Úrskurður nr. 864/2025
Hinn 13. nóvember 2025 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 864/2025
Í stjórnsýslumáli nr. KNU25010004
Kæra [...]
- Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn 1. janúar 2025 kærði einstaklingur er kveðst heita [...], vera fædd [...] og vera ríkisborgari Sómalíu (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 19. desember 2024, um að synja umsókn hennar um ferðaskírteini fyrir flóttamenn.
Samkvæmt 6. mgr. 8. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 skal kærunefnd meta að nýju alla þætti kærumáls og getur ýmist staðfest ákvörðun, breytt henni eða hrundið að nokkru eða öllu leyti. Þá getur nefndin einnig vísað máli til meðferðar að nýju hjá þeirri stofnun sem tók hina kærðu ákvörðun. Auk þess fer fram skoðun á því hvort formreglum laga um útlendinga og stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hafi verið fullnægt.
Kærandi krefst þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að Útlendingastofnun verði gert að gefa út ferðaskírteini.
Kæruheimild er í 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.
- Málsmeðferð
Kærandi kom hingað til lands og lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd 4. nóvember 2021. Kærandi lagði ekki fram vegabréf með umsókn sinni um alþjóðlega vernd en fram kemur að hún hafi greint frá því að vegabréf hennar hafi verið tekið af henni á leið hennar til Íslands. Með ákvörðun Útlendingastofnunar 18. mars 2022 var kæranda veitt viðbótarvernd samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Fram kemur í ákvörðuninni að kærandi hafi ekki lagt fram gögn sem væru til þess fallin að sanna á henni deili. Yrði því leyst úr auðkenni hennar á grundvelli trúverðugleikamats. Var lagt til grundvallar að kærandi væri frá Sómalíu með vísan til framburðar hennar.
Hinn 25. júní 2024 lagði kærandi fram umsókn um ferðaskírteini fyrir flóttamenn. Með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 19. desember 2024, var umsókninni synjað á grundvelli e- og f-liða 1. mgr. 46. gr. laga um útlendinga með vísan til þess að kærandi hefði ekki sannað á sér deili með fullnægjandi hætti og að ástæður sem varði öryggi ríkisins eða stefnu stjórnvalda í utanríkismálum mæli gegn því. Kærandi kærði ákvörðunina til kærunefndar 1. janúar 2025. Kærandi lagði fram greinargerð 15. janúar 2025. Þá lagði kærandi fram frekari gögn og upplýsingar 1. september og 11. nóvember 2025.
- Málsástæður og rök kæranda
Í greinargerð kæranda er vísað til málsatvika og málsmeðferðar kæranda hjá Útlendingastofnun vegna umsóknar um alþjóðlega vernd og umsóknar um ferðaskírteini. Kærandi áréttar að hún hafi áður fengið útgefið ferðaskírteini án vandkvæða.
Kærandi telur það óhóflega kröfu að ætlast til þess að hún leggi mikið á sig við að afla gagna frá Sómalíu sem hún hafi útskýrt að hún hafi ekki aðgang að, til þess eins að þau komi til Íslands og verði ekki metin áreiðanleg. Kærandi vísar til upplýsinga og heimilda í minnisblaði skilríkjarannsóknarstofu Lögreglustjórans á Suðurnesjum frá maí 2022 um almennan áreiðanleika gagna frá Sómalíu. Í ákvörðun Útlendingastofnunar virðist stofnunin kalla eftir hverskonar gögnum frá Sómalíu en í því skyni bendir kærandi á að hún hefur lagt fram stimplað dánarvottorð frá Sómalíu, ljósmyndir af fjölskyldumeðlimum og samskipti við móður sína. Kærandi telur að synjun Útlendingastofnunar byggist á ómálefnalegri og óraunhæfri forsendu sem ríkisborgarar Sómalíu geti almennt ekki uppfyllt.
