17. mars 2026 /

Mál nr. 127/2026-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 127/2026

Þriðjudaginn 17. mars 2026

A gegn B

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Kári Gunndórsson lögfræðingur, Björn Jóhannesson lögfræðingur og Helgi Viborg sálfræðingur.

Með kæru, dags. 18. febrúar 2026, kærði C lögmaður, f.h. A, til úrskurðarnefndar velferðarmála, ákvörðun B, dags. 22. janúar 2026, um að flytja mál sonar kæranda, D, til barnaverndarþjónustu E á grundvelli 15. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002 (bvl.).

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Drengurinn, D, er X ára gamall sonur kæranda. Mál drengsins hefur verið til könnunar hjá B frá 28. desember 2025.

Á 1223. fundi B þann 22. janúar 2026 var mál drengsins tekið fyrir og eftirfarandi bókun gerð og vísað til þess að heimilt væri að kæra ákvörðunina til úrskurðarnefndar velferðarmála:

„Flutningur máls frá B.

Mál barnsins hefur verið til könnunar hjá B frá 28. desember 2025.

Þar sem barnið og forsjáraðili þess hafa flust búferlum til E er könnun málsins flutt til barnaverndarþjónustu E á grundvelli 2. mgr. 15. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002.

Gögn máls sem liggja þegar fyrir hjá B verða send með í flutningi máls.“

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála þann 18. febrúar 2026. Frekari gagnaöflun fór ekki fram.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærð er ákvörðun um flutning máls frá B til barnaverndarþjónustu E á grundvelli 2. mgr. 15. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002.

Forsendur flutnings málsins voru sagðar að barnið og móðir hafi sjálf flust búferlum til E. Þetta sé alls kostar rangt.

Kæru þessari fylgir afrit úrskurðar héraðsdóms Reykjavíkur í máli nr. X, dags. X. febrúar 2026, sem sýnir svo glöggt sem verða má að enginn fótur sé fyrir meintum flutningum. Úrskurður þessi sætir kæru til Landsréttar. Enn fremur sé lagt fram afrit af lögheimili skráningu móður og þ.a.l. barns og sé hún enn skráð til heimilis að F í G.

III.  Niðurstaða

Drengurinn D er X ára gamall. Kærandi er faðir drengsins. Með hinni kærðu ákvörðun B var ákveðið að flytja mál drengsins til barnaverndarþjónustu E með vísan til 15. gr. bvl.

Samkvæmt 6. gr. bvl. er heimilt að skjóta úrskurðum og stjórnsýsluákvörðunum barnaverndarnefnda, eftir því sem nánar er kveðið á um í lögunum, til úrskurðarnefndar velferðarmála, sbr. lög um úrskurðarnefnd velferðarmála nr. 85/2015.

Í 2. mgr. 15. gr. bvl. kemur fram að ef barn flyst úr umdæmi barnaverndarþjónustu á meðan mál þess er til meðferðar skal hún tafarlaust tilkynna flutninginn til barnaverndarþjónustu í umdæminu sem barnið flytur í og upplýsa hana um stöðu málsins. Barnaverndarþjónustu í umdæminu sem barnið flytur í ber að taka strax við meðferð málsins og tryggja samfellu í vinnslu og meðferð þess. Barnaverndarþjónustunum er heimilt að hafa áframhaldandi samskipti um málið að því marki sem það er nauðsynlegt til að tryggja samfellu í meðferð þess.

Í ákvæðinu er ekki kveðið á um að ákvörðun barnaverndarþjónustu um að tilkynna flutning barns til annars umdæmis á grundvelli 2. mgr. 15. gr. bvl. sé kæranleg til úrskurðarnefndar velferðarmála.

Með vísan til framangreinds er kæru vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Kæru A, vegna ákvörðunar B, dags. 22. janúar 2026, um að flytja mál sonar kæranda, D, til barnaverndarþjónustu E samkvæmt 15. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002, er vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Kári Gunndórsson