Úrskurður nr. 90/2026
Hinn 12. febrúar 2026 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 90/2026
í stjórnsýslumáli nr. KNU25120072
Beiðni [...] um endurupptöku
1. Málsatvik og málsmeðferð
Með úrskurði kærunefndar útlendingamála nr. 864/2025, dags. 13. nóvember 2025, var staðfest ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 19. desember 2024, um að synja umsókn einstaklings er kveðst heita [...], vera fædd [...] og vera ríkisborgari Sómalíu (hér eftir kærandi), um ferðaskírteini fyrir flóttamenn. Niðurstaða kærunefndar var birt fyrir kæranda sama dag.
Kærandi óskaði eftir endurupptöku málsins með tölvubréfi til kærunefndar útlendingamála, 15. desember 2025. Með beiðni kæranda um endurupptöku lagði kærandi fram fylgigögn sem voru send í áreiðanleikakönnun hjá Lögreglustjóranum á Suðurnesjum, dags. 16. desember 2025. Kærunefnd barst skjalarannsóknarskýrsla lögreglunnar með niðurstöðu áreiðanleikakönnunar 1. janúar 2026. Kæranda var veittur frestur til að leggja fram athugasemdir við framangreinda niðurstöðu 6. janúar 2026 og bárust kærunefnd athugasemdir 8. janúar 2026.
Beiðni kæranda um endurupptöku byggist á 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.
2. Málsástæður og rök kæranda
Í endurupptökubeiðni kæranda er vísað til þess að kærandi hafi nú fengið fæðingar- og persónuvottorð sín útgefin frá heimaríki. Bæði vottorðin séu keðjustimpluð og með framlagningu framangreindra vottorða hafi kærandi leitt yfirgnæfandi líkur á auðkenni sínu í skilningi e-liðar 1. mgr. 46. gr. laga um útlendinga. Kærandi gerir kröfu um að mál hennar verði endurupptekið með vísan til 24. gr. stjórnsýslulaga. Þá krefst kærandi þess að fyrri ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að stofnuninni verði gert að gefa út ferðaskírteini til handa kæranda.
3. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála
Samkvæmt 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga á aðili máls rétt á því að mál hans verði tekið upp á ný ef ákvörðun hefur byggst á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum um málsatvik eða íþyngjandi ákvörðun um boð eða bann hefur byggst á atvikum sem breyst hafa verulega frá því að ákvörðun var tekin.
Með úrskurði nr. 864/2025, dags. 13. nóvember 2025, staðfesti kærunefnd útlendingamála ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja umsókn kæranda um ferðaskírteini fyrir flóttamenn. Var það niðurstaða kærunefndar að þar sem engin gögn lægju fyrir sem leiddu líkum að auðkenni kæranda eða sem sýndu fram á að henni væri ómögulegt að afla gagna um auðkenni væri staðfest niðurstaða Útlendingastofnunar um að synja útgáfu ferðaskírteinis í máli kæranda, sbr. e-lið 1. mgr. 46. gr. laga um útlendinga.
Kærunefnd hefur farið yfir beiðni kæranda um endurupptöku með hliðsjón af fyrirliggjandi fylgiskjölum. Með beiðni kæranda um endurupptöku lagði kærandi fram fæðingar- og persónuvottorð sem hún kveður vera útgefin af sómölskum yfirvöldum. Beiðni kæranda grundvallast einkum á því að hún hafi með framlagningu framangreindra vottorða leitt líkum að auðkenni sínu í skilningi e-lið 1. mgr. 46. gr. laga um útlendinga.
Við meðferð málsins voru framangreind skjöl send í áreiðanleikakönnun hjá Lögreglustjóranum á Suðurnesjum, dags. 16. desember 2025 og barst kærunefnd skjalarannsóknarskýrsla lögreglunnar með niðurstöðu áreiðanleikakönnunar 1. janúar 2026. Samkvæmt niðurstöðu rannsóknar voru framlögð vottorð metin ótraustverkjandi. Í skýrslunni eru athugasemdir um að fingrafar á staðfestingarvottorðinu um kenni sé ógreinilegt og ónothæft til samanburðar. Á miðju staðfestingarvottorði á auðkenni sé glær, upphleyptur blettur sem ekki eigi að vera þar. Samkvæmt upplýsingum sem skilríkjarannsóknarstofa hafi aflað þurfi einstaklingar að gefa sig fram í eigin persónu til að fá fæðingarvottorð og staðfestingarvottorð um kenni útgefin í Sómalíu. Með hliðsjón af því að vottorðin sem voru til rannsóknar séu útgefin 19. nóvember 2025 og fingrafar í staðfestingarvottorðinu um kenni sé ónothæft, og í ljósi þess að ekki sé að sjá ferðir á nafni kæranda í kerfum lögreglu, megi spyrja hvort sá aðili sem vottorðin eigi að eiga við um, geti sýnt fram á ferð til Sómalíu í því skyni að fá vottorðin útgefin.