Kærandi telur að hin kærða ákvörðun feli í sér brot gegn meðalhófsreglu 12. gr. stjórnsýslulaga. Kæranda sé beinlínis meinað um ferðir frá Íslandi auk þess sem órannsakað sé og ekki í samræmi við meðalhóf að stofnunin kanni ekki möguleika á því að binda útgáfu ferðaskírteinis við tiltekið svæði, sbr. 3. mgr. 16. gr. reglugerðar um vegabréf. Þá fáist ekki séð hvers vegna kærandi fái nú synjun á umsókn um ferðaskírteini þegar hún hafi hlotið ferðaskírteini áður án vandkvæða. Ekkert hafi breyst á högum kæranda, né heldur í lagaumhverfinu eða markmiðum stjórnvalda varðandi mat á e-lið 1. mgr. 46. gr. laga um útlendinga. Kærandi vísar til þess að ekki hafi verið tilkynnt um framangreindar breytingar og sé um að ræða brot á meginreglu stjórnsýsluréttar um breytta stjórnsýsluframkvæmd enda hafi kærandi haft réttmætar væntingar til að hljóta ferðaskírteini. Þá telur kærandi að hin kærða ákvörðun feli í sér brot gegn 11. gr. stjórnsýslulaga og 65. gr. stjórnarskrár. Ákvörðunin feli í sér ósambærilega meðferð við aðra í sambærilegri stöðu, þ.e. handhafa viðbótarverndar sem ekki eru af sómölskum uppruna.
Kærandi telur að hin kærða ákvörðun feli í sér ólögmæta takmörkun á ferðafrelsi hennar samkvæmt 3. og 4. mgr. 66. gr. stjórnarskrár. Þrátt fyrir að kveðið sé á um takmarkanir á ferðafrelsi útlendinga í lögum um útlendinga megi beiting slíkra lagafyrirmæla í framkvæmd ekki koma niður á útlendingum í formi mismununar. Allar takmarkanir á mannréttindum verði að túlka þröngt. Við meðferð Útlendingastofnunar í máli kæranda virðist þær túlkaðar verulega rúmt. Kærandi telur lagabeitingu Útlendingastofnunar á 1. mgr. 46. gr. laga um útlendinga ekki rúmast innan þeirrar þröngu undantekningar sem lögmætt sé að gera á ferðafrelsi. Þá séu ekki hlutlægar og réttlætanlegar ástæður fyrir mismunandi meðferð kæranda miðað við aðra löglega dvalarleyfishafa á Íslandi.
- Niðurstaða kærunefndar útlendingamála
Um kæru þessa gilda lög um útlendinga nr. 80/2016, lög um vegabréf nr. 136/1998 og reglugerð um íslensk vegabréf nr. 560/2009, auk stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi, sbr. lög nr. 10/1979, mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994 og alþjóðasamningur um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951.
Samkvæmt 3. mgr. 1. gr. laga um vegabréf gefur Útlendingastofnun út vegabréf fyrir útlendinga og ferðaskilríki fyrir flóttamenn. Samkvæmt 1. mgr. 46. gr. laga um útlendinga skal þeim sem nýtur alþjóðlegrar verndar, og dvelst eða fær að dveljast löglega í landinu, að fenginni umsókn veita ferðaskírteini fyrir flóttamenn til ferða til útlanda. Heimilt er að synja um útgáfu ferðaskírteinis þegar þær aðstæður eru fyrir hendi sem kveðið er á um í a-d-liðum ákvæðisins nánar tiltekið; aðstæður sem leiða mundu til þess að íslenskum ríkisborgara yrði ekki veitt vegabréf skv. 5. gr. laga um vegabréf, sbr. a-lið ákvæðisins; foreldrar fara saman með forsjá barns og annað þeirra hyggst fara með barnið úr landi án samþykkis hins, sbr. 5. mgr. 28. gr. a barnalaga, sbr. b-lið ákvæðisins; aðstæður sem lýst er í f-lið 1. gr. alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna, sbr. c-lið ákvæðisins; þegar útlendingurinn hefur hlotið endanlegan dóm fyrir mjög alvarlegt afbrot og er talinn hættulegur samfélaginu, sbr. d-lið ákvæðisins; ekki er staðfest hver útlendingurinn er eða vafi leikur á um hver útlendingurinn er, sbr. e-lið ákvæðisins; ástæður sem varða öryggi ríkisins eða stefnu stjórnvalda í utanríkismálum mæla gegn því, sbr. f-lið ákvæðisins.
