8. janúar 2026 /

Úrskurður nr. 5/2026

Hinn 8. janúar 2026 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 5/2026

Í stjórnsýslumáli nr. KNU25030058

Kæra [...]

  1. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 17. mars 2025 kærði karlmaður er kveðst heita [...], vera fæddur [...] og vera ríkisborgari Sómalíu (hér eftir nefndur kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 3. mars 2025, um að synja umsókn hans um ferðaskírteini fyrir flóttamenn.

Samkvæmt 6. mgr. 8. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 skal kærunefnd meta að nýju alla þætti kærumáls og getur ýmist staðfest ákvörðun, breytt henni eða hrundið að nokkru eða öllu leyti. Þá getur nefndin einnig vísað máli til meðferðar að nýju hjá þeirri stofnun sem tók hina kærðu ákvörðun. Auk þess fer fram skoðun á því hvort formreglum laga um útlendinga og stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hafi verið fullnægt.

Kærandi krefst þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að Útlendingastofnun verði gert að gefa út ferðaskírteini honum til handa.

Kæruheimild er í 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

  1. Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd 4. nóvember 2021. Með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 22. febrúar 2022, var kæranda veitt alþjóðleg vernd með vísan til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærandi hafði ekki sannað á sér deili en byggt var á því með vísan til niðurstaðna tungumála- og staðarháttaprófs að hann kæmi frá Sómalíu.

Hinn 12. mars 2024 lagði kærandi fram umsókn um ferðaskírteini fyrir flóttamenn. Með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 3. mars 2025, var umsókninni synjað á grundvelli c- og f-liða 1. mgr. 46. gr. laga um útlendinga. Kærandi kærði ákvörðunina til kærunefndar 17. mars 2025. Greinargerð kæranda barst 31. mars 2025. Þá bárust frekari gögn frá kæranda 26. maí 2025.

  1. Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda kemur fram að í ljósi niðurstaðna úr tungumála- og staðarháttarprófi hafi ekki verið efast um auðkenni kæranda og lagt til grundvallar að hann væri ríkisborgari Sómalíu. Hér sé um að ræða aðra umsókn kæranda um ferðaskírteini en hann hafi áður fengið útgefið ferðaskírteini vandkvæðalaust. Kærandi byggir á því að hin kærða ákvörðun Útlendingastofnunar sé efnislega og formlega röng og haldin verulegum ógildingarannmörkum vegna brota á reglum stjórnsýsluréttar. Kærandi byggir einkum á því að hin kærða ákvörðun brjóti í bága við réttmætar væntingar, meginreglu um breytingar á stjórnsýsluframkvæmd, meðalhófsreglu, jafnræðisreglu og stjórnarskrárvarin réttindi hans til ferðafrelsis, sbr. 3. og 4. mgr. 66. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944.

Í hinni kærðu ákvörðun leggi Útlendingastofnun þá kröfu á kæranda að leggja fram frekari gögn um auðkenni hans en komist sé að þeirri niðurstöðu að vafi sé um auðkenni kæranda, þ. á m. nafn hans og fæðingardag og að hann hafi ekki lagt fram trúverðug gögn sem leiði að því líkum að hann sé sá sem hann segist vera. Þá sé einnig horft til þess að kærandi hafi að mati stofnunarinnar ekki gefið fullnægjandi skýringar á því hvers vegna honum sé ókleift að afla trúverðugra gagna sem gætu leitt líkum að auðkenni hans. Kærandi vísar til þess að af sömu ástæðum og hann hafi hlotið viðbótarvernd gefist honum ekki færi á að afla frekari auðkennisgagna að svo stöddu. Þá vísar kærandi til fyrri skýringa um skilríki á vegum smyglara sem hafi komið honum hingað til lands. Kærandi telji hina kærðu ákvörðun ekki taka fullnægjandi tillit til aðstæðna hans að því leytinu til. Þá byggir kærandi á því að sama hvaða gögn hann kynni að færa fram yrði ávallt gerður fyrirvari um áreiðanleika þeirra. Kærandi telji það óhóflega kröfu að ætlast til að hann leggi mikið á sig við að afla gagna frá Sómalíu sem hann hafi ekki aðgang að, til þess eins að þau verði ekki metin áreiðanleg. Kærandi vísar til upplýsinga og heimilda í minnisblaði skilríkjarannsóknarstofu Lögreglunnar á Suðurnesjum frá maí árið 2022 um almannaskráningu í Sómalíu. Kærandi beri ekki ábyrgð á almannaskráningu í Sómalíu og geti ekkert gert í ólestri þeirra. Um sé að ræða hluta af uppruna kæranda sem verði ekki breytt og sé óháður athöfnum hans. Kærandi telji því synjun Útlendingastofnunar á grundvelli e-liðar 1. mgr. 46. gr. laga um útlendinga byggjast á ómálefnalegri og óraunhæfri forsendu sem ríkisborgarar Sómalíu geti ekki uppfyllt.

