Úrskurður nr. 4/2026
Hinn 8. janúar 2026 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 4/2026
Í stjórnsýslumáli nr. KNU25070139
Kæra [...] og barna hennar
- Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn 11. júlí 2025 kærði kona er kveðst heita [...], vera fædd [...] og vera ríkisborgari Nígeríu (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 7. júlí 2025, um að synja umsókn kæranda og barna hennar [...], fd. [...] og [...], fd. [...], ríkisborgurum Nígeríu, um ferðaskírteini fyrir flóttamenn.
Samkvæmt 6. mgr. 8. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 skal kærunefnd meta að nýju alla þætti kærumáls og getur ýmist staðfest ákvörðun, breytt henni eða hrundið að nokkru eða öllu leyti. Þá getur nefndin einnig vísað máli til meðferðar að nýju hjá þeirri stofnun sem tók hina kærðu ákvörðun. Auk þess fer fram skoðun á því hvort formreglum laga um útlendinga og stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hafi verið fullnægt.
Kærandi krefst þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að Útlendingastofnun verði gert að gefa út ferðaskírteini henni og börnum hennar til handa.
Kæruheimild er í 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.
- Málsmeðferð
Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd 29. mars 2022. Með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 18. október 2023, var kæranda veitt alþjóðleg vernd með vísan til 74. gr. laga um útlendinga. Við komuna til landsins framvísaði kærandi vegabréfi fyrir útlendinga frá stjórnvöldum á Möltu með gildistíma til 15. júlí 2022. Að þessu virtu var það mat Útlendingastofnunar að kærandi hefði ekki sannað hver hún væri með fullnægjandi hætti.
Hinn 11. mars 2025 lagði kærandi fram umsókn um ferðaskírteini fyrir flóttamenn fyrir sig og börn sín. Með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 7. júlí 2025, var umsókninni synjað á grundvelli 3. mgr. 46. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. mgr. 16. gr. reglugerðar um íslensk vegabréf nr. 560/2009 með vísan til þess að kærandi hefði ekki sýnt fram á að geta ekki fengið útgefið ferðaskilríki frá heimaríki. Kærandi kærði ákvörðunina til kærunefndar 11. júlí 2025. Kærandi lagði ekki fram greinargerð til kærunefndar. Frekari gögn bárust frá kæranda 22. og 25. júlí 2025.
- Málsástæður og rök kæranda
Kærandi lagði ekki fram greinargerð til kærunefndar máli sínu til stuðnings. Verður því úrskurðað í málinu á grundvelli fyrirliggjandi gagna.
- Niðurstaða kærunefndar útlendingamála
Um kæru þessa gilda lög um útlendinga nr. 80/2016, lög um vegabréf nr. 136/1998 og reglugerð um íslensk vegabréf nr. 560/2009, auk stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi, sbr. lög nr. 10/1979, mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994 og alþjóðasamningur um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951.
Samkvæmt 3. mgr. 1. gr. laga um vegabréf gefur Útlendingastofnun út vegabréf fyrir útlendinga og ferðaskilríki fyrir flóttamenn. Samkvæmt 3. mgr. 46. gr. laga um útlendinga skal útlendingur sem hefur eða fær dvalarleyfi hér á landi á grundvelli umsóknar um alþjóðlega vernd, en án þess að vera veitt alþjóðleg vernd, fá vegabréf fyrir útlending til ferða til útlanda samkvæmt nánari reglum sem ráðherra setur með reglugerð. Þá má og heimila útgáfu vegabréfs fyrir útlendinga í öðrum tilvikum ef sérstakar ástæður mæla með því.
Í VII. kafla reglugerðar um íslensk vegabréf er fjallað um vegabréf til útlendinga. Í 1. mgr. 16. gr. reglugerðarinnar kemur fram að Útlendingastofnun sé heimilt að gefa út vegabréf fyrir útlendinga, sem ekki geti með öðrum hætti aflað sér vegabréfs eða annars ferðaskilríkis. Vegabréf fyrir útlending verður því aðeins gefið út að umsækjandi sé löglega búsettur hér á landi og geti sýnt fram á að hann geti ekki fengið ferðaskilríki frá heimaríki, eða að hann sé ríkisfangslaus, sbr. 2. mgr. 16. gr. reglugerðarinnar. Gildi vegabréfs fyrir útlending megi binda við tiltekið svæði. Einnig megi gefa slíkt vegabréf út með skemmri gildistíma en mælt sé fyrir um í 1. mgr. 18. gr., sbr. 3. mgr. 16. gr. reglugerðarinnar.
Líkt og að framan er rakið synjaði Útlendingastofnun umsókn kæranda um vegabréf fyrir útlending á grundvelli 2. mgr. 16. gr. reglugerðar um íslensk vegabréf með vísan til þess að kærandi hefði ekki sýnt fram á að geta ekki fengið útgefið ferðaskilríki frá heimaríki. Í eyðublaði vegna umsóknar um vegabréf fyrir útlending kemur fram að framvísa þurfi vegabréfi frá heimaríki með umsókninni. Útlendingastofnun hefur einnig gefið út vegabréf útlendings fyrir þá útlendinga sem telji sig þurfa að ferðast erlendis til að útvega vegabréf heimaríkis með skemmri gildistíma, sbr. 3. mgr. 16. gr. reglugerðar um íslensk vegabréf. Var kæranda því leiðbeint um að leggja fram staðfestingu frá þar til bærum yfirvöldum heimaríkis, líkt og ræðisskrifstofu eða sendiráði, um að hún ætti þar pantaðan tíma í þeim tilgangi að sækja um vegabréf hygðist hún gera slíkt. Kærandi lagði fram skjal hjá Útlendingastofnun sem hún kvað vera staðfestingu á bókuðum tíma hjá nígeríska sendiráðinu í Madrid sem að mati stofnunarinnar var falsað. Var skjalið því ekki lagt til grundvallar og var það niðurstaða Útlendingastofnunar að ekkert hafi komið fram í málinu sem gæfi til kynna að kærandi hafi reynt að afla sér vegabréfs eða annars ferðaskírteinis frá heimaríki.
Samkvæmt framangreindu fékk kærandi skýrar leiðbeiningar hjá Útlendingastofnun og hefur fengið nægt ráðrúm til að leggja fram umbeðin gögn, sem hún hefur ekki gert, hvorki með umsókn sinni til Útlendingastofnunar né hjá kærunefnd. Kærandi hefur því ekki sýnt fram á að hún geti ekki fengið ferðaskilríki frá heimaríki líkt og gerður er áskilnaður um í 2. mgr. 16. gr. reglugerðar um íslensk vegabréf.
Að öllu framangreindu virtu er ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja umsókn kæranda og barna hennar um útgáfu vegabréfs fyrir útlending staðfest.
Telur kærandi sig geta uppfyllt skilyrði 2. mgr. 16. gr. reglugerðar um íslensk vegabréf, um að sýna fram á að hún geti ekki fengið ferðaskilríki frá heimaríki, er kæranda leiðbeint um að hún getur lagt fram nýja umsókn um vegabréf fyrir útlending hjá Útlendingastofnun.
Úrskurðarorð:
Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.
The decision of the Directorate of Immigration is confirmed.
Valgerður María Sigurðardóttir
Vera Dögg Guðmundsdóttir