Í athugasemdum við 1. mgr. 46. gr. í frumvarpi til laga um útlendinga kemur fram að 1. mgr. 46. gr. byggist á 48. gr. þágildandi laga um útlendinga en sé að nokkru breytt. Kveðið sé á um rétt flóttamanns til að fá útgefið ferðaskírteini fyrir flóttamenn og sé ákvæðið í samræmi við 28. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna. Greinin sé nokkuð breytt en breytingarnar feli fyrst og fremst í sér að reglugerðarheimild um synjun og afturköllun ferðaskilríkja sé felld brott en þess í stað séu þau skilyrði lögfest sem áður hafi verið sett í reglugerð. Þetta sé gert vegna þess að um ríka hagsmuni sé að ræða auk þess sem slíkt snerti 66. gr. stjórnarskrárinnar um rétt manna til komu og dvalar.
Í 9. mgr. 46. gr. laganna er kveðið á um heimild ráðherra til að setja í reglugerð nánari ákvæði um útgáfu, gildissvið og endurnýjun ferðaskírteinis fyrir flóttamenn og vegabréfs fyrir útlendinga og nánari skilyrði í þessu sambandi. Í 11. gr. laga um vegbréf, nr. 136/1998 er jafnframt að finna heimild fyrir ráðherra að setja reglugerð um framkvæmd þeirra laga m.a. nánari ákvæði um framkvæmd laganna. Þar skuli meðal annars kveðið á um heimild til að gefa út vegabréf til útlendinga og ferðaskilríki fyrir flóttamenn, sbr. f-lið ákvæðisins. Í VII. kafla reglugerðar um íslensk vegabréf er fjallað um vegabréf til útlendinga og ferðaskilríki fyrir flóttamenn. Í 1. mgr. 17. gr. reglugerðarinnar kemur fram að Útlendingastofnun sé heimilt að gefa út ferðaskilríki fyrir flóttamenn. Ferðaskilríki skuli einungis gefið út til þeirra sem stjórnvöld hafi viðurkennt að hafi stöðu flóttamanna hér á landi og dveljist löglega hérlendis, sbr. 28. gr. samnings um stöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951. Í 2. mgr. 17. gr. kemur fram að gildi ferðaskilríki fyrir flóttamann megi binda við tiltekið svæði. Einnig megi gefa slíkt skilríki út með skemmri gildistíma en mælt er fyrir um í 1. mgr. 18. gr. reglugerðarinnar.
Líkt og að framan er rakið synjaði Útlendingastofnun umsókn kæranda um ferðaskírteini fyrir flóttamenn á grundvelli e-liðar 1. mgr. 46. gr. laga um útlendinga með vísan til þess að vafi leiki á um auðkenni kæranda og með vísan til f-liðar 1. mgr. 46. gr. laganna vegna ástæðna sem varði öryggi ríkisins eða stefnu stjórnvalda í utanríkismálum sem mæli gegn útgáfu ferðaskírteinis. Í ákvörðun vísar Útlendingastofnun m.a. til þess að vafi um auðkenni kæranda sé það verulegur að ekki sé unnt að líta fram hjá honum við úrlausn málsins. Einnig er vísað til stefnu íslenskra stjórnvalda um að koma í veg fyrir misnotkun opinberra skilríkja og þess að ekki sé unnt að ætlast til þess að íslensk stjórnvöld gefi út skjal sem opinberlega staðfesti auðkenni í ljósi þess mikla vafa sem sé uppi um auðkenni hennar.
