023. Við meðferð málsins óskaði Útlendingastofnun eftir upplýsingum frá Lögreglustjóranum á Suðurnesjum, dags. 5. desember 2024, um hvort það væri mat lögreglunnar að kærandi væri með þess háttar mál í rannsókn að það ætti að koma í veg fyrir að umsókn um ferðaskírteini yrði samþykkt og hvort það væri mat lögreglunnar að kærandi myndi reyna að komast undan refsiábyrgð með því að fara úr landi eða dveljast áfram erlendis verði honum veitt ferðaskírteini. Í svari lögreglu, dags. 6. desember 2024, kom fram að kærandi ætti tvö ólokin mál í kerfum lögreglunnar. Að mati lögreglu liggi fangelsisrefsing við þeim brotum og mat hennar væri að háttsemi kæranda væri þess eðlis að ekki ætti að samþykkja umsókn um ferðaskírteini. Með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 7. janúar 2025, var umsókn kæranda um ferðaskírteini synjað á grundvelli a-liðar 1. mgr. 46. gr. laga um útlendinga með vísan til 5. gr. laga um vegabréf nr. 136/1998. Í ákvörðun er vísað til upplýsinga frá lögreglu um að kærandi eigi ólokin mál í refsivörslukerfinu og mats lögreglunnar á því að háttsemi kæranda væri þess eðlis að ekki ætti að samþykkja umsókn um ferðaskírteini. Kærandi kærði ákvörðunina til kærunefndar 20. janúar 2025. Kærandi lagði fram greinargerð og fylgigögn 3. febrúar 2025.

  1. Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda er vísað til málsatvika og málsmeðferðar Útlendingastofnunar vegna umsóknar hans um ferðaskírteini. Kærandi vísar til þess að hann hafi sett sig í samband við Lögreglustjórann á Suðurnesjum til að afla upplýsinga um þau tvö mál sem kærandi væri skráður fyrir. Í svari lögreglunnar hafi komið fram að Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefði forræði á öðru máli kæranda en hitt málið væri umferðalagabrot og að því máli hafi verið lokið með greiðslu sektar. Kærandi hefði því eitt ólokið mál í kerfum lögreglunnar. Í svari lögreglu hafi einnig verið greint frá samskiptum lögreglunnar við Útlendingastofnun. Kærandi hafi óskað eftir upplýsingum frá lögreglu um hvenær umferðalagabrot kæranda hefði verið skráð sem lokið og hafi þeirri fyrirspurn verið svarað á þann veg að sekt hafi verið greidd 29. júní 2023. Upplýsingar um stöðu ólokinna mála kæranda hafi því verið rangar hjá lögreglu og Útlendingastofnun. Kærandi hafi jafnframt sett sig í samband við rannsakanda í máli lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og komið hafi fram að mál kæranda væri á rannsóknarstigi og þá hafi ekki enn verið búið að taka skýrslur af þeim sem legið hafi undir grun í því máli, þ. á m. kæranda. Málið sé því ekki enn komið til ákærusviðs og því ljóst að ákæra hafi ekki verið gefin út í málinu.

Kærandi byggir aðalkröfu sína á því að réttur hans til útgáfu ferðaskírteinis sé skýr í lögum og að engar lögmætar forsendur hafi verið fyrir hendi til að synja honum um útgáfu slíks skilríkis. Réttur kæranda til útgáfu ferðaskilríkis fyrir flóttamenn byggi á 46. gr. laga um útlendinga og 28. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna og rétt hans til komu og dvalar sem varinn sé af 66. gr. stjórnarskrár. Ekki hafi verið lagaskilyrði til að synja kæranda um ferðaskírteini. Kærandi hafi ekki verið eftirlýstur hjá lögreglu eða gefin út handtökuskipun á hendur honum. Þá hafi kæra ekki verið gefin út á hendur kæranda. Mat lögreglu fái ekki staðist og ekki verði séð að Útlendingastofnun eða lögreglan hafi heimild í lögum til að leggja aðra þætti til grundvallar en þá sem komi fram í lögum.

Kærandi byggir varakröfu sína á því að Útlendingastofnun hafi ekki gætt að rannsóknarskyldu sinni í máli hans, sbr. 10. gr. stjórnsýslulaga. Ljóst sé af gögnum málsins að Útlendingastofnun hafi ekki framkvæmt neina sjálfstæða rannsókn á því hvort lagaskilyrði fyrir synjun á útgáfu ferðaskírteinis væru uppfyllt. Umsögn lögreglu geti með engu móti talist fullnægjandi til grundvallar synjun útgáfu skírteinis til kæranda enda hafi ekki verið að finna neina staðfestingu þess efnis að skilyrði fyrir synjun ferðaskírteinis væru uppfyllt.