Með vísan til þess að kærandi hafi nær enga möguleika til að sanna auðkenni sitt telur kærandi að um sé að ræða brot á meðalhófsreglu 12. gr. stjórnsýslulaga. Kæranda sé meinað að ferðast frá Íslandi og telur kærandi órannsakað og ekki í samræmi við meðalhóf að stofnunin kanni ekki möguleika á að binda útgáfu ferðaskírteinis við tiltekið svæði, sbr. einnig 3. mgr. 16. gr. reglugerðar um íslensk vegabréf nr. 560/2009, með síðari breytingum. Kærandi telji slíkt íþyngjandi og ólögmæta takmörkun á stjórnarskrárvörðu ferðafrelsi hans. Þá fái kærandi ekki séð af hvaða ástæðu kæranda sé synjað um útgáfu ferðaskírteinis þegar hann hafi áður hlotið ferðaskírteini án vandkvæða. Ekkert hafi breyst í högum kæranda og ekki hafi lagaumhverfi eða markmið stjórnvalda við að fylgja e-lið 1. mgr. 46. gr. laga um útlendinga tekið breytingum. Val á aðferð við að fylgja markmiðum stjórnvalda sem liggi að baki e-lið 1. mgr. 46. gr. laga um útlendinga ætti ekki að breytast á svo skömmum tíma líkt og raun beri vitni í máli kæranda. Útlendingastofnun vísi til ítarlegra mats á ferðaskilríkjum en slík breyting á stjórnsýsluframkvæmd innan sömu ríkisstofnunar geti ekki réttlætt ólíka meðferð í ákvörðunum sem séu sama efnis í máli kæranda. Kærandi hafi ríka hagsmuni af því að geta treyst réttmætum væntingum sem stafi frá nýlegri meðferð á máli hans frá Útlendingastofnun.

Kærandi telur hina kærðu ákvörðun fela í sér brot á 11. gr. stjórnsýslulaga og 65. gr. stjórnarskrárinnar. Kæranda sé meinað að ferðast og sú ákvörðun feli í sér ósambærilega meðferð við aðra í sambærilegri stöðu og hann, þ.e. aðra handhafa alþjóðlegrar verndar sem ekki séu af sómalískum uppruna. Kærandi telji hlutlægar og málefnalegar réttlætingarástæður liggja að baki því að kærandi sé beittur mismunandi meðferð og aðrir handhafar alþjóðlegrar verndar. Þá sé raunveruleiki margra flóttamanna að þeir geti ekki sannað á sér deili sem sé viðurkennt berum orðum í Flóttamannasamningi Sameinuðu þjóðanna sem íslenskum stjórnvöldum beri að skýra lög um útlendinga til hliðsjónar af.