Fram kemur í dagbókarfærslum Útlendingastofnunar að kærandi hafi einu sinni áður fengið útgefið ferðaskilríki og að umsókn sú sem hér er til meðferðar sé önnur umsókn kæranda. Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að í október 2024 hafi vinnsla á umsókn um ferðaskírteini færst yfir á verndarsvið og með umræddri breytingu hafi ætlunin verið sú að vanda vinnsluna enn frekar og leggja ítarlegra mat á hverja umsókn fyrir sig. Í greinargerð eru gerðar athugasemdir við framangreinda framkvæmd og vísað til þess að kærandi hafi haft réttmætar væntingar til þess að umsókn hennar um ferðaskírteini yrði samþykkt í ljósi þess að hún hafi áður fengið útgefið ferðaskírteini. Kærunefnd tekur undir með kæranda að það að verkefni færist á milli deilda innan sömu stofnunar eigi ekki eitt og sér að leiða til þess að breyting verði á afgreiðslu mála. Ljóst er þó að fyrri framkvæmd Útlendingastofnunar var ekki í fullu samræmi við ákvæði laga um útlendinga og því ekki til þess fallin að skapa kæranda aukinn rétt umfram ákvæði laga um útlendinga. Verður því ekki fallist á að vandaðri meðferð Útlendingastofnunar á umsóknum um ferðaskírteini og vegabréf skv. 46. gr. laga um útlendinga brjóti gegn meðalhófsreglu eða jafnræðisreglu stjórnsýslulaga. Það er í samræmi við e-lið 1. mgr. 46. gr. laga um útlendinga að gera þá kröfu til kæranda að hún leggi fram gögn sem leiði líkum að auðkenni sínu. Gat kærandi því ekki haft réttmætar væntingar um aðra niðurstöðu í máli sínu.
Ákvörðun um synjun á útgáfu ferðaskírteinis er íþyngjandi ákvörðun. Við beitingu á e-lið 1. mgr. 46. gr. laga um útlendinga þarf að gæta meðalhófs og taka mið af rétti einstaklings til ferðafrelsis, sbr. 3. mgr. 66. gr. stjórnarskrár. Ákvæði e-liðar 1. mgr. 46. gr. laga um útlendinga gerir ekki þá fortakslausu kröfu að auðkenni sé óvéfengjanlegt heldur að nægar líkur hafi verið leiddar að auðkenni útlendings, svo sem um heimaríki, búsetu í heimaríki og bakgrunn. Þannig búa önnur sjónarmið að baki ákvæðinu en þegar mat er lagt á auðkenni við umsókn um alþjóðlega vernd eða mannúðarvernd. Þarf jafnframt að taka til skoðunar hvernig stöðu og útgáfu skilríkja í heimaríki viðkomandi útlendings sé háttað og hvort hann geti yfirhöfuð aflað sér fullgildra gagna frá heimaríki um auðkenni sitt. Þá verður við beitingu á e-lið 1. mgr. 46. gr. laga um útlendinga jafnframt að hafa í huga að það kann að vera fyrir hendi ákveðinn ómöguleiki fyrir einstakling með alþjóðlega vernd að afla trúverðugra gagna um auðkenni frá heimaríki.
Í ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 18. mars 2022, vegna umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd, kemur fram að kærandi hafi ekki lagt gögn fram til að sanna á sér deili og yrði því leyst úr auðkenni kæranda á grundvelli trúverðugleikamats. Kærandi hafi greint frá því að vera fædd [...]. Með vísan til frásagnar kæranda var ekki dregið í efa að kærandi væri frá Sómalíu. Af málsmeðferð Útlendingastofnunar vegna umsóknar um ferðaskírteini verður ráðið að rannsókn hafi farið fram á auðkenni kæranda og henni veitt færi á að leggja fram gögn sem leitt gætu líkum að auðkenni hennar og henni leiðbeint um að leggja fram skýringar væri henni alls ókleift að afla frekari gagna. Í tölvubréfi kæranda til Útlendingastofnunar, dags. 13. nóvember 2024, vísaði hún til þess að hún ætti ekki afturkvæmt til Sómalíu og geti þar af leiðandi ekki aflað frekari gagna frá þarlendum stjórnvöldum um auðkenni sitt. Kærandi vísaði til upplýsinga og þeirra heimilda er varði almennan áreiðanleika skilríkja frá Sómalíu. Kærandi telji það ósanngjarnt að leggja þá kröfu á hana að afla slíkra gagna þar sem almennan fyrirvara verði að setja á áreiðanleika sómalskra skjala.
