17. mars 2026 /

Mál nr. 4/2026-Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 4/2026

Þriðjudaginn 17. mars 2026

A gegn B

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Kári Gunndórsson lögfræðingur, Björn Jóhannesson lögfræðingur og Helgi Vilborg, sálfræðingur.

Með kæru, dags. 5. janúar 2026, kærði A, til úrskurðar-nefndar velferðarmála ákvarðanir og málsmeðferð B í máli dóttur hans.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála þann 5. janúar 2026. Með bréfi  úrskurðarnefndarinnar til kæranda,  dags. 5. janúar 2026, óskaði nefndin eftir því að kærandi sendi úrskurðarnefndinni afrit af hinni kærðu ákvörðun. Beiðnin var síðan ítrekuð með tölvupóstum til kæranda þann 13. janúar 2026 og 22. janúar 2026. Kærandi hefur ekki svarað erindum úrskurðarnefndarinnar. Samkvæmt upplýsingum frá B er mál kæranda til vinnslu hjá þjónustunni.

Frekari gagna var ekki aflað vegna kærunnar.

II.  Sjónarmið kæranda

Í kæru segir að kærðar séu ákvarðanir og málsmeðferð B í máli dóttur kæranda. Kærandi telji að málsmeðferðin hafi verið haldin verulegum annmörkum og brjóti gegn ákvæðum barnaverndarlaga nr. 80/2002 (bvl.) sem og grundvallarreglum stjórnsýsluréttar. Kærandi sér forsjárlaus foreldri en hafi haft barnið hjá sér aðra hverja viku samfellt í sex ár, án athugasemda eða vandkvæða. Þrátt fyrir það hafi B litið á kæranda sem áhættuþátt og jafnvel farið fram á að umgengni hans við barnið fari fram undir eftirliti, án þess að slíkt sé byggt á gögnum, atvikum eða faglegu mati. Kærandi telji að slík ráðstöfun uppfylli ekki skilyrði 74. gr. bvl. um brýna nauðsyn og meðalhóf. Umgengni barnsins við aðra nána aðstandendur, þar á meðal afa og ömmu, hafi verið verulega takmörkuð án fullnægjandi rökstuðnings eða rannsóknar. Kærandi telji að þar hafi verið brotið gegn rannsóknarskyldu samkvæmt 10. gr. stjórnsýslulaga og meginreglu bvl. um rétt barns til að viðhalda fjölskyldutengslum. Móðir barnsins hafi verið svipt forræði ítrekað á skömmum tíma. Þrátt fyrir það hafi B ekki unnið markvisst að varanlegri lausn fyrir barnið, í andstöðu við 41. gr. bvl. Barnið hafi verið sett í fóstur í C, sem leiði til daglegra, afar íþyngjandi ferðalaga til skóla í Reykjavík. Kærandi telji að sú ráðstöfun samræmist ekki 65. gr. barnaverndarlaga um stöðugt og eðlilegt daglegt líf barns.

Á grundvelli framangreinds telur kærandi að ákvarðanir B skorti fullnægjandi lagastoð, rökstuðning og heildstætt mat á hagsmunum barnsins. Kærandi krefst þess að kærðar ákvarðanir verði felldar úr gildi eða þeim breytt, og að lagt verði fyrir B að taka málið til nýrrar meðferðar í samræmi við lög, meðalhóf og raunverulega hagsmuni barnsins.

III.  Niðurstaða

Samkvæmt 1. mgr. 51. gr. bvl. geta aðilar barnaverndarmáls skotið úrskurði eða ákvörðun samkvæmt 6. gr. laganna til úrskurðarnefndar velferðarmála innan fjögurra vikna frá því að viðkomandi var tilkynnt um úrskurð eða ákvörðun.

Hlutverk úrskurðarnefndar velferðarmála er að úrskurða í kærumálum vegna stjórnvaldsákvarðana eftir því sem mælt er fyrir um í lögum sem kveða á um málskot til nefndarinnar, sbr. 1. gr. laga nr. 85/2015 um úrskurðarnefnd velferðarmála.

Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum málsins er ljóst að mál kærenda er til vinnslu hjá B. Ekki verður þó séð að fyrir liggi ákvörðun af hálfu B sem sé kæranleg til úrskurðarnefndar velferðarmála. Kæru er því vísað frá úrskurðarnefndinni.

Úrskurðarnefndin bendir kæranda á að samkvæmt 5. mgr. 74. gr. bvl. geta þeir sem umgengni eiga að rækja óskað breytinga á ákvæðum samnings um umgengnisrétt. Náist ekki samkomulag um slíka breytingu tekur umdæmisráð barnaverndar ákvörðun með úrskurði. Skv. 8. mgr. 74. gr. geta þeir sem umgengni eiga að rækja skotið úrskurði umdæmisráðs til úrskurðarnefndar velferðarmála.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Kæru A, er vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Kári Gunndórsson