Kærandi dvelji löglega á Íslandi, sbr. 3. og 4. mgr. 66. gr. stjórnarskrárinnar og njóti því stjórnarskrárvarins ferðafrelsis á við aðra í sömu stöðu hér á landi. Ferðafrelsi kæranda sé beinlínis útilokað utan íslenskrar lögsögu. Með vísan til þess sé um brot á ýmsum meginreglum stjórnsýsluréttar að ræða og því byggt á því að hin kærða ákvörðun feli í sér ólögmæta takmörkun á ferðafrelsi hans, sbr. 3. og 4. mgr. 66. gr. stjórnarskrárinnar. Slíkar takmarkanir á mannréttindum verði aðeins viðhafðar að virtu mati á meðalhófi þar sem vegin séu saman þau einstaklingsréttindi sem séu í húfi og markmið og aðferð ríkisins að baki réttindaskerðingunni, en allar takmarkanir á mannréttindum beri að túlka þröngt. Kærandi telji beitingu Útlendingastofnunar á 1. mgr. 46. gr. laga um útlendinga ekki rúmast innan þeirra þröngu undantekninga sem lögmætt sé að gera á ferðafrelsi og að ekki séu hlutlægar og réttlætanlegar ástæður fyrir mismunandi meðferð kæranda á við aðra löglega dvalarleyfishafa á Íslandi. Þá sé ekki nægilegt að fyrir hendi sé lagaheimild til að synja kæranda um ferðaskilríki, heldur verði réttindaskerðing sem þessi að gæta meðalhófs og jafnræðis. Með vísan til framangreinds gerir kærandi þá kröfu að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að Útlendingastofnun verði gert að gefa út ferðaskilríki honum til handa.

  1. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Um kæru þessa gilda lög um útlendinga nr. 80/2016, lög um vegabréf nr. 136/1998 og reglugerð um íslensk vegabréf nr. 560/2009, auk stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi, sbr. lög nr. 10/1979, mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994 og alþjóðasamningur um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951.

Samkvæmt 3. mgr. 1. gr. laga um vegabréf gefur Útlendingastofnun út vegabréf fyrir útlendinga og ferðaskilríki fyrir flóttamenn. Samkvæmt 1. mgr. 46. gr. laga um útlendinga skal þeim sem nýtur alþjóðlegrar verndar, og dvelst eða fær að dveljast löglega í landinu, að fenginni umsókn veita ferðaskírteini fyrir flóttamenn til ferða til útlanda. Heimilt er að synja um útgáfu ferðaskírteinis þegar þær aðstæður eru fyrir hendi sem kveðið er á um í a-d-liðum ákvæðisins nánar tiltekið; aðstæður sem leiða mundu til þess að íslenskum ríkisborgara yrði ekki veitt vegabréf skv. 5. gr. laga um vegabréf, sbr. a-lið ákvæðisins; foreldrar fara saman með forsjá barns og annað þeirra hyggst fara með barnið úr landi án samþykkis hins, sbr. 5. mgr. 28. gr. a barnalaga, sbr. b-lið ákvæðisins; aðstæður sem lýst er í f-lið 1. gr. alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna, sbr. c-lið ákvæðisins; þegar útlendingurinn hefur hlotið endanlegan dóm fyrir mjög alvarlegt afbrot og er talinn hættulegur samfélaginu, sbr. d-lið ákvæðisins; ekki er staðfest hver útlendingurinn er eða vafi leikur á um hver útlendingurinn er, sbr. e-lið ákvæðisins; ástæður sem varða öryggi ríkisins eða stefnu stjórnvalda í utanríkismálum mæla gegn því, sbr. f-lið ákvæðisins.

Í athugasemdum við 1. mgr. 46. gr. í frumvarpi til laga um útlendinga kemur fram að 1. mgr. 46. gr. byggist á 48. gr. þágildandi laga um útlendinga en sé að nokkru breytt. Kveðið sé á um rétt flóttamanns til að fá útgefið ferðaskírteini fyrir flóttamenn og sé ákvæðið í samræmi við 28. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna. Greinin sé nokkuð breytt en breytingarnar feli fyrst og fremst í sér að reglugerðarheimild um synjun og afturköllun ferðaskilríkja sé felld brott en þess í stað séu þau skilyrði lögfest sem áður hafi verið sett í reglugerð. Þetta sé gert vegna þess að um ríka hagsmuni sé að ræða auk þess sem slíkt snerti 66. gr. stjórnarskrárinnar um rétt manna til komu og dvalar.