Í greinargerð kæranda er vísað til þess að hjá Útlendingastofnun hafi kærandi lagt fram dánarvottorð frá Sómalíu. Um er að ræða gagn sem var lagt fram vegna umsóknar móður kæranda og tveggja bræðra hennar um fjölskyldusameiningu við kæranda. Framangreint dánarvottorð getur ekki til um auðkenni kæranda. Verður það því ekki talið hafa þýðingu í málinu. Við meðferð málsins hjá kærunefnd lagði kærandi fram skjal sem hún byggir á að sé fæðingarvottorð hennar, útgefið af sómalska sendiráðinu í Frakklandi. Kærandi lagði ekki fram frumrit af umræddu skjali og inniheldur það ekki lögformlega staðfestingu. Skjalið uppfyllir því ekki þær kröfur sem gerðar eru til skjala sem ætlað er að staðfesta auðkenni. Kæranda var veitt færi á að leggja fram frumrit af umræddu skjali auk þess að leggja fram skýringar á því hvernig hún hafi aflað skjalsins. Kærandi bar fyrir sig að hún hafi átt samskipti við starfsmann sendiráðsins í gegnum samskiptaforrit og að hún hafi fengið skjalið sent með tölvupósti en ekki fengið afhent frumrit. Kærandi lagði hvorki fram skjáskot af umræddum samskiptum né svaraði spurningum um það hvaða gögn eða upplýsingar hafi legið að baki útgáfu þess. Með hliðsjón af framangreindu verður ekki talið að framlagt skjal hafi þýðingu fyrir mál kæranda.
Við meðferð málsins hefur kærandi ekki lagt fram áreiðanleg gögn sem leiða líkum að auðkenni hennar. Kærandi hefur ekki sýnt fram á að hún geti ekki fengið gögn frá heimaríki eða sendiráði þess sem varpa einhverju ljósi á eða renna stoðum undir auðkenni hennar. Við meðferð málsins hefur kærandi fengið skýrar leiðbeiningar hjá Útlendingastofnun og nægt ráðrúm til að afla umbeðinna gagna, sem hún hefur ekki gert með fullnægjandi hætti. Þess skal getið að móðir kæranda og bræður lögðu fram umsóknir um fjölskyldusameiningu við kæranda þar sem lögð voru fram ýmis gögn útgefin af sómölskum yfirvöldum en sú framlagning gagna ber með sér að móður kæranda sé kleift að afla gagna frá sómölskum yfirvöldum og ætti því að geta verið kæranda innan handar að afla frekari gagna. Þar sem engin gögn liggja fyrir sem leiða líkum að auðkenni kæranda eða sem sýna fram á að henni sé ómögulegt að afla gagna um auðkenni er óhjákvæmilegt að staðfesta niðurstöðu Útlendingastofnunar um að synja útgáfu ferðaskírteinis í máli kæranda, sbr. e-lið 1. mgr. 46. gr. laga um útlendinga.
Ekki verður talið að ákvörðun Útlendingastofnunar brjóti gegn 11. gr. stjórnsýslulaga og 65. gr. stjórnarskrár með vísan til þess að ríkisborgarar Sómalíu eigi erfiðara með að uppfylla kröfu um að sýna fram á auðkenni en aðrir dvalarleyfishafar. Ljóst er að sú krafa er gerð til umsækjenda um ferðaskírteini óháð uppruna og þrátt fyrir að almennur fyrirvari sé gerður við áreiðanleika skjala frá Sómalíu er ekki talið ósanngjarnt að gera þá kröfu að umsækjendur leggi fram lágmarks gögn sem varpi ljósi á auðkenni. Af þeim sökum verður ekki fallist á að ekki hafi verið gætt að 11. gr. stjórnsýslulaga við meðferð málsins.