Kærandi gerir athugasemdir við að lögregla hafi gefið upp rangar upplýsingar um stöðu mála kæranda í kerfum sínum. Kærandi gerir athugasemdir við að Útlendingastofnun hafi látið við sitja að byggja ákvörðun á umsögn lögregluembættis sem hafi ekki haft umrædd mál á sínu borði. Jafnframt telur kærandi alvarlegt að lögfræðingur hjá lögreglunni hafi gefið til kynna að kærandi hafi af ásetningi framið refsivert brot sem við liggi fangelsisrefsing án þess að skýrsla hafi verið tekin af kæranda, gefin út ákæra í málinu eða málið farið fyrir dómara til að kveða á um sekt eða sýknu.

  1. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Um kæru þessa gilda lög um útlendinga nr. 80/2016, lög um vegabréf nr. 136/1998 og reglugerð um íslensk vegabréf nr. 560/2009, auk stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi, sbr. lög nr. 10/1979, mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994 og alþjóðasamningur um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951.

Samkvæmt 3. mgr. 1. gr. laga um vegabréf gefur Útlendingastofnun út vegabréf fyrir útlendinga og ferðaskilríki fyrir flóttamenn. Samkvæmt 1. mgr. 46. gr. laga um útlendinga skal þeim sem nýtur alþjóðlegrar verndar, og dvelst eða fær að dveljast löglega í landinu, að fenginni umsókn veita ferðaskírteini fyrir flóttamenn til ferða til útlanda. Heimilt er að synja um útgáfu ferðaskírteinis þegar þær aðstæður eru fyrir hendi sem kveðið er á um í a-d-liðum ákvæðisins nánar tiltekið; aðstæður sem leiða mundu til þess að íslenskum ríkisborgara yrði ekki veitt vegabréf skv. 5. gr. laga um vegabréf, sbr. a-lið ákvæðisins; foreldrar fara saman með forsjá barns og annað þeirra hyggst fara með barnið úr landi án samþykkis hins, sbr. 5. mgr. 28. gr. a barnalaga, sbr. b-lið ákvæðisins; aðstæður sem lýst er í f-lið 1. gr. alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna, sbr. c-lið ákvæðisins; þegar útlendingurinn hefur hlotið endanlegan dóm fyrir mjög alvarlegt afbrot og er talinn hættulegur samfélaginu, sbr. d-lið ákvæðisins; ekki er staðfest hver útlendingurinn er eða vafi leikur á um hver útlendingurinn er, sbr. e-lið ákvæðisins; ástæður sem varða öryggi ríkisins eða stefnu stjórnvalda í utanríkismálum mæla gegn því, sbr. f-lið ákvæðisins.

Í athugasemdum við 1. mgr. 46. gr. í frumvarpi til laga um útlendinga kemur fram að 1. mgr. 46. gr. byggist á 48. gr. þágildandi laga um útlendinga en sé að nokkru breytt. Kveðið sé á um rétt flóttamanns til að fá útgefið ferðaskírteini fyrir flóttamenn og sé ákvæðið í samræmi við 28. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna. Greinin sé nokkuð breytt en breytingarnar feli fyrst og fremst í sér að reglugerðarheimild um synjun og afturköllun ferðaskilríkja sé felld brott en þess í stað séu þau skilyrði lögfest sem áður hafi verið sett í reglugerð. Þetta sé gert vegna þess að um ríka hagsmuni sé að ræða auk þess sem slíkt snerti 66. gr. stjórnarskrárinnar um rétt manna til komu og dvalar.

Í 1. mgr. 5. gr. laga um vegabréf nr. 136/1998 kemur fram að sé umsækjandi um vegabréf eftirlýstur af lögreglu, gefin hafi verið út handtökuskipun á hendur honum eða lagt á hann farbann samkvæmt ákvæðum laga um meðferð sakamála skuli synja um útgáfu vegabréfs. Í 2. mgr. 5. gr. laganna kemur fram að heimilt sé að synja um útgáfu vegabréfs þegar fram sé komin kæra á hendur umsækjanda fyrir refsivert brot sem ætla má að varði fangelsisrefsingu og hætta sé talin á að hann muni reyna að komast undan refsiábyrgð með því að fara úr landi eða dveljast áfram erlendis, sbr. a-lið ákvæðisins, eða þegar umsækjandi hafi verið dæmdur til fangelsisrefsingar sem ekki hafi verið afplánuð eða sætt sektarrefsingu fyrir dómi eða hjá stjórnvaldi sem hvorki hafi verið greidd né sett trygging fyrir og hætta sé á að hann muni reyna að komast hjá fullnustu refsingarinnar með því að fara úr landi eða dveljast áfram erlendis, sbr. b-lið ákvæðisins.