Kærandi lagði fram athugasemdir við framangreinda niðurstöðu áreiðanleikakönnunar 8. janúar 2026. Í athugasemdunum er gerð grein fyrir ferli kæranda við öflun umræddra vottorða. Kærandi greinir frá því að hafa komist í samband við sómalska einstaklinga sem hafi fengið útgefin vottorð með sama hætti. Hún hafi fengið tengiliðaupplýsingar á samskiptamiðlinum Whatsapp sem henni hafi verið sagt að tilheyrðu fulltrúum á vegum sveitarfélagsins Mógadisjú. Kærandi hafi átt samskipti við þrjá mismunandi einstaklinga við ferlið. Henni hafi verið tilkynnt að umsókn hennar hafi borist og að staðfesta þyrfti umsóknina en í því skyni hafi verið haft samband við kæranda með framangreindum samskiptamiðli og viðkomandi hafi kynnt sig sem starfsmann hjá skráningardeild sveitarfélagsins. Kærandi hafi átt myndsímtal þar sem henni hafi verið gert að setja fingraför á pappír með bláu bleki og taka ljósmynd af þeim og senda myndina með í gegnum samskiptamiðil. Kærandi hafi sent umbeðin gögn. Hún hafi fengið fæðingarvottorðið sent á pdf.-formi í gegnum samskiptamiðilinn og henni verið tilkynnt að frumritið yrði sent henni með ábyrgðapósti. Kærandi hafi fengið sendinguna í ábyrgðapósti ásamt kvittun og rakningarnúmeri sem sýni fram á að sendingin sé frá Sómalíu. Kærandi kveður sig ekki hafa haft neina ástæðu til þess að efast um að ferlið væri lögmætt. Hún hafi ekki haft ásetning um að blekkja yfirvöld heldur hafi hún verið í góðri trú um að ferlið væri lögmætt. Kærandi lagði jafnframt fram skjáskot af samskiptum sínum við framangreinda einstaklinga á samskiptamiðlinum auk nafnskírteina sem einn viðmælenda hennar hafi framvísað.
Að teknu tilliti til framangreindrar niðurstöðu áreiðanleikakönnunar Lögreglustjórans á Suðurnesjum, þar sem m.a. kemur fram að vottorðin séu ótraust, verða umrædd skjöl ekki lögð til grundvallar til að leiða líkum að auðkenni kæranda. Framangreindar skýringar kæranda eru ekki til þess fallnar að hafa áhrif á trúverðugleika framlagðra gagna. Þvert á móti gefa skýringar kæranda til kynna að gagnanna hafi ekki verið aflað með lögmætum hætti einkum með vísan til upplýsinga frá lögreglu í skjalarannsóknarskýrslu þar sem fram kemur að fæðingarvottorð og önnur kennivottorð verði ekki útgefin nema þeirra sé aflað í persónu. Þau vottorð sem kærandi lagði fram með beiðni sinni um endurupptöku eru því ófullnægjandi og breyta ekki niðurstöðu kærunefndar í úrskurði, dags. 13. nóvember 2025, um að kærandi hafi ekki lagt fram gögn sem leitt geta líkum að auðkenni hennar eða sem sýna fram á að henni sé ómögulegt að afla gagna um auðkenni.
Að teknu tilliti til þeirra gagna sem kærandi hefur lagt fram við meðferð endurupptökumálsins hjá kærunefnd, og þess sem að framan er rakið, er það niðurstaða kærunefndar að ekkert bendi til þess að atvik málsins hafi breyst svo verulega að tilefni sé til að endurupptaka fyrri úrskurð nefndarinnar. Í ljósi framangreinds er það jafnframt niðurstaða kærunefndar að ekki sé hægt að fallast á að úrskurður kærunefndar útlendingamála hafi byggst á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum um málsatvik, sbr. 1. og 2. tölul. 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga.
Að öllu framangreindu virtu er kröfu kæranda um endurupptöku málsins því hafnað.
Úrskurðarorð:
Kröfu kæranda um endurupptöku er hafnað.
The request of the appellant to re-examine the case is denied.
Vera Dögg Guðmundsdóttir