Að teknu tilliti til framangreindrar niðurstöðu verður ekki fallist á með kæranda að um sé að ræða ólögmæta skerðingu á ferðafrelsi kæranda, sbr. 3. mgr. 66. gr. stjórnarskrár, eða að hin kærða ákvörðun brjóti gegn meðalhófsreglu 12. gr. stjórnsýslulaga. Kærandi hefur ekki lagt fram umbeðin gögn og eru skilyrði fyrir útgáfu ferðaskírteinis þar með ekki fyrir hendi.
Í ákvörðun Útlendingastofnunar er vísað til þess að synjun um útgáfu ferðaskírteinis sé einnig byggð á f-lið 1. mgr. 46. gr. laga um útlendinga. Fram kemur að það sé mat Útlendingastofnunar að í ljósi stefnu íslenskra stjórnvalda um að koma í veg fyrir misnotkun opinberra skilríkja, sbr. f-lið 1. mgr. 46. gr. laga um útlendinga, sé ekki unnt að ætlast til þess að íslensk stjórnvöld gefi út skjal sem opinberlega staðfesti auðkenni í ljósi þess að vafi sé uppi um auðkenni kæranda.
Í f-lið 1. mgr. 46. gr. laga um útlendinga segir að heimilt sé að synja um útgáfu ferðaskírteinis þegar ástæður sem varða öryggi ríkisins eða stefnu í utanríkismálum mæli gegn því. Ekki er skilgreint nánar í ákvæðinu né athugasemdum við ákvæðið í frumvarpi til laga um útlendinga hvaða ástæður geti varðað öryggi ríkisins eða stefnu í utanríkismálum sem mæli gegn útgáfu ferðaskírteinis. Á vef Stjórnarráðs Íslands varðandi stefnur og áætlanir íslenskra stjórnvalda kemur fram að opinber stefna stjórnvalda birtist með formlegum hætti m.a. í lögum, reglugerðum, þingsályktunum, stjórnarsáttmálum, málefnasviðsstefnum, aðgerðaáætlunum og samningum. Í ákvörðun Útlendingastofnunar er ekki rökstutt nánar að hvaða leyti stefna í utanríkismálum íslenskra stjórnvalda mæli gegn því að gefið verði út ferðaskírteini í máli kæranda, að undanskildri tilvísun til stefnu íslenskra stjórnvalda um að koma í veg fyrir misnotkun opinberra skilríkja án þess að tilgreina það með nánari hætti. Þrátt fyrir að kærandi hafi ekki leitt líkum að auðkenni sínu og komist hafi verið að þeirri niðurstöðu að ferðaskírteini verði ekki gefið út á þeim grundvelli, verður það ekki talið leiða til þess eitt og sér að útgáfa ferðaskírteinis í slíkum aðstæðum stríði gegn stefnu íslenskra stjórnvalda um að koma í veg fyrir misnotkun opinberra skilríkja. Hafa ber hliðsjón af eðli mála af þessu tagi og framangreindum sjónarmiðum að baki e-liðar 1. mgr. 46. gr. laga um útlendinga og 3. mgr. 66. gr. stjórnarskrár. Verður því ekki fallist á að unnt sé að synja útgáfu ferðaskírteinis í máli kæranda á grundvelli f-liðar 1. mgr. 46. gr. laga um útlendinga.
Að öllu framangreindu virtu er ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja útgáfu ferðaskírteinis í máli kæranda á grundvelli e-liðar 1. mgr. 46. gr. laga um útlendinga staðfest.
Úrskurðarorð:
Ákvörðun Útlendingastofnunar í máli kæranda er staðfest.
The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.
Valgerður María Sigurðardóttir
Vera Dögg Guðmundsdóttir