13. nóvember 2025 /

Úrskurður nr. 860/2025

Hinn 13. nóvember 2025 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 860/2025

Í stjórnsýslumáli nr. KNU25020109

Kæra [...]

  1. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 24. febrúar 2025 kærði karlmaður að nafni [...], fd. [...], ríkisborgari Afganistan (hér eftir nefndur kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 19. febrúar 2025, um að synja umsókn hans um ferðaskírteini fyrir flóttamenn.

Samkvæmt 6. mgr. 8. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 skal kærunefnd meta að nýju alla þætti kærumáls og getur ýmist staðfest ákvörðun, breytt henni eða hrundið að nokkru eða öllu leyti. Þá getur nefndin einnig vísað máli til meðferðar að nýju hjá þeirri stofnun sem tók hina kærðu ákvörðun. Auk þess fer fram skoðun á því hvort formreglum laga um útlendinga og stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hafi verið fullnægt.

Af kæru má ráða að kærandi geri kröfu um að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að kærunefnd leggi fyrir stofnunina að veita honum ferðaskírteini fyrir flóttamenn.

Kæruheimild er í 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

  1. Málsmeðferð

Kærandi kom hingað til lands og lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd 23. janúar 2018. Kærandi lagði fram afganskt vegabréf með umsókn sinni um alþjóðlega vernd með gildistíma til 23. júní 2020. Með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 19. september 2018, var kæranda veitt alþjóðleg vernd hér á landi með vísan til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Fram kemur í ákvörðuninni að kærandi hafi sannað auðkenni sitt með fullnægjandi hætti.

Hinn 8. nóvember 2024 lagði kærandi fram umsókn um ferðaskírteini fyrir flóttamenn. Með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 19. febrúar 2025, var umsókninni synjað á grundvelli a-liðar 1. mgr. 46. gr. laga um útlendinga og a-liðar 2. mgr. 5. gr. laga um vegabréf nr. 136/1998. Kærandi kærði ákvörðunina til kærunefndar 24. febrúar 2025. Kærandi lagði ekki fram greinargerð til stuðnings kæru.

  1. Málsástæður og rök kæranda

Kærandi lagði ekki fram greinargerð til stuðnings kæru.

  1. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Um kæru þessa gilda lög um útlendinga nr. 80/2016, lög um vegabréf nr. 136/1998 og reglugerð um íslensk vegabréf nr. 560/2009, auk stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi, sbr. lög nr. 10/1979, mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994 og alþjóðasamningur um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951.

Samkvæmt 3. mgr. 1. gr. laga um vegabréf gefur Útlendingastofnun út vegabréf fyrir útlendinga og ferðaskilríki fyrir flóttamenn. Samkvæmt 1. mgr. 46. gr. laga um útlendinga skal þeim sem nýtur alþjóðlegrar verndar, og dvelst eða fær að dveljast löglega í landinu, að fenginni umsókn veita ferðaskírteini fyrir flóttamenn til ferða til útlanda. Heimilt er að synja um útgáfu ferðaskírteinis þegar þær aðstæður eru fyrir hendi sem kveðið er á um í a-d-liðum ákvæðisins nánar tiltekið; aðstæður sem leiða mundu til þess að íslenskum ríkisborgara yrði ekki veitt vegabréf skv. 5. gr. laga um vegabréf, sbr. a-lið ákvæðisins; foreldrar fara saman með forsjá barns og annað þeirra hyggst fara með barnið úr landi án samþykkis hins, sbr. 5. mgr. 28. gr. a barnalaga, sbr. b-lið ákvæðisins; aðstæður sem lýst er í f-lið 1. gr. alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna, sbr. c-lið ákvæðisins; þegar útlendingurinn hefur hlotið endanlegan dóm fyrir mjög alvarlegt afbrot og er talinn hættulegur samfélaginu, sbr. d-lið ákvæðisins; ekki er staðfest hver útlendingurinn er eða vafi leikur á um hver útlendingurinn er, sbr. e-lið ákvæðisins; ástæður sem varða öryggi ríkisins eða stefnu stjórnvalda í utanríkismálum mæla gegn því, sbr. f-lið ákvæðisins.

Í athugasemdum við 1. mgr. 46. gr. í frumvarpi til laga um útlendinga kemur fram að 1. mgr. 46. gr. byggist á 48. gr. þágildandi laga um útlendinga en sé að nokkru breytt. Kveðið sé á um rétt flóttamanns til að fá útgefið ferðaskírteini fyrir flóttamenn og sé ákvæðið í samræmi við 28. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna. Greinin sé nokkuð breytt en breytingarnar feli fyrst og fremst í sér að reglugerðarheimild um synjun og afturköllun ferðaskilríkja sé felld brott en þess í stað séu þau skilyrði lögfest sem áður hafi verið sett í reglugerð. Þetta sé gert vegna þess að um ríka hagsmuni sé að ræða auk þess sem slíkt snerti 66. gr. stjórnarskrárinnar um rétt manna til komu og dvalar.