Líkt og að framan er rakið synjaði Útlendingastofnun umsókn kæranda um ferðaskírteini fyrir flóttamenn á grundvelli a-liðar 1. mgr. 46. gr. laga um útlendinga með vísan til ástæðna sem séu fyrir hendi sem leiða myndu til þess að íslenskum ríkisborgara yrði ekki veitt vegabréf samkvæmt 5. gr. laga um vegabréf. Í ákvörðun vísar Útlendingastofnun til upplýsinga frá lögreglu um að kærandi ætti tvö ólokin mál í kerfum lögreglunnar. Við broti kæranda liggi fangelsisrefsing og væri það mat lögreglunnar að háttsemi kæranda væri þess eðlis að ekki ætti að samþykkja umsókn um ferðaskírteini.

Líkt og að framan er rakið byggði Útlendingastofnun ákvörðun um synjun á útgáfu ferðaskírteinis á a-lið 1. mgr. 46. gr. laga um útlendinga, sbr. a-lið 2. mgr. 5. gr. laga um vegabréf. Útlendingastofnun byggði á því að kærandi ætti ólokin mál í kerfum lögreglunnar og að fangelsisrefsing lægi við öðru broti kæranda auk þess sem að það væri mat lögreglu að ekki ætti að samþykkja umsókn um ferðaskírteini. Ákvæði a-liðar 2. mgr. 5. gr. laga um vegabréf áskilur að heimilt sé að synja um útgáfu vegabréfs sé komin fram kæra á hendur umsækjenda fyrir refsivert brot sem ætla megi að varði fangelsisrefsingu. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu, dags. 6. desember 2025, var kærandi einungis með ólokið mál í kerfum lögreglunnar og lá ekki fyrir hvort að komin væri fram kæra í málinu eða hver staða þess væri. Þá eiga ákvæði 1. mgr. 5. gr. laga um vegabréf ekki við um mál kæranda þar sem ekki hafði verið búið að gefa út handtökuskipun á hendur honum, hann eftirlýstur eða lagt á hann farbann. Er því ljóst að synjun Útlendingastofnunar byggði á atvikum sem ekki voru í samræmi við framangreind ákvæði og ákvörðun Útlendingastofnunar því ógildanleg af þeim sökum. Þá verður ekki séð af framkvæmdinni að gætt hafi verið að almennum reglum um ferðafrelsi líkt og áréttað er í athugasemdum við 2. mgr. 5. gr. í frumvarpi til laga um vegabréf eða gætt að rannsóknarreglu og meðalhófsreglu stjórnsýslulaga.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, sem bárust kærunefnd 11. nóvember 2025, á kærandi engin ólokin mál samkvæmt upplýsingum úr kerfum lögreglunnar. Þá kemur fram að rannsókn í framangreindu máli kæranda hafi verið hætt og sé málið skráð lokið hjá embættinu. Samkvæmt framansögðu kemur a-liður 1. mgr. 46. gr. laga um útlendinga, sbr. 5. gr. laga um vegabréf, því ekki í veg fyrir að kærandi fái útgefið ferðaskírteini.

Af málsmeðferð og ákvörðun Útlendingastofnunar verður ráðið að kæranda hafi ekki verið veitt færi á að leggja fram andmæli við framangreindar upplýsingar lögreglu í samræmi við 13. gr. stjórnsýslulaga. Er gerð athugasemd við framangreindan annmarka á málsmeðferð stofnunarinnar. Líkt og að framan er rakið lagði kærandi fram umsókn um ferðaskírteini 22. maí 2023 og var umsókn kæranda synjað með ákvörðun Útlendingastofnunar 7. janúar 2025. Fram kemur í dagbókarfærslum Útlendingastofnunar að umsókn um ferðaskírteini hafi verið sett á bið þar til umsókn um endurnýjun dvalarleyfis yrði afgreidd. Þrátt fyrir það er óhjákvæmilegt að gera athugasemdir við framangreindan málshraða, m.a. með hliðsjón af 9. gr. stjórnsýslulaga. Er því beint til Útlendingastofnunar að hraða vinnslu sambærilegra mála.

Í ljósi framangreinds er ekki tilefni til að fjalla nánar um málsástæður kæranda.

Er ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja útgáfu ferðaskírteinis í máli kæranda á grundvelli a-liðar 1. mgr. 46. gr. laga um útlendinga felld úr gildi og lagt fyrir Útlendingastofnun að taka mál kæranda til nýrrar meðferðar.

Úrskurðarorð:

Ákvörðun Útlendingastofnunar í máli kæranda er felld úr gildi. Lagt er fyrir stofnunina að taka mál kæranda til meðferðar á ný.

The decision of the Directorate of Immigration is vacated. The Directorate is instructed to re-examine the appellant‘s case.

Valgerður María Sigurðardóttir

Vera Dögg Guðmundsdóttir

Var efnið hjálplegt?