Í 9. mgr. 46. gr. laganna er kveðið á um heimild ráðherra til að setja í reglugerð nánari ákvæði um útgáfu, gildissvið og endurnýjun ferðaskírteinis fyrir flóttamenn og vegabréfs fyrir útlendinga og nánari skilyrði í þessu sambandi. Í 11. gr. laga um vegbréf, nr. 136/1998 er jafnframt að finna heimild fyrir ráðherra að setja reglugerð um framkvæmd þeirra laga m.a. nánari ákvæði um framkvæmd laganna. Þar skuli meðal annars kveðið á um heimild til að gefa út vegabréf til útlendinga og ferðaskilríki fyrir flóttamenn, sbr. f-lið ákvæðisins. Í VII. kafla reglugerðar um íslensk vegabréf er fjallað um vegabréf til útlendinga og ferðaskilríki fyrir flóttamenn. Í 1. mgr. 17. gr. reglugerðarinnar kemur fram að Útlendingastofnun sé heimilt að gefa út ferðaskilríki fyrir flóttamenn. Ferðaskilríki skuli einungis gefið út til þeirra sem stjórnvöld hafi viðurkennt að hafi stöðu flóttamanna hér á landi og dveljist löglega hérlendis, sbr. 28. gr. samnings um stöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951. Í 2. mgr. 17. gr. kemur fram að gildi ferðaskilríki fyrir flóttamann megi binda við tiltekið svæði. Einnig megi gefa slíkt skilríki út með skemmri gildistíma en mælt er fyrir um í 1. mgr. 18. gr. reglugerðarinnar.

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur m.a. fram að heimildir beri með sér að gögn frá Sómalíu séu oft á tíðum óáreiðanleg. Það sé mat Útlendingastofnunar að sómalísk auðkennisgögn geti sjaldnast sannað auðkenni umsækjenda með óyggjandi hætti. Engu að síður sé það mat stofnunarinnar að þegar komi að umsóknum um ferðaskírteini sé ekki gerð krafa um óyggjandi sönnun auðkennis heldur að umsækjendur leiði líkum að auðkenni sínum með einhverjum hætti. Þannig taki stofnunin til skoðunar öll sómalísk gögn sem lögð séu fram þegar umsóknir um ferðaskilríki séu metnar. Gögn líkt og sómalísk fæðingarvottorð, nafnskírteini, skólaskírteini, vinnuskírteini, o.fl. geti til að mynda leitt líkum að auðkenni, þó þau séu ekki í frumriti. Samkvæmt skráningu í dagbókarfærslum Útlendingastofnunar sendi kærandi tölvubréf til Útlendingastofnunar 5. mars 2025 þar sem hann lagði fram vottorð um þjóðerni (e. Certificate of Nationality). Ákvörðun Útlendingastofnunar er dagsett 3. mars 2025 en var send kæranda með ábyrgðarbréfi 5. mars 2025 og var sendingin móttekin af kæranda 6. mars 2025. Af þeim sökum var ekki fjallað um framangreint vottorð um þjóðerni í ákvörðun Útlendingastofnunar.

Þá hefur kærandi lagt fram afrit sama skjals með stimpli sendiráðs Sómalíu í Brussel við meðferð máls hans hjá kærunefnd. Liggur því fyrir að kærandi hefur lagt fram gögn til stuðnings umsókn sinni, sem kunni að vera til þess fallin að leiða líkum að auðkenni hans. Meginmarkmið stjórnsýslukæru er að stuðla að réttaröryggi aðila máls með skoðun máls hans á tveimur stjórnsýslustigum. Með vísan til 10. gr. stjórnsýslulaga er það mat kærunefndar að málið þarfnist frekari rannsóknar að því er varðar framlagt gagn er því rétt að vísa máli kæranda aftur til meðferðar hjá Útlendingastofnun.

Að öllu framangreindu virtu er ákvörðun Útlendingastofnunar felld úr gildi og lagt fyrir stofnunina að taka málið til meðferðar á ný.

Úrskurðarorð:

Ákvörðun Útlendingastofnunar í máli kæranda er felld úr gildi. Lagt er fyrir stofnunina að taka mál kæranda til meðferðar á ný.

The decision of the Directorate of Immigration is vacated. The Directorate is instructed to re-examine the case.

Valgerður María Sigurðardóttir

Vera Dögg Guðmundsdóttir

Var efnið hjálplegt?