Í 1. mgr. 5. gr. laga um vegabréf nr. 136/1998 kemur fram að sé umsækjandi um vegabréf eftirlýstur af lögreglu, gefin hafi verið út handtökuskipun á hendur honum eða lagt á hann farbann samkvæmt ákvæðum laga um meðferð sakamála skuli synja um útgáfu vegabréfs. Í 2. mgr. 5. gr. laganna kemur fram að heimilt sé að synja um útgáfu vegabréfs þegar fram sé komin kæra á hendur umsækjanda fyrir refsivert brot sem ætla má að varði fangelsisrefsingu og hætta sé talin á að hann muni reyna að komast undan refsiábyrgð með því að fara úr landi eða dveljast áfram erlendis, sbr. a-lið ákvæðisins, eða þegar umsækjandi hafi verið dæmdur til fangelsisrefsingar sem ekki hafi verið afplánuð eða sætt sektarrefsingu fyrir dómi eða hjá stjórnvaldi sem hvorki hafi verið greidd né sett trygging fyrir og hætta sé á að hann muni reyna að komast hjá fullnustu refsingarinnar með því að fara úr landi eða dveljast áfram erlendis, sbr. b-lið ákvæðisins.

Líkt og að framan er rakið synjaði Útlendingastofnun umsókn kæranda um ferðaskírteini fyrir flóttamenn á grundvelli a-liðar 1. mgr. 46. gr. laga um útlendinga með vísan til ástæðna sem séu fyrir hendi sem leiða myndu til þess að íslenskum ríkisborgara yrði ekki veitt vegabréf samkvæmt 5. gr. laga um vegabréf. Í ákvörðun vísar Útlendingastofnun til upplýsinga frá lögreglu en þar kemur ekki fram að kærandi hafi verið kærður fyrir refsiverð brot, en það hafi verið mat lögreglunnar að háttsemi kæranda væri þess eðlis að ekki ætti að samþykkja umsókn um ferðaskírteini.

Líkt og að framan er rakið byggði Útlendingastofnun ákvörðun um synjun á útgáfu ferðaskírteinis á a-lið 1. mgr. 46. gr. laga um útlendinga, sbr. a-lið 2. mgr. 5. gr. laga um vegabréf. Útlendingastofnun byggði á því að það væri mat lögreglu að ekki ætti að samþykkja umsókn um ferðaskírteini. Ákvæði a-liðar 2. mgr. 5. gr. laga um vegabréf áskilur að heimilt sé að synja um útgáfu vegabréfs sé komin fram kæra á hendur umsækjanda fyrir refsivert brot sem ætla megi að varði fangelsisrefsingu. Í upplýsingum frá lögreglu til Útlendingastofnunar, dags. 6. janúar og 10. febrúar 2025, kemur ekki fram af hvaða ástæðu synja ætti kæranda um ferðaskilríki en að lögregla telji líklegt að kærandi muni reyna að komast undan refsiábyrgð með því að fara úr landi eða dveljast áfram erlendis yrði honum veitt ferðaskilríki. Ekki liggur fyrir að kærandi hafi verið kærður fyrir refsiverð brot. Þá eiga ákvæði 1. mgr. 5. gr. laga um vegabréf ekki við um mál kæranda þar sem ekki hafði verið búið að gefa út handtökuskipun á hendur honum, hann eftirlýstur eða lagt á hann farbann. Er því ljóst að synjun Útlendingastofnunar byggði á atvikum sem ekki voru í samræmi við framangreind ákvæði og ákvörðun Útlendingastofnunar því ógildanleg af þeim sökum. Þá verður ekki séð að við málsmeðferðina hafi verið gætt að almennum reglum um ferðafrelsi, líkt og áréttað er í athugasemdum við 2. mgr. 5. gr. í frumvarpi til laga um vegabréf, eða gætt að rannsóknarreglu og meðalhófsreglu stjórnsýslulaga.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, sem bárust kærunefnd 12. nóvember 2025, á kærandi engin ólokin mál í refsivörslukerfinu. Samkvæmt framansögðu kemur a-liður 1. mgr. 46. gr. laga um útlendinga, sbr. 5. gr. laga um vegabréf, því ekki í veg fyrir að kærandi fái útgefið ferðaskírteini.

Af málsmeðferð og ákvörðun Útlendingastofnunar verður ráðið að kæranda hafi ekki verið veitt færi á að leggja fram andmæli við framangreindum upplýsingum lögreglu í samræmi við 13. gr. stjórnsýslulaga. Er gerð athugasemd við framangreindan annmarka á málsmeðferð stofnunarinnar.

Er ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja útgáfu ferðaskírteinis í máli kæranda á grundvelli a-liðar 1. mgr. 46. gr. laga um útlendinga felld úr gildi og lagt fyrir Útlendingastofnun að taka mál kæranda til nýrrar meðferðar.

Úrskurðarorð:

Ákvörðun Útlendingastofnunar í máli kæranda er felld úr gildi. Lagt er fyrir stofnunina að taka mál kæranda til meðferðar á ný.

The decision of the Directorate of Immigration is vacated. The Directorate is instructed to re-examine the appellant‘s case.

Valgerður María Sigurðardóttir

Vera Dögg Guðmundsdóttir

Var efnið hjálplegt?